Ferill 128. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 258  —  128. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Tryggva Mássyni um þjónustugjöld.



    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvaða þjónustugjöld hafa ráðuneytið og undirstofnanir þess heimild til að innheimta, hver er fjárhæð hvers þjónustugjalds, hver er lagastoð fyrir hverju gjaldi og hvaða útreikningur eða áætlun á þeim kostnaði sem hlýst af því að veita umrædda þjónustu liggur til grundvallar hverju gjaldi? Svar óskast sundurliðað eftir stofnun.

    Öll þjónustugjöld sem stofnanir ráðuneytisins innheimta eru birtar í gjaldskrám sem eru samþykktar af ráðuneytinu og auglýstar í B-deild Stjórnartíðinda. Í gjaldskrám kemur jafnframt fram á hvaða lagaheimild gjaldtakan er byggð. Upphæð þjónustugjalda er ætlað að endurspegla raunkostnað við veitta þjónustu, svo sem tímagjald vegna vinnu sérfræðings. Gjaldskrár undirstofnana má sjá í yfirliti að aftan.

Stofnun Lagaheimild
Innviðaráðuneytið Innheimtir ekki þjónustugjöld.
Byggðastofnun Innheimtir þjónustugjöld samkvæmt gjaldskrá stofnunarinnar, nr. 1126/2022, sem byggist á heimild í lögum um Byggðastofnun, nr. 106/1999.
Fjarskiptastofa Innheimtir þjónustugjöld samkvæmt gjaldskrá stofnunarinnar, nr. 1115/2006, sem byggist á heimild í lögum um Fjarskiptastofu, nr. 75/2021.
Rannsóknarnefnd samgönguslysa Innheimtir ekki þjónustugjöld.
Samgöngustofa Innheimtir þjónustugjöld sem tilgreind eru í þeim lögum sem um stofnunina gilda. Um er að ræða eftirfarandi lagaheimildir:

* Lög um Samgöngustofu, stjórnsýslustofnun samgöngumála, nr. 119/2012, 13. gr.
* Lög um loftferðir, nr. 80/2022.
* Umferðarlög, nr. 77/2019.
* Lög um leigu skráningarskyldra ökutækja, nr. 65/2015.
* Lög um farþegaflutninga og farmflutninga á landi, nr. 28/2017.
* Lög um leigubifreiðaakstur, nr. 120/2022.
* Skipalög, nr. 66/2021.
* Lög um siglingavernd, nr. 50/2004.
* Lög um áhafnir skipa, nr. 82/2022.
* Lög um köfun, nr. 81/2018.
Um gjaldtöku fyrir þjónustu stofnunarinnar fer samkvæmt gjaldskrá, nr. 1618/2024, sem gefin er út árlega.
Vegagerðin Innheimtir ekki þjónustugjöld.