Ferill 187. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 202 — 187. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um bólusetningu gegn RS-veiru.
Frá Bryndísi Haraldsdóttur.
1. Hverjir fá bólusetningu gegn RS-veiru?
2. Geta börn eldri en sex mánaða fengið fyrrnefnda bólusetningu? Ef svo er ekki, stendur til að slík bólusetning verði í boði fyrir þau?
3. Hver er áætlaður ávinningur bólusetningar gegn RS-veiru?
4. Hefur bóluefnið verið nýtt í nágrannalöndum okkar og hver er reynslan af því?
Skriflegt svar óskast.