Ferill 240. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 313  —  240. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um efnaskiptaaðgerðir.

Frá Diljá Mist Einarsdóttur.


     1.      Hversu margar efnaskiptaaðgerðir hafa verið framkvæmdar erlendis á sjúkratryggðum einstaklingum sl. fimm ár og verið niðurgreiddar af Sjúkratryggingum Íslands? Óskað er eftir sundurliðun eftir ári og hver árlegur kostnaður var.
     2.      Hver eru skilyrði þess að sjúklingur fái efnaskiptaaðgerð erlendis samþykkta með greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands?
     3.      Gefst sjúklingum kostur á efnaskiptaaðgerð hjá innlendum aðilum með sömu skilyrðum og byggt er á varðandi greiðsluþátttöku aðgerða sem framkvæmdar eru erlendis?
     4.      Hvenær tekur langtímasamningur Sjúkratrygginga Íslands við einkaaðila gildi um efnaskiptaaðgerðir sem hluta lýðheilsutengdra aðgerða? Hver er ástæða þess að samningurinn tók ekki gildi við undirritun líkt og var með aðra aðgerðaflokka?


Skriflegt svar óskast.