Ferill 250. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 323 — 250. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um upplýsingafulltrúa.
Frá Diljá Mist Einarsdóttur.
1. Eru upplýsingafulltrúar eða samskiptastjórar starfandi í ráðuneytinu? Ef svo er, hversu margir eru þeir?
2. Eru upplýsingafulltrúar eða samskiptastjórar starfandi hjá undirstofnunum ráðuneytisins? Svar óskast sundurliðað eftir stofnunum.
3. Er upplýsinga- eða samskiptadeild starfrækt í ráðuneytinu eða undirstofnunum þess? Ef svo er, er óskað eftir upplýsingum um fjölda starfsmanna á deildunum undanfarin tíu ár, sundurliðað eftir árum og stofnunum.
Skriflegt svar óskast.