Ferill 165. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 292  —  165. mál.




Svar


umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Sigurjóni Þórðarsyni um stuðning til aðgerða í loftslagsmálum.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvaða aðilar fengu hærri greiðslu eða stuðning en 3 millj. kr. á ári til aðgerða í loftslagsmálum árið 2023 annars vegar og 2024 hins vegar og hvaða upphæð fékk hver þeirra? Svar óskast sundurliðað eftir því hvort um skattstyrki, samgöngubætur, landbætur eða beinar greiðslur var að ræða.

    Eftirfarandi er yfirlit yfir þá aðila sem fengu hærri greiðslu eða stuðning en 3 millj. kr á ári vegna ráðgjafar, greiningar og aðgerða í loftslagsmálum árin 2023 og 2024, sundurliðað eftir því hvort um skattstyrki, samgöngubætur, landbætur eða beinar greiðslur var að ræða. Taflan gefur yfirlit yfir þau tvö bókhaldsviðföng sem fjármagnið bókast á, annars vegar loftslagssjóð (1419013100) og hins vegar loftslagsverkefni (14190190153). Aðeins ein greiðsla er talin til samgöngubóta og snýr að greiningum á loftslagsaðgerðum vegna ökutækja. Engar greiðslur af fjárheimild ráðuneytisins má fella undir skattstyrki.
    Aðkeypt vinna ráðuneytis til aðgerða í loftslagsmálum snýr oft að ráðgjöf, greiningu aðgerða og mati þeirra til að tryggja að aðgerð sé mótuð á grundvelli góðra upplýsinga, í góðu samráði við hagaðila og með hagkvæmni að leiðarljósi, auk þess sem þeim er fylgt eftir þannig að aðgerðir skili þeim áhrifum sem lagt var upp með. Sjálf framkvæmd loftslagsaðgerða bókast frekar á undirstofnanir eða samningsaðila þeirra og á sér einnig að miklu leyti stað á málefnasviði annarra ráðuneyta. Því er hlutfallslega stór hluti greiðslna til aðila sem sinna ráðgjöf og greiningum. Þá er einnig talinn stuðningur til umhverfistengdra verkefna, líkt og við sóknaráætlanir landshluta, sem vinna ekki einungis að markmiðum stjórnvalda á sviði loftslagsmála heldur einnig öðrum markmiðum á málefnasviði ráðuneytis, t.d. tengdum úrgangsmálum og orkumálum. Stefnumótun á sviði umhverfismála í dag leitast sérstaklega við að styðja verkefni sem hafa margþættan ávinning á málefnasviðinu.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.