Ferill 188. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 203 — 188. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um forgang við veitingu dvalarleyfa.
Frá Bryndísi Haraldsdóttur.
Telur ráðherra að sú túlkun Útlendingastofnunar á lögum um útlendinga, nr. 80/2016, að stofnuninni beri að afgreiða umsóknir aðstandenda EES/EFTA-borgara um dvalarleyfi hraðar en sams konar umsóknir aðstandenda íslenskra ríkisborgara, sé rétt? Ef svo er, telur ráðherra rétt að breyta lögunum og afnema forgang EES/EFTA-borgara umfram íslenska ríkisborgara við veitingu dvalarleyfa?
Skriflegt svar óskast.