Ferill 99. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 277  —  99. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um stafrænan viðnámsþrótt fjármálamarkaðar.

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.
    Nefndinni bárust fimm umsagnir sem aðgengilegar eru undir málinu á vef Alþingis.
    Frumvarpinu er ætlað að innleiða í landsrétt ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/2554 frá 14. desember 2022 um stafrænan rekstrarlegan viðnámsþrótt fyrir fjármálageirann og um breytingu á reglugerðum (EB) nr. 1060/2009, (ESB) nr. 648/2012, (ESB) nr. 600/2014, (ESB) nr. 909/2014 og (ESB) nr. 2016/1011, svonefnda DORA-reglugerð. Frumvarpinu er jafnframt ætlað að innleiða í landsrétt ákvæði tilheyrandi tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/2556 frá 14. desember 2022 um breytingu á tilskipunum 2009/65/EB, 2009/138/EB, 2011/61/ESB, 2013/36/ESB, 2014/59/ESB, (ESB) 2015/2366 og (ESB) 2016/2341 að því er varðar sama efni, svonefnda DORA-tilskipun.
    Frumvarpið var lagt fram á 156. löggjafarþingi og afgreitt frá efnahags- og viðskiptanefnd með áliti nefndarinnar til 2. umræðu 19. júní 2025 ( þskj. 784, 261. mál). Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að frumvarpið sé nú endurflutt að mestu óbreytt. Breytingarnar séu í samræmi við breytingartillögur nefndarinnar í fyrrgreindu nefndaráliti.

Umfjöllun nefndarinnar.
    Umsagnir sem nefndinni bárust nú eru samhljóða þeim umsögnum sem nefndinni bárust á 156. löggjafarþingi. Nefndin vísar til fyrri umfjöllunar sinnar sem fram kom í áðurnefndu áliti á 156. löggjafarþingi en telur þó ástæðu til að árétta nokkur atriði. Í fyrsta lagi vill nefndin undirstrika meðalhófsreglu sem finna má í 4. gr. DORA-reglugerðarinnar. Þar kemur fram að aðilum sem falla undir DORA-reglugerðina beri að aðlaga kröfur hennar í samræmi við stærð og eðli rekstrarins. Það leiðir til þess að vægari kröfur yrðu gerðar til minni fyrirtækja en þeirra sem eru stærri og umfangsmeiri. Jafnframt er gert ráð fyrir því í 16. gr. DORA-reglugerðarinnar að einfaldur áhættustýringarrammi gildi fyrir tilgreinda smærri aðila á fjármálamarkaði. Sama skylda um beitingu meðalhófs er lögð á eftirlitsaðila í 4. gr. reglugerðarinnar. Fjármálaeftirlitinu ber því samkvæmt ákvæðinu að taka tillit til m.a. stærðar fyrirtækja og eðlis þeirra og umfangs við framkvæmd lögbundins eftirlits. Í umsögn Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu er fjallað um skýrleika og orðalag DORA-reglugerðarinnar. Í þessu sambandi vill nefndin taka fram að markmið DORA-reglugerðarinnar er að efla stafrænt öryggi og rekstrarþol á fjármálamarkaði með skýrum og samræmdum kröfum um áhættustýringu og viðbúnað. Hingað til hafa þessar kröfur hvorki verið ítarlega útfærðar né samræmdar. Fjöldi misstórra og misumfangsmikilla fyrirtækja með ólíka starfsemi þarf þar af leiðandi að geta beitt DORA-reglugerðinni til samræmis við 4. og 16. gr. DORA-reglugerðarinnar og tekur orðalag frumvarpsins og sjálfrar reglugerðarinnar mið af því.
    Samræmdar reglur geta jafnframt haft jákvæð áhrif á aðila á fjármálamarkaði. Þær geta aukið tiltrú á fjármálakerfið og aukið stöðugleika þess. Þá kunna þær að draga úr flækjustigi í framkvæmd og auka samleitni í eftirliti. Sömuleiðis gætu þær dregið úr kostnaði fyrir aðila sem starfa milli landa innan Evrópska efnahagssvæðisins.
    Í öðru lagi vill nefndin víkja að hámarksfjárhæð stjórnvaldssekta samkvæmt frumvarpinu en um þetta hefur verið fjallað í umsögnum til nefndarinnar. Meginmarkmið viðurlagaákvæða er að hafa varnaðaráhrif. Þá gætu alvarlegustu brot á þeim reglum sem um er að ræða valdið gríðarlegu tjóni á fjármálamarkaði. Nefndin tekur þó fram að ávallt þurfi að hafa í huga meðalhófsregluna við beitingu stjórnvaldssekta. Jafnframt er brýnt að horfa til framkvæmdar eftirlits annarra eftirlitsaðila á Evrópska efnahagssvæðinu og að Fjármálaeftirlitið hér á landi taki mið af því og varist til að mynda að ganga lengra.
    Í þriðja lagi vill nefndin taka undir að fræðsla og aðgengilegar upplýsingar um kröfur og skyldur þeirra sem falla undir löggjöf um stafrænan viðnámsþrótt séu mikilvægar. Nefndin bendir í þessum efnum á upplýsingasíðu á vef Fjármálaeftirlitsins um DORA, eins og þekkist hjá öðrum evrópskum eftirlitsaðilum. Mikilvægt er að upplýsingagjöf til íslenskra aðila á fjármálamarkaði sé með svipuðu móti og annars staðar á Evrópska efnahagssvæðinu.
    Að lokum komu fram í tveimur umsögnum sem nefndinni bárust ábendingar sem varða 11. gr. frumvarpsins. Seðlabanki Íslands benti á 8. tölul. 2. mgr. 11. gr. sem kveður á um að bankanum beri að setja reglur um þau atriði sem fram koma í 2. mgr. 41. gr. DORA-reglugerðarinnar um samræmingu skilyrða vegna eftirlitsramma mikilvægra þriðju aðila sem veita upplýsinga- og fjarskiptatækniþjónustu. Taldi Seðlabankinn rétt að ráðherra innleiddi þessar reglur. Nefndin telur ekki tilefni til að leggja til umrædda breytingu. Almennt hefur tíðkast að Seðlabankinn innleiði með reglum undirgerðir Evrópugerða sem byggjast á tæknistöðlum frá evrópskum eftirlitsstofnunum, enda sé hann áheyrnaraðili að eftirlitsstofnununum. Þá nefndu Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu í umsögn sinni að mögulega þyrfti að endurskoða orðalag 11. gr. frumvarpsins. Nefndin telur ekki ástæðu til þess að leggja til breytingu á greininni.
    Að framangreindu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

    Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 4. nóvember 2025.

Arna Lára Jónsdóttir,
form., frsm.
Anna María Jónsdóttir. Elín Íris Fanndal.
Pawel Bartoszek. Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir. Stefán Vagn Stefánsson.
Tómas Þór Þórðarson. Vilhjálmur Árnason.