Ferill 159. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 278 — 159. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Maríu Rut Kristinsdóttur um farnetsþjónustu.
1. Gerir ráðherra ráð fyrir að markmið sem sett var við útgáfu tíðniheimilda fyrir farnetsþjónustu í mars 2023 um 100% dekkun stofnvega fyrir árslok 2026 náist?
Fjarskiptastofa (FST) ber alla ábyrgð á útfærslu umræddra tíðniheimilda. Við útgáfu tíðniheimilda vorið 2023 setti FST fram markmið um að 100% dekkun stofnvega næðist fyrir árslok 2026. Stofnunin ákvað að hafa verktímann metnaðarfullan með það fyrir augum að hraða uppbyggingu en eiga kost á að lengja hann ef aðstæður breyttust sem þær gerðu. Verktími byggðist m.a. á þeirri forsendu að ríkisfyrirtækið Öryggisfjarskipti ehf. fjármagnaði og legði til óvirka innviði í verkefninu sem gekk síðan ekki eftir þrátt fyrir hvatningu frá FST. Því þurfti að endurskoða verkefnið, minnka það að umfangi og ákveða nýja raunhæfa tímaáætlun sem tekur mið af því að þátttakendum í fjárfestingarhluta verkefnisins hefur fækkað úr fjórum í þrjá.
Útbreiðsla á samfelldu farneti allra farnetsfyrirtækja á stofnvegum á láglendi er nú um 98%. Að undangengnu opnu samráði um breytingar á umræddum tíðniheimildum hefur FST gefið út nýjan tímaáætlun fyrir verkefnið. Samkvæmt endurskoðuðum skilmálum tíðniheimilda næst 99% dekkun stofnvega á láglendi fyrir árslok 2027 og 100% dekkun fyrir árslok 2028. Samráðsferli Fjarskiptastofu, sem stóð yfir frá desember 2024 til október 2025, reyndist flókið og seinvirkt þar sem tímafrekt var að ná samstöðu með öllum aðilum verkefnisins. Framkvæmd þess tafðist sem því nam.
2. Hver er kostnaðar- og tímaáætlun verkefnisins af hálfu Öryggisfjarskipta ehf. ef markmiðið næst ekki? Svar óskast sundurliðað eftir landshlutum og eftir vegskilgreiningu Fjarskiptastofu A–D.
Eins og fram kemur í svari við 1. tölul. hefur tímaáætlun verkefnisins verið breytt. Öryggisfjarskipti er ekki lengur framkvæmdaraðili í verkefninu, en sinnir tilteknum þáttum varðandi skipulag verkefnisins. Samkvæmt FST liggur nákvæm áætlun af hálfu Öryggisfjarskipta ekki fyrir og skiptir litlu úr því sem komið er þar sem meginhluti verkefnisins er ekki lengur í þess höndum. Frumgreining á stofnkostnaði við uppbyggingu gagnvart stofnvegum var gerð af verkfræðistofunni Mannvit árið 2023 og var kostnaður við lágmarksuppbyggingu og 10 Mb/s hraða áætlaður sem hér segir (kostnaður í milljónum króna á verðlagi ársins 2023):
| Landshluti | Vegflokkur A | Vegflokkur B | Vegflokkur C | Vegflokkur D | Samtals |
| Austurland | 114 | 11 | 125 | ||
| Norðurland eystra | 26 | 26 | 100 | 151 | |
| Norðurland vestra | 6 | 19 | 25 | ||
| Suðausturland | 8 | 8 | |||
| Suðvesturland | 4 | 30 | 5 | 39 | |
| Vestfirðir | 302 | 143 | 444 | ||
| Vesturland | 3 | 30 | 26 | 60 | |
| Samtals | 161 | 358 | 30 | 304 | 852 |
Samkvæmt FST liggur ekki fyrir í hvaða röð fjarskiptafyrirtækin hyggjast byggja upp nýja sendistaði, en samkvæmt endurskoðuðum skilyrðum tíðniheimilda gera Öryggisfjarskipti tillögu að forgangsröðun sem byggist á þörf á farnetssambandi til að stuðla að öryggi vegfarenda, m.a. með tilliti til umferðar, vetrarþjónustu, tíðni slysa og annarra atvika sem þarfnast aðkomu viðbragðsaðila. Leita skal umsagna Vegagerðar, Samgöngustofu og landshlutasamtaka við forgangsröðun.
3. Hver hefur þróun dekkunar verið eftir að símafélög hófu að slökkva á eldri 2G-sendum?
Nova og Sýn hafa lokið við að slökkva á 2G og eru langt komin með lokun 3G. Síminn er stutt á veg kominn en þunginn í útfösun Símans verður á síðustu þremur mánuðum ársins.
Samkvæmt FST á útbreiðsla farnetsþjónustu ekki að minnka við lokunina. Samkvæmt ákvæðum tíðniheimilda skulu fjarskiptafyrirtæki tryggja sambærilegt þjónustusvæði með nýrri tækni (4G/5G). FST hefur eftirlit með áhrifum útfösunar og hefur birt leiðbeiningar til notenda um hvernig þeir eigi að bregðast við ef þeir upplifa skerðingu á þjónustu. Stofnunin tekur við tilkynningum notenda um mögulega skerðingu á þjónustu. 2
Það er mat FST að verkefni fjarskiptafyrirtækjanna gangi vel fyrir sig og ekki sé mikið um staðfest vandamál. Fáar kvartanir hafa borist FST og stór hluti kvartana sem hafa borist hafa í raun varðað upplifun um skert samband sem á sér aðrar orsakir en lokun 2G og 3G. Samanburður FST á spákortum um útbreiðslu 4G og 5G annars vegar og 2G og 3G hins vegar gefa að sögn stofnunarinnar ekki tilefni til að ætla að þjónustusvæði minnki við lokun eldri senda. FST fylgist með ferlinu allt til enda og bregst við kvörtunum sem kunna að berast.
4. Hvað hyggst ráðherra gera til að flýta framkvæmdum?
Sú töf sem varð á innviðauppbyggingu í verkefninu árin 2024 og 2025 skýrist bæði af forsendubresti er varðar beina þátttöku Öryggisfjarskipta og ítarlegu samráðsferli FST. Eins og fyrr segir er stofnvegaverkefnið aftur komið á sporið með ákvörðun FST um endurskoðun skilyrða tíðniheimilda með það fyrir augum að ljúka því í áföngum fyrir árslok 2028.
Það er ekki talinn raunhæfur valkostur að færa innviðauppbyggingu samkvæmt upphaflegri framkvæmdaáætlun fyrir árin 2024 og 2025 yfir á árið 2026 „til að flýta framkvæmdum“, jafnvel þótt Öryggisfjarskipti myndu setja eitthvert viðbótarfjármagn í verkefnið, sem yrði þá til þess að framlag hinna kynni að lækka á móti. Þá ber að hafa í huga að Sýn, Nova og Síminn verða einnig upptekin við eigin uppbyggingu á árunum 2026–2028 og hafa því ekki ótakmarkaða umframframkvæmdagetu á næstu árum. Þá er viðbúið að óhóflegt framboð verkefna á verktakamarkaði sumarið 2026 leiði til verðhækkana með óæskilegum afleiðingum fyrir verkefnið og fyrirtækin sem að því standa.
Niðurstaða vandaðs samráðs FST liggur fyrir, fundinn hefur verið nýr útgangspunktur í verkefninu og því tímabært að aðilar komi sér að verki svo ekki komi til enn frekari tafa.
1 www.fjarskiptastofa.is/library?itemid=78475c2b-2ac9-4a18-a5f6-eafc1014111e
2 www.fjarskiptastofa.is/fjarskiptastofa/fjarskiptainnvidir/upplysingar-fyrir-neytendur/2g-og-3g-utfosun/