Ferill 236. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 304  —  236. mál.
Stjórnarfrumvarp.



Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (eingreiðsla).

Frá félags- og húsnæðismálaráðherra.



    1. gr.

    Við ákvæði til bráðabirgða í lögunum bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Þeir greiðsluþegar sem hafa fengið greiddan örorkulífeyri, hlutaörorkulífeyri eða ellilífeyri eða fengið sjúkra- og endurhæfingargreiðslur á árinu 2025 skulu fá eingreiðslu í desember, enda hafi þeir verið með skráð lögheimili hér á landi 1. nóvember 2025. Hið sama á við um þá einstaklinga sem fengu greiddan endurhæfingarlífeyri samkvæmt lögum um félagslega aðstoð á árinu 2025.
    Full eingreiðsla skv. 1. mgr. skal vera 73.390 kr. Við útreikning eingreiðslu skv. 1. mgr. skal greiðsluþegi hafa almennt frítekjumark sem nemur 1.200.000 kr. Fjárhæð eingreiðslu skv. 1. mgr. skal lækka um 3,3% af tekjugrunni greiðsluþega umfram frítekjumark. Um meðferð tekna samkvæmt þessu ákvæði fer skv. 1., 2., 6. og 8. mgr. 30. gr. laganna. Hafi greiðsluþegi fengið eina eða fleiri af þeim greiðslum sem taldar eru upp í 1. mgr. hluta af árinu 2025 skal eingreiðsla skv. 1. mgr. vera í hlutfalli við fjölda þeirra mánaða sem viðkomandi fékk greiðslur á árinu. Eingreiðsla skv. 1. mgr. skal hvorki teljast til tekna greiðsluþega né leiða til skerðingar annarra greiðslna samkvæmt lögum þessum. Eingreiðsla skv. 1. mgr. skal ekki greidd til dánarbúa. Eingreiðsla skv. 1. mgr. skal innt af hendi eigi síðar en 15. desember 2025. Um endurreikning eingreiðslu skv. 1. mgr. sem og um meðferð of- eða vangreiðslna fer skv. 3. og 4. mgr. 33. gr., sbr. 34. gr.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

1. Inngangur.
    Frá árinu 2020 hafa þeir sem hafa átt rétt á greiðslu örorkulífeyris hverju sinni samkvæmt lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, eða endurhæfingarlífeyris samkvæmt lögum um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, fengið eingreiðslu í desember ár hvert til viðbótar við desemberuppbót lífeyrisþega sem tryggð hefur verið árlega með reglugerðum þess efnis. Jafnframt fengu þeir sem áttu rétt á fullri greiðslu ellilífeyris sambærilega eingreiðslu í desember árið 2024. Eingreiðslan hefur í öllum tilvikum verið undanþegin skatti og hefur ekki leitt til skerðingar á öðrum greiðslum. Ákvörðun um framangreinda eingreiðslu til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega hefur í fyrrnefndum tilvikum verið tekin að hausti fyrir yfirstandandi ár hverju sinni.

2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar.
    Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins, dags. 21. desember 2024, segir m.a. að gripið verði til aðgerða til að lyfta greiðslum almannatrygginga til tekjulægri lífeyrisþega. Sú breyting á lögum um almannatryggingar sem lögð er til í frumvarpi þessu er liður í þeim aðgerðum.
    Í frumvarpinu er gert ráð fyrir breytingu frá því sem verið hefur undanfarin ár hvað varðar markmið og útreikning á umræddri eingreiðslu þannig að greiðslan komi betur til móts viðtekjulægstu hópa þeirra sem fá umrædda eingreiðslu.

3. Meginefni frumvarpsins.
    Með frumvarpinu er lagt til að nýjum tölulið verði bætt við ákvæði til bráðabirgða í lögum um almannatryggingar. Lagt er til að þar verði kveðið á um sérstaka eingreiðslu í desember 2025 til tekjulægstu greiðsluþeganna samkvæmt lögum um almannatryggingar og tekjulægstu endurhæfingarlífeyrisþeganna fyrir tímabilið 1. janúar til 31. ágúst 2025 samkvæmt lögum um félagslega aðstoð, að tilteknum skilyrðum uppfylltum.
    Er þannig gert ráð fyrir að í 1. mgr. töluliðarins verði kveðið á um að þeir greiðsluþegar sem hafi fengið greiddan örorkulífeyri, hlutaörorkulífeyri eða ellilífeyri eða fengið sjúkra- og endurhæfingargreiðslur á árinu 2025 skuli fá eingreiðslu í desember, enda hafi þeir verið með skráð lögheimili hér á landi 1. nóvember 2025. Gert er ráð fyrir að hið sama eigi við um þá sem fengu greiddan endurhæfingarlífeyri samkvæmt lögum um félagslega aðstoð á árinu 2025. Er því gert ráð fyrir að þeir sem munu fá greiddan örorkulífeyri skv. 24. gr., hlutaörorkulífeyri skv. 25. gr. eða ellilífeyri skv. 16. eða 17. gr., sem og þeir sem munu fá sjúkra- og endurhæfingagreiðslur skv. 27. gr. fái umrædda eingreiðslu, enda hafi þeir verið með skráð lögheimili hér á landi 1. nóvember 2025. Þá er einnig gert ráð fyrir að í 1. mgr. töluliðarins verði kveðið á um að þeir greiðsluþegar sem fá greiddan endurhæfingarlífeyri samkvæmt lögum um félagslega aðstoð á árinu 2025 eigi rétt á umræddri eingreiðslu, enda séu þeir með lögheimili á Íslandi 1. nóvember 2025.
    Hinn 1. september 2025 tóku gildi lög um breytingu á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga, nr. 104/2024, sem m.a. breyttu lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, og lögum um félagslega aðstoð, nr. 99/2007. Með þeim var endurhæfingarlífeyrir samkvæmt lögum um félagslega aðstoð lagður niður og í stað hans teknar upp sjúkra- og endurhæfingargreiðslur samkvæmt lögum um almannatryggingar. Getur því eingöngu verið um að ræða greiddan endurhæfingarlífeyri samkvæmt lögum um félagslega aðstoð til og með 31. ágúst 2025. Eftir það tímamark hefur sá hópur sem áður fékk greiddan endurhæfingarlífeyri samkvæmt lögum um félagslega aðstoð fallið undir lög um almannatryggingar.
    Lagt er til að í 2. mgr. nýja töluliðarins verði kveðið á um að full fjárhæð umræddrar eingreiðslu verði 73.390 kr. sem er sama fjárhæð sambærilegrar eingreiðslu í desember 2024 að viðbættri 4,3% hækkun í samræmi við prósentuhækkun lífeyris almannatrygginga sem kveðið er á um í fjárlögum fyrir árið 2025. Þá er jafnframt lagt til að í 2. mgr. töluliðarins verði kveðið á um að greiðsluþegi hafi almennt frítekjumark sem nemi 1.200.000 kr. fyrir árið 2025. Er í því sambandi gengið út frá því að um sé að ræða allar aðrar tekjur en greiðslur samkvæmt lögum um almannatryggingar eða lögum um félagslega aðstoð, þar á meðal fjármagnstekjur. Jafnframt er lagt til að fjárhæð umræddrar eingreiðslu lækki um 3,3% af tekjugrunni greiðsluþega á viðkomandi ári umfram frítekjumark og að um meðferð tekna samkvæmt þessu ákvæði fari skv. 1., 2., 6. og 8. mgr. 30. gr. laganna. Þá er lagt til að hafi greiðsluþegi fengið eina eða fleiri af þeim greiðslum sem taldar eru upp í 1. mgr. nýja töluliðarins hluta af árinu 2025 skuli umrædd eingreiðsla vera í hlutfalli við fjölda þeirra mánaða sem viðkomandi fékk umræddar greiðslur á árinu. Þá er einnig lagt til að eingreiðslan skuli hvorki teljast til tekna greiðsluþega né leiða til skerðingar annarra greiðslna samkvæmt lögum um almannatryggingar eða laga um félagslega aðstoð. Þannig er gengið út frá því að eingreiðslan teljist skattfrjáls. Er það til samræmis við 6., 7., 9., 12. og 20. tölul. í ákvæðum til bráðabirgða í lögum um almannatryggingar þar sem kveðið hefur verið á um sambærilegar eingreiðslur í desember undanfarin ár. Þar sem gert er ráð fyrir að eingöngu einstaklingar fái umrædda eingreiðslu fer eingreiðslan ekki til dánarbúa, en samkvæmt orðskýringum í 2. gr. laganna er greiðsluþegi skilgreindur sem einstaklingur sem fær greiðslur samkvæmt lögunum.
    Þá er lagt til að í 2. mgr. að kveðið verði á um að eingreiðslan skuli innt af hendi eigi síðar en 15. desember 2025 en í því sambandi er gengið út frá því að Tryggingastofnun annist framkvæmdina líkt og undanfarin ár. Loks er lagt til að um endurreikning eingreiðslunnar sem og um meðferð of- eða vangreiðslna skuli fara skv. 3. og 4. mgr. 33. gr., sbr. 34. gr. laga um almannatryggingar. Er þannig gengið út frá því að komi í ljós við framangreindan endurreikning að um of- eða vangreiðslu hafi verið að ræða skuli um slíkar greiðslur fara skv. 34. gr. laganna.

4. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
    Frumvarp þetta þykir hvorki fela í sér efni eða ákvæði sem gefa tilefni til sérstakrar umfjöllunar um samræmi við Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, né heldur alþjóðlegar skuldbindingar Íslands.

5. Samráð.
    Frumvarp þetta er samið í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu í samráði við Tryggingastofnun sem annast framkvæmd laga um almannatryggingar. Frumvarpið fór í innra samráð í samræmi við reglur þess efnis. Ákveðið var að frumvarpið færi ekki í opið samráð.

6. Mat á áhrifum.
    Efni frumvarpsins snertir fyrst og fremst tekjulægstu hópa þeirra sem fá greiddan örorkulífeyri, hlutaörorkulífeyri og ellilífeyri eða hafa fengið sjúkra- og endurhæfingargreiðslur á árinu 2025. Jafnframt snertir efni frumvarpsins þá sem fengu greiddan endurhæfingarlífeyri samkvæmt lögum um félagslega aðstoð á tímabilinu 1. janúar til 31. ágúst 2025.
    Áætlað er um 37.400 greiðsluþegar muni fá eingreiðslu í desember 2025, verði frumvarp þetta óbreytt að lögum. Í meðfylgjandi töflu má sjá áætlaðan fjölda þeirra sem munu fá fyrrnefnda eingreiðslu, greint eftir hópum og kyni og sundurliðað eftir því hvort gert er ráð fyrir að greiðslan verði óskert eða skert.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Eins og sést á framangreindri töflu er gert ráð fyrir að stærsti hópurinn sem komi til með að fá eingreiðslu í desember 2025 verði ellilífeyrisþegar og að þeir verði um 18.700 talsins, eða nær helmingur allra sem áætlað er að munu fá umrædda eingreiðslu, verði frumvarp þetta óbreytt að lögum. Áætlað er að þar á eftir komi örorkulífeyrisþegar og að þeir verði um 13.600 greiðsluþegar. Loks er gert ráð fyrir að þeir sem fá sjúkra- og endurhæfingargreiðslur verði um 5.000 greiðsluþegar. Ef litið er til þeirra sem gert er ráð fyrir að fái óskerta eingreiðslu er um að ræða um 17.000 greiðsluþega og eru örorkulífeyrisþegar fjölmennastir í þeim hópi, eða um 8.600 talsins. Áætlað er að svipaður fjöldi ellilífeyrisþega og þeirra sem fá sjúkra- og endurhæfingargreiðslur komi til með að fá umrædda eingreiðslu í desember 2025, eða um 4.300 greiðsluþegar í hvorum hópi. Jafnframt sést í framangreindri töflu að hlutfall kvenna sem gert er ráð fyrir að fái eingreiðslu í desember 2025 er um það bil 60% en hlutfall karla er aftur á móti um 40%. Í ljósi þess má því ætla að frumvarpið muni hafa meiri áhrif á konur en karla verði efni þess lögfest óbreytt.
    Frumvarpið þetta hefur í för með sér fjárhagsleg áhrif á ríkissjóð, verði það óbreytt að lögum, og nemur sú fjárhæð um 2 milljörðum kr.