Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 208, 157. löggjafarþing 105. mál: stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála (stefnumörkun).
Lög nr. 68 23. október 2025.
Lög þessi gilda um stefnur á sviði innviða og gerð þeirra ásamt aðgerðaáætlunum, að því marki sem ekki er kveðið á um þær í öðrum lögum.
Ráðherra leggur fram á Alþingi á hverju kjörtímabili tillögur til þingsályktana um stefnur til fimmtán ára á hverju sviði fyrir sig.
Þingskjal 208, 157. löggjafarþing 105. mál: stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála (stefnumörkun).
Lög nr. 68 23. október 2025.
Lög um breytingu á lögum um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála, nr. 30/2023 (stefnumörkun).
1. gr.
Í stað orðanna „húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna, byggðamála og sveitarstjórnarmála“ í 1. gr. laganna kemur: innviða.2. gr.
2. gr. laganna orðast svo:Lög þessi gilda um stefnur á sviði innviða og gerð þeirra ásamt aðgerðaáætlunum, að því marki sem ekki er kveðið á um þær í öðrum lögum.
3. gr.
1. mgr. 3. gr. laganna orðast svo:Ráðherra leggur fram á Alþingi á hverju kjörtímabili tillögur til þingsályktana um stefnur til fimmtán ára á hverju sviði fyrir sig.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. laganna:- 1. mgr. orðast svo:
- Í stað orðanna „Ráðin skulu með virku samráði sín á milli gæta að því að tillögur þeirra uppfylli“ í 2. mgr. kemur: Tillögur skv. 1. mgr. skulu uppfylla.
- Í stað orðanna „Ráðin skulu hvert um sig skipuð“ í 3. mgr. kemur: Stefnuráð skal skipað.
5. gr.
Heiti laganna verður: Lög um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði innviða.6. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.7. gr.
Við gildistöku laga þessara verða eftirfarandi breytingar á öðrum lögum:- Lög um húsnæðismál, nr. 44/1998: 14. gr. b laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:
- Skipulagslög, nr. 123/2010: 1. mgr. 11. gr. laganna orðast svo:
Samþykkt á Alþingi 16. október 2025.