Ferill 213. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 249 — 213. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um bætur vegna varanlegs miska og örorku.
Frá Tómasi Þór Þórðarsyni.
1. Hvaða rök liggja að baki skilyrði 1. mgr. 2. gr. laga um greiðslu ríkissjóðs á bótum til þolenda afbrota, nr. 69/1995, um að varanlegur miski sé ekki bættur úr ríkissjóði nema hann sé að lágmarki 5%?
2. Hvaða rök liggja að baki skilyrði fyrrnefnds ákvæðis um að varanleg örorka sé ekki bætt úr ríkissjóði nema hún sé að lágmarki 15%?
3. Telur ráðherra framangreind lágmörk standast jafnræðisreglu 65. gr. stjórnarskrárinnar?
Skriflegt svar óskast.