Ferill 147. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 325  —  147. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um evrópska langtímafjárfestingarsjóði, nr. 115/2022.

Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.
    Nefndinni bárust engar umsagnir.
    Með frumvarpinu eru ákvæði reglugerðar (ESB) 2023/606 innleidd í íslenskan rétt með breytingum á lögum um evrópska langtímafjárfestingarsjóði, nr. 115/2022. Með þeim lögum var ELTIF-reglugerðin innleidd á sínum tíma sem kveður á um skilyrði þess að heimilt sé að stofna, reka og markaðssetja sérhæfða sjóði sem evrópska langtímafjárfestingarsjóði eða ELTIF. Fáir ELTIF-sjóðir hafa verið settir á stofn frá gildistöku ELTIF-reglugerðarinnar og í fáum aðildarríkjum. Engir slíkir sjóðir eru starfræktir á Íslandi. Með innleiðingu reglugerðarinnar sem frumvarpið kveður á um auk tengdrar framseldrar reglugerðar gætu ELTIF-sjóðir orðið áhugaverðari fjárfestingarkostur fyrir rekstraraðila sérhæfðra sjóða til að bjóða upp á.
    Meiri hlutinn leggur til eina minni háttar orðalagsbreytingu sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif.
    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    Orðin „mat á“ í 2. mgr. h-liðar 1. gr. falli brott.

    Stefán Vagn Stefánsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 11. nóvember 2025.

Pawel Bartoszek,
frsm.
Anna María Jónsdóttir. Elín Íris Fanndal.
Hannes S. Jónsson. Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir. Tómas Þór Þórðarson.
Vilhjálmur Árnason.