Ferill 207. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 237 — 207. mál.
Fyrirspurn
til félags- og húsnæðismálaráðherra um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Frá Ingibjörgu Davíðsdóttur.
1. Hefur ráðherra í hyggju að beita sér fyrir breytingu á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, þannig að ríkissjóði verði heimilt að endurgreiða sveitarfélögum fjárhagsaðstoð við erlenda ríkisborgara sem átt hafa lögheimili á Íslandi lengur en tvö ár? Ef svo er, hvenær verður frumvarp þar að lútandi lagt fram?
2. Hyggst ráðherra bregðast við ákalli Borgarbyggðar um að mæta kostnaði vegna fjölda flóttamanna sem búa á Bifröst, þar á meðal barna og eldri borgara? Ef svo er, með hvaða hætti?
3. Hver er ábyrgð ráðuneytisins á núverandi stöðu á Bifröst og hvernig hyggst ráðuneytið bregðast við?
Skriflegt svar óskast.
Greinargerð.