Ferill 211. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 345  —  211. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Bryndísi Haraldsdóttur um skimanir fyrir legháls- og brjóstakrabbameini.


     1.      Hversu hátt hlutfall kvenna fer í skimanir fyrir leghálskrabbameini og brjóstakrabbameini og hver er ávinningurinn af þeim skimunum?
    Árið 2024 var þátttökuhlutfall boðaðra kvenna í skimun fyrir leghálskrabbameini 64% og 61% í skimun fyrir brjóstakrabbameini. Í báðum þessum skimunum hefur þátttaka verið að aukast undanfarin ár þótt hún sé undir viðmiðunarmörkum, en ásættanleg þátttaka telst 75%.
     Markmið skimunar fyrir leghálskrabbameini er að koma í veg fyrir að forstig þróist yfir í krabbamein. Samkvæmt erlendum rannsóknum er vel þekkt að reglubundin þátttaka í skimun fyrir leghálskrabbameini fækkar krabbameinstilfellum um 90%. Þessi sami árangur hefur einnig fengist staðfestur á Íslandi.
    Markmið skimunar fyrir brjóstakrabbameini er ekki að koma í veg fyrir krabbamein heldur að greina krabbamein á snemmstigum sem eykur líkurnar á umfangsminni meðferð (aðgerð, lyfjameðferð, geislun) og bætir einnig horfur (eykur lífslíkur). Samkvæmt rannsóknum sem Krabbameinsskrá hefur gert þá hefur lýðgrunduð skimun fyrir brjóstakrabbameini lækkað dánartíðni af völdum sjúkdómsins um 35–40% á Íslandi. Sá árangur er sambærilegur við það sem sést hefur annars staðar á Norðurlöndunum.
    
     2.      Stendur til að bólusetja konur á aldrinum 25–37 ára gegn leghálskrabbameini? Ef ekki, hvers vegna?
    Það stendur ekki til að gera bólusetningar gegn leghálskrabbameini fyrir konur á aldrinum 25–37 ára hluta af almennum bólusetningum sem sóttvarnalæknir skipuleggur samkvæmt reglugerð um bólusetningar á Íslandi, nr. 221/2001, með síðari breytingum. Almennar bólusetningar eru þær sem boðnar eru öllum íbúum landsins án endurgjalds samkvæmt bólusetningaráætlun Íslands.
    Við mat á því hvort bóluefni skuli tekið upp í almenna bólusetningaráætlun eru notuð ákveðin viðmið. Litið er til þess að sjúkdómurinn sem bólusetning beinist gegn valdi útbreiddum og/eða alvarlegum veikindum og ógni þannig lýðheilsu, að bóluefnið dragi verulega úr áhrifum sjúkdóms á einstakling og samfélag, að það sé öruggt og valdi minni skaða en sjúkdómurinn sjálfur og að kostnaður við bólusetningu sé ekki meiri en samfélagslegur kostnaður við sjúkdóminn áður en bólusetning hefst.
    Bólusetning gegn HPV (human papillomavirus) hófst hér á landi árið 2011 og beindist þá að stúlkum. Hún var útvíkkuð árið 2023 og nú eru bæði drengir og stúlkur bólusett í 7. bekk grunnskóla með breiðvirkara bóluefni sem ver einnig gegn kynfæravörtum. HPV-bóluefni er ekki meðferð við HPV-sýkingu; virkni þess er mest þegar það er gefið áður en HPV-smit verður, þ.e. áður en einstaklingur hefur haft kynmök. Með auknum aldri aukast líkurnar á að smit hafi þegar orðið og því dregur úr gagnsemi bólusetningar.
    Árangur og kostnaðarhagkvæmni HPV-bólusetningar hjá fullorðnum, þar á meðal konum á aldrinum 25–37 ára, er óljós. Rannsóknir sýna að fleiri skammta þarf til að ná sambærilegri virkni hjá fullorðnum en hjá börnum og gagnsemi minnkar eftir því sem sýkingar hafa staðið lengur. Því hefur sóttvarnalæknir ekki mælt með almennri HPV-bólusetningu fyrir þennan aldurshóp. Í stað bólusetningar eftir 25 ára aldur er boðið upp á reglubundna leghálsskimun til að greina frumubreytingar snemma.
    
     3.      Hversu mikilvægt er átakið „bleikur október“ og góðgerðarfélagið Lífskraftur að mati ráðherra?

    Ráðherra telur átakið „bleikur október“ og starfsemi góðgerðarfélagsins Lífskrafts mikilvæga þætti í baráttunni gegn krabbameinum í brjóstum og leghálsi, sem saman eru um 35% af öllum krabbameinum hjá konum.
    Bleikur október hefur í gegnum árin fest sig í sessi sem öflug vitundarvakning sem hvetur einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir til að taka virkan þátt í baráttunni gegn brjóstakrabbameini. Slík samfélagsleg samstaða og opin umræða um brjóstakrabbamein hefur mikla þýðingu fyrir lýðheilsu, eflingu forvarna og skimana, ásamt því að styðja við þá sem greinast með brjóstakrabbamein og fjölskyldur þeirra.
    Góðgerðarfélagið Lífskraftur hefur jafnframt unnið mikilvægt starf sem styður við krabbameinstengd verkefni. Átak félagsins sem miðar að útrýmingu leghálskrabbameins á Íslandi hefur m.a. vakið athygli á mikilvægi þess að konur nýti sér boðaða leghálsskimun og hlúi að eigin heilsu til að minnka líkur á krabbameini.
    Ráðherra lítur því svo á að bæði átakið bleikur október og starf Lífskrafts séu mikilvægir þættir í baráttunni gegn krabbameinum. Ráðherra metur það mikils að slíkt frumkvæði og sjálfboðastarf fái áfram góðan hljómgrunn og stuðning í samfélaginu.