Ferill 207. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 351 — 207. mál.
Svar
félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Isaksen um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hefur ráðherra í hyggju að beita sér fyrir breytingu á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, þannig að ríkissjóði verði heimilt að endurgreiða sveitarfélögum fjárhagsaðstoð við erlenda ríkisborgara sem átt hafa lögheimili á Íslandi lengur en tvö ár? Ef svo er, hvenær verður frumvarp þar að lútandi lagt fram?
2. Hyggst ráðherra bregðast við ákalli Borgarbyggðar um að mæta kostnaði vegna fjölda flóttamanna sem búa á Bifröst, þar á meðal barna og eldri borgara? Ef svo er, með hvaða hætti?
3. Hver er ábyrgð ráðuneytisins á núverandi stöðu á Bifröst og hvernig hyggst ráðuneytið bregðast við?
Í samvinnu við sveitarfélögin stendur nú yfir í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu vinna við endurskoðun á endurgreiðslu ríkissjóðs til sveitarfélaga vegna veittrar aðstoðar sveitarfélaganna til erlendra ríkisborgara, þ.m.t. á 2. mgr. 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Þar sem framangreindri vinnu er ekki lokið þykir of snemmt að segja til um hvort og þá hvernig lagt verður til að lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga verði breytt. Í ljósi framangreinds þykir jafnframt of snemmt að segja til um hvort og þá hvenær frumvarp verður lagt fram í þessu sambandi.
Fyrir hönd ríkissjóðs ber félags- og húsnæðismálaráðuneytið ábyrgð á endurgreiðslu ríkissjóðs til sveitarfélaga, þ.m.t. til Borgarbyggðar, skv. 15. gr. laga um félagslega aðstoð, nr. 40/1991, vegna veittrar aðstoðar sveitarfélaganna við erlenda ríkisborgara og hefur ráðuneytið falið Vinnumálastofnun framkvæmdina hvað það varðar. Þá greiðir ráðuneytið sveitarfélögum, sem gert hafa þjónustusamning við ráðuneytið og Vinnumálastofnun um samræmda móttöku flóttafólks, þ.m.t. Borgarbyggð, fyrir þjónustu hlutaðeigandi sveitarfélags við tiltekinn fjölda flóttafólks. Á grundvelli framangreinds samnings er greitt fyrir þjónustu sem er umfram lögbundna þjónustu sveitarfélagsins við fólk sem skráð hefur lögheimili sitt í sveitarfélaginu. Hefur ráðuneytið jafnframt falið Vinnumálastofnun framkvæmd og eftirlit með fyrrnefndum samningum.
Á undanförnum mánuðum hefur Vinnumálastofnun, með aðkomu félags- og húsnæðismálaráðuneytisins, unnið markvisst með Borgarbyggð að því að greina þann hóp flóttafólks sem býr á Bifröst með það að markmiði að finna varanlega lausn fyrir viðkomandi einstaklinga, m.a. hvað varðar búsetu og hugsanlega þátttöku á vinnumarkaði, eftir því sem við á. Standa vonir til þess að með þessu samstillta átaki Vinnumálastofnunar og Borgarbyggðar verði unnt að aðstoða flóttafólk sem býr á Bifröst við að verða virkir þátttakendur í samfélaginu og á vinnumarkaði, eftir því sem við á.