Ferill 265. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 363 — 265. mál.
Stjórnarfrumvarp.
Frumvarp til laga
um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.
Frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
I. KAFLI
Breyting á orkulögum, nr. 58/1967.
1. gr.
Í stað orðsins „ráðherra“ í 1. málsl. 1. mgr. 30. gr., 1. mgr. 31. gr. og 2. mgr. 32. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Umhverfis- og orkustofnun.
2. gr.
II. KAFLI
Breyting á lögum um erfðabreyttar lífverur, nr. 18/1996.
3. gr.
Umhverfis- og orkustofnun er heimilt að taka gjald fyrir:
1. Vinnslu og útgáfu leyfa, sem og endurskoðun, breytingu eða afturköllum leyfa, sbr. 5., 11., 16., 19. og 22. gr.
2. Endurgreiðslu alls kostnaðar sem fellur til við sérstakar rannsóknir, úttektir eða kynningar enda hafi verið haft samráð við umsækjanda um fyrirhugaðar rannsóknir, úttektir eða kynningar og honum gefinn kostur á að draga umsókn sína til baka áður en til slíks kostnaðar er stofnað.
3. Eftirlit, sbr. VIII. kafla.
4. Eftirfylgni eftirlits og beitingu þvingunarúrræða, sbr. IX. kafla.
Ráðherra setur, að fengnum tillögum Umhverfis- og orkustofnunar, gjaldskrá fyrir veitta þjónustu, eftirlit, beitingu þvingunarúrræða og verkefni sem stofnuninni er falið að annast eða stofnunin tekur að sér samkvæmt lögum þessum. Upphæð gjalds skal taka mið af kostnaði við þjónustu og framkvæmd einstakra verkefna og skal byggð á rekstraráætlun þar sem þau atriði eru rökstudd sem ákvörðun gjalds byggist á. Gjaldið má ekki vera hærra en sá kostnaður. Gjöld samkvæmt þessari grein eru aðfararhæf án undangengins dóms eða sáttar.
III. KAFLI
Breyting á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.
4. gr.
5. gr.
6. gr.
a. Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Sé mengandi starfsemi sem er starfsleyfisskyld samkvæmt viðauka IV jafnframt starfsleyfisskyld samkvæmt viðauka I og/eða viðauka II skal Umhverfis- og orkustofnun gefa starfsleyfið út sem eitt leyfi og þarf þá ekki sérstakt leyfi heilbrigðisnefndar.
b. Á eftir 3. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. er útgefanda starfsleyfis heimilt að veita frest í eina viku til að gera athugasemdir við tillögu að starfsleyfi þegar sótt er um nýtt leyfi vegna starfsemi sem áður hefur haft gilt starfsleyfi, enda sé ekki um að ræða efnislegar breytingar á starfseminni eða starfsleyfisskilyrðum frá því sem áður gilti og umsókn hefur borist innan 12 mánaða frá því að fyrra starfsleyfi féll úr gildi.
7. gr.
a. Á eftir orðinu „viðauka“ í 1. mgr. kemur: II og
b. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Skráningarskylda og almennar bindandi reglur.
8. gr.
Afturköllun.
Áður en gripið er til afturköllunar starfsleyfis skal veita rekstraraðila skriflega aðvörun og hæfilegan frest til úrbóta. Sinni leyfishafi ekki slíkri aðvörun er heimilt að afturkalla leyfið.
9. gr.
15. Virkjun og orkuveita frá 1 MW.
16. Jarðbor.
10. gr.
a. 55. tölul. fellur brott.
b. 115. tölul. orðast svo: Brennsluver þar sem nafnvarmaafl er jafnt og eða meira en 1 MW og minna en 50 MW.
c. Á eftir 76. tölul. kemur nýr töluliður, svohljóðandi: Osteopati.
IV. KAFLI
Breyting á lögum um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, nr. 57/1998.
11. gr.
12. gr.
a. Á eftir orðinu „Hafrannsóknastofnunar“ í 4. mgr. kemur: Vegagerðarinnar, Samgöngustofu og Landhelgisgæslu Íslands.
b. Við 4. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Umhverfis- og orkustofnun er þó heimilt að falla frá öflun umsagna enda hafi umsækjandi haft gilt rannsóknarleyfi fyrir sömu auðlind á sama svæði og:
a. umsókn berist innan 12 mánaða frá því að fyrra rannsóknarleyfi umsækjanda féll úr gildi,
b. fyrirhuguð rannsókn er í meginatriðum óbreytt að umfangi og eðli frá því sem var samkvæmt fyrra leyfi,
c. rannsóknir á grundvelli fyrra leyfis hafa verið án verulegra athugasemda að mati stofnunarinnar.
c. Við bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Umhverfis- og orkustofnun skal þó ávallt leita umsagna að nýju ef nýjar og marktækar upplýsingar liggja fyrir sem varða þau atriði sem umsagnir skulu taka til eða ef ætla má að forsendur hafi breyst verulega frá því að fyrri umsagnir voru veittar.
Umhverfis- og orkustofnun er heimilt, að fenginni skriflegri og rökstuddri umsókn leyfishafa, að framlengja rannsóknarleyfi til allt að þriggja ára í senn. Skilyrði fyrir framlengingu er að leyfishafi hafi uppfyllt skilyrði gildandi leyfis og sýni fram á að framlenging sé nauðsynleg til að ljúka markmiðum rannsóknaráætlunar eða til að rannsaka nánar atriði sem fram hafa komið við rannsóknir á leyfistímanum. Heildargildistími rannsóknarleyfis, að meðtöldum framlengingum, skal þó að jafnaði ekki vera lengri en tíu ár. Umsókn um framlengingu skal berast stofnuninni eigi síðar en 30 dögum áður en gildistími leyfis rennur út.
13. gr.
a. Á eftir orðinu „Hafrannsóknarstofnunar“ í 3. mgr. kemur: Vegagerðarinnar, Samgöngustofu og Landhelgisgæslu Íslands.
b. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Umhverfis- og orkustofnun er heimilt, að fenginni skriflegri og rökstuddri umsókn leyfishafa, að framlengja nýtingarleyfi. Skal tímalengd framlengingar taka mið af eðli og umfangi auðlindarinnar, þeim fjárfestingum sem liggja í nýtingu hennar og þjóðhagslegri hagkvæmni. Við ákvörðun um framlengingu skal meta hvort leyfishafi hafi uppfyllt skilyrði gildandi leyfis, þar á meðal um umhverfissjónarmið og skynsamlega nýtingu auðlindarinnar, og hvort forsendur fyrir nýtingu séu enn fyrir hendi. Umsókn um framlengingu skal berast stofnuninni eigi síðar en 30 dögum áður en gildistími leyfis rennur út.
14. gr.
a. Í stað „60“ í 2. málsl. kemur: 90.
b. Á eftir 3. málsl. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Umhverfis- og orkustofnun er heimilt að fresta niðurfellingu nýtingarleyfis um 90 daga til viðbótar að ósk leyfishafa enda standi yfir virkar samningsumleitanir við landeiganda um endurgjald.
V. KAFLI
Breyting á raforkulögum, nr. 65/2003.
15. gr.
16. gr.
a. 4. mgr. fellur brott.
b. Orðin „eða leyfi Raforkueftirlitsins er veitt skv. 4. mgr.“ í 5. mgr. falla brott.
17. gr.
Leyfisveitanda er jafnframt heimilt að afturkalla leyfi ef bú leyfishafa hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta eða hann hefur leitað nauðasamnings.
VI. KAFLI
Breyting á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004.
18. gr.
VII. KAFLI
Breyting á lögum um lax- og silungsveiði, nr. 61/2006.
19. gr.
a. Á eftir orðunum „skv. 1. máls. 1. mgr.“ í 4. mgr. kemur: eða veitingu bindandi umsagnar skv. 5. mgr.
b. Við bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Ef umsókn um heimild til mannvirkjagerðar í veiðivötnum varðar framkvæmd sem háð er leyfi Umhverfis- og orkustofnunar getur stofnunin veitt leyfi til mannvirkjagerðar í veiðivötnum að fenginni bindandi umsögn Fiskistofu, sbr. 6. gr. a laga um Umhverfis- og orkustofnun, nr. 110/2024. Um málsmeðferð fer að öðru leyti skv. 1.– 4. mgr.
Úrræði Fiskistofu skv. 33. gr. a eiga jafnframt við um eftirlit með framkvæmdum sem hlotið hafa leyfi Umhverfis- og orkustofnunar skv. 4. mgr. Heimild til afturköllunar leyfis skv. 3. mgr. 33. gr. a tekur einnig til afturköllunar á bindandi umsögn.
VIII. KAFLI
Breyting á lögum um umhverfisábyrgð, nr. 55/2012.
20. gr.
21. gr.
a. 1. tölul. orðast svo: Starfsleyfisskyldur atvinnurekstur sem Umhverfis- og orkustofnun gefur út leyfi fyrir á grundvelli 6. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, sbr. viðauka II og II. Einnig starfsleyfisskyldur atvinnurekstur um meðhöndlun úrgangs, sbr. 5. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003.
b. 3. tölul. orðast svo: Framleiðsla efna og efnablandna sem flokkast sem hættuleg efni, eiturefni, plöntuverndarvörur eða sæfivörur, sbr. efnalög, notkun þeirra, geymsla, vinnsla, urðun, losun og flutningur.
c. Orðin „nr. 50/1987“ í 4. tölul. falla brott.
IX. KAFLI
Breyting á lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013.
22. gr.
Ef umsókn um undanþágu frá friðlýsingu varðar framkvæmd sem háð er leyfi Umhverfis- og orkustofnunar getur stofnunin veitt slíka undanþágu að fenginni bindandi umsögn Náttúruverndarstofnunar, sbr. 6. gr. a laga um Umhverfis- og orkustofnun, nr. 110/2024. Um skilyrði og málsmeðferð fer að öðru leyti skv. 1. mgr.
Eftirlit Náttúruverndarstofnunar samkvæmt lögum þessum tekur jafnframt til eftirlits með skilyrðum undanþágu sem Umhverfis- og orkustofnun hefur veitt skv. 3. mgr. Heimild til breytingar eða afturköllunar leyfis skv. 89. gr. tekur einnig til afturköllunar á bindandi umsögn.
23. gr.
X. KAFLI
Breyting á efnalögum, nr. 61/2013.
24. gr.
25. gr.
Notkun tannsilfurs til viðgerða á tönnum er óheimil nema tannlæknir telji slíka notkun nauðsynlega á læknisfræðilegum grundvelli.
26. gr.
XI. KAFLI
Breyting á lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021.
27. gr.
Við 12. gr. laganna bætist nýr stafliður, svohljóðandi, og breytist röð annarra stafliða samkvæmt því:
a. gerð matslýsingar fyrir umhverfismat áætlunar.
28. gr.
a. Við 2. málsl. 2. mgr. bætist: m.a. um hvort framkvæmd er líkleg til að hafa áhrif á vatnshlot samkvæmt lögum um stjórn vatnamála.
b. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði 20. gr. er Skipulagsstofnun heimilt, að fenginni tilkynningu framkvæmdaraðila skv. 2. mgr., að ákveða án frekari málsmeðferðar að breyting eða viðbót við framkvæmd samkvæmt tölul. 13.02 í 1. viðauka eða framkvæmd að umfangi undir viðmiðunarmörkum í flokki B í 1. viðauka sem fyrirhuguð er á verndarsvæði sé ekki háð umhverfismati. Skilyrði er að á grundvelli fyrirliggjandi gagna megi telja augljóst, með tilliti til viðmiða 2. viðauka, að breytingin eða viðbótin hafi ekki í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, ein sér eða í samspili við áhrif annarra framkvæmda. Skipulagsstofnun skal gera hlutaðeigandi grein fyrir niðurstöðu sinni og birta á vef sínum.
29. gr.
e. upplýsingar um áhrif framkvæmdar á vatnshlot samkvæmt lögum um stjórn vatnamála.
30. gr.
a. Í stað tölunnar „200“ í tölul. 1.04 kemur: 50
b. Tölul. 1.10 fellur brott.
c. Í stað tölunnar „50“ í 2. málsl. tölul. 3.02 kemur: 83.
d. Í stað orðsins „og“ í 1. málsl. tölul. 3.17 kemur: eða.
e. Tölul. 7.02 orðast svo: Pökkun og niðursuða á dýraafurðum þar sem framleiðslugeta er yfir 75 tonnum á dag. Pökkun og niðursuða á jurtaafurðum þar sem framleiðslugeta er yfir 300 tonn á dag.
f. Tölul. 7.03 orðast svo: Framleiðsla á mjólkurvörum þar sem tekið er á móti meira en 200 tonnum af mjólk á dag.
g. Orðin „3 km2 lands eða meira fara undir vatn eða“ í tölul. 10.11 falla brott.
h. Í stað tölunnar „132“ í tölul. 10.15 kemur: 220.
i. Í stað orðanna „500 tonn af úrgangi á ári“ í tölul. 11.02 kemur: 100 tonn af úrgangi á dag.
j. Í stað orðsins „og“ í 2. málsl. tölul. 11.05 kemur: eða.
k. Við tölulið 11.12 bætist: að undanskildum jarðvegi.
l. Við tölul. 12.02 bætist: að því undanskildu þegar komið er upp smábátaaðstöðu innan hafnarmannvirkja sem fyrir eru.
31. gr.
XII. KAFLI
Breyting á lögum um Umhverfis- og orkustofnun, nr. 110/2024.
32. gr.
a. (6. gr. a.)
Málsmeðferð og sameinuð leyfisveiting.
Umhverfis- og orkustofnun er heimilt, óski umsækjandi þess, að sameina leyfisveitingu og heimildir sem falla undir valdsvið annarra stjórnvalda enda sé það heimilt samkvæmt viðkomandi sérlögum. Umhverfis- og orkustofnun skal þá afla umsagnar viðkomandi stjórnvalds um fram komna beiðni. Við afgreiðslu leyfis er Umhverfis- og orkustofnun óheimilt að víkja frá niðurstöðu viðkomandi stjórnvalds.
Leyfi, ákvarðanir, tilkynningar, og annað sem Umhverfis- og orkustofnun ber að birta opinberlega skal birt á vef stofnunarinnar og telst það til opinberrar birtingar.
b. (6. gr. b.)
Forgangsmeðferð.
33. gr.
Greinargerð.
Frumvarp þetta er samið í umhverfis,- orku- og loftslagsráðuneytinu í samvinnu við Umhverfis- og orkustofnun og Skipulagsstofnun. Markmið þess er að einfalda og auka skilvirkni í stjórnsýslu umhverfis- og orkumála og stytta afgreiðslutíma leyfisumsókna hjá Umhverfis- og orkustofnun. Markmiðið er einnig aukin samræming við EES-rétt. Frumvarpið var lagt fram á 156. löggjafarþingi ( 265. mál) en náði ekki fram að ganga en hlaut umfjöllun umhverfis- og samgöngunefndar og lagt var fram nefndarálit meiri hluta. Frumvarp það sem hér er lagt fram tekur mið af fyrri umfjöllun umhverfis- og samgöngunefndar. Þá er í frumvarpinu að finna önnur nýmæli frá fyrri framlagningu sem eiga rætur að rekja til áframhaldandi vinnu af hálfu ráðuneytisins við einföldun og aukna skilvirkni í stjórnsýslu umhverfis- og orkumála. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins segir m.a. að ferli leyfisveitinga verði einfaldað, tímafrestir lögbundnir og verkefni í nýtingarflokki rammaáætlunar látin njóta forgangs í stjórnsýslu orkumála. Á undanförnum árum hefur myndast verulegt ójafnvægi milli framboðs og eftirspurnar á raforkumarkaði þar sem orkuöflun hefur ekki haldið í við vaxandi umsvif í samfélaginu. Þunglamaleg leyfisferli á sviði umhverfis- og orkumála eru á meðal orsaka þess hve hægt hefur gengið að koma nýframkvæmdum af stað. Ríkisstjórn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins hefur einsett sér að bæta úr þessari stöðu með markvissum lagabreytingum.
Undirbúningsvinna og kortlagning vegna einföldunar á leyfisferlum, m.a. í tengslum við sameiningu Orkustofnunar og hluta Umhverfisstofnunar, hófst í umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytinu í febrúar 2024. Frumvarpsdrög höfðu verið birt í samráðsgátt 22. nóvember 2024 (mál nr. S-232/2024) en að samráði loknu var ákveðið að leggja til að gengið yrði lengra í einföldun og samþættingu leyfisferla heldur en áður hafði verið lagt upp með. Frumvarp þetta tekur mið af þessu og felur m.a. í sér almennari heimildir Umhverfis- og orkustofnunar til sameiningar leyfa en fyrri frumvarpsdrög gerðu ráð fyrir. Þá hefur verið fallið frá hugmyndum um að framkvæmdir í þágu orkuskipta og kolefnishlutleysis fái sérmeðferð að veittum rökstuðningi umsækjanda. Í staðinn er mælt fyrir um að verkefni sem samþykkt hafa verið í orkunýtingarflokk rammaáætlunar sæti sjálfkrafa forgangsmeðferð hjá Umhverfis- og orkustofnun. Þetta verður að skoða í samhengi við áform ríkisstjórnarinnar um að auka skilvirkni og festu við framkvæmd rammaáætlunar og tryggja að flokkun virkjunarkosta taki mið af markmiðum stjórnvalda um aukna orkuöflun. Fleiri ákvæðum hefur verið bætt við frumvarpið í takti við áherslur ríkisstjórnarinnar, svo sem varðandi einföldun á leyfisferli vegna jarðborana en almennt miðar frumvarpið að því að samþætta og samræma leyfisveitingar, kæruleiðir og tengdar ákvarðanir til að stytta heildartíma afgreiðsluferla og að regluverk styðji betur skilvirka, vandaða, aðgengilega og gagnsæja stjórnsýslu. Þá er markmiðið að innleiða hugmyndafræði um einn afgreiðslustað (e. one-stop shop) . Með því er átt við einn afgreiðslustað stjórnsýslu gagnvart umsækjanda eða leyfishafa.
Rætt hefur verið við fjölda hagaðila vegna einföldunar leyfisferla og verkefnatillaga kynnt í samráðsgátt þar sem kallað var eftir uppbyggilegum tillögum. Við vinnslu þessa frumvarps hefur verið unnið með niðurstöður viðtala og umsagnir um verkefnatillögu. Áfram verður litið til þessara gagna og greininga í frekari vinnu í átt að einföldun og skilvirkni.
Undirbúnings- og leyfisveitingaferli fyrir umfangsmiklar framkvæmdir er eðlilega flókið ferli þar sem að fjölmörgu þarf að huga. Framkvæmdir mega ekki vera á skjön við markmið um sjálfbæra þróun, heilnæmt umhverfi og umhverfisvernd. Þá þarf að gæta að því að almenningur geti haft áhrif á ákvarðanatöku sem varðar umhverfið í samræmi við Árósasamning um aðgang að upplýsingum, þátttöku almennings í ákvarðanatöku og aðgang að réttlátri málsmeðferð í umhverfismálum sem hefur verið fullgiltur hér á landi, sbr. þingsályktun nr. 46/139. Einnig er ljóst að mikil tækifæri eru til einföldunar og aukinnar skilvirkni. Með hraðari og skilvirkari ferli má hraða framförum í átt að sjálfbærara samfélagi auk þess að stuðla að ábyrgri nýtingu auðlinda.
Þetta frumvarp felur í sér fyrsta áfanga lagabreytinga sem nauðsynlegar eru til þess að úrbætur á leyfisveitingaferlum raungerist. Eins og fyrr sagði verður áfram unnið að frekari breytingum í átt til einföldunar og innleiðingar hugmyndafræði um einn afgreiðslustað.
2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar.
Eins og fram kemur í 1. kafla eru með frumvarpinu lagðar til lagabreytingar sem nauðsynlegar eru í þágu markmiða um einföldun stjórnsýslu, auk einföldunar, samræmingar og styttingar afgreiðslutíma leyfisumsókna á vegum Umhverfis- og orkustofnunar.
3. Meginefni frumvarpsins.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ýmsum lögum sem varða málsmeðferð og leyfisveitingar á vegum Umhverfis- og orkustofnunar og er ætlað að einfalda stjórnsýslu, stytta og samræma málsmeðferð stofnunarinnar. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á eftirfarandi löggjöf:
3.1. Orkulög, nr. 58/1967.
Lagt er til að veiting einkaleyfis til þess að starfrækja hitaveitur, sem annist dreifingu eða sölu heits vatns eða gufu til almenningsþarfa á tilteknu veitusvæði frá jarðhitastöðvum eða hitunarstöðvum með öðrum orkugjafa, verði falið Umhverfis- og orkustofnun í stað ráðherra.
3.2. Lög um erfðabreyttar lífverur, nr. 18/1996.
Lögð er til breyting á gjaldtökuákvæði laganna til samræmis við gjaldtöku vegna annarra leyfisveitinga Umhverfis- og orkustofnunar. Lagt er til að Umhverfis- og orkustofnun verði gert heimilt að innheimta gjald í tengslum við vinnslu umsóknar, en ekki aðeins við móttöku umsóknar líkt og lög kveða nú á um.
3.3. Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.
Lögð er til breyting á gildissviðsákvæði laganna til aukins skýrleika. Lagt er til að fallið verði frá fortakslausri skyldu til að veita leyfi til tiltekins tíma og að heimild til að mæla fyrir um skráningarskyldu í stað starfsleyfisskyldu nái til fleiri tegunda starfsemi en nú er. Þá eru gerðar tillögur til einföldunar sem varða leyfisveitingar Umhverfis- og orkustofnunar og heilbrigðisnefnda.
3.4. Lög um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, nr. 57/1998.
Lagt er til að gildissvið laganna taki breytingum til að tryggja að unnt verði að veita rannsóknarleyfi vegna virkjanakosta í samræmi við ákvæði raforkulaga. Einnig er lagt til að regla um að leyfi falli niður að liðnum ákveðnum tíma, hafi ekki verið samið um endurgjald við landeiganda eða eignarnáms óskað, bjóði upp á ákveðinn sveigjanleika, heimild til að framlengja rannsóknar- og nýtingarleyfi og einfaldari málsmeðferð rannsóknar- og nýtingarleyfa fyrir starfsemi þar sem leyfi hefur nýlega fallið úr gildi.
3.5. Raforkulög, nr. 65/2003.
Gerð er tillaga um tiltekinn sveigjanleika varðandi reglu um að leyfi falli niður að liðnum ákveðnum tíma hafi ekki verið samið um endurgjald við landeiganda eða eignarnáms óskað. Um er að ræða sambærilega tillögu og hvað varðar lög um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu.
3.6. Lög um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004.
Lagt er til að ákvarðanir Umhverfis- og orkustofnunar sem varða varp í hafið sæti kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
3.7. Lög um umhverfisábyrgð, nr. 55/2012.
Lagt er til að reglur um opinbera birtingu ákvarðana í lögum um umhverfisábyrgð geri ráð fyrir birtingu á vef Umhverfis- og orkustofnunar í stað auglýsingar í dagblaði í almennri dreifingu .
3.8. Lög um lax- og silungsveiði, nr. 61/2006, og lög um náttúruvernd, nr. 60/2013.
Gerðar eru tillögur um heimild til að sameina tilteknar heimildir samkvæmt lögum um lax- og silungsveiði og lögum um náttúruvernd með leyfisveitingu af hálfu Umhverfis- og orkustofnunar í þágu hugmyndafræði um einn afgreiðslustað.
3.9. Efnalög, nr. 61/2013.
Lagðar eru til breytingar til að auka skilvirkni varðandi eftirlit með plöntuverndarvörum, samræma notkun á tannsilfri og skýra gjaldtökuheimild Umhverfis- og orkustofnunar.
3.10. Lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021.
Lagðar eru til breytingar sem varða samspil laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana og laga um stjórn vatnamála, nr. 36/2011. Þá eru lagðar til ýmsar breytingar á viðaukum laganna í þágu einföldunar, skýrleika og samræmis við EES- rétt.
3.11. Lög um Umhverfis- og orkustofnun, nr. 110/2024.
Lagðar eru til tilteknar breytingar á lögum um Umhverfis- og orkustofnun í þágu samræmdrar málsmeðferðar og leyfisveitinga, þar með talið heimild Umhverfis- og orkustofnunar til að sameina leyfisveitingu og heimildir sem falla undir valdsvið annarra stjórnvalda enda sé heimild fyrir því í viðkomandi sérlögum. Þá er lagt til að við afgreiðslu umsókna um leyfisskylda framkvæmd skuli Umhverfis- og orkustofnun tryggja forgang afgreiðslu leyfa vegna virkjana sem falla undir verndar- og orkunýtingaráætlun.
3.12. Hlutverk heilbrigðisnefnda.
Nokkur ákvæði frumvarpsins tengjast hlutverki heilbrigðisnefnda með einhverjum hætti. Þannig er t.d. í 6. gr. lagt til að ef mengandi starfsemi sem heilbrigðisnefnd gefur út starfsleyfi fyrir skv. IV. viðauka við lög um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, er jafnframt háð starfsleyfi Umhverfis- og orkustofnunar skv. I. eða II. viðauka við sömu lög skal Umhverfis- og orkustofnun gefa út starfsleyfi sem eitt leyfi og þurfi þá ekki sérstakt leyfi heilbrigðisnefndar. Í því samhengi er bent á að ráðherra hyggst jafnframt leggja fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir þar sem m.a. er gert ráð fyrir útgáfa starfsleyfa flytjist frá heilbrigðisnefndum til Umhverfis- og orkustofnunar. Mögulega þarf að huga að samspili þessara frumvarpa við umfjöllun og afgreiðslu málsins á Alþingi.
4. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
Frumvarpið samræmist Árósasamningi um aðgang að upplýsingum, þátttöku almennings í ákvarðanatöku sem hefur áhrif á umhverfið og aðgang að réttlátri málsmeðferð í umhverfismálum, sbr. þingsályktun nr. 46/139.
Talið er að frumvarpið samræmist ákvæðum stjórnarskrárinnar. Er þá sérstaklega litið til atvinnufrelsisákvæðis 75. gr. Í frumvarpinu er m.a. lagt til að Umhverfis- og orkustofnun verði heimilt að forgangsraða afgreiðslu mála í þágu framkvæmda í orkunýtingarflokki verndar- og orkunýtingaráætlunar. Það hefur verið talin almenn meginregla í stjórnsýslu að afgreiða mál í þeirri röð sem þau berast. Frá þessu megi þó víkja að ákveðnu marki og taka tillit til eðlis málanna og hversu mikilsverða hagsmuni málsaðila þau varða, sbr. álit umboðsmanns Alþingis í máli nr. 2907/1999. Þá kunna að vera ákvæði í sérlögum sem veita stjórnvöldum heimild til að víkja frá meginreglunni. Í frumvarpinu felst tillaga um að Umhverfis- og orkustofnun skuli tryggja forgang afgreiðslu leyfa vegna virkjana sem falla undir verndar- og orkunýtingaráætlun.
5. Samráð.
Áform um lagasetningu vegna einföldunar leyfisferla í umhverfis- og orkumálum fóru í opinbera kynningu í samráðsgátt stjórnvalda 7. júlí 2024 (mál nr. S-137/2024) og bárust ráðuneytinu 11 umsagnir um áformin sem tekið var mið af við gerð frumvarps þessa.
Umsagnir um áform eru að mestu leyti jákvæðar gagnvart einföldun ferla. Í umsögnum koma m.a. fram sjónarmið um að ástæður tafa á leyfisferlum séu m.a. skortur á samþættingu í leyfisveitingaferlinu og vöntun á samræmingu milli leyfisveitenda. Tímafrestir séu ekki nægjanlega vel skilgreindir eða virtir af stofnunum og skortur sé á gegnsæi og heildaryfirsýn yfir stöðuna innan stjórnsýslunnar. Þá koma einnig fram sjónarmið um mikilvægi aðkomu almennings að ákvarðanatöku og að ekki verði gefið eftir í kröfum vegna náttúruverndar.
Drög að frumvarpi voru birt til samráðs í samráðsgátt stjórnvalda frá 22. nóvember 2024 til 17. janúar 2025, mál nr. S-232/2024. Alls 20 umsagnir bárust um frumvarpið.
Í ýmsum umsögnum er almennt stutt við markmið frumvarpsins en kallað eftir því að gengið verði lengra í einföldun ferla og ýmsum ábendingum komið á framfæri. Í umsögnum ýmissa náttúruverndarsamtaka er m.a. lögð áhersla á að einföldun megi ekki vera á kostnað gæða eða samráðs um framkvæmdir.
Frumvarpið hefur tekið umtalsverðum breytingum frá lokum samráðstíma. Við breytingarnar var horft til umsagna hagaðila. Einnig var horft til umsagna hagaðila við drög að frumvarpi til breytinga á lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021 (samræming við EES-reglur), sem var til samráðs 30. ágúst – 16. september 2024 (mál nr. S-169/2024) sem lagt hefur verið fram á 156. löggjafarþingi ( 129. mál). Í fyrsta lagi má nefna að nú er lagt til að g ildissvið laga um rannsóknir og nýtingu auðlinda í jörðu taki breytingum til að tryggja að unnt verði að veita rannsóknarleyfi vegna virkjanakosta á hafi utan netlaga. Í öðru lagi er fallið frá tillögu um breytingu á raforkulögum varðandi gjaldskrá flutningsfyrirtækisins Landsnets hf. Í allmörgum umsögnum voru gerðar talsverðar athugasemdir við ákvæðið. Viðfangsefnið er enn til umfjöllunar á vettvangi ráðuneytisins en þess má vænta að lagðar verði fram tillögur að lagabreytingu varðandi gjaldskrá Landsnets hf. á næstu misserum. Í þriðja lagi má nefna ýmsar breytingar sem varða frekari einföldun, þar á meðal að fallið verði frá fortakslausri skyldu til að veita leyfi samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir til tiltekins tíma og að Umhverfis- og orkustofnun geti veitt leyfi samkvæmt lögum um lax- og silungsveiði að fenginni bindandi umsögn Fiskistofu. Í fjórða lagi eru gerðar tillögur um nokkrar breytingar á viðaukum laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana í þágu einföldunar, skýrleika og samræmis við EES-rétt. Í fimmta lagi gerir frumvarpið nú ráð fyrir að Umhverfis- og orkustofnun skuli tryggja forgang afgreiðslu leyfa vegna virkjunarframkvæmda sem falla undir orkunýtingarflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar samkvæmt lögum um verndar- og nýtingaráætlun. Í frumvarpinu eins og það var birt til samráðs var mælt fyrir um almenna heimild til forgangsröðunar í þágu orkuskipta og kolefnishlutleysis og var það nokkuð gagnrýnt í samráði, einkum með vísan til þess að það væri nokkuð óljóst.
Eins og tilgreint er í 1. kafla var sambærilegt frumvarp lagt fram á 156. löggjafarþingi þar sem það hlaut umfjöllun og lagt var fram nefndarálit meiri hluta ásamt breytingartillögu. Breytingartillaga meiri hluta atvinnuveganefndar hefur verið tekin upp í þetta frumvarp. Þá er í frumvarpinu að finna fleiri nýmæli frá fyrri framlagningu sem eiga rætur að rekja til áframhaldandi vinnu af hálfu ráðuneytisins við einföldun og aukna skilvirkni í stjórnsýslu umhverfis- og orkumála og voru unnin í nánu samráði við Umhverfis- og orkustofnun og Skipulagsstofnun. Þá var vegna einstakra ákvæða haft sérstakt samráð við Vinnueftirlit ríkisins, félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Tannlæknadeild Háskóla Íslands og Tannlæknafélag Íslands.
6. Mat á áhrifum.
Efni frumvarpsins hefur almennt jákvæð áhrif á samfélagið þar sem lagt er til að dregið verði úr reglubyrði og stuðlað að skilvirkri stjórnsýslu. Frumvarpið felur í sér einföldun laga og stjórnsýslu sem stuðlar að minni reglubyrði og auknum fyrirsjáanleika fyrir atvinnulíf. Frumvarpið er til þess fallið að auðvelda aðgang nýrra aðila á markað fyrir starfsemi sem er háð leyfisveitingum Umhverfis- og orkustofnunar og hafa þannig jákvæð áhrif á samkeppni. Frumvarpið hefur ekki áhrif á ríkissjóð.
Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. og 2. gr.
Um 3. gr.
Um 4. gr.
Um 5. gr.
Um 6. gr.
Í b-lið er lagt til að heimiluð verði undantekning frá þeirri meginreglu að útgefandi starfsleyfis skuli auglýsa tillögur að leyfinu opinberlega og veita fjögurra vikna frest til athugasemda. Lagt er til að útgefanda starfsleyfis sé heimilt að stytta auglýsingartíma starfsleyfis í allt að eina viku þegar starfsleyfi er endurútgefið án breytinga á starfsleyfisskilyrðum. Í slíkum tilvikum hefur efnislegt mat og kynning á starfseminni og skilyrðum hennar þegar farið fram og því kann að vera óþarflega íþyngjandi, bæði fyrir stjórnvald og rekstraraðila, að endurtaka fullt umsagnarferli.
Um 7. gr.
Í b-lið er lögð til breyting á fyrirsögn ákvæðisins sem talin er í betra samhengi við efnisatriði þess.
Um 8. gr.
Í lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir er ekki að finna heimild fyrir leyfisveitanda til að afturkalla starfsleyfi sé starfsemi tekin til gjaldþrotaskipta eða nauðasamninga hefur verið leitað. Með ákvæðinu er því gerð tillaga um slíka heimild. Ákvæðið er í samræmi við breytingartillögu í nefndaráliti meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar við frumvarpið á 156. löggjafarþingi ( 265. mál). Í áliti meiri hlutans er vísað til umsagnar Umhverfis- og orkustofnunar um frumvarpið þar sem fram komi að í raforkulögum sé heimild til afturköllunar leyfis ef skilyrðum er ekki fullnægt en sú heimild nái ekki til þess þegar starfsemi sé tekin til gjaldþrotaskipta eða nauðasamninga hafi verið leitað. Þá vísi Umhverfis- og orkustofnun til niðurstaðna úr þremur úttektum þar sem fjallað hafi verið um afturköllun leyfa, þ.e. skýrslu Ríkisendurskoðunar um stjórnsýslu fiskeldis frá janúar 2023, úttekt IMPEL á leyfisveitingu Umhverfisstofnunar fyrir mengandi starfsemi og niðurstaðna norrænnar samanburðarrannsóknar á leyfisveitingum en í þeirri síðastnefndu hafi komið í ljós að heimild væri fyrir afturköllun leyfa, svo sem vegna brota á ákvæðum leyfa, í löggjöf allra ríkja Norðurlanda utan Íslands.
Um 9. og 10. gr.
Lagt er til að við viðauka IV bætist starfsemi osteópata. Í viðaukanum er talin upp ýmis starfsemi sem felst í meðferð á líkama fólks, þ.e. kírópraktorar, nuddstofur og sjúkraþjálfun. Vera kann að starfsemi osteópata hafi verið felld undir liðinn önnur sambærileg starfsemi. Til þess að auka á skýrleika og taka af allan vafa er nú lagt til að starfsemi osteópata verði sérstaklega tilgreind í viðauka IV.
Lagt er til að í stað þess að jarðborun, þ.e. framkvæmdin, sé starfsleyfisskyld hjá heilbrigðisnefnd skv. IV. viðauka laga nr. 7/1998 þá verði rekstur jarðbors starfsleyfisskyldur hjá Umhverfis- og orkustofnun skv. II. viðauka laga nr. 7/1998. Umhverfis- og orkustofnun er útgefandi starfsleyfis fyrir færanlegar malbikunarstöðvar skv. II. viðauka laga nr. 7/1998 og hefur því reynslu af færanlegri starfsemi. Stakur jarðbor getur verið notaður í jarðborunarverkefni víðs vegar um land og það væri æskilegast að Umhverfis- og orkustofnun væri með eftirlit með þeim fremur en heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna. Þá gæti stofnunin samþætt eftirlit sitt með öðru eftirliti, svo sem með rannsóknar- og nýtingarleyfum samkvæmt lögum um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, nr. 57/1998. Jarðborun er starfsleyfis- og eftirlitsskyld hjá heilbrigðisnefndum, sbr. 55. tölul. IV. viðauka laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998. Tilteknar framkvæmdir sem fela í sér jarðborun, sbr. tölul. 2.04 í 1. viðauka við lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021, eru tilkynningarskyldar til Skipulagsstofnunnar til ákvörðunar um hvort framkvæmdin skuli háð umhverfismati, sbr. 19. gr. laganna. Sama á við um framkvæmdir sem fela í sér jarðborun og eru að umfangi undir viðmiðunarmörkum í flokki B í 1. viðauka við lögin ef þær eru fyrirhugaðar á verndarsvæði, sbr. iii-lið 2. tölul. 2. viðauka við lögin. Dæmi er um að slíkar framkvæmdir þurfi leyfi frá þremur mismunandi stjórnvöldum, þ.e. heilbrigðisnefndum, sveitarfélögum og Umhverfis- og orkustofnun, auk þess að vera tilkynningarskyldar til Skipulagsstofnunar til ákvörðunar um matsskyldu.
Um 11. gr.
Árétta skal að það er ekki skilyrði nýtingarleyfis að rannsóknarleyfis hefur verið aflað. Rannsóknarleyfi felur í sér réttindavernd rannsóknarleyfishafa þar sem fái annar en rannsóknarleyfishafi leyfi til að nýta viðkomandi auðlind geti sá sem kostaði rannsóknir krafið virkjunar- eða nýtingarleyfishafa um sannanlegan kostnað vegna rannsókna eða markaðsvirði þeirra, liggi það fyrir, gegn afhendingu á niðurstöðum rannsóknanna, enda geti þær nýst leyfishafa, sbr. 3. mgr. 7. gr. laga nr. 57/1998. Að sama skapi styrkir það um leið rétt leyfishafa til að stunda rannsóknir á afmörkuðu svæði enda segir í 1. málsl. 2. mgr. 5. gr. laga nr. 57/1998 að rannsóknarleyfi skuli veitt einum aðila á hverju svæði. Er leyfisveitanda að sama skapi heimilt að veita slíkt leyfi þó að landeigandi hafi sjálfur hafið slíka rannsókn eða leit eða heimilað það öðrum, nema viðkomandi aðili hafi gilt rannsóknarleyfi samkvæmt lögum nr. 57/1998, sbr. 1. máls. 6. mgr. 4. gr. laganna. Er því hvati til að afla sér leyfis til rannsókna af tvennum toga, þ.e. að tryggja niðurstöður rannsókna sem og að tryggja að öðrum aðila verði ekki veitt heimild til sambærilegra rannsókna á sama svæði á sama tíma. Nánar má vísa til skýringa í greinargerð með frumvarpi sem varð að lögum nr. 5/2006 (288. mál á 132. löggjafarþingi) þar sem rannsóknum á vatnsafli til raforkunýtingar var bætt við gildissviðsákvæði laga nr. 57/1998.
Bent er á að í frumvarpi til laga um breytingu á vatnalögum, nr. 15/1923, og lögum nr. 57/1998, um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu (samræming reglna um vatnsréttindi) sem lagt var fram á 141. löggjafarþingi ( 634. mál) var í 4. gr. að finna sambærilegt ákvæði sem var í greinargerð rökstutt með vísan til þess að ekki væri unnt að veita rannsóknarleyfi vegna sjávarfallavirkjana nema eingöngu innan netlaga. Frumvarpið náði ekki fram að ganga. Ýmsir aðilar hafa sýnt nýtingu vindorku á hafi áhuga og því er talið nauðsynlegt að Umhverfis- og orkustofnun geti veitt rannsóknarleyfi.
Um 12. gr.
Í 4. mgr. 5. gr. laga um rannsóknir og nýtingu auðlinda í jörðu eru tilgreindar stofnanir sem leita skal umsagnar hjá áður en rannsóknarleyfi er veitt. Lagt er til að Umhverfis- og orkustofnun verði heimilt að falla frá öflun umsagna í aðdraganda veitingar rannsóknarleyfa fyrir starfsemi sem áður hefur haft gilt rannsóknarleyfi að uppfylltum skilyrðum sem tilgreind eru í ákvæðunum. Rökin fyrir slíkri breytingu eru fyrst og fremst fólgin í hagræðingu og skilvirkni í stjórnsýslunni. Það er íþyngjandi, bæði fyrir umsækjanda og umsagnaraðila, að endurtaka ítarlegt umsagnarferli ef engar efnislegar breytingar hafa orðið á starfseminni eða þeim ytri aðstæðum sem máli skipta. Þó er gert ráð fyrir að Umhverfis- og orkustofnun meti hvort þörf sé á nýjum umsögnum. Ávallt skal leita umsagna ef nýjar upplýsingar liggja fyrir eða forsendur hafa breyst.
Einnig er lagt til að Umhverfis- og orkustofnun verði heimilt að framlengja gildistíma rannsóknarleyfa. Í gildandi lögum er gert ráð fyrir að leyfi séu gefin út til ákveðins tíma, sbr. 2. tölul. 18. gr. laganna, þar sem segir að í leyfi skuli tilgreina „tímalengd leyfis“, en lögin eru hins vegar þögul um heimild til framlengingar. Rétt þykir að skýrlega sé kveðið á um heimild til framlengingar enda um að ræða verkefni sem oft á tíðum krefjast verulegrar fjárfestingar og langtímaáætlanagerðar. Einnig skortir skýran lagaramma um þau skilyrði sem þyrftu að vera uppfyllt til að samþykkja slíka framlengingu.
Um 13. gr.
Einnig er lagt er til að mælt verði skýrt fyrir um heimild til framlengingar nýtingarleyfis. Hér eiga við sömu sjónarmið og hvað varðar heimild til framlengingar rannsóknarleyfa og vísast til skýringa við 12. gr.
Um 14. og 15. gr.
Í 3. mgr. 4. gr. raforkulaga segir að áður en leyfishafi hefji framkvæmdir á eignarlandi þurfi hann að hafa náð samkomulagi við landeigendur og eigendur orkulinda um endurgjald eða fengið heimild til eignarnáms. Hafi hvorki náðst samkomulag um endurgjaldið né eignarnáms verið óskað innan 90 daga frá útgáfu leyfis fellur það niður.
Ákvæðin eru fortakslaus hvað varðar niðurfellingu og réttarverkan þeirra er ekki háð aðkomu opinberra aðila, ekki er hægt að óska eftir rýmri heimild til að uppfylla ákvæðin. Vísa má til úrskurðar úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, þessu til stuðnings, í máli nr. 107/2018. Af þessu hefur hlotist nokkurt óhagræði í framkvæmd. Málsmeðferð leyfisveitinga til auðlindanýtingar er flókið, tímafrekt og kostnaðarsamt ferli. Niðurfelling leyfis á grundvelli svo þröngt afmarkaðra skilyrða ónýtir allt ferlið og hætta á tvíverknaði því mikil þar sem endurtaka þarf allt ferlið.
Í 14. gr. er lagt til að í 1. mgr. 7. gr. laga um rannsóknir og nýtingu auðlinda í jörðu verði mælt fyrir um 90 daga frest í stað 60 daga til að ná samkomulagi um endurgjald eða leita eignarnáms til samræmis við sambærilegt ákvæði raforkulaga. Þá er lagt til að Umhverfis- og orkustofnun verði heimilt að fresta niðurfellingu leyfisins um 90 daga til viðbótar að beiðni leyfishafa enda standi yfir virkar samningsumleitanir við landeiganda um endurgjald.
Í 15. gr. er lagt til að sambærileg heimild til að fresta niðurfellingu leyfis um 90 daga til viðbótar verði lögfest í raforkulögum.
Um 16. gr.
Með 16. gr. frumvarpsins er lagt til að hlutverk Raforkueftirlitsins sem milliliðs í ágreiningi um grisjun trjágróðurs sé lagt niður. Landeigandi nýtur aftur á móti áfram verndar eignarréttar og getur óskað eftir því að sýslumaður leggi lögbann við fellingu trjágróðurs, óháð því hvort hún sé hafin eða ekki. Þá hefur landeigandi, samkvæmt ákvæðinu, jafnframt rétt til bóta vegna sannanlegs tjóns sem hann verður fyrir. Litið er svo á að þær kröfur sem gerðar eru til grisjunar trjágróðurs í öðrum málsgreinum 21. gr. a raforkulaga séu fullnægjandi varnagli þess að trjágróður sé grisjaður án nauðsynjar eða í óhóflegu magni. Þannig sé milliganga Raforkueftirlitsins óþörf og einungis til þess fallin að lengja biðtíma annarra mála.
Um 17. gr.
Um 18. gr.
Hægt væri að sameina leyfisveitingu vegna efnistöku í sjó samkvæmt lögum um eignarrétt íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins, nr. 73/1990, og varps í hafið skv. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 33/2004 enda tengjast þessi leyfi oft sömu framkvæmd. Það sem helst kæmi í veg fyrir slíka sameiningu leyfisveitinga eru mismunandi kæruleiðir. Er því er lagt til að í 4. mgr. 28. gr. verði tilgreint að ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar um heimild til varps í hafið sæti einnig kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Um 19. og 22. gr.
Í 19. gr. er lagt til að ef heimild til mannvirkjagerðar í veiðivötnum varðar framkvæmd sem háð er leyfi Umhverfis- og orkustofnunar geti stofnunin veitt leyfi til mannvirkjagerðar í veiðivötnum að fenginni bindandi umsögn Fiskistofu.
Í 22. gr. er lagt til að ef umsókn um undanþágu frá friðlýsingu varðar framkvæmd sem háð er leyfi Umhverfis- og orkustofnunar geti stofnunin veitt undanþágu að fenginni bindandi umsögn Náttúruverndarstofnunar,
Hagræði fyrir umsækjanda felst í afgreiðslu einnar stofnunar í stað tveggja en málsmeðferðin og efnisleg skoðun Fiskistofu eða Náttúruverndarstofnunar á umsókn um viðkomandi heimild eða undanþágu er sú sama.
Byggt er á því að umsögn viðkomandi sérfræðistofnunar bindi afgreiðslu Umhverfis- og orkustofnunar við tiltekna niðurstöðu, þ.m.t. um skilyrði sem unnt er að binda umrædda heimild. Hvað varðar undanþágu frá ákvæðum friðlýsingar er áréttað að um er að ræða heimild til undanþágu sem eftir sem áður ber að túlka þröngt.
Þá er lagt til að skýrt komi fram að eftirlitsúrræði Fiskistofu og Náttúruverndarstofnunar taki jafnframt til heimilda Umhverfis- og orkustofnunar sem stofnunin hefur veitt að fenginni bindandi umsögn.
Hér er einnig vísað til a-liðar 32. gr. frumvarpsins þar sem lagt er til að fjallað verði um sameiningu leyfisveitinga í 6. gr. a laga um Umhverfis- og orkustofnun, þar á meðal að stofnuninni verði heimilt að sameina leyfisveitingu og aðrar heimildir sem falla undir verksvið annarra stjórnvalda enda sé heimild fyrir því í viðkomandi sérlögum.
Um 20. gr.
Um 21. gr.
Um 23. gr.
Um 24. gr.
Um 25. gr.
Um 26. gr.
Um 27. gr.
Um 28. og 29. gr.
Í a-lið 28. gr. og í 29. gr. eru lagðar til breytingar á 19. og 22. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021. Nokkur óvissa hefur verið um ýmsa þætti sem tengjast breytingum á vatnshloti skv. 18. gr. laga um stjórn vatnamála, nr. 36/2011. Í framkvæmd hefur verið um að ræða sérstaka umsókn framkvæmdaraðila sem Umhverfisstofnun, nú Umhverfis- og orkustofnun, hefur afgreitt með sérstakri ákvörðun. Eðlilegast er að mat og rökstuðningur um breytingu vatnshlots sé settur fram í umhverfismati viðkomandi framkvæmdar. Er því lagt til að í tilkynningu framkvæmdaraðila til Skipulagsstofnunar skuli framkvæmdaraðili leggja fram upplýsingar um hvort framkvæmd sé líkleg til að hafa áhrif á vatnshlot samkvæmt lögum um stjórn vatnamála. Þá skuli í umhverfismatsskýrslu framkvæmdaraðila gera grein fyrir áhrifum framkvæmdar á vatnshlot samkvæmt lögum um stjórn vatnamála.
Um b-lið 28. gr.
Lagt er til að Skipulagsstofnun verði heimilt, að fenginni tilkynningu framkvæmdaraðila um framkvæmd í flokki B í 1. viðauka við lögin, að ákveða án frekari málsmeðferðar að breyting eða viðbót við framkvæmd samkvæmt tölul. 13.02 í 1. viðauka eða framkvæmd að umfangi undir viðmiðunarmörkum í flokki B í 1. viðauka sem fyrirhuguð er á verndarsvæði sé ekki háð umhverfismati. Með tillögunni er skimunarskyldunni viðhaldið þar sem ákvörðunarvald er áfram hjá Skipulagsstofnun. Matið er bundið við efnisviðmið tilskipunarinnar og niðurstaðan er formleg og kæranleg líkt og aðrar ákvarðanir Skipulagsstofnunar um hvort framkvæmd skuli háð umhverfismati. Í tillögunni felst aukin skilvirkni og málshraði í stjórnsýslunni með því að koma á fót einfaldari málsmeðferðarleið fyrir þær framkvæmdir sem bersýnilega hafa óveruleg umhverfisáhrif, án þess þó að fórna þeim grundvallarreglum sem tilskipun 2011/92/ESB byggist á. Með því að einfalda málsmeðferð framkvæmda sem augljóst er að hafi ekki í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif getur Skipulagsstofnun beint kröftum sínum og sérfræðiþekkingu í ríkara mæli að þeim framkvæmdum þar sem raunverulegar líkur eru á umtalsverðum umhverfisáhrifum. Slík forgangsröðun er ekki aðeins til einföldunar heldur er hún einnig líkleg til að efla gæði umhverfismatsins í heild sinni. Ekki er gert ráð fyrir að framkvæmdaraðili sæki um einfaldaða málsmeðferð heldur er það Skipulagsstofnunar að meta hvort slíkar forsendur séu fyrir hendi en áréttað er að um er að ræða undantekningartilvik.
Um 30. gr.
Um a-lið.
Í tölulið 1.04 er viðmið um tilkynningarskyldu vegna skógræktar sett við 200 ha. Ljóst er að þröskuldsgildi sem miðar við 200 ha nær almennt ekki til skógræktarverkefna hér á landi og er því í reynd ekki virkt. Nýræktun skóga felur í sér breytta landnýtingu og getur haft í för með sér miklar breytingar á vistkerfi og landslagi. Skógrækt er ólík hefðbundinni ræktun í landbúnaði að því leyti að almennt verður að líta á hana sem langtímaráðstöfun á landi auk þess að hafa almennt mun meiri áhrif á landslag. Í lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013, er skýr áhersla á landslagsvernd. Jafnframt hefur Ísland staðfest landslagssamning Evrópu sem hefur m.a. að markmiði að mörkuð sé stefna um landslagsvernd og mat á landslagi. Áréttað er að framkvæmdir í flokki B eru ekki alltaf háðar umhverfismati heldur ber að leggja mat á hvort viðkomandi framkvæmd sé líkleg til að hafa umtalsverð umhverfisáhrif. Ástæða er til að undirstrika að 200 ha svæði er mjög stórt svæði og skógrækt felur í sér mikla breytingu á umhverfinu. Viðmiðum um framkvæmdir í flokki B er ætlað að tryggja að framkvæmdir sem líklegar eru til að hafa umtalsverð umhverfisáhrif fái viðeigandi málsmeðferð á grundvelli laganna. Á meðan viðmiðið um skógrækt er 200 ha er líklegt að framkvæmdir sem hafa umtalsverð áhrif á umhverfið hefjist án málsmeðferðar á grundvelli laga nr. 111/2021.
Um b-lið.
Lagt er til að tölul. 1.10 falli brott. Töluliðurinn mælir fyrir um að endurheimt lands frá hafi falli í flokk B sem tilkynningarskyld framkvæmd. Tölul. 1.10 svarar til g-liðar 1. gr. II. viðauka við tilskipun 2011/92/ESB sem á við um landfyllingar. Í tölul. 10.18 er hins vegar tilgreint að landfyllingar sem eru 5 ha eða stærri séu tilkynningarskyldar.
Um c-lið.
Í c-lið er lögð til breyting á tölul. 3.02. Breytingunni er ætlað að tryggja samræmi matsskyldumarka vegna hagnýtingar jarðhita og raforkuvinnslu. Í a-lið 2. tölul. í I. viðauka við tilskipun 2011/92/ESB er varmaorkuver með a.m.k. 300 MW í hrávarma tilgreint matsskylt. Sambærileg viðmið eru sett við 50 MW í hrávarma í lið 3.02 og 3.17 í 1. viðauka við lög nr. 111/2021 og tilkynningarskylda sett við 2,5 MW í hrávarma. Til samanburðar liggur matsskylda við 10 MW í raforkuvinnslu. Að jafnaði þarf 10 MW jarðvarmavirkjun 83 MW af hrávarma. Matsskilyrði fyrir hagnýtingu jarðhita til hitaveitu eru þar af leiðandi umtalsvert þrengri en til raforkuvinnslu og bæði viðmiðin eru langt frá þeim sem tilskipunin kveður á um að teljist matsskylt eða 300 MW.
Um d-lið.
Í d-lið er lagt til að í stað orðsins „og“ í 1. málsl. tölul. 3.17 komi „eða“. Töluliðurinn mælir fyrir um matsskyldu jarðvarmavera eða iðjuvera til framleiðslu á rafmagni, gufu og heitu vatni sem nemur 2.500 kW uppsettu afli eða meira, utan þess sem fellur undir tölul. 3.02. Orðalag töluliðarins má skilja með þeim hætti að iðjuver þurfi að framleiða allt þrennt, þ.e. rafmagn, gufu og heitt vatn, til að falla undir töluliðinn. Samsvarandi lið tilskipunarinnar, a-lið 3. tölul. II. viðauka, er hins vegar ætlað að ná yfir iðjuver sem framleiða eitt eða fleira, t.d. rafmagn eingöngu.
Um e- og f-lið.
Í tölulið 7.02 er pökkun og niðursuða á jurta- og dýraafurðum þar sem gólfflötur bygginga er a.m.k. 1.000 m2 í flokki B. Lagt er til að miða við framleiðslugetu frekar en gólfflöt bygginga. Nánar tiltekið er lagt til að miða við starfsemi sem er háð starfsleyfi Umhverfis- og orkustofnunar á grundvelli laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, en í viðauka I við lögin koma fram viðmiðunargildi sem vísa til framleiðslugetu eða afkasta starfsemi sem háð er starfsleyfi.
Í tölulið 7.03 er framleiðsla á mjólkurvörum þar sem gólfflötur bygginga er a.m.k. 1.000 m2 í flokki B. Lagt er til að miða við umfang starfsemi frekar en gólfflöt bygginga og að miða við sama viðmið og kemur fram í viðauka I við lög um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1198, varðandi starfsleyfisskylda vinnslu á mjólk.
Um g-lið.
Í g-lið er lagt til að orðin „3 km2 lands eða meira fara undir vatn eða“ í tölul. 10.11 falli brott. Í tölul. 10.11 í viðaukanum er kveðið á um flatarmálsskilyrði og rúmmálsskilyrði en tilskipunin gerir aðeins kröfu um rúmmálsskilyrði. Framkvæmdir undir viðmiðunarmörkunum mundu eftir sem áður falla í flokk B.
Um h-lið.
Í h-lið er lagt til að í stað tölunnar „132“ í tölul. 10.15 í 1. viðauka við lögin komi „220“. Í tölul. 10.15. er kveðið á um að matsskylda skapist vegna lagningar loftlína yfir 132 kV spennu. Tilskipun Evrópusambandsins miðar hins vegar við 220 kV. Framkvæmdir undir viðmiðunarmörkunum mundu eftir sem áður falla í flokk B.
Um i-lið.
Í tölul. 11.02 eru förgunarstöðvar úrgangs sem meðhöndla meira en 500 tonn af úrgangi á ári í flokki A. Lagt er til að færa viðmiðið til samræmis við tilskipunina þar sem miðað er við 100 tonn á dag. Förgunarstöðvar sem meðhöndla minna magn yrðu áfram tilkynningarskyldar sem framkvæmdir í flokki B skv. tölul. 11.03.
Um j-lið.
Í j-lið er lagt til að í stað orðsins „og“ í 2. málsl. tölul. 11.05 komi „eða“. Í töluliðnum er mælt fyrir um tilkynningarskyldu vegna skolphreinsivirkja frá íbúðarbyggð eða atvinnustarfsemi, þ.m.t. stöðva með þaulnýtnum landbúnaði með afkastagetu a.m.k. 2.000 persónueiningar utan þess sem tilgreint er í tölul. 11.04. Í 2. málsl. er mælt fyrir um tilkynningarskyldu sams konar framkvæmda á verndarsvæðum og þar sem losað er í viðkvæman viðtaka ef afkastageta nemur a.m.k. 100 persónueiningum. Í því felst leiðrétting á orðalagi sem ætla verður að sé misritun. Ákvæðið eins og það kemur fram í viðaukanum má skilja á þá leið að skolphreinsivirki með afkastagetu á bilinu 100–2.000 persónueiningar falli aðeins undir ákvæðið séu þau bæði staðsett á verndarsvæði og losi í viðkvæman viðtaka. Í tölul. 11.02 eru förgunarstöðvar úrgangs sem meðhöndla meira en 500 tonn af úrgangi á ári í flokki A. Lagt er til að færa viðmiðið til samræmis við tilskipunina þar sem miðað er við 100 tonn á dag. Förgunarstöðvar sem meðhöndla minna magn yrðu áfram tilkynningarskyldar sem framkvæmdir í flokki B skv. tölul. 11.03.
Um k-lið.
Í tölul. 11.12 er endurnýting úrgangs þar sem meðhöndluð eru meira en 500 tonn af úrgangi á ári sett í flokk B. Það leiðir af skilgreiningum á hugtökunum „endurnýting“ og „úrgangur“ í lögum um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, að það telst sem endurnýting úrgangs að nota ómengaðan jarðveg sem grafinn er upp vegna byggingarstarfsemi á einum stað til mannvirkjagerðar á öðrum stað. Stafliðurinn á ekki samsvörun í tilskipun 2011/92/ESB um umhverfismat framkvæmda.
Um l-lið.
Í l-lið er lagt til að frá tölul. 12.02 verði undanskildar framkvæmdir við að koma upp smábátaaðstöðu innan hafnarmannvirkja sem fyrir eru. Í tölul. 12.02 eru smábátahafnir með a.m.k. 100 bátalægi tilgreindar sem tilkynningarskyldar framkvæmdir. Með tilliti til umhverfisáhrifa verður ekki talin þörf á að tilkynna framkvæmdir við að koma upp smábátaaðstöðu innan hafnarmannvirkja sem fyrir eru.
Um 31. gr.
Um 32. gr.
Um a-lið (6. gr. a.)
Lagt er til að í nýrri 1. mgr. 6. gr. a laganna verði mælt fyrir um að við afgreiðslu leyfisumsókna fyrir starfsemi sem er leyfisskyld samkvæmt mismunandi lögum á ábyrgð Umhverfis- og orkustofnunar skuli stofnunin sameina afgreiðsluna í eitt leyfi eftir því sem mögulegt er og hagkvæmt. Tilgangur ákvæðisins er aukin þjónusta við almenning og skilvirkni sem lýtur að því að stofnunin gegni hlutverki að vera einn afgreiðslustaður umsókna um leyfi.
Lagt er til að í 2. mgr. 6. gr. a verði mælt fyrir um almenna heimild fyrir Umhverfis- og orkustofnun til að sameina leyfisveitingu og heimildir sem falla undir valdsvið annarra stjórnvalda enda sé heimild fyrir því í viðkomandi sérlögum. Umhverfis- og orkustofnun skal þá afla umsagnar viðkomandi stjórnvalds um fram komna beiðni. Við afgreiðslu leyfis er Umhverfis- og orkustofnun óheimilt að víkja frá niðurstöðu viðkomandi stjórnvalds. Í tillögunni felst ráðstöfun í átt að því að gera Umhverfis- og orkustofnun að einum afgreiðslustað. Í þessu frumvarpi er í 19. og 22. gr. lagðar til breytingar á lögum um lax- og silungsveiði, nr. 14/2006, og lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013, sem heimila Umhverfis- og orkustofnun að veita leyfi að fenginni bindandi umsögn. Til nánari skýringa er vísað framangreindrar umfjöllunar um 19. og 22. gr.
Þá er lagt til að í 3. mgr. 6. gr. a komi fram að þau leyfi sem Umhverfis- og orkustofnun ber að birta opinberlega skuli birt á vef stofnunarinnar og teljist það til opinberrar birtingar. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur byggt á því að í opinberri birtingu, þar sem hún er skyld samkvæmt viðkomandi regluverki, felist birting í Stjórnartíðindum. Telja verður að unnt sé að ná markmiðum um tryggt aðgengi almennings að upplýsingum um gildistöku starfsleyfa með birtingu á vef Umhverfis- og orkustofnunar þar sem almenningur mun auðveldlega geta nálgast þær. Ákvæðinu er ætlað að ganga framar almennum ákvæðum laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, þegar kemur að starfsemi Umhverfis- og orkustofnunar. Markmiðið með breytingunni er að auka skilvirkni í stjórnsýslunni, stytta málsmeðferðartíma og tryggja skjótan og greiðan aðgang almennings og hagsmunaaðila að upplýsingum í samræmi við markmið stafrænnar stjórnsýslu og frumkvæðisskyldu stjórnvalda skv. 13. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012.
Um b-lið (6. gr. b.)
Í b-lið er lagt til að við afgreiðslu umsókna um leyfisskyldar framkvæmdir skuli Umhverfis- og orkustofnun tryggja forgang afgreiðslu leyfa vegna virkjunarframkvæmda sem falla undir orkunýtingarflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar samkvæmt lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun. Í ákvæðinu felst sérregla gagnvart þeirri almennu meginreglu stjórnsýsluréttar að mál beri að afgreiða í þeirri röð sem þau berast. Þó ber að hafa í huga að slík forgangsröðun má ekki leiða til óhóflegrar seinkunar á afgreiðslu annarra mála sem bíða afgreiðslu hjá stofnuninni. Tillagan samræmist stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins þar sem segir m.a. að verkefni í nýtingarflokki rammaáætlunar skuli látin njóta forgangs í stjórnsýslu orkumála.
Um 33. gr.