Ferill 260. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 348 — 260. mál.
Fyrirspurn
til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um sérstaka ívilnun námsgreina.
Frá Sæunni Gísladóttur.
1. Hversu margir hafa nýtt sér heimild um sérstaka ívilnun námsgreina, sbr. 27. gr. laga um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020? Svar óskast sundurliðað eftir tegund vinnuveitenda og árum frá árinu 2020.
2. Hversu margir hafa nýtt sér heimild um sérstaka ívilnun vegna námsgreina á sérstökum svæðum, sbr. 28. gr. laga um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020? Svar óskast sundurliðað eftir landsvæðum, tegund vinnuveitenda og árum frá árinu 2020.
3. Hvernig metur ráðherra árangur af beitingu heimilda um sérstaka ívilnun, sbr. 27. og 28. gr. laga um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020?
Skriflegt svar óskast.