Ferill 182. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 301  —  182. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Ingvari Þóroddssyni um helmingamokstur.


     1.      Hver er lengd vega þar sem vetrarþjónustu er sinnt samkvæmt reglu um helmingamokstur?
    
Lengd þjóðvega með helmingamokstur er 2.606 km.

     2.      Hver hefur verið kostnaður ríkisins af snjómokstri á þessum vegum síðustu þrjú árin?
    Kostnaður ríkisins af helmingamokstri árin 2022, 2023 og 2024 er samtals 291 millj. kr. en það er sami kostnaður og hjá sveitarfélögunum.

     3.      Hver hefur verið kostnaður sveitarfélaga annars vegar og einstaklinga hins vegar sem hafa óskað eftir mokstrinum?
    Enginn einstaklingur var kostunaraðili að helmingamokstri þessi ár. Kostnað sveitarfélaga, eftir svæðum Vegagerðarinnar, á milli ára vegna helmingamoksturs má sjá í eftirfarandi töflu.

Kostnaður sveitarfélaga vegna helmingamoksturs eftir þjónustusvæðum Vegagerðarinnar.

Svæði/sveitarfélag 2022 2023 2024 Samtals
Austursvæði 4.814.518 8.370.117 7.687.200 20.871.835
Fjarðabyggð 1.386.393 3.207.467 4.186.850 8.780.710
Fljótsdalshreppur 254.041 526.543 79.000 859.584
Hornafjörður 48.553 48.553
Múlaþing 2.728.353 4.266.119 3.094.070 10.088.542
Vopnafjarðarhreppur 397.178 369.988 327.280 1.094.446
Norðursvæði 29.191.833 38.953.493 62.865.724 131.011.050
Akureyrarbær 3.864.496 223.338 4.087.834
Dalvíkurbyggð 2.093.132 2.125.379 4.817.388 9.035.899
Eyjafjarðarsveit 1.888.188 2.614.788 2.518.524 7.021.500
Fjallabyggð 1.391.014 1.387.663 7.909.551 10.688.228
Grýtubakkahreppur 473.358 564.595 348.344 1.386.297
Húnabyggð 1.312.417 1.521.805 2.161.403 4.995.625
Húnaþing vestra 2.127.686 1.998.493 7.969.215 12.095.394
Hörgársveit 2.883.352 2.980.953 4.857.878 10.722.183
Langanesbyggð 149.645 1.652.095 1.026.249 2.827.989
Norðurþing 1.426.178 4.466.721 6.214.973 12.107.872
Skagafjörður 6.647.515 6.799.061 11.582.546 25.029.122
Svalbarðsstrandarhreppur 262.565 200.849 278.443 741.857
Þingeyjarsveit 4.672.287 12.641.091 12.957.872 30.271.250
Suðursvæði 34.716.740 27.685.097 30.123.706 92.525.543
Ásahreppur 1.437.046 727.153 1.123.099 3.287.298
Bláskógabyggð 1.651.917 1.335.366 3.993.296 6.980.579
Flóahreppur 1.807.906 5.124.564 1.301.999 8.234.469
Grímsnes- og Grafningshreppur 2.724.523 3.827.572 224.686 6.776.781
Hrunamannahreppur 1.058.353 728.825 1.377.645 3.164.823
Kjósarhreppur 4.615.849 1.436.149 2.075.991 8.127.989
Mosfellsbær 987.592 284.040 1.271.632
Rangárþing eystra 122.032 1.511 123.543
Rangárþing ytra 3.608.433 2.265.060 4.279.288 10.152.781
Reykjavíkurborg 580.144 333.299 369.611 1.283.054
Skaftárhreppur 5.541.275 5.527.047 2.907.916 13.976.238
Skeiða- og Gnúpverjahreppur 7.043.128 5.250.457 11.470.247 23.763.832
Sveitarfélagið Árborg 284.849 286.984 571.833
Sveitarfélagið Ölfus 3.660.574 438.684 711.433 4.810.691
Vestursvæði 14.432.545 10.121.865 22.440.366 46.994.776
Árneshreppur 30.149 35.552 65.701
Bolungarvík 147.032 34.581 181.613
Borgarbyggð 3.002.486 3.093.936 5.200.301 11.296.723
Dalabyggð 4.974.053 1.623.442 6.319.908 12.917.403
Grundarfjarðarbær 220.367 79.099 1.183.104 1.482.570
Hvalfjarðarsveit 1.443.292 1.734.077 3.164.276 6.341.645
Ísafjarðarbær 1.278.056 1.451.225 1.758.888 4.488.169
Kaldrananeshreppur 181.276 89.570 65.917 336.763
Reykhólahreppur 162.016 221.211 295.955 679.182
Skorradalshreppur 789.990 159.201 492.792 1.441.983
Snæfellsbær 124.475 196.593 44.273 365.341
Strandabyggð 219.484 118.876 455.738 794.098
Súðavíkurhreppur 366.100 274.396 962.706 1.603.202
Vesturbyggð 1.523.918 1.050.090 2.275.740 4.849.748
Stykkishólmsbær 150.635 150.635
Alls á ári: 83.155.636 85.130.572 123.116.996 291.403.204