Ferill 48. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 275  —  48. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi, nr. 26/2010 (meðalhófsprófun, EES-reglur).

Frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá menningar-, nýsköpunar-, og háskólaráðuneyti. Nefndinni bárust fimm umsagnir sem eru aðgengilegar undir málinu á vef Alþingis.
    Með frumvarpinu er lagt til að innleidd verði tilskipun (ESB) 2018/958 um meðalhófsprófun áður en ný lögverndun starfsgreina er samþykkt. Markmið tilskipunarinnar er að koma í veg fyrir ótilhlýðilegar takmarkanir á aðgangi að lögvernduðum starfsgreinum eða iðkun þeirra og að tryggja eðlilega starfsemi innri markaðarins, gagnsæi og öfluga neytendavernd.

Umfjöllun nefndarinnar.
    Málið er endurflutt en það var til umfjöllunar hjá allsherjar- og menntamálanefnd á 156. löggjafarþingi. Frumvarpið var afgreitt til 2. umræðu 20. maí 2025 með áliti meiri hluta nefndarinnar ( þskj. 533, 103. mál) en hlaut ekki lokaafgreiðslu fyrir þinglok.
    Frumvarpið er nú lagt fram að nýju óbreytt. Nefndin hefur haft til hliðsjónar umsagnir sem borist hafa um málið, auk þeirra umsagna sem liggja fyrir frá 156. löggjafarþingi, og eru aðgengilegar undir málinu á vef Alþingis, og minnisblað frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti. Til viðbótar við þá umfjöllun sem málið hefur nú fengið vísar meiri hlutinn til fyrri umfjöllunar og þeirra áherslna sem fram koma í áðurnefndu áliti frá 156. löggjafarþingi.
    Í frumvarpinu er mælt fyrir um að stjórnvöld þurfi að framkvæma sérstakt mat áður en reglur um lögverndun starfs eru settar eða þeim breytt. Er þannig leitast við að tryggja að skorður við atvinnufrelsi séu eingöngu settar með það að markmiði að tryggja almannahagsmuni. Ef frumvarpið verður að lögum þurfa stjórnvöld að tryggja að meðalhófsprófun á nýjum eða breyttum reglum um aðgengi að lögvernduðum starfsgreinum, eða iðkun þeirra, fari fram og kanna þannig hvort önnur úrræði en löggilding geti náð því markmiði sem stefnt er að hverju sinni. Frumvarpið felur ekki í sér skyldu til þess að endurskoða eldri kröfur um löggildingu með hliðsjón af meðalhófi. Meiri hlutinn tekur undir ábendingar sem fram koma í umsögnum þess efnis að mikilvægt sé að nánar verði mælt fyrir um framkvæmd meðalhófsprófunar í reglugerð sem ráðherra verður heimilt að setja.
    Meiri hlutinn tekur undir markmið frumvarpsins og telur brýnt að það nái fram að ganga, einkum í ljósi dóms EFTA-dómstólsins frá 5. desember 2024 í máli Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) gegn íslenska ríkinu, nr. 9/24, þar sem dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að Ísland hefði ekki staðið við skyldu sína að innleiða tilskipun um meðalhófsprófun í landsrétt.
    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

    Snorri Másson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 4. nóvember 2025.

Víðir Reynisson,
form., frsm.
Grímur Grímsson. Guðmundur Ari Sigurjónsson.
Gylfi Ólafsson. Ingibjörg Isaksen. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir.