Ferill 203. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 233  —  203. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um skattfrádrátt vegna kostnaðar við ferðir til og frá vinnu.


Flm.: Sigurður Ingi Jóhannsson, Halla Hrund Logadóttir, Þórarinn Ingi Pétursson, Stefán Vagn Stefánsson, Ingibjörg Isaksen.


    Alþingi ályktar að fela fjármála- og efnahagsráðherra að undirbúa og leggja fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, sem feli í sér heimild ráðherra til að setja reglur um að skattskyldir einstaklingar sem greiða verulegar upphæðir við ferðir til og frá vinnu innan tiltekinna atvinnusvæða geti dregið kostnaðinn frá skattskyldum tekjum.
    Við undirbúning frumvarpsins skal sérstaklega huga að jafnræði með hliðsjón af búsetu, vegalengd og aðgengi að almenningssamgöngum. Þá skal taka mið af þeim áhrifum sem kunna að hljótast af upptöku kílómetragjalds eða notkunargjalds á ökutæki og tryggja að slíkt gjald leiði ekki til ósanngjarnrar dreifingar skattbyrðar á milli landsmanna.
    Ráðherra leggi fram frumvarp eigi síðar en á haustþingi 2026.

Greinargerð.

    Sambærilegar tillögur hafa áður verið lagðar fram á Alþingi, fyrst af Sigurði Inga Jóhannssyni og síðar af Elsu Láru Arnardóttur á 146. löggjafarþingi (287. mál). Þær höfðu það markmið að fela ráðherra að útfæra reglur um skattafslátt eða frádrátt vegna ferða til og frá vinnu innan tiltekinna atvinnusvæða. Með þessari endurnýjuðu tillögu er efnisinnihaldi þeirra haldið til streitu en nýjum rökum bætt við sem varða breyttar forsendur í gjaldtöku vegna aksturs.
    Markmið tillögunnar er að tryggja réttláta meðferð þeirra sem bera verulegan kostnað vegna daglegra ferða til og frá vinnu. Með aukinni sameiningu atvinnusvæða, stækkandi byggðarkjörnum og fjölgun starfa sem krefjast daglegra ferða um langa vegu hefur þessi þáttur í útgjöldum heimilanna vaxið mikið. Margt launafólk þarf daglega að aka tugi kílómetra til vinnu þar sem almenningssamgöngur eru af skornum skammti eða ekki fyrir hendi. Slíkar ferðir hafa í för með sér verulegan fjárhagslegan kostnað.
    Þrátt fyrir þessa staðreynd er ekki í gildi sérstök heimild til skattfrádráttar vegna slíks kostnaðar. Það hefur leitt til þess að íbúar á landsbyggðinni og í dreifðum byggðum bera meiri kostnað af atvinnuþátttöku sinni en íbúar á höfuðborgarsvæðinu og öðrum þéttbýlissvæðum þar sem fjarlægð milli vinnustaðar og heimilis er oft styttri og almenningssamgöngur greiðari. Tillagan miðar að því að leiðrétta þessa mismunun og tryggja jafnræði milli landsmanna í skattalegu tilliti.
    Í því sambandi ber sérstaklega að nefna fyrirhugaða upptöku kílómetragjalds eða notkunargjalds á ökutæki, sem ætlað er að mæla og gjaldleggja akstur eftir kílómetrum. Slíkt gjald, sem í eðli sínu er notkunargjald á vegakerfið, getur haft í för með sér aukinn kostnað fyrir þá sem aka lengri vegalengdir daglega, einkum í dreifbýli. Án mótvægisaðgerða leiðir það til þess að þessir hópar greiða bæði notkunargjald og bera áfram allan kostnað af ferðum til vinnu án nokkurs frádráttar í skattkerfinu.
    Því er nauðsynlegt að samhliða innleiðingu slíks gjalds verði komið á mótvægisaðgerðum í formi skattfrádráttar, þannig að jafnræði sé tryggt milli landsmanna og komið í veg fyrir tvísköttun á þann kostnað sem óhjákvæmilegur er vegna atvinnuþátttöku. Einnig er mikilvægt að við útfærslu reglna verði tekið mið af raunverulegum kostnaði, vegalengdum og möguleikum á að nýta almenningssamgöngur. Ráðherra skal setja viðmið um hvaða ferðir teljist til frádráttar, hvaða fjarlægðir og ferðatíðni komi til álita og með hvaða hætti sanna megi kostnað. Þá ber að tryggja að ákvæðin verði skýr, sanngjörn og einföld í framkvæmd.
    Með samþykkt tillögunnar yrði stigið mikilvægt skref til að jafna stöðu landsmanna í skattkerfinu, bæta samkeppnisskilyrði atvinnusvæða og tryggja að kostnaður vegna atvinnuþátttöku sé meðhöndlaður á réttlátan hátt, í samræmi við raunverulegar aðstæður fólks á landinu öllu.