Ferill 285. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 390  —  285. mál.




Fyrirspurn


til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um greiðslur fyrir afnot bóka og hljóðrita á bókasöfnum.

Frá Bryndísi Haraldsdóttur.


     1.      Hver hefur þróun fjárframlaga úr ríkissjóði verið fyrir afnot bóka á bókasöfnum sl. 10 ár, sbr. III. kafla laga um bókmenntir, nr. 91/2007?
     2.      Hver er tilgangur og markmið greiðslna samkvæmt fyrrnefndum kafla laga um bókmenntir?
     3.      Hvernig hafa fyrrnefnd fjárframlög ríkissjóðs skipst, á sama tímabili, á milli rithöfunda, þýðenda, myndhöfunda, tónskálda og annarra aðila?
     4.      Hve stór hluti fyrrnefndra fjárframlaga hefur, á sama tímabili, farið til rétthafa vegna hljóðrita?
     5.      Liggja fyrir upplýsingar um hversu stór hluti úthlutana rennur til barnabókahöfunda?
     6.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir auknum fjárframlögum úr ríkissjóði til höfunda fyrir afnot bóka á bókasöfnum, m.a. til að koma til móts við lækkun greiðslna til barnabókahöfunda?


Skriflegt svar óskast.