Ferill 266. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 365  —  266. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um fjölda lögreglumanna.

Frá Karli Gauta Hjaltasyni.


     1.      Hversu margir lögreglumenn hafa árlega starfað við hvert lögregluembætti sl. tíu ár? Svar óskast sundurliðað eftir fjölda fullmenntaðra lögreglumanna, fjölda afleysingafólks í lögreglu og fjölda héraðslögreglumanna.
     2.      Hver hefur fjöldi ársverka hvers lögregluembættis verið sl. tíu ár?
     3.      Hver er heildarkostnaður hvers lögregluembættis við stöðugildi lögreglumanna sl. tíu ár?
     4.      Hversu margir rannsóknarlögreglumenn hafa starfað við hvert lögregluembætti sl. tíu ár?


Skriflegt svar óskast.