Ferill 224. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 286  —  224. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um lögbundið hlutverk og þjónustu Sjúkrahússins á Akureyri.

Frá Ingibjörgu Isaksen.


     1.      Hvaða atriði í 26. og 27. gr. reglugerðar um heilbrigðisumdæmi og hlutverk, starfsemi og þjónustu heilsugæslustöðva, heilbrigðisstofnana og sjúkrahúsa, nr. 1111/2020, telur heilbrigðisráðherra að Sjúkrahúsið á Akureyri uppfylli að fullu miðað við núverandi starfsemi sjúkrahússins? Svar óskast sundurliðað.
     2.      Hvaða atriði í sömu ákvæðum telur ráðherra að séu aðeins að hluta til uppfyllt og hvaða ástæður liggja þar að baki? Svar óskast sundurliðað.
     3.      Eru einhver atriði í lögum eða reglugerð sem Sjúkrahúsið á Akureyri nær ekki að uppfylla samkvæmt mati ráðherra? Ef svo er, hvaða atriði eru það og hvaða áform eru um að bæta úr því? Svar óskast sundurliðað.
     4.      Hefur ráðherra látið vinna eða hyggst ráðherra láta vinna úttekt á því hvernig þjónusta Sjúkrahússins á Akureyri samræmist lögbundnu hlutverki þess samkvæmt 7. gr. b laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, og reglugerð nr. 1111/2020?


Skriflegt svar óskast.



Greinargerð.


    Samkvæmt 7. gr. b laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, skal á Sjúkrahúsinu á Akureyri veitt annars stigs heilbrigðisþjónusta en að auki þriðja stigs heilbrigðisþjónusta, m.a. á göngu- og dagdeildum.
    Hlutverk sjúkrahússins er jafnframt að vera kennslusjúkrahús og varasjúkrahús Landspítala, annast kennslu nema í grunn- og framhaldsnámi, taka þátt í sérmenntun heilbrigðisstarfsfólks og veita aðstöðu til rannsókna og fræðastarfa.
    Í 26. og 27. gr. reglugerðar nr. 1111/2020, um heilbrigðisumdæmi og hlutverk, starfsemi og þjónustu heilsugæslustöðva, heilbrigðisstofnana og sjúkrahúsa, eru nánari ákvæði um Sjúkrahúsið á Akureyri og þá þjónustu sem þar skal veita.