Ferill 293. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 408 — 293. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um útskrifaða nemendur úr diplómanámi í lögreglufræðum.
Frá Karli Gauta Hjaltasyni.
1. Hversu margir nemendur hafa útskrifast úr diplómanámi í lögreglufræðum frá Háskólanum á Akureyri frá og með árinu 2018? Svar óskast sundurliðað eftir árum og kyni útskriftarnemenda.
2. Hversu margir framangreindra voru við lögreglustörf 1. nóvember 2025? Svar óskast sundurliðað eftir útskriftarárgangi, kyni og því hjá hvaða lögregluembættum þeir starfa.
Skriflegt svar óskast.