Ferill 211. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 242 — 211. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um skimanir fyrir legháls- og brjóstakrabbameini.
Frá Bryndísi Haraldsdóttur.
1. Hversu hátt hlutfall kvenna fer í skimanir fyrir leghálskrabbameini og brjóstakrabbameini og hver er ávinningurinn af þeim skimunum?
2. Stendur til að bólusetja konur á aldrinum 25–37 ára gegn leghálskrabbameini? Ef ekki, hvers vegna?
3. Hversu mikilvægt er átakið „bleikur október“ og góðgerðarfélagið Lífskraftur að mati ráðherra?
Skriflegt svar óskast.