Ferill 226. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 288 — 226. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um skipun starfshóps um viðbrögð við atvikum á landamærum.
Flm.: Sigurður Ingi Jóhannsson, Halla Hrund Logadóttir, Ingibjörg Isaksen, Stefán Vagn Stefánsson, Þórarinn Ingi Pétursson.
Alþingi ályktar að fela dómsmálaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra að skipa sameiginlegan starfshóp innan 30 daga frá samþykkt ályktunar þessarar sem hafi það hlutverk að greina núverandi laga- og stjórnsýsluumhverfi tollgæslu og lögreglu að því er varðar viðbrögð við atvikum á landamærum, einkum þeim sem lúta að:
a. misnotkun rafrænna skilríkja,
b. auðkennisfölsun,
c. ólögmætum fjármagnsflutningum,
d. öðrum brotum á reglum um opin landamæri.
Hlutverk starfshópsins verði eftirfarandi:
1. Að greina og skrá glufur í lögum sem koma í ljós þegar tollgæsla og lögregla sinna eftirliti með misnotkun auðkenna, peningaþvætti og öðrum brotum á landamærum.
2. Að meta hvort núverandi ákvæði tollalaga, lögreglulaga, laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og tengdra reglna veiti nægjanlegar heimildir til samstarfs, gagnaöflunar og frumrannsókna.
3. Að kanna leiðir til að bæta samvinnu og upplýsingaflæði milli tollgæslu, lögreglu, Fjármálaeftirlitsins og annarra viðeigandi stofnana.
4. Að leggja fram tillögur að lagabreytingum og úrbótum sem tryggja að tollgæsla og lögregla hafi raunhæf lagaúrræði og viðhafi samræmt verklag þegar grunur vaknar um brot og að samvinna milli stofnana verði skilvirk, gagnsæ og í samræmi við lög.
5. Að meta starfsaðstæður tollgæslu, sérstaklega á Keflavíkurflugvelli og öðrum helstu landamærastöðvum, með það að markmiði að tryggja viðunandi aðbúnað, öryggi og starfsskilyrði. Við matið verði sérstaklega horft til húsnæðis, aðstöðu og útbúnaðar í samstarfi við Isavia ohf., sem ber ábyrgð á rekstri Keflavíkurflugvallar, og aðra viðeigandi aðila.
Starfshópurinn skuli einnig gera tillögur um það hvernig tryggja megi samvinnu og verkaskiptingu milli tollgæslu, Isavia ohf. og annarra þjónustuaðila á flugvelli svo að eftirlit og öryggisstarfsemi raskist ekki vegna ófullnægjandi aðstæðna eða skipulags.
Í hópnum skuli eiga sæti fulltrúar frá tollgæslu, sem starfa við tolleftirlit í tollhöfnum og við farþegagreiningu, fulltrúar frá ríkislögreglustjóra og deildum lögreglu sem rannsaka efnahagsbrot og sinna landamæraeftirliti, fulltrúar frá dómsmálaráðuneyti og fjármála- og efnahagsráðuneyti og eftir atvikum fulltrúar frá Seðlabanka Íslands eða Fjármálaeftirlitinu, Persónuvernd og Skattinum.
Starfshópnum skuli jafnframt heimilt að leita samráðs við aðra sérfræðinga, fagfélög og alþjóðlega samstarfsaðila eftir því sem tilefni er til.
Starfshópnum verði falið að skila heildstæðri greinargerð með tillögum að úrbótum innan sex mánaða frá skipun hans.
Dómsmálaráðherra kynni greinargerð starfshópsins fyrir Alþingi ásamt tillögum að úrbótum og birti opinberlega á vef Stjórnarráðs Íslands innan sex mánaða frá því að greinargerðinni var skilað.
Greinargerð.
Tollgæsla hefur í auknum mæli orðið vör við atvik sem krefjast rannsóknar eða viðbragða lögreglu en glufur í lagaumhverfi, samvinnuferlum og aðstöðu hafa takmarkað getu beggja aðila til að bregðast við með skilvirkum hætti. Sérstaklega er á það bent að starfsaðstæður tollgæslu á Keflavíkurflugvelli hafa orðið að umtalsefni meðal starfsmanna og eftirlitsaðila. Þar sem Isavia ohf. fer með rekstur flugvallarins er nauðsynlegt að tryggja samráð og sameiginlega ábyrgð á viðunandi aðbúnaði og öryggi þeirra sem sinna landamæraeftirliti. Þá hefur komið í ljós að túlkun á gildandi ákvæðum um upplýsingaskyldu flutningsaðila við komu og brottför farþega hefur reynst óljós.
Ákvæði í lögum um landamæri og í tollalögum fela í sér skyldu flutningsaðila til að afhenda upplýsingar um farþega og áhöfn. Orðalag í lögum hefur á hinn bóginn valdið ágreiningi um það í framkvæmd hvaða aðilar falla undir skilgreininguna. Þessi óvissa getur haft áhrif á samvinnu tollyfirvalda, lögreglu og rekstraraðila á flugvöllum, þar á meðal Isavia ohf., og er því mikilvægt að starfshópurinn taki slíkar skýringar- og framkvæmdarspurningar sérstaklega til skoðunar.
Mikilvægt er að þeir sem vinna við þessi mál í dagsins önn, tollverðir, rannsóknardeildir lögreglu og eftirlitsaðilar, komi að vinnu starfshópsins þar eð reynsla þeirra og þekking er lykillinn að því að greina raunveruleg vandamál og hagnýtar lausnir.
Séríslensk löggjöf á sviði tollgæslu, landamæraeftirlits, lögreglurannsókna og auðkenningar uppfyllir almennt skilyrði EES-samningsins og skuldbindingar Íslands samkvæmt Schengen-samningnum. Reynslan hefur þó sýnt að þessi löggjöf þarfnast styrkingar og samræmingar til að skilvirk framkvæmd verði tryggð. Þannig þarf að endurskoða hvernig íslensk stjórnvöld samhæfa gagnaskipti, rannsóknarheimildir og ábyrgðarskiptingu milli stofnana í ljósi aukinna krafna um öryggi, persónuvernd og samvinnu yfir landamæri.
Með tillögu þessari er stefnt að því að efla samvinnu yfirvalda, bæta starfsskilyrði þeirra sem sinna landamæraeftirliti og tryggja skilvirkari viðbrögð við alþjóðlegri glæpastarfsemi og misnotkun á fjármálakerfi og auðkenningum yfir landamæri. Einnig er lögð áhersla á að séríslensk löggjöf og stjórnsýsla standist kröfur alþjóðlegs samstarfs um landamæraeftirlit en endurspegli jafnframt íslenskar aðstæður, ábyrgðarfulla nálgun og grunnreglur réttarríkisins.