Ferill 171. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 419  —  171. mál.




Svar


mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Isaksen um fyrsta og annars stigs þjónustu á vegum sveitarfélaga.


     1.      Hvaða úrræði teljast til fyrsta og annars stigs þjónustu í þágu barna sem sveitarfélög hafa umsjón með og bera ábyrgð á samkvæmt verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga að því er varðar þjónustu í þágu barna? Svar óskast sundurliðað eftir landshlutum og sveitarfélögum.
    Í samræmi við verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga ber sveitarfélögum að hafa tiltæk úrræði fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Samkvæmt ákvæðum ýmissa sérlaga skulu sveitarfélög bjóða upp á úrræði sem falla undir fyrsta og annars stigs þjónustu. Sveitarfélög bera ábyrgð á að skipuleggja þessa þjónustu innan ramma gildandi laga og hafa að jafnaði svigrúm til að útfæra hana með þeim hætti sem best hentar aðstæðum og þörfum í hverju sveitarfélagi.
    Þjónustustig fer eftir eðli þeirrar þjónustu sem er veitt en hægt er að fá þjónustu á fleiri en einu þjónustustigi á sama tíma. Hugtakið „þjónusta“ hefur víðtæka merkingu og nær m.a. til almennra aðgerða, ráðgjafar, mats, greiningar, úrræða og eftirfylgni.
    Fyrsta stigs þjónusta felur í sér grunnþjónustu sem er aðgengileg öllum börnum og fjölskyldum þeirra. Hún nær m.a. til forvarna og fræðslu sem miða að því að draga úr líkum á vanda eða áhættuhegðun hjá börnum og ungmennum. Dæmi um grunnþjónustu eru ungbarnavernd og það víðtæka starf sem á sér stað innan leik-, grunn- og framhaldsskóla. Auk grunnþjónustu felur fyrsta stigs þjónusta í sér einstaklingsbundinn og snemmtækan stuðning við börn og fjölskyldur sem glíma við vægan vanda. Um er að ræða þjónustu sem er veitt umfram grunnþjónustu, og er einkum tímabundinn stuðningur eða þjálfun sem miðar að því að styrkja börn til að takast á við náms-, hegðunar- eða félagslegar áskoranir. Markmiðið er að sem flest börn fái viðeigandi þjónustu á fyrsta stigi og að þjónusta þess stigs sé það öflug að færri börn þurfi sérhæfðari þjónustu á öðru eða þriðja stigi. Dæmi um þjónustu á þessu stigi er stuðningur vegna námsvanda, hegðunarvanda eða minni háttar heilsufarsvanda. Þjónustan er oft veitt innan leik- og grunnskóla í samvinnu við forsjáraðila og skólaþjónustu sveitarfélaga.
    Á öðru stigi er veittur einstaklingsbundinn og markviss stuðningur. Stuðningur á þessu stigi er sérhæfðari og fjölbreyttari en á fyrsta stigi og á við þegar úrræði á fyrsta stigi duga ekki til eða hafa ekki borið tilætlaðan árangur. Stuðningur á þessu stigi kallar á samþætta þjónustu og eftirfylgd, þar sem stuðningsteymi er myndað í kringum barnið. Teymið gerir stuðningsáætlun og fylgir henni eftir í samræmi við ákvæði sérlaga. Markmiðið er að tryggja samræmd viðbrögð og koma í veg fyrir frekari vanda. Dæmi um þjónustu á þessu stigi eru ýmiss konar stuðningsúrræði á vegum félags-, heilbrigðis- og skólaþjónustu og önnur úrræði sem sveitarfélög skipuleggja innan ramma laga.
    Samkvæmt 9. gr. laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021, (hér eftir farsældarlög) skal farsældarþjónusta skilgreind með tilliti til þess hvaða stigi hún tilheyrir. Sé ekki mælt fyrir um flokkun farsældarþjónustu eftir þjónustustigum í lögum skulu ráðherrar sem bera ábyrgð á farsældarþjónustu setja reglugerðir, eftir atvikum að höfðu samráði við sveitarfélög, þar sem gerð er grein fyrir allri farsældarþjónustu sem undir hvern ráðherra heyrir og stigskiptingu þeirrar þjónustu. Útfærsla á reglugerð ráðherra um stigskiptingu þjónustu samkvæmt ákvæðinu er til skoðunar hjá ráðuneytinu en hefur ekki verið sett. Þá heldur ráðuneytið ekki utan um sérstakan lista yfir úrræði sveitarfélaga sem teljast til fyrsta og annars stigs þjónustu í þágu barna.

     2.      Hvaða ráð hafa sveitarfélög til að sinna því lögbundna hlutverki sínu að veita þjónustu á þessum stigum?
    Sérstöku fjármagni hefur verið úthlutað til sveitarfélaga til að mæta kostnaði við samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna á árunum 2022–2025, sbr. ákvæði til bráðabirgða XXV í lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995. Við úthlutun er framlagið hlutfallsskipt á grundvelli eftirfarandi breytna fyrir hvert sveitarfélag sem allar hafa jafnt vægi og byggjast á upplýsingum frá Hagstofu Íslands:
     1.      Fjöldi barna 1. janúar 2024.
     2.      Meðaltal barna með stuðning í grunnskólum skólaárin 2020/2021, 2021/2022 og 2022/2023 og fjöldi barna með stuðning í leikskólum árin 2021, 2022 og 2023.
     3.      Fjöldi barna á heimilum með undir 60% af miðgildi ráðstöfunartekna árið 2023.
     4.      Fjöldi innflytjenda af fyrstu og annarri kynslóð 1. janúar 2024.

Tafla 1. Dæmi um heildarframlög sem var hlutfallsskipt með framangreindum hætti á árunum 2022–2025 í samræmi við reglugerð um framlög til að mæta kostnaði sveitarfélaga vegna samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna á árinu 2025, nr. 1667/2024.

2022 2023 2024 2025
1.100.000.000 kr. 1.100.000.000 kr. 1.078.000.012 kr. 1.067.100.000 kr.

    Til viðbótar við þetta fá sveitarfélög framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga sem ríkið fjármagnar að hluta, sbr. III. kafla laga um tekjustofna sveitarfélaga. Framlög sjóðsins taka tillit til þess að sum sveitarfélög hafa hlutfallslega meiri útgjöld vegna þjónustu við börn, t.d. vegna dreifingar byggðar, fámennis, hærra hlutfalls barna með sérþarfir eða hás hlutfalls barna í viðkvæmri félagslegri stöðu. Með þessum framlögum er reynt að tryggja að réttur barna til þjónustu á fyrsta og öðru stigi sé í raun sambærilegur óháð því hvar þau búa, þ.e. að fjárhagsstaða eða stærð sveitarfélags verði ekki hindrun fyrir því að það geti sinnt hinu lögbundna hlutverki sínu gagnvart börnum.
    Auk þess styrkir ráðuneytið starfsemi fjölbreyttra félagasamtaka, í gegnum auglýsta farsældarstyrki og beina samstarfsstyrki til að styðja ýmis úrræði og þjónustu við börn.
    Barna- og fjölskyldustofa, í nánu samstarfi við ráðuneytið, hefur frá gildistöku farsældarlaganna lagt áherslu á að veita sveitarfélögum stuðning í formi fræðslu, leiðbeininga og ráðgjafar. Sem dæmi má nefna reglugerð um tengiliði og málstjóra samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 1180/2022, sem kveður á um skipulag og framkvæmd þjónustunnar. Markmiðið er að tryggja að börn og foreldrar fái samþætta þjónustu án hindrana og að tengiliðir og málstjórar fylgist með velferð, meti þjónustuþarfir og veiti stuðning í samræmi við þarfir barnsins, hvort sem er á fyrsta, öðru eða þriðja stigi.
    Frá samþykkt farsældarlaganna hefur mennta- og barnamálaráðuneytið átt í víðtæku samráði við sveitarfélög, stofnanir, félagasamtök, fagfólk á vettvangi og önnur ráðuneyti. Slíkur samráðsvettvangur og viljayfirlýsingar eru nýttar til að efla samhæfingu og þróun þjónustu.

     3.      Hvaða ráð hafa framhaldsskólar til að sinna fyrsta og annars stigs þjónustu í þágu nemenda og tryggja farsæld þeirra?
    Farsældarlögin ná til allrar þjónustu innan skólakerfisins, þ.m.t. framhaldsskólanna. Samkvæmt könnun sem framhaldsskólar svöruðu árið 2024 um nýtingu fjármagns til innleiðingar farsældar í framhaldsskólum kemur fram að tengiliðir farsældar starfa í öllum framhaldsskólum.
    Frá haustinu 2022 hafa mennta- og barnamálaráðuneytið, Barna- og fjölskyldustofa og embætti landlæknis átt árangursríkt samstarf vegna innleiðingar farsældarlaganna í framhaldsskólum. Framhaldsskólarnir hafa fengið kynningu á farsældarlögunum, auk þess sem þeir hafa stuðst við gátlista farsældar við innleiðingu laganna og gátlista fyrir starfsfólk framhaldsskóla sem er hluti af verkefninu Heilsueflandi framhaldsskóli sem Embætti landlæknis stýrir. Allir 30 framhaldsskólar á landinu, sem bjóða upp á bók- og verknám til stúdents- og/eða sveinsprófs, eru þátttakendur í verkefninu. Meginmarkmið með verkefninu er að styðja framhaldsskóla í að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilsusamlegum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan.
    Annars vegar fá framhaldsskólar framlög frá mennta- og barnamálaráðuneytinu samkvæmt reiknilíkani sem tekur m.a. mið af samsetningu nemendahópsins, þ.m.t. fjölda nemenda með stuðningsþarfir á fyrsta og öðru stigi. Hins vegar hafa framhaldsskólar fengið því til viðbótar árleg framlög frá ráðuneytinu vegna innleiðingar farsældarlaganna. Heildarupphæðir framlaga vegna innleiðingar farsældarlaganna má sjá í töflu 2.

Tafla 2. Sérstakar fjárveitingar til framhaldsskóla vegna samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna árin 2022–2025.

2022 2023 2024 2025
54.000.000 kr. 108.000.000 kr. 108.000.000 kr. 112.000.000 kr.

    Framangreindu fjármagni til framhaldsskóla var skipt þannig að 40% skiptist milli framhaldsskóla í hlutfalli við stærð þeirra (heildarfjölda nemenda). Þá er 60% fjármagnsins skipt hlutfallslega milli framhaldsskóla eftir því hve líklegir nýnemar (úr grunnskóla) eru til að hætta í námi (% brotthvarf).