Ferill 273. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 378  —  273. mál.




Fyrirspurn


til utanríkisráðherra um kostnað við starfslokasamninga.

Frá Karli Gauta Hjaltasyni.


     1.      Hversu margir starfslokasamningar hafa verið gerðir innan ráðuneytisins árlega frá árinu 2018?
     2.      Hver hefur kostnaður ráðuneytisins verið vegna þessara samninga, sundurliðað eftir árum?
     3.      Hversu margir embættismenn hafa verið fluttir til í starfi hjá ráðuneytinu frá árinu 2018, sundurliðað eftir árum og hvort það hafi verið gert á grundvelli 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, eða á grundvelli annarra ákvæða laganna, svo sem 37. gr.?


Skriflegt svar óskast.