Ferill 164. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 372 — 164. mál.
Svar
mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Eydísi Ásbjörnsdóttur um forvarnateymi grunnskóla.
1. Hefur virkni forvarnateyma haldist óslitið innan allra grunnskóla frá því að þeim var komið á í samræmi við aðgerð C.1. í þingsályktun um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun um aðgerðir fyrir árin 2021–2025, nr. 37/150?
Samkvæmt þingsályktun um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun um aðgerðir fyrir árin 2021–2025, nr. 37/150, eru ábyrgðaraðilar aðgerðar C.1., um forvarnateymi grunnskóla, skólastjórar grunnskóla og skólaskrifstofur sveitarfélaga. Við vinnslu fyrirspurnarinnar var óskað eftir upplýsingum frá forvarnafulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga sem er tengiliður við grunnskóla vegna stofnunar og starfsemi forvarnateyma, sbr. aðgerð A.1. þingsályktunarinnar.
Forvarnateymi starfa í öllum grunnskólum í samræmi við aðgerð C.1 en starfsemi og virkni þeirra er misjöfn.
2. Hvar á landinu ná forvarnateymi til fleiri en eins skóla innan sveitarfélags eða byggja á samstarfi á milli sveitarfélaga, líkt og allsherjar- og menntamálanefnd hvatti til að skoðað yrði í fámennum en víðfeðmum sveitarfélögum í nefndaráliti um tillögu þá sem varð að þingsályktun nr. 37/150 (þskj. 1553, 643. mál)? Telur ráðherra slíka samvinnu hafa gefið góða raun?
Í eftirfarandi sveitarfélögum ná forvarnateymi til fleiri en eins skóla innan sveitarfélags: Vesturbyggð, Norðurþing, Múlaþing, Fjarðabyggð, Rangárvalla- og Vestur-Skaftafells-sýsla, Tálknafjarðarhreppur og Strandabyggð.
Að auki eru fleiri sveitarfélög þar sem skólar vinna saman innan sveitarfélagsins, t.d. á Akureyri, í Reykjavík og í fleiri sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu.
Skólum var gefið svigrúm til að útfæra fyrirkomulag forvarnateyma með hliðsjón af sínum aðstæðum og hefur sú nálgun gefist vel.
3. Hvaða grunnskólar hafa gert skriflega áætlun um þá fræðslu um kynferðislegt og kynbundið ofbeldi og áreitni sem hver árgangur fær á hverju ári?
Í tengslum við framangreinda þingsályktun var þróuð vefgáttin stoppofbeldi.namsefni.is. Í vefgáttinni er fræðsluefni sem drög að forvarnaáætlun fyrir skóla voru unnin og byggð á. Drögin voru kynnt á fundum með forvarnateymum og skólastjórnendum og þau hvött til að nýta sér drögin sem fyrirmynd við gerð eigin forvarnaáætlana.
Samkvæmt aðgerð C.1 þingsályktunarinnar er það m.a. hlutverk forvarnateyma grunnskóla að tryggja kennslu í öllum árgöngum sem hæfir aldri og þroska nemenda um kynbundið og kynferðislegt ofbeldi og áreitni. Þá skulu teymin vera kennurum og öðru starfsfólki til stuðnings og ráðgjafar varðandi fræðslu og umræðu um kynferðislegt og kynbundið ofbeldi og áreitni og sjá einnig um að tryggja viðunandi þekkingu og þjálfun starfsfólks. Í verkefnalýsingu forvarnateymis, sem er aðgengileg í framangreindri vefgátt, er teyminu falið í samvinnu við skólastjóra að gera áætlun um forvarnakennslu til allra árganga fyrir hvert skólaár á meðan ekki hefur náðst að endurskoða skólastefnu en eftir að samþætt skólastefna liggur fyrir er teymið til stuðnings um framkvæmd hennar og eftirfylgni. Ráðuneytið hefur ekki upplýsingar um hvaða grunnskólar hafa gert slíkar skriflegar áætlanir eða hvaða grunnskólar hafa endurskoðað og samþætt skólastefnu sína. Þó má nefna dæmi um nokkur sveitarfélög sem hafa gert slíka áætlun að eigin frumkvæði og eru það Múlaþing, Árborg, Sandgerði og Skagaströnd.
4. Hvaða grunnskólar tryggðu kennslu í öllum árgöngum um kynbundið og kynferðislegt ofbeldi, í samræmi við framangreinda þingsályktun, á skólaárinu 2024–2025? Hvaða ástæður eru fyrir því að ekki hefur farið fram kennsla í öllum árgöngum í þeim grunnskólum þar sem svo háttar um?
Miðlæg söfnun hefur ekki farið fram á upplýsingum um hvernig kennsla hefur verið tryggð í öllum árgöngum um kynbundið og kynferðislegt ofbeldi. Umbeðnar upplýsingar liggja því ekki fyrir, m.a. á þeim grundvelli að ekki hefur verið gerð krafa um að grunnskólar skili inn gögnum um hvernig kennsla í öllum árgöngum er tryggð á þessu sviði. Samkvæmt framangreindri þingsályktun skal aðgerðaáætlun endurskoðuð. Við gerð hennar verður lögð áhersla á forvarnateymin, skilgreiningu og hlutverk þeirra og verklag, auk þess að efla samræmda eftirfylgni með starfsemi teymanna.