Ferill 85. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 213  —  85. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um borgarstefnu fyrir árin 2025–2040.

Frá meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá innviðaráðuneyti.
    Nefndinni bárust 11 umsagnir sem aðgengilegar eru undir málinu á vef Alþingis.
    Í tillögunni er mælt fyrir um að ríkisstjórninni verði falið að vinna að framkvæmd borgarstefnu sem verði hluti af samhæfingu stefna í samgöngumálum, byggðamálum og málefnum sveitarfélaga og taki mið af samþykktum stefnum stjórnvalda á öðrum málefnasviðum. Samkvæmt tillögunni skal borgarstefna stuðla að þróun og eflingu tveggja borgarsvæða á Íslandi, annars vegar styrkja höfuðborgina Reykjavík, höfuðborgarsvæðið og hið virka svæði þess, og hins vegar að skilgreina Akureyri sem svæðisborg, efla hana sem slíka, hlutverk hennar og hið virka svæði.

Umfjöllun nefndarinnar.
    Tillagan var lögð fram á 156. löggjafarþingi og afgreidd frá umhverfis- og samgöngunefnd með áliti meiri hluta nefndarinnar til 2. umræðu hinn 28. maí sl. (þskj. 610, 158. mál). Líkt og fram kemur í greinargerð tillögunnar er hún endurflutt frá 156. löggjafarþingi með breytingum í samræmi við nefndarálit með breytingartillögu frá meiri hluta nefndarinnar. Voru þannig settar inn skilgreiningar á þremur hugtökum, þ.e. svæðisborg, borgarsvæði Reykjavíkur og höfuðborgarsvæðisins og borgarsvæði Akureyrar. Meiri hlutinn fagnar þessu og vísar að öðru leyti í umfjöllun sína og áherslur sem fram koma í áðurnefndu áliti.
    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að tillagan verði samþykkt óbreytt.

Alþingi, 16. október 2025.

Guðbrandur Einarsson,
form.
Dagur B. Eggertsson,
frsm.
Ása Berglind Hjálmarsdóttir.
Jónína Björk Óskarsdóttir. Sigurður Helgi Pálmason.