Ferill 267. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 366  —  267. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og barnamálaráðherra um fjarvist frá skóla.

Frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur.


     1.      Hversu mörg börn sóttu ekki skóla við upphaf skólaskyldu ár hvert undanfarin fimm ár?
     2.      Hverjar voru skilgreindar ástæður þessarar fjarvistar frá skóla?
     3.      Hve mörg börn dvöldust á Íslandi, hve mörg erlendis og hve mörg dvöldust á óþekktum dvalarstað á sama tíma?
     4.      Hvaða stofnanir ríkisins eru upplýstar um það þegar börn á skólaskyldualdri sækja ekki skóla?


Skriflegt svar óskast.