Ferill 212. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 243 — 212. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og barnamálaráðherra um íslenskukunnáttu leikskólastarfsmanna.
Frá Jóni Pétri Zimsen.
Hve margir starfsmenn leikskóla sem vinna með börnum eru ekki með íslensku sem móðurmál og hversu margir uppfylla ekki viðmið B2 í færni í íslensku samkvæmt samevrópska tungumálarammanum (CEFR), og hvert er hlutfall þeirra miðað við þá sem uppfylla viðmið B2? Svar óskast sundurliðað eftir sveitarfélögum.
Skriflegt svar óskast.