Ferill 130. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 221 — 130. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Tryggva Mássyni um þjónustugjöld.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvaða þjónustugjöld hafa ráðuneytið og undirstofnanir þess heimild til að innheimta, hver er fjárhæð hvers þjónustugjalds, hver er lagastoð fyrir hverju gjaldi og hvaða útreikningur eða áætlun á þeim kostnaði sem hlýst af því að veita umrædda þjónustu liggur til grundvallar hverju gjaldi? Svar óskast sundurliðað eftir stofnun.
Ráðuneytið innheimtir ekki þjónustugjöld. Þjónustugjöld sem innheimt eru í heilbrigðiskerfinu af undirstofnunum ráðuneytisins skipta hundruðum eða þúsundum og samantekt á hverju og einu gjaldi, ásamt upplýsingum um áætlun á kostnaði, myndi kalla á svo umfangsmikla vinnu af hálfu ráðuneytisins að fyrirspurninni yrði ekki svarað innan þess ramma sem ákveðinn er í 6. mgr. 57. gr. þingskapalaga, nr. 55/1991. Þá væri ekki unnt að svara henni í stuttu máli, líkt og gert er ráð fyrir í 1. mgr. 57. gr. sömu laga. Með vísan til framangreinds getur ráðuneytið ekki svarað fyrirspurninni eins og hún er sett fram en að neðan eru almennar upplýsingar um gjaldtöku undirstofnana ráðuneytisins, svo sem vegna heilbrigðisþjónustu og stjórnsýslu.
Mælt er fyrir um gjaldtökuheimildir fyrir heilbrigðisþjónustu og aðstoð sem sjúkratryggðir einstaklingar eiga rétt á á grundvelli laga eða samninga í 29. gr. laga um sjúkratryggingar, en samkvæmt ákvæðinu er m.a. heimilt að taka gjald fyrir heilsugæslu, sjúkrahúsþjónustu, þjónustu sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmanna, rannsóknir/myndgreiningar og dvöl á sjúkrahóteli. Fjárhæð gjaldanna er ákveðin í reglugerð sem ráðherra setur.
Greiðsluþátttaka sjúkratryggðra vegna heilbrigðisþjónustu er ákveðin í reglugerð nr. 1582/2024 og er gjaldtaka í mörgum liðum. Þannig greiða almennir sjúkratryggðir t.d. 500 kr. vegna komu á heilsugæslu og 8.909 kr. fyrir komu og endurkomu á slysadeild og bráðamóttöku sjúkrahúsa. Fyrir komu til sérgreinalæknis eða sjúkraþjálfara greiðir sjúkratryggður almennt 90% af umsömdu eða ákveðnu heildarverði fyrir komu, en endanleg fjárhæð veltur á þeirri þjónustu sem veitt er í komu. Greiðsluþátttaka sjúkratryggðra vegna heilbrigðisþjónustu stendur almennt aðeins undir litlum hluta þess kostnaðar sem hlýst af því að veita þjónustuna. Í reglugerð nr. 429/2019, um dvöl á sjúkrahóteli, er gjald vegna dvalar á sjúkrahóteli ákveðið 1.890 kr. á dag fyrir sjúkratryggðan. Upplýsingar um gjaldskrár Landspítala er að finna á vef spítalans og þar er einnig sundurliðun á kostnaði sem sjúkratryggðir þurfa að standa straum af, t.d. vegna þjónustu sérgreinalækna og rannsókna.
Þeir sem ekki eru sjúkratryggðir hér á landi greiða gjald fyrir heilbrigðisþjónustu samkvæmt reglugerð nr. 1577/2024, en fjárhæðir gjalda eru byggðar á raunkostnaði við veitingu þjónustunnar.
Embætti landlæknis hefur heimild til að innheimta gjald vegna afgreiðslu umsókna um starfsleyfi og sérfræðileyfi, sbr. reglugerð nr. 429/2024. Reglugerðin á sér stoð í 31. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012. Gjald fyrir umsögn vegna mats á umsókn um starfsleyfi á grundvelli náms á framhaldsskólastigi er 54.400 kr., gjald fyrir umsögn vegna mats á umsókn um starfsleyfi á grundvelli náms á háskólastigi er 73.600 kr. og gjald fyrir umsögn vegna mats á umsókn um sérfræðileyfi er 73.600 kr. Gjaldið byggist á áætlaðri vinnu sérfræðings embættisins við yfirferð á gögnum sem fylgja umsókn um starfsleyfi eða sérfræðileyfi. Þá hefur embætti landlæknis heimild skv. 6. mgr. 6. gr. laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu, að taka gjald fyrir úttekt og staðfestingu á því að faglegar kröfur séu uppfylltar. Eru gjöldin ákveðin í reglugerð nr. 226/2016 og nema allt frá 9.735 kr. fyrir stofurekstur heilbrigðisstarfsmanns til 880.000 kr. fyrir sérgreinasjúkrahús.
Í XVIII. kafla lyfjalaga, nr. 100/2020, eru gjaldtökuheimildir Lyfjastofnunar. Er stofnuninni m.a. heimilt að taka gjald fyrir útgáfu markaðsleyfa, breytingar á markaðsleyfum, rannsóknir á vegum stofnunarinnar vegna eftirlits, útgáfu lyfjaverðskrár og fleira, sbr. 89. gr. laganna. Vegna útgáfu leyfa samkvæmt lögunum, annarra en markaðsleyfa og leyfa til samhliða innflutnings lyfja, er heimilt að taka gjald, þ.m.t. gjald sem endurspeglar þann kostnað sem hlýst af vinnu við útgáfu leyfa, svo sem ferðakostnað starfsmanna Lyfjastofnunar hérlendis og erlendis og kostnað við að fá til landsins sérfræðinga til aðstoðar, sbr. 11. tölul. 1. mgr. 89. gr. laganna. Þá er heimilt að taka eftirlitsgjald til að standa undir kostnaði við reglubundið eftirlit Lyfjastofnunar en gerð er grein fyrir ákvörðun gjaldsins í 2. mgr. 90. gr. laganna. Nánari upplýsingar um fjárhæð gjalda er að finna í gjaldskrá Lyfjastofnunar, nr. 1554/2023.
Samkvæmt 19. gr. laga um geislavarnir, nr. 44/2002, setur ráðherra gjaldskrá vegna eftirlits Geislavarna ríkisins, en gjaldskráin skal taka mið af kostnaði við eftirlitið. Gjaldskráin, nr. 1576/2024, kveður á um eftirlitsgjöld í fjölmörgum liðum vegna lögbundins eftirlits með geislatækjum og geislavirkum efnum.
Framangreind gjöld eru aðeins dæmi um þjónustugjöld sem innheimt eru í heilbrigðiskerfinu en í ljósi þess hve fyrirspurnin er víðtæk er ekki unnt að veita nánari svör í ljósi fyrrgreindra sjónarmiða um stutt og afmörkuð svör við þingfyrirspurnum.