Ferill 198. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 226  —  198. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og barnamálaráðherra um sérúrræði.

Frá Ingibjörgu Isaksen.


     1.      Hvernig eru sérúrræði og heilbrigðistengd stuðningsúrræði innan menntakerfisins skilgreind og flokkuð, og hvaða aðilar bera ábyrgð á kostnaði þeim tengdum?
     2.      Hversu mikill hluti útgjalda menntakerfisins fer til slíkra úrræða, sundurliðað eftir skólastigum og þjónustuflokkum?
     3.      Hefur ráðuneytið eða Hagstofa Íslands metið hvernig þessi flokkun hefur áhrif á samanburð Íslands við önnur OECD-lönd hvað varðar útgjöld til menntamála?
     4.      Er unnið að því, í samráði við heilbrigðisráðuneyti, að greina eða endurskoða verkaskiptingu milli heilbrigðiskerfisins og menntakerfisins með það fyrir augum að ná fram skýrari aðgreiningu milli mennta- og heilbrigðisþjónustu?


Skriflegt svar óskast.