Ferill 264. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 362  —  264. mál.
Stjórnarfrumvarp.



Frumvarp til laga


um aðgengi að vefsetrum og smáforritum opinberra aðila.

Frá fjármála- og efnahagsráðherra.



I. KAFLI
Markmið, gildissvið og orðskýringar.
1. gr.
Markmið.

    Markmið laga þessara er að tryggja að vefsetur og smáforrit fyrir fartæki á vegum opinberra aðila séu aðgengileg öllum, einkum fötluðu fólki, með því að gera þau skynjanleg, nothæf, skiljanleg og traust.

2. gr.
Gildissvið.

    Lög þessi gilda um vefsetur og smáforrit fyrir fartæki á vegum opinberra aðila.
    Lögin gilda ekki um:
     1.      Vefsetur og smáforrit fyrir fartæki á vegum útvarpsrekenda í almannaþágu.
     2.      Vefsetur og smáforrit fyrir fartæki á vegum frjálsra félagasamtaka nema þau veiti þjónustu sem er nauðsynleg almenningi eða þjónustu sem beinist sérstaklega að þörfum fatlaðs fólks.

3. gr.
Orðskýringar.

    Í lögum þessum hafa eftirfarandi hugtök þá merkingu sem hér segir:
     1.      Opinber aðili: Ríki, sveitarfélög, stofnanir þeirra og samtök og aðrir opinberir aðilar.
     2.      Smáforrit fyrir fartæki: Notkunarhugbúnaður sem er hannaður og þróaður af eða fyrir hönd opinberra aðila, til notkunar fyrir almenning á fartækjum eins og snjallsímum eða spjaldtölvum.
     3.      Vöktunaraðili: Sá aðili sem ráðherra felur með reglugerð að annast tæknilega vöktun og leiðbeiningar samkvæmt lögum þessum.

II. KAFLI
Kröfur og skyldur.
4. gr.
Aðgengiskröfur.

    Opinberir aðilar skulu gera nauðsynlegar ráðstafanir til að gera vefsetur sín og smáforrit fyrir fartæki aðgengileg með því að gera þau skynjanleg, nothæf, skiljanleg og traust.

5. gr.
Óhófleg byrði.

    Opinberir aðilar skulu uppfylla aðgengiskröfur skv. 4. gr. að því marki sem þær verða þeim ekki óhófleg byrði.
    Við mat á því hvort um óhóflega byrði sé að ræða skv. 1. mgr. skal tekið tillit til stærðar, auðlinda og eðlis viðkomandi opinbers aðila, ásamt áætluðum kostnaði og ávinningi fyrir aðilann í tengslum við áætlaðan ávinning fyrir fatlað fólk.

6. gr.
Aðgengisyfirlýsing og endurgjöf.

    Opinberir aðilar skulu birta og uppfæra reglulega yfirlýsingu um aðgengi á vefsetrum sínum og í smáforritum fyrir fartæki.
    Opinberir aðilar skulu koma á fót aðgengilegri leið fyrir notendur til að veita endurgjöf, tilkynna um vanefndir á aðgengiskröfum og biðja um upplýsingar sem eru undanskildar.

III. KAFLI
Eftirlit og framfylgd.
7. gr.
Reglubundið eftirlit og skýrslugjöf.

    Vöktunaraðili skal árlega gera úttekt á úrtaki vefsetra og smáforrita opinberra aðila.
    Niðurstöður hverrar úttektar skulu birtar opinberlega. Vöktunaraðili skal á þriggja ára fresti taka saman skýrslu um niðurstöður eftirlits og skila til Eftirlitsstofnunar EFTA.
    Vöktunaraðili skal, til að styðja við framkvæmd laganna, gefa út almennar leiðbeiningar um framkvæmd tæknilegra krafna, útbúa og birta fyrirmynd að aðgengisyfirlýsingu skv. 6. gr. og stuðla að þjálfun og vitundarvakningu um stafrænt aðgengi hjá opinberum aðilum.

8. gr.
Kvartanir og úrbætur.

    Hver sá sem telur að opinber aðili uppfylli ekki kröfur laga þessara getur beint ábendingu til viðkomandi aðila.
    Ef ekki er brugðist við ábendingu skv. 1. mgr. á fullnægjandi hátt innan hæfilegs frests er unnt að beina formlegri kvörtun til þess stjórnvalds sem fer með kærumál samkvæmt lögum þessum. Stjórnvaldið getur beint bindandi fyrirmælum til opinbers aðila um að gera úrbætur innan hæfilegs frests.


9. gr.
Dagsektir.

    Sinni opinber aðili ekki fyrirmælum stjórnvalds skv. 8. gr. innan tilsetts frests getur stjórnvaldið lagt dagsektir á viðkomandi aðila.
    Dagsektir renna í ríkissjóð og falla niður þegar úrbætur hafa verið gerðar að mati stjórnvalds.

IV. KAFLI
Gildistaka o.fl.
10. gr.
Innleiðing.

    Lög þessi eru sett til innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/2102 frá 26. október 2016 um aðgengi vefsetra opinberra aðila og smáforrita þeirra fyrir fartæki, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 59/2021 frá 5. febrúar 2021.

11. gr.
Reglugerðarheimild.

    Ráðherra er heimilt í reglugerð setja nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara, þar á meðal um:
     1.      Nánari afmörkun á undanþágum frá gildissviði laganna skv. 2. mgr. 2. gr.
     2.      Tæknilegar kröfur og staðla um aðgengi skv. 4. gr.
     3.      Skilyrði og formlegt ferli fyrir mat á óhóflegri byrði skv. 5. gr.
     4.      Form, lágmarksefni, birtingu og fyrirmynd að aðgengisyfirlýsingu, svo og fyrirkomulag endurgjafar skv. 6. og 7. gr.
     5.      Hlutverk og tilnefningu eftirlitsaðila annars vegar og framfylgdaraðila hins vegar, þar á meðal að:
              a.      fela sérstakri starfseiningu eða ríkisaðila sem starfar á ábyrgð ráðherra hlutverk vöktunaraðila til að annast tæknilega vöktun og leiðbeiningar skv. 7. gr.,
              b.      fela stjórnvaldi það hlutverk að annast meðferð kærumála og úrskurða um brot skv. 8. gr.
     6.      Aðferðafræði fyrir eftirlit og skýrslugjöf skv. 7. gr.
     7.      Málsmeðferð og fresti vegna kvartana og úrbóta skv. 8. gr.
     8.      Viðbótarráðstafanir ríkisins til að stuðla að þjálfun og aukinni vitund um aðgengismál skv. 3. mgr. 7. gr.
     9.      Fjárhæð, útreikning, álagningu og innheimtu dagsekta skv. 9. gr.

12. gr.
Gildistaka.

    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2026.
    Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. koma ákvæði 4.–9. gr. til framkvæmda sem hér segir:
     1.      1. júlí 2026 fyrir vefsetur opinberra aðila sem voru fyrst gerð almenningi aðgengileg eftir 1. janúar 2015.
     2.      1. janúar 2027 fyrir önnur vefsetur opinberra aðila.
     3.      1. júlí 2027 fyrir smáforrit opinberra aðila fyrir fartæki.

Greinargerð.

1. Inngangur.
    Frumvarp þetta er samið í fjármála- og efnahagsráðuneytinu og felur í sér innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/2102 frá 26. október 2016 um aðgengi vefsetra opinberra aðila og smáforrita þeirra fyrir fartæki (hér eftir nefnd vefaðgengistilskipunin eða tilskipunin). Með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 59/2021 var tilskipunin felld inn í XI. viðauka EES-samningsins. Alþingi veitti heimild til staðfestingar ákvörðunarinnar með þingsályktun nr. 11/153.

2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar.
    Í nútímasamfélagi er sívaxandi hluti samskipta og þjónustu hins opinbera við almenning stafrænn. Aðgengi að upplýsingum og þjónustu á vefsetrum og í smáforritum fyrir fartæki er orðið mikilvægur grundvöllur fyrir virkri þátttöku í samfélaginu. Skortur á samræmdum, lögboðnum kröfum um aðgengi getur leitt til þess að stafræn þjónusta hins opinbera uppfylli ekki alltaf þarfir allra notendahópa.
    Segja má að með frumvarpi þessu séu útfærð réttindi og skyldur sem þegar eru til staðar í íslenskum rétti. Þær kröfur sem frumvarp þetta gerir um aðgengi að vefsetrum og smáforritum eru ekki með öllu nýjar af nálinni í íslensku stjórnsýslu- og réttarumhverfi. Ríkisstjórnin samþykkti þegar í október 2012 stefnu um aðgengi fyrir opinbera vefi sem byggðist á alþjóðlega staðlinum WCAG 2.0 AA. Sá staðall er eldri útgáfa þeirra tæknilegu krafna sem vefaðgengistilskipunin og þetta frumvarp kveða á um. Markmiðið með stefnunni frá 2012 var að tryggja aðgengi, m.a. fyrir blinda og sjónskerta, og var gert ráð fyrir að innleiðingu hennar yrði lokið fyrir 1. janúar 2015.
    Í frumvarpinu er hugtakið stafrænn notað um þá þjónustu og samskipti sem lögin taka til. Hugtakið stafrænn vísar hér til upplýsingagjafar og gagnvirkrar þjónustu, svo sem á vefsetrum og í smáforritum.
    Þá eiga kröfurnar í frumvarpinu sér einnig stoð í gildandi löggjöf. Samkvæmt lögum um jafna meðferð utan vinnumarkaðar, nr. 85/2018, er hvers kyns mismunun vegna fötlunar óheimil á öllum sviðum samfélagsins. Í lögunum er sérstaklega kveðið á um bann við mismunun í tengslum við aðgang að þjónustu sem er í boði fyrir almenning. Þar er jafnframt lögð sú skylda á opinbera aðila að gera nauðsynlegar og viðeigandi breytingar og lagfæringar, svokallaða „viðeigandi aðlögun“, til að tryggja fötluðu fólki jafnan aðgang að samfélaginu. Líta má svo á að ákvæði þessa frumvarps séu tæknileg útfærsla og skýring á þessari lögboðnu skyldu.

3. Meginefni frumvarpsins.
    Við undirbúning frumvarpsins var ákveðið að setja frumvarpið fram sem rammalöggjöf. Þetta þýðir að meginreglur, svo sem markmið, gildissvið og grundvallarskyldur opinberra aðila, verði festar í lög. Nánari útfærsla á tæknilegum kröfum, afmörkun á undanþágum og framkvæmd eftirlits er aftur á móti falin ráðherra sem setur um það reglugerð á grundvelli heimildar í lögunum, verði frumvarpið samþykkt.
    Með þessari aðferð er ætlunin m.a. að tryggja svigrúm til að bregðast við hraðri tækniþróun á sviði stafrænnar þjónustu. Tæknilegir staðlar, svo sem Evrópustaðallinn EN 301 549, taka reglulegum breytingum. Ef slíkir staðlar og ítarlegar tæknilegar undanþágur væru lögfestar að fullu myndi það krefjast tímafrekrar lagabreytingar í hvert sinn sem uppfæra þyrfti reglur til samræmis við nýjustu tækni eða alþjóðlegar kröfur. Með því að hafa þessi atriði í reglugerð er hægt að tryggja að regluverkið sé ávallt í samræmi við bestu þekkingu án óþarfa tafa.
    Þessi aðferð er í samræmi við þá leið sem farin hefur verið við innleiðingu tilskipunarinnar annars staðar á Norðurlöndum. Sem dæmi má nefna innleiddi Noregur tilskipunina með ákvæðum í lögum um jafnrétti og bann við mismunun þar sem ráðherra er veitt víðtæk heimild til að útfæra tæknilegar kröfur og undanþágur í reglugerð. Í 7. gr. frumvarpsins er kveðið á um skyldu til reglubundinnar vöktunar og skýrslugjafar til Eftirlitsstofnunar EFTA og heimild fyrir stjórnvald til að leggja á dagsektir í 9. gr. frumvarpsins ef fyrirmælum um úrbætur er ekki sinnt.

4. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
    Frumvarpið er talið samræmast stjórnarskrá, en markmið þess er að tryggja jafnan aðgang allra að grundvallarþjónustu hins opinbera. Frumvarpið er jafnframt talið samræmast alþjóðlegum skuldbindingum Íslands, einkum 9. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem fjallar um aðgengi, og þeim skuldbindingum sem leiðir af EES-samningnum.

5. Samráð.
    Áform um lagasetningu voru birt í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is 16. september 2025 (mál nr. S-170/2025) og stóð samráð til 26. september 2025. Umsagnir bárust frá þremur réttindagæslusamtökum og einum einstaklingi. Í öllum umsögnum var frumvarpinu fagnað og markmið þess um lögfestingu stafræns aðgengis studd heilshugar.
    Áhersla var lögð á mikilvægi þess að eftirlit yrði virkt og vel fjármagnað. Þá var bent á að atriði sem snúa að aðgengi að rafrænni auðkenningu.
    Drög að frumvarpi þessu voru birt til samráðs í samráðsgátt stjórnvalda 10. október 2025 (mál nr. S-200/2025) og stóð samráð til 24. október 2025. Alls bárust átta umsagnir.
    Umsagnaraðilar lýsa almennt yfir stuðningi við markmið frumvarpsins um aukið stafrænt aðgengi. Reykjavíkurborg fagnar frumvarpinu sérstaklega og telur það í fullu samræmi við þá aðgengisstefnu sem borgin hefur þegar innleitt.
    Í umsögnum komu fram skiptar skoðanir um þá ákvörðun að fella skóla undir frumvarpið. ÖBÍ réttindasamtök fagna því sérstaklega að skólar séu ekki undanskildir. Samband íslenskra sveitarfélaga gerir hins vegar athugasemd við þetta. Sambandið bendir á að rekstraraðilar skóla séu háðir þjónustu einkarekinna hugbúnaðarfyrirtækja sem þeir geti ekki stýrt og telja það ómögulega stöðu að sveitarfélag gæti sætt dagsektum vegna aðgerðaleysis þriðja aðila.
    Þá kalla nokkrir aðilar eftir víðtækara gildissviði. Bandalag háskólamanna og ÖBÍ réttindasamtök hvetja til þess að skoðað verði að láta ákvæði frumvarpsins einnig ná til einkaaðila, með vísan í aðrar gerðir Evrópusambandsins og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Barnaheill og ÖBÍ réttindasamtök gagnrýna sérstaklega að útvarpsrekendur í almannaþágu séu undanþegnir.
    Að lokum lýsir Samband íslenskra sveitarfélaga áhyggjum af að tímarammi til innleiðingar sé verulega knappur og að áætlaður einskiptiskostnaður sé afar varlega áætlaðar tölur. Sambandið gagnrýnir einnig að formlegt mat á áhrifum á fjárhag sveitarfélaga skv. 129. gr. sveitarstjórnarlaga hafi ekki verið framkvæmt.
    Aðrar athugasemdir sneru m.a. að öðrum þáttum í stafrænni þjónustu sem fellur utan gildissviðs frumvarpsins, eins og stafrænu pósthólfi og rafrænum skilríkjum. Bent var á að víkka mætti gildissviðið til einkaaðila. Við vinnslu frumvarpsins var horft til afstöðu ríkisstjórnarinnar um að forðast svokallaða gullhúðun við innleiðingu EES-gerða. Þær gerðir sem umsagnaraðilar vísuðu til eru auk þess mun víðtækari en sú tilskipun sem hér er innleidd og heyra undir verksvið annarra ráðuneyta.
    Þá var gagnrýnt að útvarpsrekendur í almannaþágu væru undanskildir. Rétt er að taka fram að þessi undanþága er ekki ákvörðun íslenskra stjórnvalda heldur kemur hún beint fram í 1. gr. tilskipunarinnar sjálfrar. Rökstuðningur í tilskipuninni er sá að tryggja þurfi jafna samkeppnisstöðu við einkarekna miðla og að eðlilegra sé að fjalla um þessi mál í sérstakri fjölmiðlalöggjöf.
    Vegna umfjöllunar um stöðu sveitarfélaga sem rekstraraðila skóla og að þau kunni að vera háð utanaðkomandi birgjum um tölvukerfi skal tekið fram að það er ávallt á ábyrgð þess sem veitir þjónustu að tryggja að hún uppfylli skilyrði laga, óháð því við hvaða birgja er skipt. Jafnframt er rétt að árétta að 5. gr. um óhóflega byrði er sérstaklega ætlað að mæta aðstæðum minni aðila og koma í veg fyrir ósanngjarnar kröfur.
    Hvað varðar áhyggjur af kostnaðarmati og tímafresti var lagt mat á heildarkostnað allra opinberra aðila. Það mat byggir á þeirri forsendu að flestir aðilar þurfi aðeins á takmarkaðri aðlögun að halda, enda hvílir þegar á sveitarfélögum skylda til að tryggja aðgengi samkvæmt lögum um jafna meðferð utan vinnumarkaðar. Sú forsenda er studd af umsögn Reykjavíkurborgar sem telur frumvarpið í fullu samræmi við þá stefnu sem borgin hefur þegar innleitt. Að því er varðar formlegt mat skv. 129. gr. sveitarstjórnarlaga var það afstaða ráðuneytisins að með heildarmati á kostnaðaráhrifum frumvarpsins væri nægjanlega gætt að skyldum ákvæðisins, enda eigi sömu sjónarmið við um sveitarfélögin og aðra opinbera aðila.
    Aðrar athugasemdir, svo sem um rafræn skilríki og stafrænt pósthólf, falla utan gildissviðs og markmiða þessarar lagasetningar.

6. Mat á áhrifum.
    Frumvarpið er talið hafa afgerandi jákvæð samfélagsleg áhrif. Helsti ávinningurinn felst í því að tryggja grundvallarréttindi fatlaðs fólks til jafns aðgangs að upplýsingum og þjónustu til að auðvelda virka þátttöku í stafrænu samfélagi. Lögin, verði frumvarpið samþykkt, munu einnig gagnast öðrum hópum, svo sem eldri borgurum, fólki með lesblindu og einstaklingum með tímabundnar skerðingar, svo sem vegna slysa eða veikinda, þar sem þau gera stafræna þjónustu einfaldari og skýrari í notkun fyrir alla. Lögin, verði frumvarpið samþykkt, eru líkleg til að hafa jákvæð áhrif á jafnrétti kynjanna.
    Með því að tryggja aðgengi að stafrænni þjónustu eru fjarlægðar hindranir sem hafa meiri áhrif á konur, en kyngreind gögn sýna að þær eru í meiri hluta í þeim hópum sem eiga helst á hættu að verða fyrir stafrænni útilokun. Konur eru til að mynda meiri hluti öryrkja og eldri borgara á Íslandi, sem eru hópar sem lögin munu hafa sérstaklega jákvæð áhrif á, verði frumvarp þetta samþykkt. Þar að auki nýta konur sér opinbera þjónustu í meira mæli en karlar. Þá eru áhrifin á atvinnulífið, sérstaklega fyrirtæki í upplýsingatækni, metin jákvæð þar sem samræmdar kröfur auka fyrirsjáanleika.
    Að því sögðu hefur lagasetningin í för með sér kostnað fyrir hið opinbera sem skiptist í tvo meginflokka:
    Í fyrsta lagi er um að ræða beinan viðbótarkostnað. Annars vegar er það varanlegur árlegur rekstrarkostnaður vegna nýs eftirlits, áætlaður á bilinu 10–23 millj. kr., og hins vegar tímabundinn einskiptiskostnaður vegna nauðsynlegra tæknilegra úrbóta hjá opinberum aðilum, sem er áætlaður á bilinu 38–76 millj. kr.
    Í öðru lagi er um að ræða kostnað sem felst í vinnuframlagi núverandi starfsfólks hjá opinberum aðilum. Sá kostnaður krefst ekki endilega nýrra útgjalda úr ríkissjóði en felur frekar í sér innri tilfærslu á vinnuafli og eftir atvikum breytta forgangsröðun verkefna.
    Þrátt fyrir að ákvæði frumvarpsins hafi í för með sér kostnað er talið að samfélagslegur ávinningur af auknum jöfnuði, þátttöku allra og bættri opinberri þjónustu sé mun meiri.

Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.

    Í greininni er skilgreint það meginmarkmið að tryggja aðgengi allra, einkum fatlaðs fólks, að stafrænni þjónustu og upplýsingum hins opinbera. Markmiðið endurspeglar 1. gr. tilskipunarinnar. Tilskipunin hefur einnig víðtækara efnahagslegt markmið. Með því að samræma kröfur um aðgengi milli aðildarríkja er stefnt að því að rjúfa hindranir á innri markaðnum. Samræmdar reglur draga úr óvissu fyrir hugbúnaðar- og vefhönnuði, einfalda þróun og markaðssetningu á aðgengislausnum yfir landamæri og stuðla þannig að aukinni samkeppni og nýsköpun. Fyrir opinbera aðila ætti það að leiða til lægri kostnaðar og aukins framboðs á vörum og þjónustu sem tengjast vefaðgengi. Frumvarpið, verði það að lögum, þjónar því tvíþættum tilgangi: Að tryggja grundvallarréttindi borgaranna og efla virkni innri markaðarins.

Um 2. gr.

    Í greininni er gildissviðið afmarkað. Undanþágurnar sem taldar eru upp endurspegla ákvæði 3. mgr. 1. gr. vefaðgengistilskipunarinnar. Röksemdirnar að baki þeim eru eftirfarandi:
    Í 1. tölul. 2. mgr. er kveðið á um undanþágu fyrir útvarpsrekendur í almannaþágu. Í formálsorðum tilskipunarinnar kemur fram að réttur fatlaðs fólks til aðgangs að hljóð- og myndmiðlunarþjónustu sé mikilvægur en réttara sé að kveða á um hann í sérlögum um fjölmiðla. Þetta er gert til að tryggja jafna samkeppnisstöðu við einkarekna útvarpsrekendur sem falla utan gildissviðs tilskipunarinnar.
    Í 2. tölul. 2. mgr. er undanþága fyrir frjáls félagasamtök. Markmiðið er að forðast að leggja óhóflega byrði á samtök sem byggja oft á sjálfboðaliðastarfi og hafa takmörkuð fjárráð. Undanþágan gildir þó ekki ef samtökin veita þjónustu sem er nauðsynleg almenningi eða þjónustu sem beinist sérstaklega að þörfum fatlaðs fólks. Í slíkum tilvikum er talið að rétturinn til aðgangs vegi þyngra.
    Í 4. mgr. 1. gr. tilskipunarinnar er fjallað um fleiri tegundir efnis sem undanskildar eru gildissviðinu. Þar er m.a. um að ræða eldri skrifstofuskjöl, kort sem ekki eru til leiðsögu og efni frá þriðja aðila sem opinberir aðilar hvorki fjármagna né stjórna. Ráðherra er í 1. tölul. 11. gr. falið að útfæra þessar undanþágur nánar í reglugerð.
    Í 5. mgr. 1. gr. tilskipunarinnar er aðildarríkjum veitt heimild til að undanskilja vefsetur og smáforrit skóla og leikskóla frá gildissviði hennar. Við undirbúning frumvarpsins var tekin ákvörðun um að nýta þessa undanþáguheimild ekki. Sú ákvörðun byggist á því mati að samfélagslegur ávinningur af því að tryggja fullt og jafnt stafrænt aðgengi fyrir alla vegi mun þyngra en sá viðbótarkostnaður sem af kann að hljótast. Stafræn þjónusta er orðin órjúfanlegur hluti af nútímaskólastarfi, allt frá miðlun námsefnis og upplýsinga til samskipta milli heimilis og skóla. Að tryggja aðgengi að þessum kerfum er mikilvæg forsenda fyrir jöfnum tækifærum til náms og virkrar þátttöku allra, óháð fötlun.
    Jafnframt er rétt að árétta að ákvæði 5. gr. um óhóflega byrði gildir einnig um skóla og leikskóla. Það ákvæði kemur í veg fyrir að gerðar verði ósanngjarnar kröfur til minni skóla eða rekstraraðila þeirra ef kostnaður við úrbætur er augljóslega í engu samræmi við stærð þeirra og fjárhag. Með þessu er leitast við að ná fram markmiðinu um jafnt aðgengi án þess að leggja of miklar byrðar á þá opinberu aðila sem reka skóla.

Um 3. gr.

    Í greininni eru skilgreind lykilhugtök. Til að tryggja fyllsta samræmi við tilskipunina eru skilgreiningarnar byggðar á þeim skilgreiningum sem fram koma í 3. gr. tilskipunarinnar og í formálsorðum hennar.
    Í 1. tölul. er hugtakið opinber aðili skýrt. Skilgreiningin er í samræmi við orðskýringu sem kemur fram í lögum um opinber innkaup. Tilskipunin vísar í skilgreiningu á „aðilum sem heyra undir opinberan rétt“ í tilskipun um opinber innkaup ( 2014/24/ESB) sem innleidd var með lögum um opinber innkaup, nr. 120/2016, og er sú leið því farin hér til að tryggja rétta afmörkun gildissviðsins.
    Í 2. tölul. er hugtakið smáforrit fyrir fartæki skýrt. Skilgreiningin tekur til notkunar hugbúnaðar sem hannaður er fyrir almenning, svo sem á snjallsímum og spjaldtölvum. Hún nær þó hvorki yfir stýrikerfi tækjanna sjálfra (eins og iOS eða Android) né vélbúnaðinn. Þannig er ábyrgð opinberra aðila afmörkuð við þann hugbúnað sem þeir sjálfir þróa eða láta þróa fyrir sig. Mikilvægt er að hafa í huga að kröfurnar beinast að smáforritum sem eru ætluð og aðgengileg stórum hluta almennings, en ekki forritum sem eru þróuð fyrir lokaða hópa eða til sérstakra nota í afmörkuðu umhverfi.
    Í 3. tölul. er hugtakið vöktunaraðili skýrt. Þar er átt við þann opinbera aðila sem mun annast tæknilega vöktun og leiðbeiningar samkvæmt frumvarpinu.

Um 4. gr.

    Í greininni er lagt til að lögfest verði kjarnaskylda 4. gr. tilskipunarinnar. Í formálsorðum tilskipunarinnar segir að hún byggist á eftirtöldum fjórum grunnreglum sem eru hornsteinn alþjóðlegra staðla um vefaðgengi:
    Í fyrsta lagi grunnreglu um skynjanleika, en því felst að upplýsingar og notendaviðmót verða að vera sett fram þannig að notendur geti skynjað þau, t.d. með því að bjóða upp á textalýsingar með myndum fyrir skjálesara.
    Í öðru lagi nothæfi, en í því felst að notendaviðmót verður að vera nothæft. Í dæmaskyni má nefna að samkvæmt gildandi stöðlum þýðir það m.a. að hægt sé að stjórna öllum aðgerðum með lyklaborði eingöngu.
    Í þriðja lagi skiljanleika, en í því felst að upplýsingar og notkun viðmótsins verða að vera skiljanleg. Þetta felur í sér að texti sé læsilegur og fyrirsjáanlegt sé hvernig viðmótið virkar.
    Í fjórða lagi traust, sem merkir að efnið sé nægilega traust til að ólík tæki og hjálpartækni geti túlkað það á áreiðanlegan hátt.
    Tæknileg kröfuviðmið verða mótuð með hliðsjón af samræmda Evrópustaðlinum EN 301 549. Tilvísanir Evrópusambandsins (ESB) í staðalinn hafa verið birtar með framkvæmdarákvörðunum (ESB) 2018/2048 og 2021/1339. Þótt þessar gerðir hafi ekki verið teknar upp í EES-samninginn styðja þær við val á viðmiðum og tryggja samræmi við framkvæmd í aðildarríkjum ESB; fylgni við staðalinn er almennt talin vera til marks um samræmi við 4. gr. tilskipunarinnar.

Um 5. gr.

    Ákvæðið um óhóflega byrði innleiðir 5. gr. tilskipunarinnar og veitir opinberum aðilum nauðsynlegan sveigjanleika. Mikilvægt er að undirstrika að þetta er undantekningarheimild sem ber að beita með varúð. Í formálsorðum tilskipunarinnar er fjallað um hvað getur talist lögmæt ástæða og hvað ekki.
    Við mat á óhóflegri byrði skal líta til þess hvort úrbætur myndu leggja óhóflega skipulagslega eða fjárhagslega byrði á stofnun eða draga úr getu hennar til að þjóna tilgangi sínum. Aftur á móti telst skortur á tíma eða þekkingu ekki lögmæt ástæða til að bera fyrir sig óhóflegri byrði.
    Opinber aðili sem ber fyrir sig óhóflega byrði þarf að meta, skrásetja formlega og útskýra í aðgengisyfirlýsingu hvaða hlutar efnisins eru ekki aðgengilegir og bjóða fram aðgengilega valkosti þar sem því verður við komið.

Um 6. gr.

    Í greininni eru lagðar tvær mikilvægar skyldur á opinbera aðila í samræmi við 7. gr. tilskipunarinnar.
    Annars vegar er það skylda til að birta aðgengisyfirlýsingu, en hlutverk hennar er að veita notendum reglulega skýrar, ítarlegar og nákvæmar upplýsingar um aðgengisstöðu vefseturs eða smáforrits. Yfirlýsingin er ekki aðeins umfjöllun um stöðuna heldur einnig verkfæri fyrir notendur. Í henni skal, eftir því sem við á, útskýra þá hluta efnis vefsetursins eða smáforritsins sem eru ekki aðgengilegir og ástæður þess og tilgreina þá aðgengilegu valkosti sem í boði eru. Með öðrum aðgengilegum valkostum er átt við aðrar leiðir fyrir notendur til að nálgast þær upplýsingar eða þjónustu sem um ræðir. Slíkir valkostir gætu falist í því að veita upplýsingarnar símleiðis, með tölvupósti, á fundi eða með því að útbúa aðgengilegt skjal á öðru sniði. Markmiðið er að tryggja að notandinn fái þá þjónustu sem hann á rétt á, þrátt fyrir að tiltekin stafræn lausn sé ekki aðgengileg.
    Hins vegar er það skylda til að gera notendum kleift að veita endurgjöf, en það er virk samskiptaleið fyrir notendur. Hún er ekki eingöngu til að tilkynna um villur, heldur einnig til að notendur geti óskað eftir aðgangi að efni sem er undanskilið gildissviði skv. 2. gr. eða fellur undir ákvæði um óhóflega byrði. Opinberum aðila ber skylda til að veita viðunandi svör við slíkum beiðnum innan hæfilegs tíma. Sú skylda sem lögð er á opinbera aðila til að bregðast við beiðnum um upplýsingar er sérstakt úrræði á grundvelli frumvarpsins. Hún er til viðbótar við og takmarkar ekki þann almenna rétt til aðgangs að gögnum sem almenningur nýtur samkvæmt upplýsingalögum.

Um 7. gr.

    Með greininni er ætlunin að lögfesta skyldu til reglubundins eftirlits og skýrslugjafar, eins og kveðið er á um í 8. gr. tilskipunarinnar. Vöktunaraðili skal árlega gera úttekt á úrtaki vefsetra og smáforrita og birta niðurstöðurnar opinberlega. Nánari útfærsla á aðferðafræði vöktunar, vali á úrtaki og formi skýrslna verður útfærð í reglugerð. Vöktunaraðili skal skila niðurstöðum til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) og styðja við framkvæmd laganna, m.a. með útgáfu almennra leiðbeininga og fyrirmyndar að aðgengisyfirlýsingu.
    Við útgáfu fyrirmyndar að aðgengisyfirlýsingu verður byggt á framkvæmdarákvörðun (ESB) 2018/1523 sem tekin hefur verið upp í EES-samninginn. Með því er tryggt að fyrirmyndin og lágmarkskröfur um efni og framsetningu yfirlýsingar verði í samræmi við sameiginleg viðmið á Evrópska efnahagssvæðinu.
    Aðferðafræði eftirlits og fyrirkomulag skýrslugjafar verða útfærð í reglugerð í samræmi við framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1524 sem tekin hefur verið upp í EES-samninginn. Með því er tryggt að vöktun, úrtak, mælikvarðar og skýrslugjöf til Eftirlitsstofnunar EFTA og sambærilegra yfirvalda verði sambærileg og í öðrum EES-ríkjum.

Um 8. gr.

    Í greininni er kveðið á um framfylgdarmálsmeðferð skv. 9. gr. tilskipunarinnar. Kveðið er á um tveggja þrepa ferli þar sem notandi getur fyrst beint ábendingu til opinbers aðila og ef það skilar ekki árangri, beint formlegri kvörtun til stjórnvalds.

Um 9. gr.

    Með greininni er lagt til að koma á fót nauðsynlegu þvingunarúrræði til að tryggja að lögum þessum verði framfylgt, verði frumvarpið samþykkt. Án heimildar til að beita viðurlögum á borð við dagsektir væru fyrirmæli stjórnvalds um úrbætur marklaus. Dagsektir eru stjórnsýsluviðurlög en ekki refsikennd úrræði og er þeim ætlað að knýja á um úrbætur. Við álagningu þeirra ber stjórnvaldi að gæta að öllum meginreglum stjórnsýsluréttar, þar á meðal meðalhófsreglunni. Nánari ákvæði um fjárhæð, útreikning, álagningu og innheimtu dagsekta verða sett í reglugerð, sbr. 10. tölul. 11. gr.

Um 10. gr.

    Í greininni er tilgreind sú EES-gerð sem lögunum er ætlað að innleiða. Nánari umfjöllun um tilskipunina er að finna í 1. kafla.

Um 11. gr.

    Í greininni er að finna heimild fyrir ráðherra til að setja reglugerðir um framkvæmd laganna. Heimildin nær til eftirfarandi atriða:
    Í 1. tölul. er kveðið á um heimild til að útfæra þær undanþágur fyrir tilteknar tegundir efnis sem fram koma í 4. mgr. 1. gr. tilskipunar (ESB) 2016/2102. Í 2. tölul. er gert ráð fyrir að nánari tæknilegar kröfur verði útfærðar. Þær munu byggjast á samræmda Evrópustaðlinum EN 301 549, eins og vísað er til í framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1339. Í 3. tölul. er heimild til að útfæra nánar skilyrði og ferli fyrir mat á óhóflegri byrði skv. 5. gr. Í 4. tölul. er heimild til að setja reglur um aðgengisyfirlýsinguna, þ.m.t. um form, lágmarksefni, birtingu og þá fyrirmynd sem vöktunaraðila ber að útbúa, auk þess að kveða á um fyrirkomulag endurgjafar frá notendum. Í 5. tölul. er heimild til að tilnefna í reglugerð þá aðila sem fara annars vegar með hlutverk vöktunaraðila skv. 7. gr. og stjórnvalds skv. 8. gr. hins vegar. Til greina kemur að Umbra – þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins annist vöktun og kærunefnd jafnréttismála meðferð kærumála, en endanlegt fyrirkomulag verður útfært nánar í reglugerð að undangengnu samráði við viðeigandi aðila. Í 6. tölul. er heimild til að setja reglur um aðferðafræði vöktunar og skýrslugjöf og í 7. tölul. heimild til að kveða á um málsmeðferðarreglur. Loks eru í greininni heimildir sem lúta að framfylgd og stuðnings-aðgerðum. Í 8. tölul. er heimild til að útfæra nánar þær viðbótarráðstafanir, fræðslu, þjálfun og vitundarvakningu sem vöktunaraðila verður falið að stuðla að skv. 7. gr. Loks er í 9. tölul. kveðið á um heimild til að setja nánari reglur um dagsektir.

Um 12. gr.

    Gert er ráð fyrir að lögin öðlist gildi 1. janúar 2026 en að skyldur samkvæmt kjarnaákvæðum þeirra, þ.e. skyldur skv. II. kafla (4.–6. gr.) og ákvæði um eftirlit og viðurlög skv. III. kafla (7.–9. gr.), komi til framkvæmda í áföngum. Þetta er gert til að veita opinberum aðilum nauðsynlegan aðlögunartíma til að uppfylla kröfur laganna og fyrir vöktunaraðila að koma sér upp nauðsynlegum innviðum. Gert er ráð fyrir skemmri aðlögunartíma fyrir vefsetur sem var búið að koma á laggirnar 1. janúar 2015, en við það tímamark var gert ráð fyrir að öll vefsetur uppfylltu skilyrði samkvæmt aðgengisstefnu sem var samþykkt af ríkisstjórninni í október 2012.