Ferill 214. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 250  —  214. mál.




Fyrirspurn


til atvinnuvegaráðherra um kostnað við eftirlit með hvalveiðum.

Frá Sigmundi Erni Rúnarssyni.


     1.      Hvenær var gerð sú breyting að leyfishafi hvalveiða og vinnslu hvalaafurða væri undanþeginn greiðslu kostnaðar við eftirlit með starfseminni og hver hefur borið þann kostnað síðan?
     2.      Hver hefur kostnaður ríkisins við eftirlit með hvalveiðum verið frá því að breytingin tók gildi? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
     3.      Gilda sambærilegar undanþágur um aðrar atvinnugreinar þar sem opinbert eftirlit fer fram?


Skriflegt svar óskast.