Ferill 86. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 393 — 86. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um áhafnir skipa, nr. 82/2022 (áhafnir björgunarskipa).
Frá umhverfis- og samgöngunefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá innviðaráðuneyti, Samgöngustofu, Landhelgisgæslu Íslands, Slysavarnafélaginu Landsbjörg, Samtökum ferðaþjónustunnar og Tækniskólanum.
Nefndinni bárust þrjár umsagnir auk minnisblaðs frá innviðaráðuneyti og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Með frumvarpinu er lögð til breyting á lögum um áhafnir skipa, nr. 82/2022, þess efnis að ráðherra verði heimilt að setja í reglugerð nánari ákvæði um menntun og þjálfun á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Slysavarnaskóla sjómanna til skipstjórnar og vélgæslu á björgunarskipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar, sem gegna sérhæfðu hlutverki, og um lágmarksréttindi til skipstjórnar og vélgæslu á þeim. Námskrá og listi yfir kennara verði háð samþykki Samgöngustofu sem hafi eftirlit með náminu. Námið skuli eingöngu gilda til starfa um borð í björgunarskipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar samkvæmt skipaskrá. Af því leiðir að engin atvinnuréttindi ávinnast með því að ljúka námi og þjálfun samkvæmt reglugerðinni.
Umfjöllun nefndarinnar.
Almennt.
Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að því er ætlað að bregðast við vanda Slysavarnafélagsins Landsbjargar við mönnun nýrra björgunarskipa. Þar kemur jafnframt fram að skv. 3. mgr. 20. gr. brottfallinna laga um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa, nr. 30/2007, var ráðherra skylt að setja með reglugerð nánari ákvæði um lágmarksréttindi til skipstjórnar og vélgæslu á björgunarskipum og vinnuskipum sjókvíaeldisstöðva sem gegna sérhæfðu hlutverki, sbr. reglugerð um skipstjórnar- og vélstjórnarréttindi á björgunarskipum, nr. 555/2008. Sú skylda ráðherra hafi fallið brott þegar ný lög um áhafnir skipa, nr. 82/2022, voru samþykkt á Alþingi. Þá er rakið í greinargerðinni að nýju björgunarskipin hafa tvær vélar sem hvor um sig hefur 551 kW vélarafl og eru stærri en þau gömlu. Vegna þess hefur reynst erfiðara að manna þau en gildissvið áðurnefndrar reglugerðar er takmarkað við björgunarskip sem eru 18 metrar og styttri að skráningarlengd og með vélarafl allt að 750 kW og því ekki hægt að nýta hana fyrir áhafnir nýju björgunarskipanna. Þar sem ekki sé lagastoð fyrir reglugerðinni í gildandi lögum sé ekki hægt mæta þessu með því að breyta reglugerðinni. Frumvarpinu er ætlað að bregðast við þessari stöðu.
Menntun áhafnar á björgunarskipum.
Líkt og fram hefur komið felur frumvarpið í sér heimild ráðherra til að setja í reglugerð ákvæði um menntun og þjálfun á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Slysavarnaskóla sjómanna á björgunarskipum félagsins sem gegna sérhæfðu hlutverki, og um lágmarksréttindi til skipstjórnar og vélgæslu á þeim. Með náminu ávinnast engin atvinnuréttindi heldur er einungis um að ræða réttindi fyrir sjálfboðaliða til að starfa í áhöfn á björgunarskipum félagsins.
Í umsögn Landhelgisgæslu Íslands var lögð áhersla á mikilvægi þess að öryggi skips og áhafnar sé alltaf í fyrirrúmi og megi fyrirhugaðar breytingar ekki á nokkurn hátt skerða öryggi áhafna björgunarskipa. Því þurfi að liggja skýrt fyrir hvernig bóklegu námi og verklegri þjálfun áhafnarmeðlima verði háttað, þ.m.t. skilgreining á lágmarkssiglingatíma til að öðlast réttindi. Þá telji stofnunin mikilvægt að hefðbundin skipstjórnar- og vélstjórnarréttindi nýtist áfram til starfa um borð í skipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar, þ.e. fólk með slík réttindi þurfi ekki að gangast undir það sértæka nám sem fyrirhugað er með frumvarpinu. Í minnisblaði innviðaráðuneytisins til nefndarinnar er tekið undir sjónarmið Landhelgisgæslunnar varðandi kröfur til náms og þjálfunar og lágmarkssiglingatíma en þessir þættir verði útfærðir í reglugerð líkt og gildi um annað nám til skipstjórnar- og vélstjórnarréttinda. Þá muni hefðbundin skipstjórnar- og vélstjórnarréttindi áfram nýtast til starfa um borð í skipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar en ekkert í frumvarpinu gefi tilefni til að ætla annað. Nefndin tekur undir það og leggur áherslu á að markmið frumvarpsins er að bregðast við mönnunarvanda nýju björgunarskipanna þannig að það fjölgi í þeim hópi sem getur sinnt skipstjórn og vélgæslu á þeim. Engu er verið að breyta hvað varðar réttindi þeirra sem nú þegar hafa skipstjórnar- og vélstjórnarréttindi.
Í sameiginlegri umsögn Tækniskólans og Verkmenntaskólans á Akureyri sem send var í samráðsgátt stjórnvalda var áhyggjum lýst af því að til stæði að bregða frá þeim lögum og reglugerðum sem liggja að baki réttindum sem veitt eru til siglinga skipa og byggjast á STCW-alþjóðasamþykktinni sem Ísland er aðili að og bent á að nám í siglingatengdum greinum eigi heima í fagskóla en í dag séu fjórir skólar sem bjóði upp á nám í skipstjórn og/eða vélstjórn. Sömu athugasemdir komu einnig fram á fundi nefndarinnar. Mikilvægt sé að ekki verði dregið úr kröfum um kunnáttu þeirra sem sigla björgunarskipum sem fara alla jafna út í slæmu veðri og við erfiðar aðstæður. Betra sé að finna þessu námi stað í skólum sem bjóða upp á heildstætt nám í skipstjórn og vélstjórn og sæta stífu eftirliti frekar en að byggja upp nýtt kerfi sem þarf sérregluverk og eftirlit. Samstarf Landsbjargar og skólanna hafi verið farsælt og fullur vilji til að efla það enn frekar þegar kemur að menntun sjófarenda, t.d. með endurskoðun námskrár og aðlögun hennar að þörfum Landsbjargar. Slysavarnafélagið Landsbjörg bendir á í umsögn sinni að félagið hafi um áratugaskeið rekið sérstakan Björgunarskóla en frumvarpið muni gera það kleift að bæta áhöfnum björgunarskipa við þann stóra hóp sem sækir sér menntun í þeim skóla. Ekki verði slegið af öryggiskröfum og áréttað að öryggi félaga Landsbjargar sé ávallt í fyrirrúmi í öllu starfi félagsins. Þá sæti námið sama eftirliti Samgöngustofu og nám fagskólanna. Fram kom að sífellt færri sæki sér atvinnuréttindi til skipstjórnar og vélstjórnar óháð námsleiðum og skólum. Sú staða sé ekki bundin við Ísland heldur einnig t.d. í Bretlandi og Noregi en þar séu systursamtök Landsbjargar með nám fyrir sína félagsmenn.
Samkvæmt minnisblaði ráðuneytisins er það mat Landsbjargar að sú leið sem Tækniskólinn og Verkmenntaskólinn á Akureyri leggi til í umsögn sinni leysi ekki vanda félagsins við mönnun björgunarskipa. Félagið stefni að því að bjóða upp á nám sem sé sérsniðið að sjálfboðaliðum í björgunarskipum félagsins og verður námið byggt á námi sem systursamtök félagsins í nágrannaríkjum bjóði sínum sjálfboðaliðum. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að félagið hafi hug á því að nýta fyrirmynd námsefnis frá Royal National Lifeboat Institution og verði námið í senn staðnám og fjarnám. Ráðuneytið tekur fram í minnisblaðinu að frumvarpið gefi ekki ástæðu til að ætla að dregið verði úr kröfum til námsins á þann hátt að hallað geti á öryggi skips og áhafnar. Samgöngustofa muni samþykkja námskrá og hafa eftirlit með náminu líkt og gildir um annað nám í siglingatengdum greinum hér á landi. Eins og fram kemur í samráðskafla frumvarpsins voru þær breytingar sem lagðar eru til með frumvarpinu unnar í samvinnu við Samgöngustofu og því telur nefndin ljóst að Samgöngustofa sem eftirlits- og umsagnaraðili gerir ekki athugasemdir við þetta fyrirkomulag.
Nefndin bendir á að ekki er um nýmæli að ræða, þ.e. að gefnar séu undanþágur frá kröfum um atvinnuréttindi til skip- og vélstjórnar á björgunarskipum. Hingað til hafa verið undanþágur fyrir áhafnir um borð í björgunarskipum í áðurnefndri reglugerð nr. 555/2008. Afar brýnt er að tryggja mönnun björgunarskipa Slysavarnafélagsins Landsbjargar enda sinnir félagið mikilvægu hlutverki við að tryggja öryggi almennings um allt land, m.a. björgun á sjó. Þá hefur ekki tekist að mennta nægilegan fjölda til að sinna skipstjórn og vélgæslu björgunarskipa félagsins þrátt fyrir gott samstarf Landsbjargar og fagskólanna. Nefndin áréttar mikilvægi þess að hvergi sé slegið af öryggiskröfum í því námi sem reglugerðin mun taka til, þ.e. námi á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Slysavarnaskóla sjómanna, en þar gegnir Samgöngustofa mikilvægu hlutverki sem eftirlitsaðili og sú stofnun sem samþykkir námskrá og lista yfir kennara.
Breytingartillaga.
Nefndin leggur til eina orðalagsbreytingu á 3. málsl. 1. gr. frumvarpsins sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif.
Að framangreindu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
Í stað orðsins „gilda“ í 3. málsl. 1. gr. komi: veita réttindi.
Jens Garðar Helgason var fjarverandi við afgreiðslu málsins en ritar undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa. Sigurður Helgi Pálmason var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 20. nóvember 2025.
| Guðbrandur Einarsson, form. |
Jónína Björk Óskarsdóttir, frsm. | Ása Berglind Hjálmarsdóttir. | |
| Dagur B. Eggertsson. | Halla Hrund Logadóttir. | Ingibjörg Davíðsdóttir. | |
| Jens Garðar Helgason. | Ólafur Adolfsson. | ||