Ferill 262. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 358 — 262. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988 (viðgerðir).
Flm.: Ingvar Þóroddsson, Jón Gnarr, Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir.
1. gr.
2. gr.
Greinargerð.
Það er óumdeilt að víða má gera mun betur þegar kemur að hringrásarhagkerfinu hér á landi. Þannig hefur Umhverfis- og orkustofnun áætlað að um 3/5 hlutar alls textíls séu urðaðir með öðrum úrgangi og fari því hvorki í endurvinnslu né til annarrar endurnýtingar. Staðreynd gögn eru ekki til um aðra þætti sem þetta frumvarp nær til. Þó eru engar sérstakar vísbendingar um að hlutfall endurvinnslu eða endurnýtingar sé þar hærra en hvað varðar textíl.
Samþykkt þessa frumvarps mun verða til þess fallin að styðja enn frekar við iðnaðar-, handverks- og verkafólk í þessum tilteknu greinum. Til mikils er að vinna að styðja þessar greinar eftir föngum til að gera þær eftirsóttari og einnig til að viðhalda verkþekkingu hér á landi.
Að lokum má taka fram að frumvarpið nær til hluta sem eru á öllum íslenskum heimilum og munar oft um í rekstri þeirra. Meiri nýting hvers hlutar er til þess fallin að lækka rekstrarkostnað heimila, minnka innflutning og mun einnig hafa áhrif á verðbólgu. Þótt þessi áhrif séu ekki veruleg þá eru þau til staðar.