Ferill 107. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 281 — 107. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með frávísunartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjöleignarhús, nr. 26/1994 (dýrahald).
Frá 1. minni hluta velferðarnefndar.
Fyrsti minni hluti velferðarnefndar leggst ekki gegn endurskoðun ákvæða fjöleignarhúsalaga með það að markmiði að rýmka heimildir til dýrahalds í fjöleignarhúsum. Frumvarpið gengur hins vegar of langt og felur í sér umtalsverða áhættu fyrir heilsu og réttindi annarra íbúa og tryggir ekki nægilega vernd þeirra sem búa við ofnæmi, astma eða aðrar viðkvæmar aðstæður. Umsagnir sem bárust sýna að frumvarpið er illa undirbúið, skortir skýra greiningu á heilsufarslegum og réttarfarslegum afleiðingum, og að jafnvægi milli hagsmuna dýraeigenda og annarra íbúa sé rofið.
Astma- og ofnæmisfélag Íslands bendir á að frumvarpið rýmki heimildir til dýrahalds án þess að settar séu skýrar reglur til að verja heilsu viðkvæmra hópa. Ítrekað hafi einstaklingar með staðfest dýraofnæmi neyðst til að yfirgefa heimili sín vegna gæludýra í nágrenni. Með breytingunni færist sönnunarbyrði um dagleg óþægindi af dýri í reynd yfir á þennan hóp.
Félag íslenskra ofnæmis- og ónæmislækna áréttar að ofnæmissjúkdómar séu vaxandi vandamál og að ofnæmisvakar frá dýrum geti borist á milli íbúða og valdið heilsutjóni. Félagið telur að frumvarpið geti skert rétt fólks með astma og ofnæmi til að vera ekki að óþörfu útsett á eigin heimili fyrir ofnæmisvaka sem veldur þeim heilsutjóni.
Dýraþjónusta Reykjavíkur og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur lýsa í umsögnum sínum fjölda ágreiningsmála sem tengjast dýrahaldi, einkum vegna hávaða, óhreininda og lausagöngu hunda. Báðar stofnanir leggja áherslu á að húsfélög hafi áfram skýrar heimildir til að banna eða takmarka dýrahald þegar það veldur ama eða íbúum heilsutjóni. Ef 2/ 3-samþykki eigenda næst ekki gætu viðkvæmir íbúar orðið varnarlausir gagnvart áhrifum sem þeir ráða ekki við.
Í umsögn Hermanns Austmar lögfræðings er bent á að tillögur frumvarpsins færi sönnunarbyrði og ábyrgð yfir á einstaklinga með ofnæmi eða fælni, sem gætu þurft að þola langvarandi heilsutjón á meðan beðið væri eftir samstöðu eigenda. Slíkt samrýmist illa meðalhófsreglu og vernd friðhelgi heimilisins samkvæmt mannréttindasáttmála.
Húseigendafélagið telur núgildandi reglur sanngjarnar þar sem þær jafni rétt dýraeigenda og annarra íbúa. Félagið bendir á að frumvarpið gangi ákaflega langt í því að leyfa hunda- og kattahald á kostnað þeirra sem ekki geta eða treysta sér til nábýlis við dýrin. Þannig fari frumvarpið bæði gegn meginreglum laganna um fjöleignarhús og gangi mun lengra en sambærileg löggjöf á Norðurlöndunum. Verði frumvarpið að lögum gætu einstaklingar sem ekki þola nábýli við dýr þurft að sækja 2/ 3-samþykki eigenda til að banna tiltekið dýr eða jafnvel flytja úr heimilum sínum.
Þá benda einstaklingar í umsögnum á að dýrahald sé nú þegar heimilt í fjölbýlishúsum með samþykki eða sérinngangi, og að frumvarpið myndi þrengja húsnæðisvalkosti þeirra sem ekki geta búið nálægt gæludýrum.
Að mati 1. minni hluta sýna framangreind sjónarmið að frumvarpið er bæði illa undirbúið og efnislega ófullnægjandi. Það tryggir hvorki nægilega vernd viðkvæmra hópa né jafnvægi milli hagsmuna dýraeigenda og annarra íbúa í fjöleignarhúsum. Með frumvarpinu er í reynd gengið gegn sjónarmiðum um meðalhóf og markmiðum laga um friðhelgi einkalífs og heimilis. Mál þetta þarfnast frekari greiningar og endurskoðunar.
Fyrsti minni hluti leggur til að frumvarpinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
Alþingi, 5. nóvember 2025.
| Ingibjörg Isaksen, frsm. |
Rósa Guðbjartsdóttir. | Sigurður Örn Hilmarsson. |