Ferill 284. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 389  —  284. mál.




Beiðni um skýrslu


frá innviðaráðherra um framkvæmd laga um póstþjónustu.


Frá Bryndísi Haraldsdóttur, Diljá Mist Einarsdóttur, Guðlaugi Þór Þórðarsyni, Jóni Gunnarssyni, Jóni Pétri Zimsen, Ólafi Adolfssyni, Rósu Guðbjartsdóttur, Vilhjálmi Árnasyni og Hildi Sverrisdóttur.


    Með vísan til 54. gr. stjórnarskrárinnar og 54. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að innviðaráðherra flytji Alþingi skýrslu um framkvæmd laga um póstþjónustu. Í skýrslunni verði m.a. eftirtöldum spurningum svarað:
          1.      Í hvaða póstnúmerum er Íslandspósti greitt framlag úr ríkissjóði vegna alþjónustu samkvæmt mati á óvirkum markaðssvæðum og/eða samkvæmt ákvörðunum Byggðastofnunar? Upplýsingar óskast sundurliðaðar eftir póstnúmerum, þjónustuþáttum og fjárhæðum.
          2.      Í hvaða póstnúmerum veita önnur fyrirtæki en Íslandspóstur ohf. þjónustu sem fellur undir skilgreiningu á lágmarkspóstþjónustu (alþjónustu) í lögum um póstþjónustu, nr. 98/2019? Upplýsingar óskast sundurliðaðar eftir þjónustuþáttum (bréfum, pökkum og þess háttar), tíðni þjónustu og umfangi.
          3.      Hversu stór hluti þeirrar þjónustu sem Íslandspóstur ohf. veitir gegn framlagi úr ríkissjóði fellur undir þjónustu sem aðrir aðilar veita á viðskiptalegum forsendum?
          4.      Hefur Íslandspóstur fengið greitt fyrir það frá árinu 2020 að veita þjónustu umfram lágmarkskröfur, t.d. þar sem tíðni dreifingar bréfa eða pakka samkvæmt alþjónustuskyldu Íslandspósts hefur verið meiri en sem nemur lágmarkskröfum á tilteknum svæðum samkvæmt lögum?
          5.      Gætu önnur fyrirtæki en Íslandspóstur ohf. veitt lágmarkspóstþjónustu að hluta eða í heild ef þau þyrftu ekki að keppa við niðurgreiddan rekstur á svæðum þar sem fyrirtæki veita þessa þjónustu ekki nú þegar?
          6.      Telur ráðherra að forsendur séu til þess að bjóða út lágmarkspóstþjónustu að hluta eða í heild? Ef svo er, hvaða svæði eða þjónustuþættir kæmu til greina og hvenær gæti úttekt á þessu eða undirbúningur fyrir þetta hafist?
          7.      Hvernig hefur samskiptum Byggðastofnunar og Samkeppniseftirlitsins verið háttað? Voru samskiptin í samræmi við reglur Byggðastofnunar og Samkeppniseftirlitsins um meðferð og úrlausn póstmála sem gefnar voru út í B-deild Stjórnartíðinda 16. febrúar 2022?
          8.      Hvernig hafa eftirlitsaðilar tryggt Íslandspósti viðeigandi hvatningu til að rækja alþjónustuskyldur á sem skilvirkastan hátt að því er kostnað varðar líkt og kveðið er á um í A-hluta viðauka II við lög um póstþjónustu, nr. 98/2019?
          9.      Hvernig hafa eftirlitsaðilar stuðlað að samkeppni á sviði póstþjónustu og komið í veg fyrir óréttmæta viðskiptahætti með því að vinna gegn röskun eða takmörkun samkeppni á póstþjónustumarkaði í samræmi við 2. tölul. 2. mgr. 3. gr. laga um póstþjónustu, nr. 98/2019?
          10.      Hefur Ríkisendurskoðun haft aðkomu að mati Íslandspósts á alþjónustubyrði félagsins gagnvart stjórnvöldum?

Greinargerð.

    Beiðni þessi var áður lögð fram á síðasta löggjafarþingi en skýrsla barst ekki á þinginu ( 417. mál 156. þings). Beiðninni fylgdi svofelld greinargerð:
    „Með gildistöku laga um póstþjónustu, nr. 98/2019, var einkaréttur ríkisins til póstþjónustu afnuminn og samkeppni á markaði heimiluð. Íslandspóstur ohf. er samkvæmt ákvörðun eftirlitsaðila alþjónustuveitandi og hefur hlotið fjárframlag úr ríkissjóði vegna þjónustu sem ætlað er að tryggja lágmarkspóstþjónustu um land allt sem ekki væri hægt að veita á viðskiptalegum forsendum.
    Í lögunum er gert ráð fyrir því að slíkt framlag skuli einungis veitt þegar markaðurinn bregst. Neytendur hafa tekið eftir því að önnur fyrirtæki, svo sem Dropp, Póstdreifing, Samskip, Eimskip og Vörumiðlun, hafa veitt Íslandspósti samkeppni án þess að þau hafi hlotið ríkisstuðning, jafnvel á svæðum sem skilgreind eru sem „óvirk markaðssvæði“. Þá hafa vaknað spurningar um það hvort framlög hafi verið greidd þrátt fyrir að þjónusta sé veitt umfram lágmarkskröfur samkvæmt lögunum. Samkvæmt lögunum ber að líta svo á að þjónusta sem veitt er á viðskiptalegum forsendum falli ekki undir greiðsluskyldu ríkisins. Þá á að tryggja að tilfærslur á opinberu fé séu hlutfallslegar, gagnsæjar og valdi sem minnstri röskun á samkeppni. Af því leiðir að greiðslur vegna þjónustu sem aðrir aðilar veita þegar án niðurgreiðslu standast hvorki lögin sjálf né meginreglur um ríkisaðstoð samkvæmt EES-samningnum og leiðbeiningum OECD. Mikilvægt er að meta hvort lágmarksþjónusta eða betri þjónusta sé veitt á viðskiptagrundvelli eða yrði veitt ef ekki kæmi til niðurgreiðslu þjónustu Íslandspósts á tilteknum svæðum. Jafnframt þarf að athuga hvort skynsamlegt sé að bjóða út að hluta eða í heild lágmarkspóstþjónustu sem stjórnvöldum ber að tryggja.
    Þá hafa eftirlitsstofnanir á borð við Fjarskiptastofu og Byggðastofnun verið gagnrýndar fyrir að hafa vanrækt hlutverk sitt. Telja flutningsmenn að mikilvægt sé að lagt verði mat á það hvernig stofnanirnar hafi sinnt hlutverki sínu samkvæmt lögunum frá því að þau tóku gildi.
    Af þessum ástæðum er brýnt að ráðherra skili Alþingi heildstæðri skýrslu um það á hvaða svæðum ríkisstuðningur er veittur, hvar þjónusta samkeppnisaðila er sambærileg, hvernig framlag til alþjónustu hafi verið reiknað miðað við lágmarksþjónustu, hvort farið hafi verið að lögum, hvort alþjóðlegar skuldbindingar hafi verið virtar og hvort nauðsynlegt sé að endurskoða núverandi fyrirkomulag og bjóða út alþjónustu að hluta eða í heild. Einnig þarf að greina hvort Íslandspóstur hafi hlotið sérstaklega ívilnandi meðferð umfram það sem eðlilegt getur talist. Liðin eru rúm fimm ár frá gildistöku laganna. Flutningsmenn telja því að staldra þurfi við og meta hvort markmiðum laganna hafi verið náð og hvort unnt sé að gera betur.“