Ferill 289. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 399  —  289. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um Kvíabryggju.

Frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur.


    Hvaða reglur gilda um möguleika þeirra fanga sem fengið hafa þyngstu dómana til að afplána eftirstöðvar refsingar á Kvíabryggju? Fer það alfarið eftir hegðun eða þarf ákveðnu hlutfalli refsingar að vera lokið áður en flutningur kemur til greina?


Skriflegt svar óskast.