Ferill 201. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 230  —  201. mál.




Beiðni um skýrslu


frá innviðaráðherra um jöfnun kostnaðar vegna flugvélaeldsneytis.


Frá Ingibjörgu Isaksen, Sigurði Inga Jóhannssyni, Höllu Hrund Logadóttur, Þórarni Inga Péturssyni, Stefáni Vagni Stefánssyni, Jens Garðari Helgasyni, Ingvari Þóroddssyni, Eydísi Ásbjörnsdóttur, Þorgrími Sigmundssyni og Njáli Trausta Friðbertssyni.


    Með vísan til 54. gr. stjórnarskrárinnar og 54. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að ráðherra flytji Alþingi skýrslu um hugsanlegar aðgerðir til að lækka kostnað vegna flugvélaeldsneytis og afgreiðslu þess á Akureyrarflugvelli og Egilsstaðaflugvelli svo að hann verði jafn kostnaðinum á þeim flugvelli þar sem hann er lægstur. Umfjöllunarefni skýrslunnar verði eftirfarandi:
     a.      Aðstöðumunur flugvalla með tilliti til kostnaðar vegna flugvélaeldsneytis og afgreiðslu þess.
     b.      Úttekt á hugsanlegum aðgerðum til jöfnunar á framangreindum kostnaði og greining á kostnaði við þær aðgerðir.
     c.      Mat á því hver hagkvæmasta aðgerðin eða hagkvæmustu aðgerðirnar eru til að ná fyrrgreindu markmiði.
     d.      Fýsileiki þess tryggja örugga birgðastöð flugvélaeldsneytis á Akureyri og Egilsstöðum.

Greinargerð.

    Beiðni þessi var áður lögð fram á 153. löggjafarþingi en skýrsla barst ekki á þinginu (569. mál).
    Nær allar flugvélar í atvinnuflugi nota flugsteinolíu sem eldsneyti, svonefnt Jet A-1. Öll flugsteinolía, sem notuð er á flugvélar hér á landi, er flutt inn til landsins og geymd í Helguvík, og miklar kröfur eru gerðar varðandi meðhöndlun hennar. Vegna þessa er afgreiðsla flugsteinolíu dýrari en afgreiðsla annarra tegunda eldsneytis. Á Keflavíkurflugvelli, langstærsta flugvelli landsins, er samkeppni til staðar milli félaga um afgreiðslu flugsteinolíu. Þar er kostnaður af flugsteinolíu og afgreiðslu þess lægstur á landinu. Hins vegar er aðeins einn aðili sem veitir slíka þjónustu á Akureyrarflugvelli og Egilsstaðaflugvelli. Því er einingarverð á flugsteinolíu, þ.e. kostnaður fyrir hvern lítra, töluvert hærra á Akureyrarflugvelli og Egilsstaðaflugvelli, sbr. greiningu sérfræðinga.
    Það er því skýr aðstöðumunur milli flugvalla, sem ber að lagfæra á grundvelli byggðasjónarmiða, umhverfissjónarmiða og öryggissjónarmiða.
    Einnig er vert að benda á að mikill verðmunur leiðir til þess að flugrekendur eru líklegri til að kaupa meiri flugsteinolíu en þörf er á og þyngja vélar í kjölfarið. Þyngri vélar losa meira, sem fer gegn markmiðum Íslands í umhverfismálum. Einnig er það öryggismál að eldsneytisbirgðir séu nægar og aðgengilegar á öllum flugvöllum.
    Sérfræðingar hafa bent á nauðsyn þess að jafna kostnað vegna flugvélaeldsneytis og mögulegar leiðir til þess. Meðal þeirra leiða er niðurgreiðsla kostnaðar við flutning og afgreiðslu flugsteinolíu af hálfu ríkisins. Hins vegar er það álitamál hvernig framkvæma eigi slíka niðurgreiðslu, hlutfall hennar og fyrir hvaða flugferðir yrði niðurgreitt.
    Einnig hefur verið bent á mögulega fjárfestingu í tanki á Krossanesi og/eða dreifikerfi ásamt fleiri innviðum og afgreiðslubúnaði. Ásamt þessu gæti það verið fýsilegt að stofna óhagnaðardrifið afgreiðslufyrirtæki, sem myndi afgreiða lendingar og brottfarir á umræddum flugvöllum.
    Skýrslubeiðendum er ljóst að ýmsar leiðir eru til að ná því markmiði að jafna kostnað af flugsteinolíu og afgreiðslu hennar milli millilandaflugvalla hér á landi. Um er að ræða mikilvæga aðgerð til jöfnunar atvinnutækifæra á Akureyri og Egilsstöðum.