Ferill 132. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 326 — 132. mál.
Svar
mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Tryggva Mássyni um þjónustugjöld.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvaða þjónustugjöld hafa ráðuneytið og undirstofnanir þess heimild til að innheimta, hver er fjárhæð hvers þjónustugjalds, hver er lagastoð fyrir hverju gjaldi og hvaða útreikningur eða áætlun á þeim kostnaði sem hlýst af því að veita umrædda þjónustu liggur til grundvallar hverju gjaldi? Svar óskast sundurliðað eftir stofnun.
Mennta- og barnamálaráðuneyti innheimtir ekki þjónustugjöld. Þjónustugjöld sem innheimt eru af undirstofnunum ráðuneytisins skipta hundruðum. Samantekt á hverju gjaldi fyrir sig, auk upplýsinga um útreikning eða áætlun á kostnaði, myndi kalla á svo umfangsmikla vinnu af hálfu ráðuneytisins að fyrirspurninni yrði ekki svarað innan þess ramma sem ákveðinn er í 6. mgr. 57. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991. Þá væri ekki hægt að svara henni í stuttu máli líkt og gert er ráð fyrir í 1. mgr. sömu greinar. Í því ljósi getur ráðuneytið ekki svarað fyrirspurninni eins og hún er sett fram. Þess í stað eru settar fram almennar upplýsingar og dæmi um þjónustugjöld sem innheimt eru af undirstofnunum ráðuneytisins. Upphæð þjónustugjalda er ætlað að standa að hluta eða öllu leyti undir kostnaði við tiltekna þjónustu sem er veitt.
Framhaldsskólar.
Alls eru starfandi 27 opinberir framhaldsskólar. Í 45. og 46. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008, er mælt fyrir um gjaldtökuheimildir opinberra framhaldsskóla. Samkvæmt ákvæðunum er m.a. heimilt að taka gjald fyrir innritun, efnisgjald, rafrænt námsefni, valkvæða starfsemi og fyrir aðra þjónustu sem er í boði og telst ekki vera hluti af eða leiða af lögbundnu hlutverki skóla.
Nánar er fjallað um gjaldtökuheimildir, fyrirkomulag þeirra og málsmeðferð í reglugerð sem ráðherra setur, sbr. reglugerð um gjaldtökuheimildir opinberra framhaldsskóla, nr. 614/2009. Þannig skal upphæð innritunargjalda aldrei vera hærri en 12.000 kr. á skólaári, en heimilt er að taka 25% hærra gjald af þeim sem innritast utan auglýsts innritunartíma. Bjóði skóli nám utan daglegs starfstíma framhaldsskóla og í fjarnámi er jafnframt heimilt að taka sérstakt gjald af nemendum sem er 2.500 kr. á námseiningu. Upplýsingar um gjaldskrá hvers framhaldsskóla er að finna á vef viðkomandi skóla.
Ráðgjafar- og greiningarstöð.
Eitt af hlutverkum stofnunarinnar er að sinna ráðgjöf og fræðslu og stendur hún fyrir fræðslunámskeiðum og erindum, auk þjónustutengdrar fræðslu. Samkvæmt 12. gr. laga um Ráðgjafar- og greiningarstöð, nr. 83/2003, setur ráðherra gjaldskrá til að standa straum af kostnaði við námskeiðahald, útgáfu fræðsluefnis og faglega aðstoð og ráðgjöf til stjórnvalda og annarra þjónustuveitenda.
Barna- og fjölskyldustofa.
Eitt af meginhlutverkum Barna- og fjölskyldustofu er að veita og styðja við þjónustu í þágu barna. Stofunni eru falin ýmis verkefni á grundvelli laga sem um hana gilda, sbr. lög nr. 87/2021, og sinnir hún verkefnum sem tengjast þjónustu í þágu barna á grundvelli annarra laga, svo sem barnaverndarlaga, nr. 80/2002, laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, og laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021.
Samkvæmt 4. mgr. 7. gr. barnaverndarlaga er heimilt að taka gjöld fyrir sérstök verkefni sem Barna- og fjölskyldustofa sinnir skv. 3. mgr. sömu greinar eftir því sem nánar er kveðið á um í reglugerð. Gjaldið skal aldrei vera hærra en nemur kostnaði við rekstur þjónustumiðstöðvar eða þeirrar sértæku þjónustu sem um ræðir, þ.m.t. er kostnaður vegna launa og þjálfunar starfsfólks svo og önnur útgjöld sem sannanlega hljótast af þjónustunni.
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu innheimtir ekki þjónustugjöld.