Ferill 101. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 240 — 101. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um starfstengda eftirlaunasjóði.
Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.
Nefndinni bárust engar umsagnir.
Með frumvarpinu er lagt til að sett verði ný heildarlög um starfstengda eftirlaunasjóði. Frumvarpið felur í sér innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/2341 um starfsemi og eftirlit með stofnunum sem sjá um starfstengdan lífeyri (IORP II). Tilskipunin felur í sér endurútgáfu á IORP I sem var innleidd í íslenskan rétt með lögum um starfstengda eftirlaunasjóði, nr. 78/2007, en þau lög falla úr gildi við gildistöku nýju laganna.
Frumvarpið var áður lagt fram á 156. löggjafarþingi og afgreitt frá efnahags- og viðskiptanefnd með áliti meiri hlutans til 2. umræðu 20. júní sl. ( þskj. 764 og 765, 252. mál) en hlaut ekki lokaafgreiðslu fyrir þinglok. Fram kemur í greinargerð með frumvarpinu að minni háttar orðalagsbreytingar hafa verið gerðar á frumvarpinu til samræmis við breytingartillögu meiri hluta nefndarinnar. Jafnframt er rakin í greinargerð breyting á orðalagi 6. mgr. 8. gr. frumvarpsins til samræmis við umsögn Seðlabanka Íslands sem nefndinni barst vegna málsins á síðasta löggjafarþingi.
Meiri hlutinn leggur til eina breytingartillögu, lagfæringu á misritun, en vísar að öðru leyti til fyrri umfjöllunar sinnar sem fram kom í áðurnefndu áliti á síðasta löggjafarþingi.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
Í stað orðsins „eftirlitssjóðs“ í 2. og 6. mgr. 8. gr. komi: eftirlaunasjóðs.
Alþingi, 21. október 2025.
| Arna Lára Jónsdóttir, form. |
Sigmundur Ernir Rúnarsson, frsm. |
Ásthildur Lóa Þórsdóttir. | |
| Pawel Bartoszek. | Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir. | ||