Ferill 111. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 360  —  111. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um sýslumann.

Frá 2. minni hluta allsherjar- og menntamálanefndar.


    Um árabil hafa sýslumannsembættin og dómsmálaráðuneytið unnið að umbótum á þjónustu og rekstri embættanna. Umtalsverður árangur hefur náðst hvað þetta varðar en í því sambandi er sérstaklega vísað til laga um framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði, nr. 50/2014, þar sem sýslumannsembættunum var fækkað úr 24 í 9. Jafnframt var löggæsla að fullu aðskilin frá þeim og ný lögregluembætti stofnuð. Breytingarnar áttu að efla sýslumannsembættin og gera þau betur í stakk búin til að sinna lögbundnum skyldum sínum. Einkum skyldi leitast við að bæta þjónustu við borgara, auka rekstrarhagkvæmni og efla stjórnsýslu sýslumannsembættanna. Á næstu árum var þessari vinnu framhaldið með stefnumótun og skýrslugerð og birtist afrakstur hennar m.a. í skýrslu þáverandi dómsmálaráðherra um sýslumenn, framtíðarsýn og umbætur á þjónustu og rekstri ( þskj. 1043, 609. mál á 151. löggjafarþingi) sem liggur að baki frumvarpi þessu.

Skipulag embættis og staðsetning starfsstöðva ákveðin af ráðherra með reglugerð.
    Frumvarp þetta hefur tekið ýmsum breytingum frá því það var fyrst kynnt í samráðsgátt stjórnvalda 13. júlí 2022. Helst ber að nefna að áður var miðað við að innra skipulag sameinaðs embættis yrði lögbundið með því að kveða á um hlutverk yfirstjórnar, þ.e. sýslumanns og svæðisstjóra, aðsetur sýslumanns og að landinu skyldi skipt í níu svæði, hvert með tilteknum fjölda starfsstöðva. Í frumvarpinu sem nú er til umfjöllunar hefur verið horfið frá þessum áformum og er nú lagt til að starfsemin skuli fara fram um land allt og að nánara skipulag embættisins verði ákveðið í reglugerð að höfðu samráði við sýslumann og Samband íslenskra sveitarfélaga.
    Annar minni hluti tekur undir með Sýslumannafélagi Íslands að í þessu felist nokkur breyting á skipan stjórnsýslu ríkisins sem á sér djúpar rætur í íslensku samfélagi og rekja má til árdaga framkvæmdarvalds. Í þessu sambandi verður að nefna tilgang gildandi fyrirkomulags og þær forsendur sem eru fyrir tilvist hliðsettra stjórnvalda og framkvæmdarvalds ríkisins í héraði, þ.e. réttaröryggi, nauðsynlega dreifingu og temprun valds. Reyndin er sú að verkefni sýslumanna eru ekki eins og hver önnur opinber verkefni sem lúta lögmálum rekstrar og hagkvæmni heldur eru þau safn viðfangsefna sem að jafnaði lýsa mikilvægum skyldum ríkisins gagnvart borgurum og mannréttindum þeirra.
    Fyrir nefndinni lýstu umsagnaraðilar áhyggjum af því hvaða áhrif frumvarpið kynni að hafa á veitingu þjónustu á starfsstöðvum sýslumanns um landið allt ef það væri ekki kveðið á um starfsstöðvar í lögunum sjálfum.
    Í umsögn Byggðastofnunar kemur fram að tilgreining starfsstöðva í lögum um sýslumann styðji betur við það markmið að fjölga störfum á landsbyggðinni og stuðla að jöfnu aðgengi að opinberri þjónustu. Bendir stofnunin á að afar brýnt sé að jafna hlutfall opinberra starfa um landið allt með byggðasjónarmið að leiðarljósi, en 70% ríkisstarfa eru á höfuðborgarsvæðinu þrátt fyrir að þar búi einungis um 64% landsmanna. Í því samhengi er mikilvægt að yfirstjórn starfsemi hins opinbera sé einnig á landsbyggðinni og að þar séu ekki eingöngu rekin útibú frá höfuðborgarsvæðinu. Þá bendir stofnunin á að hún hafi unnið ítarlega staðarvalsgreiningu á staðsetningu yfirstjórnar embættisins fyrir dómsmálaráðuneytið út frá byggðasjónarmiðum. Niðurstaða þeirrar vinnu var að Húsavík í Norðurþingi var talinn ákjósanlegur staður fyrir aðsetur sýslumanns og eftir atvikum hluta yfirstjórnar embættisins.
    Í umsögn Vestfjarðastofu, sem unnin var fyrir Fjórðungssamband Vestfirðinga, er bent á að þróun starfa á Vestfjörðum er varða sérhæfða þjónustu, rannsóknir og þróun hafi verið neikvæð um árabil. Störfum hafi fækkað þrátt fyrir loforð um annað.
    Í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga er lögð áhersla á þjónustu sýslumanns um allt land og verndun starfa á landsbyggðinni. Þá er greint frá áhyggjum sveitarfélaga og landshlutasamtaka af því hvaða áhrif það hefði að sameina embættin í eitt, bæði hvað varðar þjónustu við íbúa sem og störf um allt land. Hætta sé á að útibúum um landið fækki og þar með störfum í héraði. Sambandið leggur mikla áherslu á verndun og eflingu starfa á landsbyggðinni. Hvert og eitt starf geti skipt miklu máli enda fylgja einu starfi oft fleiri einstaklingar, t.d. makar og börn, sem auðga og efla viðkomandi byggðarlög.
    Í umsögn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) eru ítrekaðar áhyggjur af því að verið sé að færa opinbert vald fjær þegnum landsins og fækka opinberum stöðum á landsbyggðinni. Þá eru reifaðar áhyggjur af því að stefnt sé að því að efla starfsemina á landsbyggðinni með því að fela sýslumanni ný verkefni en ekki sé tiltekið hvers konar verkefni um ræðir eða hver fjöldi starfsstöðva verður.

Breytingartillögur.
Svæðaskipting.
    Breytingartillaga Jóns Gunnarssonar sem liggur fyrir við málið á þingskjali 138 miðar að því að bæta úr þessu þannig að í lögum væri sérstaklega mælt fyrir um aðsetur sýslumanns, auk þess sem landinu yrði skipt upp í svæði sem lúta stjórn svonefndra svæðisstjóra. Svæðaskiptingin mun ekki hafa áhrif á þjónustuþega þar sem þeim mun standa til boða að leita til þeirrar starfsstöðvar sem þeim hentar hverju sinni, óháð búsetu eða öðrum þáttum sem áður höfðu áhrif á verkaskiptingu sýslumanna. Svæðaskipting er fyrst og fremst ákveðin fyrir innra skipulag hins nýja embættis og til þess að tryggja að starfsemi hins opinbera verði áfram dreifð um landið og aðgengileg í nærumhverfi almennings, óháð búsetu. Þá er jafnframt gert ráð fyrir að nýr sýslumaður geti með tímanum endurskipulagt starfsemina og falið hverju svæði ábyrgð á tilteknu fagsviði eða málefni til að tryggja enn frekar samræmda framkvæmd, aukin afköst og vandaða málsmeðferð. Er þar fyrst og fremst horft til eiginlegrar stýringar og vinnslu erinda og því standi þjónusta sýslumanns áfram almenningi til boða á öðrum starfsstöðvum.
    Að öllu framangreindu virtu telur 2. minni hluti betur fara á því að aðsetur sýslumanns, skipulag og staðsetning starfsstöðva verði ákveðin með lögum líkt og breytingartillaga Jóns Gunnarsonar felur í sér.
    Þá eru gerðar alvarlegar athugasemdir við að meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar hafi ekki vikið að né fjallað með nokkrum hætti um breytingartillögu Jóns Gunnarssonar, sem þó lá fyrir þegar málinu var vísað til nefndarinnar að lokinni 1. umræðu.

Hæfisskilyrði.
    Í 3. gr. frumvarpsins er lagt til að fellt verði brott það skilyrði gildandi laga að sýslumaður hafi lokið fullnaðarprófi í lögfræði. Í stað þess er kveðið á um almennt skilyrði um „háskólamenntun og reynslu af stjórnun sem nýtist í starfi“. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að markmiðið sé að víkja frá áskilnaði um lögfræðimenntun og „þrengja ekki um of“ hæfisskilyrðin. 2. minni hluti bendir á að þessi rök standast ekki þegar litið er til umfangs og eðlis þeirra verkefna sem sýslumaður fer með.
    Verkefni sýslumannsembætta eru í grunninn flókin lögfræðileg úrlausnarefni sem varða beint réttindi og skyldur einstaklinga og lögaðila. Má þar nefna fullnustugerðir, kyrrsetningar og lögbann, hjúskaparmál, forsjármál, erfðamál, skiptastjórn dánarbúa, ættleiðingar og umfangsmikil störf við þinglýsingar. Að dómstólum frátöldum gegnir engin önnur stofnun jafn víðfeðmu og viðkvæmu lögfræðilegu hlutverki. Ákvarðanir sýslumanns og fulltrúa hans hafa oft úrslitaáhrif á grundvallarréttindi borgaranna og verða að standast strangar kröfur laga, m.a. samkvæmt stjórnarskránni og mannréttindasáttmálum.
    Í ljósi þessa er óhjákvæmilegt að æðsti embættismaðurinn hafi djúpa og trausta lögfræðiþekkingu. Þótt sýslumaður geti ráðið sérfræðinga til að sinna rekstri, fjármálum og mannauðsstjórn, er fagleg ábyrgð á lögfræðilegu innihaldi starfseminnar hans ein og óskipt. Sýslumaður ber ábyrgð á efnislegu lögmæti ákvarðana fulltrúa sinna, leiðir starf þeirra og sker úr um vafaatriði. Það er þversögn, eins og Félag löglærðra fulltrúa sýslumanna bendir á í umsögn sinni frá 8. október 2025, að gera kröfu um lögfræðimenntun til fulltrúa sem taka ákvarðanir í umboði sýslumanns en ekki til forstöðumannsins sjálfs sem ber endanlega ábyrgð á þeim. Laganefnd Lögmannafélags Íslands hefur bent á að hæfisskilyrði sýslumanns ættu að lágmarki að vera sambærileg þeim sem gerð eru til héraðsdómara og annarra embættismanna með sambærilega ábyrgð.
    Að afnema kröfu um lögfræðimenntun væri því verulegt skref aftur á bak í réttaröryggi borgaranna og gæti grafið undan trausti á embættinu. 2. minni hlutinn telur því nauðsynlegt að 3. gr. frumvarpsins verði breytt þannig að lögfræðimenntun verði áfram skilyrði til skipunar í embætti sýslumanns.
    Annar minni hluti styður breytingartillögu á þingskjali 138 en leggur þó til eina breytingu á henni.
    Að framangreindu virtu leggur 2. minni hluti til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


     1.      E-liður 1. mgr. 3. gr. orðist svo: hefur lokið embættisprófi eða grunnnámi ásamt meistaraprófi í lögum og reynslu af stjórnun sem nýtist í starfi.
     2.      4. tölul. breytingartillögu á þingskjali 138 orðist svo: 2. mgr. 3. gr. orðist svo:
                  Svæðisstjórar og löglærðir fulltrúar sýslumanns skulu fullnægja skilyrðum a–e-liðar 1. mgr.

Alþingi, 17. nóvember 2025.

Sigurður Örn Hilmarsson,
frsm.
Jón Pétur Zimsen.