Ferill 2. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 256  —  2. mál.

2. umræða.


Breytingartillaga


við frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2026.

Frá Vilhjálmi Árnasyni.


     1.      Á eftir 18. gr. komi tvær nýjar greinar, svohljóðandi:
                  a.      (19. gr.)
                     Í stað ,,2025“ í 1. málsl. 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða XVI í lögunum kemur: 2026.
                  b.      (20. gr.)
                     Í stað ,,2025“ tvívegis í 1. málsl. 1. mgr. og í 3. málsl. 2. mgr. ákvæðis til bráðabirgða XVII í lögunum kemur: 2026.
     2.      25. gr. falli brott.
     3.      26. gr. falli brott.
     4.      Á eftir 28. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
                  Í stað „2025“ í 1. og 2. mgr. ákvæðis til bráðabirgða LV í lögunum kemur: 2026.
     5.      30. gr. falli brott.

Greinargerð.

    Fjölskyldan er hornsteinn samfélagsins. Tilgangurinn með breytingartillögu þessari er að tryggja að hjón og sambúðarfólk geti áfram samnýtt skattþrep, einstaklingar geti áfram nýtt hluta ónýtts persónuafsláttar til greiðslu fjármagnstekjuskatts og að heimild til skattfrjálsrar ráðstöfunar á séreignarsparnaði inn á húsnæðislán verði framlengd.