Ferill 268. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 367 — 268. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og barnamálaráðherra um starfsumhverfi kennara.
Frá Katrínu Sigríði J. Steingrímsdóttur.
1. Til hvaða aðgerða telur ráðherra að ríkið geti gripið í því skyni að bæta starfsumhverfi kennara á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi?
2. Liggur fyrir þarfagreining á fjölbreyttari aðkomu fagstétta, annarra en kennara og kennslu- og menntafræðinga, innan grunn- og framhaldsskólastigsins? Ef svo er ekki, telur ráðherra þörf á slíkri greiningu?
Skriflegt svar óskast.