Ferill 195. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 353  —  195. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka.


     1.      Hver var hlutfallslegur mismunur á sölugengi hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka í útboði í maí 2025 og síðasta dagslokagengi hlutabréfanna fyrir útboð?
    Samkvæmt lögum nr. 80/2024, um ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf., mátti sölugengi hlutabréfa ríkisins í útboði vera allt að 5% lægra en viðmiðunarverð, sem skyldi vera annaðhvort meðalverð hlutabréfa Íslandsbanka síðustu 15 daga fyrir birtingu útboðslýsingar eða síðasta dagslokagengi hlutabréfanna fyrir birtingu útboðslýsingar.
    Að höfðu samráði við umsjónaraðila útboðsins og fjármálaráðgjafa ráðuneytisins um markaðsaðstæður var ákveðið að fara fyrri leiðina, þ.e. meðalverð síðustu 15 daga með 5% afslætti. Hlutfallslegur mismunur á sölugengi hlutabréfa Íslandsbanka í útboðinu (106,56 kr. per hlut í samræmi við framangreind lagaákvæði) og síðasta dagslokagengi fyrir útboðið, þ.e. 12. maí 2025 (114,5 kr.), var 7,5%.

     2.      Hver er mismunur á heildarsöluverði í útboðinu í maí 2025 og söluverði ef miðað er við síðasta dagslokagengi bréfanna fyrir útboð?
    Mismunurinn er 6.749.000.056 kr. Alls óvíst er að útboðið hefði gengið upp ef útboðsgengið hefði verið síðasta dagslokagengi fyrir útboð.

     3.      Hver var hlutfallslegur mismunur á sölugengi hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka í útboði í mars 2022 og síðasta dagslokagengi hlutabréfanna fyrir útboð?
    Mismunurinn er 4,1%.

     4.      Hver er mismunur á heildarsöluverði í útboðinu í mars 2022 og söluverði ef miðað er við síðasta dagslokagengi bréfanna fyrir útboð?
    Mismunurinn er 2.250.000.000 kr. Athugið að seldir hlutir 2022 voru aðeins 53% af magni seldra hluta 2025 (450.000.000 / 850.000.007).

     5.      Ef útboðsgengið hefði verið það sama í útboðinu 2025 og það var 2022, hvert hefði söluverðmætið 2025 orðið?
    Um er að ræða tvær ólíkar söluaðferðir, misstór útboð og gjörólíkar markaðsaðstæður. Vorið 2022 voru 450 milljón hlutir seldir með tilboðsfyrirkomulagi yfir nótt, 2025 voru 850 milljón hlutir seldir í markaðssettu útboði yfir þrjá virka daga. Ef útboðsgengið 2025 hefði verið 117 kr. er mjög ósennilegt að 850 milljón hlutir hefðu selst. Þar að auki þarf að taka tillit til þess að á tímabilinu á milli útboðanna tveggja greiddi Íslandsbanki eigendum sínum arð sem samsvarar 18,74 kr. á hvern hlut. Af þessu leiðir að um ósambærilegar stærðir er að ræða.
    Ef útboðsgengið hefði verið 117 kr. 2025 og sami fjöldi hluta hefði selst þá hefði söluverðmætið verið 117 kr. * 850.000.007 = 99.450.000.819 kr.
    Til upplýsingar þá voru hlutabréf ríkisins í Íslandsbanka seld í þremur útboðum:
          Í frumútboði (e. initial public offering) í júní 2021 þar sem seldir voru 699.999.993 hlutir á genginu 79 kr. per hlut, eða samtals söluandvirði um 55,3 ma.kr.
          Með tilboðsfyrirkomulagi (e. accelerated bookbuilding) í mars 2022 þar sem seldir voru 450.000.000 hlutir á genginu 117 kr. per hlut, eða samtals söluandvirði um 52,7 ma.kr.
          Í markaðssettu útboði (e. fully marketed offering) í maí 2025 þar sem seldir voru 850.000.007 hlutir á genginu 106,56 kr. per hlut, eða samtals söluandvirði um 90,6 ma.kr.
    Í fyrstu tveimur útboðunum var stuðst við almenn lög um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum og hefðbundna útboðsferla (IPO og ABB), þ.m.t. hvað verðlagningu varðaði. Í lokaútboðinu var hins vegar unnið samkvæmt ákvæðum sérlaga um sölu eftirstandandi hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka þar sem áhersla var lögð á forgang almennings og að verð til einstaklinga væri lágmarksverð og það ákveðið fyrir útboðið samkvæmt viðmiðum laganna.
    Stuðst var við dagslokagengi sem birt eru á vefsvæði Nasdaq og sölugengi seljanda í hvert skipti.