Ferill 208. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 238 — 208. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um húsaleigu framhaldsskóla.
Frá Þorgrími Sigmundssyni.
1. Hvernig hefur innri húsaleiga framhaldsskóla landsins þróast frá árinu 2018, sundurliðað eftir skólum og árum?
a. Hafi hún hækkað, hvað skýrir hækkunina?
b. Hafi hún lækkað, hvað skýrir lækkunina?
2. Hver hafa framlög ríkisins vegna húsaleigu verið til framhaldsskóla landsins frá árinu 2018, sundurliðað eftir skólum og árum?
3. Hver hafa heildarframlög til framhaldsskóla verið vegna húsaleigu frá árinu 2018, sundurliðað eftir árum?
4. Eru leigufjárhæðir reiknaðar út frá meðalleigu á fermetra þar sem viðkomandi stofnun er staðsett eða er um eitt verð að ræða, reiknað út frá húsaleigu í Reykjavík?
Skriflegt svar óskast.