Ferill 1. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 459  —  1. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2026.

Frá 1. minni hluta fjárlaganefndar.


Umfjöllun nefndarinnar.
Samantekt.
Endurmat markmiða í ljósi breyttrar efnahagsþróunar.
    Samkvæmt greiningu Seðlabanka Íslands og greiningaraðila á markaði verður hagvöxtur 2025 langt undir væntingum og árið 2026 gæti reynst enn erfiðara. Þessi staða kallar á varfærni við mótun markmiða um þróun opinberra fjármála og að gripið sé til aðgerða í ríkisfjármálum sem stuðli að stöðugleika efnahagslífsins. Þetta felur í sér mat á sjálfbærni útgjaldaaukningar ríkissjóðs milli áranna 2025 og 2026 og endurmat á forsendum fjármála hins opinbera, þar á meðal þróunar lykilstærða.

Varfærni og markviss framkvæmd fjárlaga.
    Breytt staða efnahagsmála kallar á mun markvissari framkvæmd fjárlaga en raunin hefur verið síðustu ár. Þetta á sérstaklega við í ljósi þess að núgildandi fjármálastefna gerir ráð fyrir jafnvægi í ríkisrekstri árið 2027. Eigi það markmið að nást þarf að huga að því nú þegar með fyrirsjáanleika og stórbættu eftirliti Alþingis með þróun útgjalda ríkisins árið 2026.

Endurskoðun markmiða sem undirstaða áætlanagerðar.
    Liður í því að treysta stoðir áætlanagerðar ríkisins er gagnger endurskoðun markmiða málefnasviða fjárlagafrumvarpsins og þar með þeirra forsendna sem liggja að baki útgjöldum til alls 35 málefnasviða. Slíkt er mikilvægt með tilliti til fjárlaga næsta árs, sem undirbúningur fyrir fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031, og þróunar lykilstærða efnahagslífsins.
    Skýrari, raunsærri og mælanlegri markmið gera stjórnvöldum kleift að bæta yfirsýn, forgangsraða verkefnum betur og nýta fjárheimildir á skilvirkari hátt og efla um leið velmegun í landinu.

Tækifæri til heildstæðrar endurhugsunar.
    Margt jákvætt kemur fram í núgildandi frumvarpi til fjárlaga. Þróun efnahagsmála síðustu mánaða gerir þó ekki aðeins kröfu um endurskoðun útgjaldaþróunar ríkisins heldur veitir einnig kærkomið tækifæri til heildstæðrar endurhugsunar á fyrirkomulagi markmiðasetningar allra málefnasviða fjárlagafrumvarps og fjármálaáætlunar. Álit 1. minni hluta fjárlaganefndar er lagt fram með þetta að leiðarljósi og umfram allt til að treysta stoðir áætlanagerðar ríkisins til lengri tíma.

Breytingartillögur og megináherslur í áliti 1. minni hluta.
    Breytingartillögur og almenn sjónarmið 1. minni hluta byggjast á fimm megináherslum sem mynda heildstæða nálgun við endurskoðun fjárlagafrumvarpsins:

(1) Endurmat á útgjaldaáherslum og sjálfbærni þeirra.
    Mat á sjálfbærni útgjaldaaukningar ríkissjóðs í ljósi versnandi efnahagshorfa og endurmat á forsendum fjármála hins opinbera, þar á meðal þróunar lykilstærða. Áhersla er á varfærni og raunsæi í stað bjartsýni.

(2) Markvissari framkvæmd fjárlaga með skýrum markmiðum.
    Endurskoðun markmiða allra 35 málefnasviða þannig að þau séu skýr, mælanleg og tengd raunverulegum árangri frekar en tæknilegum verkþáttum. Þetta styrkir yfirsýn, forgangsröðun og eftirlit með framkvæmd fjárlaga.

(3) Metnaðarfullar tillögur um breytingar á fjárlögum.
    Markviss en raunsæ aukning fjárheimilda á sviðum þar sem mest þörf er á, einkum í heilbrigðismálum (geðheilbrigðisþjónusta barna 400 m.kr., lækkun lyfjakostnaðar 500 m.kr., efling sérgreinalækna 200 m.kr.), menntamálum (lestrarfærni og íslenska 200 m.kr.), nýsköpun (500 m.kr., þar á meðal nýsköpunarsjóður landsbyggðarinnar), markaðsátaki (ferðaþjónusta 1.000 m.kr., iðnaður og matvæli 500 m.kr.) og stuðningi við ungt fólk á vinnumarkaði (200 m.kr.).

(4) Ábyrgar sparnaðaraðgerðir til mótvægis.
    Til að jafna útgjaldaaukningu upp á 3,7 ma.kr. eru lagðar til sparnaðaraðgerðir og aðhald að fjárhæð 3,5–4,5 ma.kr.: Almenn 2% aðhaldskrafa á rekstur ríkisins (2,5–3,0 ma.kr.) með áherslu á einföldun stjórnsýslu og hagræðingu, en undanskilin grunnþjónusta. Frestun óbrýnna framkvæmda (1,0–1,5 ma.kr.), þar á meðal nýs nefndahúss Stjórnarráðsins.

(5) Undirbúningur að fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031.
    Endurskoðun markmiða er ekki aðeins nauðsynleg fyrir fjárlög fyrir árið 2026 heldur jafnframt mikilvægur undirbúningur fyrir fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Með skýrari og mælanlegri markmiðasetningu er lagður grunnur að traustri stefnumótun og betri forgangsröðun til lengri tíma. Umfram allt er mikilvægt að lykilstofnanir ríkisins eigi samtal um nauðsyn og innleiðingu umbóta í áætlanagerð hins opinbera.

Helstu áherslur á völdum málefnasviðum.
    Eftirfarandi dæmi sýna hvernig endurskoðuð markmið og breytingartillögur koma fram á helstu málefnasviðum:

Heilbrigðismál, með áherslu á fagmennsku, öryggi og aðgengi.
    Endurskoðuð markmið í samræmi við heilbrigðisstefnu til ársins 2030 leggja áherslu á örugga, samfellda og jafna þjónustu. Tillögur: Geðheilbrigðisþjónusta barna (400 m.kr.), lækkun lyfjakostnaðar (500 m.kr.) og efling sérgreinalækna (200 m.kr.).

Menntamál, með áherslu á læsi, gæði og framtíðarhæfni.
    Ný markmið með áherslu á læsi og íslenskukunnáttu. Aukning um 200 m.kr. til þróunar námsgagna, stuðnings við kennara og samtalsþjálfunar. Sérstök áhersla á börn með erlendan bakgrunn og styrkingu íslenskunnar sem samfélagslegrar máttarstoðar.

Nýsköpun og verðmætasköpun, með áherslu á vistkerfi og alþjóðlega samkeppni.
    Heildstætt átak: Nýsköpun með nýsköpunarsjóði landsbyggðarinnar (500 m.kr.), markaðsátak fyrir ferðaþjónustu (1.000 m.kr.) og íslenskan iðnað og matvæli (500 m.kr.). Stuðningur við ungt fólk á vinnumarkaði vegna gervigreindar og stafrænnar þróunar (200 m.kr.).

Íþróttir, með áherslu á aðgengi og þátttöku.
    Hækkun um 200 m.kr. til að draga úr ferðakostnaði íþróttafólks og styðja við aukna þátttöku barna og ungmenna um allt land.

Jafnvægi og grunnur að traustri fjármálaáætlun.
    Breytt efnahagsumhverfi skapar tækifæri til heildstæðrar endurhugsunar á markmiðasetningu allra málefnasviða. Fimm megináherslur tillagnanna mynda samhangandi heild: Endurmat á útgjaldaáherslum, markvissari framkvæmd fjárlaga, metnaðarfullar tillögur um breytingar, ábyrgar sparnaðaraðgerðir og undirbúningur fyrir fjármálaáætlun næsta árs.

Nánar um álit 1. minni hluta fjárlaganefndar.
    Fyrsti minni hluti fjárlaganefndar telur að staða efnahagsmála hafi breyst það verulega frá þeim forsendum sem liggja að baki fjárlagafrumvarpi, fjármálaáætlun og gildandi fjármálastefnu að ríkt tilefni sé til að endurmeta útgjöld ríkisins og áherslur í því ljósi. Þróunin á yfirstandandi ári og horfur fyrir næstu misseri benda til þess að þjóðarbúið standi frammi fyrir meiri veikleikum og óvissu og minni vaxtargetu en áður var talið. Af því leiðir jafnvel að afkomumarkmið gildandi fjármálastefnu séu í uppnámi en ekki verður með góðu móti séð hvernig þeim verði náð m.a. um hallalaus fjárlög fyrir árið 2027.
    Fyrsti minni hluti telur að framkomnar breytingar á forsendum efnahagsmála kalli því á meiri varfærni, raunsæi og endurmat á stefnumiðum í opinberum fjármálum. Umfram allt telur 1. minni hluti að ríkt tilefni sé til að endurskoða og skýra betur markmið málefnasviða og áherslur þeim tengdar, sem eru grundvöllur útgjalda ríkissjóðs. Þótt margt hafi áunnist í áætlanagerð ríkisins síðustu ár er ljóst að auka þarf fyrirsjáanleika, aga og gagnsæi í áætlanagerð ríkisins. Núverandi staða er sú að Alþingi getur ekki uppfyllt nægilega vel fjárstjórnarhlutverk sitt. Óljós markmið og áherslur gera það að verkum að í mörgum tilvikum er nánast ókleift fyrir Alþingi að leggja mat á að hvaða árangri innan einstakra málefnasviða er stefnt og hvort markmið séu fjármögnuð. Af þessu leiðir jafnframt að framkvæmd fjárlaga verður langt í frá eins markviss og öguð og æskilegt er.

Verulegar breytingar á forsendum efnahagsmála.
    Samkvæmt mati Seðlabanka Íslands er ljóst að hagvöxtur á árinu 2025 verður mun minni en forsendur stjórnvalda og flestra greiningaraðila gerðu ráð fyrir um mitt sumar 2025. Nú telur Seðlabankinn að hann verði um 0.9%. Áður var byggt á þeirri forsendu að innlend eftirspurn myndi halda velli og útflutningsgreinar næðu jafnvægi á ný. Við blasir þó að þjóðarbúið stendur frammi fyrir mun hægari hagvexti og minni umsvifum hagkerfisins.
    Röð áfalla í útflutningsdrifnum atvinnugreinum, einkum álframleiðslu, fiskeldi og ferðaþjónustu, og nú síðast með ákvörðun Evrópusambandsins um tolla á útflutning kísilmálms, hefur gert það að verkum að horfur um vöxt og tekjuöflun hafa versnað verulega. Afleiðingin er að tekjustofnar ríkisins þróast óhjákvæmilega með öðrum hætti en núverandi fjárlagafrumvarp gerir ráð fyrir.
    Fyrsti minni hluti tekur heils hugar undir það mat Seðlabankans að viðsnúningur í hagkerfinu hafi orðið fyrr og með meiri þunga en áður var talið. Það sem áður var talið tímabundin staða hefur nú tekið á sig mynd viðvarandi slaka og fyrrnefndar efnahagsforsendur eru því ekki lengur í samræmi við raunveruleika þjóðarbúsins. Þetta kallar á meira aðhald og aukna varfærni.
    Seðlabankinn bendir nánar tiltekið á að árið 2026 geti reynst enn erfiðara en yfirstandandi ár. Í fyrsta sinn í töluverðan tíma reiknar bankinn með stöðugum slaka í þjóðarbúinu næstu misseri og að nýting framleiðsluþátta sé undir jafnvægisstöðu. Þá er gert ráð fyrir að atvinnuleysi aukist frá fyrri horfum og fjárfesting verði veikari en áður var gert ráð fyrir.
    Þessar breyttu horfur hafa bæði umtalsverð tekju- og útgjaldahliðaráhrif fyrir ríkissjóð. Á meðan eftirspurn og vöxtur veikjast verður tekjuvöxtur minni, á sama tíma og aukin þörf skapast fyrir stuðnings- og innviðafjárfestingar til að mæta álagi í samfélaginu. Slíkt kallar á að fjármálastefna og fjárlagagerð séu byggðar á varfærnari forsendum en nú er gert.

Óvissa hefur aukist í öllum meginþáttum efnahagslífsins.
    Seðlabankinn metur stöðu efnahagsmála svo að óvissa sé töluvert meiri en á undanförnum árum. Það á bæði við um innlenda og erlenda þætti. Þar ber sérstaklega að nefna:
     *      óvissu í útflutningsgreinum þar sem markaðsaðstæður, verð, aðfangakeðjur og ýmis rekstraráföll hafa leitt til meiri sveiflna og minni framleiðslu;
     *      óvissu á lánamarkaði, m.a. vegna dóms Hæstaréttar og breyttra forsendna um verðlagningu fjármálagerninga og framboð íbúðalána;
     *      óvissu um verðbólgu og verðbólguvæntingar, sem þrátt fyrir hægan bata og óvænta lækkun í nóvember eru enn yfir markmiði Seðlabankans;
     *      óvissu um gengi krónunnar, sem hefur tekið að lækka og gæti leitt til hækkunar innflutningsverðs aðfanga.
    Fyrsti minni hluti leggur áherslu á að slíkt óvissustig kallar á að ríkisfjármál séu ekki byggð á bjartsýnisforsendum. Þvert á móti er mikilvægt að laga fjárlög að breyttu efnahagsástandi til að draga úr áhættu sem annars getur safnast upp og haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar. Því er til að mynda mikilvægt að almennur varasjóður ríkissjóðs sé nægilega burðugur til að geta tekið á þeim margvíslegu óvissuþáttum sem að framan greinir. Staðan er þó sú að samkvæmt fjárlagafrumvarpinu er almennur varasjóður skorinn niður í 1%, sem er lágmark samkvæmt lögum um opinber fjármál. Rétt er að ítreka að varasjóður gegnir grundvallarhlutverki í áætlanagerð ríkisins og í ljósi þeirrar óvissu sem nú ríkir í efnahagsmálum er æskilegt að varasjóður sé stærri en ella, eða um 1,5–2%.

Þörf á endurmati á fjárhagslegum markmiðum og stefnumótun í ljósi breyttrar stöðu.
    Í þessu samhengi vill 1. minni hluti árétta að trúverðugleiki opinberra fjármála er forsenda þess að efnahagsstefna stjórnvalda, þ.m.t. peningastefna Seðlabanka Íslands, geti notið trausts og skilað þeim árangri sem að er stefnt. Þegar forsendur tekju- og útgjaldahliðar eru óljósar eða byggðar á veikri forsendugreiningu eykst hættan á að stefnumörkun stjórnvalda njóti ekki tiltrúar almennings, markaðsaðila og annarra hagsmunaaðila.
    Skýrt dæmi um þetta eru áform um breytingu á vörugjöldum af bifreiðum sem á að skila um 8,5 ma.kr. tekjuauka, þrátt fyrir að fyrir liggi að tekjustofninn muni veikjast verulega þar sem bílaleigur og almenningur eru nú þegar að flýta kaupum fyrir árslok til að njóta lægri gjalda. Þá er bílamarkaður mjög verðnæmur og háður verðlagi á hverjum tíma, þannig að ljóst er að breytingar til hækkunar verðlags munu hafa veruleg áhrif á eftirspurn og þar með tekjur ríkissjóðs. Þar af leiðandi telja margir að tekjuáætlun af þessum tekjustofni standist ekki skoðun. Slík framsetning rýrir trúverðugleika efnahagsstefnunnar í heild og dregur jafnframt úr tiltrú á getu stjórnvalda og Seðlabanka Íslands til að tryggja samræmda og ábyrga hagstjórn.
    Í ljósi framangreindra sjónarmiða telur 1. minni hluti að grundvallarforsendur fjárlaga næsta árs byggi á of veikum grunni. Jafnframt má leiða að því líkur að markmið gildandi fjármálastefnu, sem byggjast á forsendum um þróttmikinn hagvöxt, mikla innlenda eftirspurn og stöðugan útflutning, standist ekki lengur. Afkomumarkmið stefnunnar eru einfaldlega í uppnámi nema til komi verulegt endurmat á útgjöldum ríkisins og tekjustofni fjárlaga. Því leggur 1. minni hluti til að vinna við gerð næstu fjármálaáætlunar hefjist án tafar og að hún endurspegli réttar og raunsæjar efnahagsforsendur og skýrar útgjaldaáherslur.
    Rétt er að hafa í huga að fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030, sem samþykkt var á Alþingi vorið 2025, fól ekki í sér skýr markmið og mælikvarða um áherslur innan málefnasviða eins og hefð er fyrir. Þess í stað komu mælikvarðar fram í þar til gerðu mælaborði stjórnvalda. Af þessu leiddi veruleg óvissa sem mikilvægt er að bætt verði úr. Mælaborð með markmiðum og mælikvörðum getur verið gagnlegt fyrir stjórnvöld en verður aldrei og getur aldrei orðið hluti fjárlagafrumvarps eða fjármálaáætlunar nema með óbeinum og óskuldbindandi hætti.
    Endurmat í framangreindu samhengi er ekki aðeins eðlilegt heldur nauðsynlegt til að tryggja trúverðugleika ríkisfjármála og draga úr áhættu sem annars getur framkallast af fullum þunga á næstu árum samhliða óábyrgri hagstjórn.
    Fyrsti minni hluti hvetur því til þess að stjórnvöld endurskoði markmið sitt um útgjaldaþenslu, endurmeti forgangsröðun og skýri betur að hvaða árangri sé stefnt á einstaka málefnasviðum. Þannig er lagður sterkari grunnur að bæði útgjöldum ríkisins og framkvæmd fjárlaga.
    Í því ljósi telur 1. minni hluti rétt að leggja áherslu á að forsendur fjárlaga þurfa að endurspegla efnahagslegan veruleika og að til að tryggja hagstjórn og stöðugleika til lengri tíma sé brýnt að fjármálastefna ríkisins sé uppfærð í takt við breyttar forsendur. Ekki sé unnt að samþykkja frumvarp til fjárlaga óbreytt í fyrrgreindu ljósi.

Óhjákvæmilegt endurmat á forsendum og framsetningu markmiða málefnasviða.
    Samhliða verulegum forsendubreytingum á þróun efnahagslífs og óvissu um afkomumarkmið fjármálastefnu og frumvarps til fjárlaga telur 1. minni hluti mikilvægt að taka til alvarlegrar endurskoðunar markmið og þar með tilgang útgjalda málefnasviða frumvarps til fjárlaga, sem mynda grunn útgjalda A1-hluta ríkissjóðs.
    Rétt er að hafa í huga að mikil áskorun felst í að endurmeta markmið málefnasviða og umtalsverðan tíma tekur að tryggja samráð og vandaða málsmeðferð stefnumótunar innan einstakra ráðuneyta. 1. minni hluti hefur því fullan skilning á að slík endurskoðun taki nokkra mánuði. Slíkt verkefni er hins vegar forsenda þess að fjárlagagerð standist kröfur bæði alþjóðlegra viðmiða um gæði fjárlagagerðar og laga um opinber fjármál.
    Með framangreint í huga verður í greinargerð álits 1. minni hluta fjárlaganefndar varpað ljósi á með hvaða hætti markmið málefnasviða þurfa að taka breytingum. Fjallað verður um tillögur að nýjum áherslum og markmiðum sem eru til þess fallin að auka gæði stefnumótunar málefnasviða. Því skal ítrekað að ekki er gert ráð fyrir að slík endurskoðun fari fram nú heldur fyrir framlagningu næstu fjármálaáætlunar og fjárlaga fyrir árið 2027.
    Víða í fjárlagafrumvarpinu má finna málefnalegar áherslur og aðgerðir til hagsbóta fyrir íslenskt samfélag. Með breytingartillögum 1. minni hluta fjárlaganefndar er þó leitast við að varpa ljósi á margar af þeim óljósu og oft óskilgreindu áherslum í starfsemi málefnasviða og málaflokka. Þessar áherslur eru forsendur fjárheimilda til málefnasviða en séu þær hvorki mælanlegar né feli í sér eiginlegt markmið er grundvöllur fyrir umræðu Alþingis um ráðstöfun fjárheimilda og meðferð opinbers fjár að miklu leyti brostinn. Ekki er um pólitískt mál að ræða heldur mikilvæga tilraun til að auka gæði fjárlagaferlisins með gagnsærri umræðu um grundvöll fjárheimilda ríkissjóðs.
    Rétt er að ítreka að víða má finna skynsamleg, mikilvæg og árangursmiðuð markmið í umfjöllun greinargerðar með fjárlagafrumvarpinu. Umfjöllun um tillögur að breytingum markmiða felur einfaldlega í sér nauðsynlegar umbætur á fjárlagagerð til lengri tíma, m.a. í ljósi óvissu í efnahagsmálum og umfangs ríkisins í hagkerfinu. Lokamarkmiðið er vitanlega að Alþingi sé gert kleift að fjalla um fjárlagafrumvarpið eins og lög um opinber fjármál gera ráð fyrir.
    Framangreint er sérstaklega mikilvægt í ljósi þess mikla útgjaldavaxtar sem fjárlagafrumvarpið felur í sér en heildargjöld ríkisins eru nú áætluð um 1.626 ma.kr. árið 2026 sem er tugum milljarða yfir heildargjöldum fjárlaga fyrir árið 2025. Veruleg óvissa er um hvort samspil útgjalda og tekna ríkisins standist viðmið nýsamþykktrar stöðugleikareglu, sbr. lög um opinber fjármál. Vaxtagjöld ársins 2026 hafa jafnframt náð nýjum hæðum og eru áætluð tæplega 150 ma.kr. Þá er fjárlagahalli ársins 2026 áætlaður yfir 27 ma.kr. Við blasir að staða efnahagsmála er afar viðkvæm.

Kröfur um skýr markmið í fjárlagafrumvarpi og mikilvægi skýrrar upplýsingagjafar til Alþingis.
    Lög um opinber fjármál, nr. 123/2015, setja skýrar kröfur um gagnsæi, skilvirkni og ábyrgð í stjórn opinberra fjármála. Eitt af meginmarkmiðum laganna er að stuðla að góðri hagstjórn og tryggja heildstæða stefnumörkun í opinberum fjármálum til lengri og skemmri tíma, ásamt vönduðum undirbúningi áætlana og lagasetningar, sbr. 1. gr. laga um opinber fjármál. Til að þessum markmiðum verði náð er lögð áhersla á að skýr og mælanleg markmið séu sett fram á öllum stigum fjárlagaferlisins og fjármálastjórnunar ríkisins.

Lagalegur grunnur stefnumörkunar í opinberum fjármálum.
    Stefnumörkun í opinberum fjármálum byggist á fjármálastefnu ríkisstjórnar, sbr. 4. gr. laga um opinber fjármál og fjármálaáætlun, sbr. 5. gr. laga um opinber fjármál, auk samkomulags ríkis og sveitarfélaga, sbr. 11. gr. sömu laga. Þessi stefnumörkun skal grundvallast á fimm grunngildum: sjálfbærni, varfærni, stöðugleika, festu og gagnsæi, sbr. 6. gr. laga um opinber fjármál. Sérstaklega er kveðið á um að gagnsæi feli í sér að auðsæ og mælanleg markmið séu sett til meðallangs tíma um þróun opinberra fjármála og að reglulega séu borin saman árangur og markmið með skýrum mælikvörðum. Þetta ákvæði undirstrikar mikilvægi þess að markmið séu skýr og aðgengileg til að hægt sé að meta árangur og þróun opinberra fjármála, sbr. umfjöllun um 5. tölul. 2. mgr. 6. gr. í frumvarpi því er síðar varð að lögum nr. 123/2015.
    Rétt er að hafa í huga að í umræðum um fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030 síðastliðið vor gagnrýndi minni hluti Alþingis verulega framsetningu áætlunarinnar. Áætlunin var ekki sett fram með sambærilegum hætti og áður og afar erfitt, ef ekki ómögulegt, var fyrir Alþingi að meta markmið og áherslur á einstaka málefnasviðum. Þar sem fjárlög eiga að byggjast á forsendum fjármálaáætlunar er því sú staða uppi að alvarlegir brestir eru í gangverki áætlanagerðar ríkisins, sbr. lög um opinber fjármál. Við því þarf að bregðast.

Ábyrgð ráðherra á stefnumótun málefnasviða.
    Hlutaðeigandi ráðherrar bera lagalega ábyrgð á stefnumótun fyrir þau málefnasvið og málaflokka sem undir þá heyra, sbr. 20. gr. laga um opinber fjármál. Þessi stefnumótun skal ná til a.m.k. fimm ára og á að fela í sér skýr markmið og áherslur um fyrirkomulag og þróun starfsemi hvers málefnasviðs. Í henni skal lýsa hvernig markmiðum verður náð, ábyrgðarskiptingu, tímasetningum, nýtingu fjármuna og áherslum við innkaup. Jafnframt skal meta hvort aðgerðir krefjist lagabreytinga eða hafi önnur áhrif á starfshætti eða aðra geira þjóðfélagsins, sbr. umfjöllun um 20. gr. í frumvarpi því er síðar varð að lögum nr. 123/2015. Þessari ítarlegu stefnumótun er ætlað að stuðla að heildstæðri áætlanagerð og tryggja að fyrir liggi skýr forgangsröðun og umfram allt hvernig staðið verði að fjármögnun hennar.
    Þessi ábyrgð ráðherra á stefnumótun er ekki einangruð eða sett fram í tómarúmi, heldur er hún órjúfanlegur hluti af heildarferli fjárlagagerðar ríkisins. Því verður að horfa til 20. gr. laga um opinber fjármál þegar fjallað er um 14.–19. gr. laganna, um gerð og forsendur fjárlagafrumvarpsins.
    Skýr markmið málefnasviða og málaflokka, sem kveðið er á um í 20. gr., eru grundvallarforsenda fyrir því að hægt sé að leggja fram frumvarp til fjárlaga (14. gr.) á gagnsæjan hátt, að unnt sé að meta breytingar á forsendum (15. gr.), að framsetning frumvarpsins sé skýr (16. gr.) og að greinargerð með frumvarpinu gefi fullnægjandi skýringar (17. gr.). Án þessara skýru markmiða er grundvöllur fyrir vandaðri fjárlagagerð og eftirliti Alþingis með framkvæmd fjárlaga verulega skertur.
    Stefnumótun ráðherra hefur þann tilgang að draga fram áherslur í starfsemi ríkisins innan ólíkra málefnasviða og gerir Alþingi kleift að meta forsendur fjármálaáætlunar og byggja umfjöllun sína um frumvarp til fjárlaga á heildstæðu samhengi, sbr. umfjöllun um 20. gr. í frumvarpi því er síðar varð að lögum nr. 123/2015.
    Þá ber að hafa í huga að skýr og skiljanleg markmið fyrir starfsemi málefnasviða eru einnig mikilvæg og raunar forsenda fyrir árangursmati sem fram kemur í ársskýrslu ráðherra, sbr. 62. gr. laga um opinber fjármál.

Hlutverk Alþingis og greinargerð með fjárlagafrumvarpi.
    Tilgangur vandaðrar stefnumótunar er að veita Alþingi skýran grunn, annars vegar til að meta forsendur fjármálaáætlunar og hins vegar til að byggja umfjöllun sína um frumvarp til fjárlaga á heildstæðu samhengi, sbr. umfjöllun um 20. gr. í frumvarpi því er síðar varð að lögum nr. 123/2015. Því var það á skjön við skýr ákvæði laga um opinber fjármál að ekki komu fram markmið fyrir málefnasvið í fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030. Sú ákvörðun var því ekki lögmæt og raunar í beinni mótsögn við alla grunnhugsun laga um opinber fjármál.
    Í greinargerð með fjárlagafrumvarpi skal fjallað um efnahagshorfur, forsendur stefnumörkunar í opinberum fjármálum og samræmi hennar við tillögur frumvarpsins, sbr. 17. gr. laga um opinber fjármál. Sérstaklega skal gerð grein fyrir skiptingu fjárheimilda A1-hluta eftir málefnasviðum og málaflokkum fyrir komandi fjárlagaár og breytingum og áherslum sem þar koma fram, sbr. 1. tölul. 17. gr. laga um opinber fjármál. Þessi krafa um skýrleika er grundvallaratriði svo að Alþingi geti metið hvort fjárveitingar séu í samræmi við sett markmið og forgangsröðun stjórnvalda.

Breytt hlutverk fylgirits og aukin krafa um skýrleika í greinargerð.
    Með lögum um opinber fjármál var gerð sú breyting að fylgirit með fjárveitingum er ekki lengur beinn hluti fjárlagafrumvarpsins sjálfs, heldur er það kynnt sem sérstakt fylgirit sem ætlað er til útskýringar á áformum ráðherra, sbr. 19. gr. laga um opinber fjármál og umfjöllun um 16. gr. í frumvarpi því er síðar varð að lögum nr. 123/2015. Þessi breyting færir aukna áherslu á að umfjöllun um frumvarp til fjárlaga snúist um almenna pólitíska stefnumörkun frekar en rekstur einstakra stofnana eða sértækar fjárráðstafanir, sbr. umfjöllun um 16. gr. í frumvarpi því er síðar varð að lögum nr. 123/2015.
    Í því ljósi þarf að huga að því að með þessari breytingu og verklagi er í reynd verið að draga úr beinni aðkomu Alþingis að skiptingu fjárheimilda í fjárveitingar og færa meira af raunverulegu ákvörðunarvaldi til einstakra of afmarkaðra verkefna til framkvæmdarvaldsins. Slík þróun gerir það enn mikilvægara að markmið og áherslur bæði fjármálaáætlunar og fjárlaga séu skýr, gagnsæ og aðgengileg.

Ófullnægjandi upplýsingagjöf á vefsíðum.
    Sú röksemd hefur verið sett fram af hálfu stjórnvalda að markmið og mælikvarðar um áherslur innan málefnasviða komi fram á þar til gerðri vefsíðu Stjórnarráðsins. Það getur þó aldrei talist nægjanlegt, hvorki stjórnskipulega né á grunni laga um opinber fjármál, að mælikvarðar um markmið einstakra málaflokka séu eingöngu aðgengilegir á vefsíðum Stjórnarráðsins eða fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Þessar upplýsingar eru grundvallaratriði fyrir Alþingi til að geta metið forgangsröðun og forsendur fyrir fjárheimildum til málaflokka og málefnasviða. Þær eru ekki aðeins til leiðsagnar fyrir önnur ráðuneyti og stofnanir heldur eru þær ómissandi hluti af þeim gögnum sem Alþingi þarf á að halda til að sinna stjórnskipulegu eftirlitshlutverki sínu. Frumvarp til fjárlaga verður að uppfylla skýrar kröfur um gagnsæi og skýrleika, sbr. 17. gr. laga um opinber fjármál, og því er óforsvaranlegt að bjóða þingmönnum upp á að leita eftir slíkum ítarupplýsingum á vefsíðum sem jafnframt geta tekið breytingum án þess að nokkur taki eftir því.

Áhrif á vandaða framkvæmd fjárlaga.
    Ef stefnumótun, markmið og áherslur koma ekki nægilega skýrt fram í greinargerð með fjárlagafrumvarpi er Alþingi ekki gert kleift að meta stefnu stjórnvalda og forgangsröðun fjármuna eftir málefnasviðum og málaflokkum á fullnægjandi hátt. Þetta veikir enn fremur getu Alþingis til að leggja skýrt mat á samhengi við og forsendur fjármálaáætlunar, sbr. umfjöllun um 20. gr. í frumvarpi því er síðar varð að lögum nr. 123/2015 og þar með brestur grundvöllur fyrir vandaðri framkvæmd fjárlaga í heild sinni. Því er óhjákvæmilegt að fjárlagafrumvarpið og fylgigögn þess, sérstaklega greinargerðin, uppfylli þessar lagalegu kröfur um skýrleika og gagnsæi.

Nauðsynleg heildarsýn um stöðugleika og velferð.
    Endurskoðun markmiða málefnasviða í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2026 og endurmat á forsendum um þróun opinberra fjármála eru til þess gerðar að benda á að ábyrg heildarsýn er nauðsynleg til að bregðast við þeim áskorunum sem samfélagið stendur frammi fyrir. 1. minni hluti fjárlaganefndar telur að margt í markmiðasetningu fjárlagafrumvarpsins sé af hinu góða og víða er tímabær uppbygging innviða boðuð. Þó er óheppilegt að of víða eru dæmi um of þröng og verkefnamiðuð markmið sem veita hvorki Alþingi né stjórnkerfinu nægilega leiðsögn um þróun gæða og þjónustu ríkisrekstrar og skortir tengingu við breyttar efnahagsforsendur, mönnun og gæði þjónustu.
    Nýjustu hagspár benda til versnandi stöðu ríkissjóðs, minni hagvaxtar, óvissu í alþjóðamálum, brothættrar stöðu fasteignamarkaðar og áskorana í mönnun í mikilvægustu þjónustukerfum landsins. Þessi staða kallar enn frekar á skýrari stefnumið, sterkari forgangsröðun og samfellda nálgun milli málefnasviða.

Áherslur í hagstjórn.
    Í framangreindu samhengi leggur 1. minni hluti áherslu á að hugað verði sérstaklega að fimm megináherslum stefnumörkunar og stöðu hagmála almennt, sem markmiðasetning einstakra málefnasviða þyrfti allra helst að taka mið af:
     *      að átak verði gert til að styðja við fjárfestingu atvinnuvega með þar til gerðum hvötum í ljósi dvínandi hagvaxtar.
     *      að boðuð atvinnustefna taki sérstaklega á tækifærum gervigreindar, menntunar, nýsköpunar og fjölbreytts atvinnulífs þvert á byggðarlög.
     *      að staða húsnæðis- og lánamála á fasteignamarkaði kalli á þjóðarátak um að auka stöðugleika á fasteignamarkaði með einfaldara regluverki og eðlilegri verðmyndun á markaði, hugsanlega með heildstæðu inngripi lífeyrissjóða og ríkis.
     *      að fagfólk framtíðarinnar sem flust hefur af landi brott snúi heim, en mönnun og menntað og reynslumikið vinnuafl er ein mikilvægasta áskorunin í starfsemi og innviðum ríkisins, m.a. í íslensku heilbrigðiskerfi.
     *      að markmið og forsendur opinberrar áætlanagerðar, þ.m.t. fjárlaga, séu skýr og ávallt í samræmi við efnahagsforsendur.

Heildaráhrif breytingartillagna á afkomu ríkissjóðs.
    Breytingartillögur 1. minni hluta fela í sér markviss og afmörkuð útgjaldaverkefni sem styrkja grunnstoðir samfélagsins, auka verðmætasköpun og bæta þjónustu við almenning. Heildarútgjaldaaukning nemur 3,7 ma.kr. Til mótvægis leggur 1. minni hluti til ábyrgar sparnaðaraðgerðir og aðhald sem nema 3,5–4,5 ma.kr.

Breytingartillögur á gjaldahlið.
04 Utanríkismál.
04.20 Utanríkisviðskipti.
    Gerð er tillaga um 1. ma.kr. hækkun fjárheimildar málaflokksins sem gangi til neytendamarkaðssetningar fyrir íslenska ferðaþjónustu. Slíkt átak í markaðssetningu landsins, með áherslu á dreifingu ferðamanna og aukna verðmætasköpun, sem væri á vegum Íslandsstofu, styrkir íslenska ferðaþjónustu í samkeppni við önnur ferðamannalönd.
    Jafnframt er gerð tillaga um hækkun fjárheimildar málaflokksins um 500 m.kr. sem verði nýtt í markaðsátak fyrir íslenskan iðnað, nýsköpun, framleiðslu og matvæli. Slíkt átak væri með sama hætti á vegum Íslandsstofu. Tilgangur átaksins er að kynna á alþjóðlegum vettvangi íslenskan iðnað, matvælaframleiðslu, nýsköpun, orkutækni og verðmætasköpun almennt. Verkefnið tengir saman hæfni atvinnulífsins, starfsþróun, nýjar aðferðir í framleiðslu og aukna samkeppnishæfni, virkjar ólíkar atvinnugreinar og skapar jafnframt frekari tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki til að tengjast erlendum fyrirtækjum þvert á landamæri. Lykilatriði er að styðja við útflutningsstarfsemi þjóðarinnar í ljósi óvissu í efnahagsmálum almennt.

07 Nýsköpun, rannsóknir og þekkingargreinar.
07.10 Nýsköpun, samkeppni og þekkingargreinar.
    Gerð er tillaga um 500 m.kr. aukið árlegt framlag til málaflokksins í ljósi krefjandi aðstæðna í efnahagslífi þjóðarinnar. Aukið framlag verði m.a. nýtt til að setja á fót heildstætt vistkerfi nýsköpunar sem m.a. feli í sér stofnun nýs nýsköpunarsjóðs landsbyggðarinnar sem styður fyrstu skref frumkvöðla og hugmyndafólks. Nýtt vistkerfi nýsköpunar og nýr sjóður myndi leggja grunn að nýjum lausnum í orkusparnaði, matvælaframleiðslu, gervigreind, stafrænum umbreytingum og tækniþróun, og styrkja mótun atvinnustefnu sem þegar er hafin.

18 Menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál.
18.40 Íþrótta- og æskulýðsmál.
    Gerð er tillaga um hækkun fjárheimildar málaflokksins um 200 m.kr. til að draga úr ferðakostnaði fyrir íþróttafólk. Með þessu er stuðlað að aukinni þátttöku barna og ungmenna í íþróttum.

22 Önnur skólastig og stjórnsýsla mennta- og barnamála.
22.10 Leik- og grunnskólastig.
    Gerð er tillaga um 200 m.kr. aukið árlegt framlag í ljósi meiri háttar áskorana sem varða lestrarfærni nemenda. Þessi aukning verði viðbót við breytingar meiri hluta fjárlaganefndar á forsendum fjárheimilda til eflingar íslenskukunnáttu og íslenskukennslu. Liður í því að mæta þessari áskorun sé stóraukið framlag sem nýtist til að mynda í þróun námsgagna, auknum stuðningi við kennara, verkefnum á sviði samtalsþjálfunar og árangurstengdu gæðamati. Áhersla sé á bættan námsárangur, stöðu barna með erlendan bakgrunn og styrkingu íslenskunnar sem samfélagslegrar máttarstoðar.

23 Sérhæfð sjúkrahúsþjónusta.
23.20 Almenn sjúkrahúsþjónusta.
    Gerð er tillaga um 200 m.kr. hækkun fjárheimildar málaflokksins til að efla og styðja við þjónustu sérgreinalækna.

24 Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa.
24.10 Heilsugæsla.
    Gerð er tillaga um hækkun fjárheimildar málaflokksins um 400 m.kr. til eflingar geðheilbrigðis barna og snemmtækrar þjónustu.

26 Lyf og lækningavörur.
26.10 Lyf.
    Gerð er tillaga um hækkun fjárheimildar málaflokksins um 500 m.kr. til að styðja við lækkun lyfjakostnaðar sjúklinga.

30 Vinnumarkaður og atvinnuleysi.
30.10 Vinnumál og atvinnuleysi.
    Gerð er tillaga um hækkun fjárheimildar málaflokksins um 200 m.kr. til að styðja við ungt fólk sem stendur frammi fyrir hröðum breytingum á vinnumarkaði vegna gervigreindar og stafrænnar þróunar. Áhersla verði lögð á starfsþróun, hæfniuppbyggingu, fjarnám, menntun og stuðning við þá sem erfitt eiga með að haldast á vinnumarkaði. Tillagan styður beint við atvinnustefnu stjórnvalda sem er í mótun.

Mótvægisaðgerðir og sparnaður (3,5–4,5 ma.kr.).
Almenn aðhaldskrafa.
    Gerð er tillaga um almenna 2% aðhaldskröfu á rekstur ríkisins sem gert er ráð fyrir að skili 2,5–3,0 ma.kr. sparnaði. Tillagan nær til allra málefnasviða nema þeirra sem tengjast lögbundinni eða samfélagslega viðkvæmri grunnþjónustu:
     *      heilbrigðisþjónustu,
     *      öldrunarmála,
     *      leik-, grunn- og framhaldsskóla,
     *      lögreglu og tollgæslu.
    Aðhaldskrafan miðar að einföldun stjórnsýslu, minni yfirbyggingu, hagræðingu ferla og sparnaði í almennum rekstri án þess að skerða þjónustu við almenning.

Frestun óbrýnna framkvæmda (1,0–1,5 ma.kr.).
    Gerð er tillaga um frestun óbrýnna framkvæmda sem leiði til sparnaðar sem nemi um 1,0–1,5 ma.kr. Er um að ræða frestun bygginga og framkvæmda sem ekki snerta öryggi eða lögbundna þjónustu, m.a.:
     *      frestun byggingar nýs nefndahúss Stjórnarráðsins.
     *      frestun annarra framkvæmda sem eru á undirbúningsstigi eða ekki brýn í ljósi versnandi efnahagsástands.
    Frestunin er tímabundin og áhættuminni en niðurskurður og tryggir að fjármunir nýtist fyrst og fremst til verkefna sem hafa bein áhrif á lífsgæði almennings.

Ávinningur af bættri stefnumótun.
    Í 20. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, er mælt fyrir um að stefnumótun ráðherra skuli fela í sér skýr og greinargóð gæða- og þjónustumarkmið og að gerð sé grein fyrir hvernig markmiðum verði náð, ábyrgðarskiptingu, tímasetningum og nýtingu fjármuna.
    Núverandi framsetning markmiða einstakra málefnasviða og málaflokka í frumvarpi til fjárlaga er í of mörgum tilvikum ófullnægjandi þrátt fyrir að víða megi finna ábyrgar og mikilvægar áherslur. Markmið eru ýmist of almenn eða aðeins lýsing á verkefnum eða ferli frekar en árangur sem hægt er að meta.
    Með endurskoðun markmiða fjárlaga fyrir einstök málefnasvið verður auðveldara að:
     *      fylgjast með framvindu og árangri hlutaðeigandi ráðuneytis í að ná settum markmiðum með því að mæla þau á skýran og hlutlægan hátt,
     *      styrkja ábyrgð ráðuneyta sem verður gert kleift að vinna markvissar að tilgreindum markmiðum og bera ábyrgð á því að þeim sé náð innan tilgreindra tímamarka,
     *      auka gagnsæi þar sem almenningur og hagsmunaaðilar fá skýrari mynd af því hvaða árangri er stefnt að með opinberum fjármunum og hvernig þeir eru nýttir til að styðja við starfsemi ríkisins,
     *      styðja við framkvæmd gildandi stefnumótunar, enda auðvelda skýrari markmið, sem tilgreind eru í fjárlögum hverju sinni, skilning á tengslum við einstaka stefnur, svo sem á sviði heilbrigðis- eða menntamála, og hvernig fjármagn til einstakra málaflokka tryggir framkvæmd þeirra.
    Það er mat 1. minni hluta að í of mörgum tilvikum séu framsett markmið málefnasviða og málaflokka of óskýr og geti því ekki verið fullnægjandi grundvöllur fjárheimilda. Við því þarf að bregðast.

01 Alþingi og eftirlitsstofnanir þess.
    Málefnasvið Alþingis og eftirlitsstofnana þess er ein af grunnstoðum stjórnskipunar Íslands. Þrátt fyrir það eru markmið sem fram koma í fjárlagafrumvarpi almenn, tæknimiðuð og tengjast að verulegu leyti innri rekstri fremur en kjarnahlutverki löggjafans. Þau varða upplýsingakerfi, skjalavinnslu eða tækniverkefni sem eru hluti af starfsemi skrifstofu Alþingis en endurspegla hvorki stjórnskipulega ábyrgð þingsins né eftirlitsstofnana þess. Þaðan af síður taka þau mið af skýru ákalli eftir auknum gæðum lagasetningar með nægilega skýrum hætti. Af þessum sökum skortir gildandi markmið málefnasviðsins skýra framtíðarsýn, faglega forgangsröðun og raunverulegt samband við þær skyldur sem Alþingi ber samkvæmt stjórnarskrá og lögum um opinber fjármál.
    Núverandi markmið og tengdar aðgerðir eru enn fremur að miklu leyti verkþættir um afmarkaða hluti starfsemi Alþingis en ekki stefnumótandi markmið og áherslur. Þau lýsa innri tölvumálum, þróun þingskjala (hér vísast m.a. til „snjallra þingskjala“, sem þó er hvorki viðurkennt hugtak né útskýrt með fullnægjandi hætti) og tilvísun til „bætingar á kerfum“ án þess að taka nægilega mið af kjarnastarfsemi Alþingis, sem er að setja lög, tryggja faglegt og skilvirkt eftirlit með framkvæmdarvaldinu, styrkja trausta fjárstjórn þingsins og efla gagnsæi og aðgengi almennings að störfum þingsins (þó skal tekið fram að vísað er almennt til eflingar fræðslumála). Þessi skekkja gerir markmiðasetninguna veika og í raun beina fyrirliggjandi markmið athyglinni frá meginhlutverki Alþingis sem er að vera aðalhandhafi löggjafarvalds.
    Til þess að markmið málefnasviðsins endurspegli stjórnskipulega ábyrgð Alþingis er nauðsynlegt að þau beinist að kjarnaverkefnum þess fremur en tæknilegum hliðarverkefnum, sem vissulega geta þó tengst umbótum í störfum Alþingis að einhverju leyti. Í þessu felst að skilgreina verður á skýran hátt hvernig tryggja skuli gæði lagasetningar, samræmda og faglega vinnu nefnda, traust og gagnsæi í samskiptum við almenning og stjórnskipulegt aðhald í framkvæmd opinberra verkefna. Þar með verður markmiðasetningin bæði skýrari og í betra samræmi við þá ábyrgð sem lög og stjórnskipun leggja á herðar Alþingi.
    Tekið skal fram að eftirfarandi tillögur eru settar fram í dæmaskyni.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum málefnasviðs 01.
Markmið 1: Tryggja vandaða og áreiðanlega lagasetningu þingsins.
    Áhersla er lögð á að lagasetning byggist á faglegri greiningu, skýrum gögnum og samræmdum vinnubrögðum nefnda og skrifstofa. Markmiðið dregur fram kjarnahlutverk Alþingis sem löggjafarvalds og tryggir að gæði lagasetningar séu ávallt í forgrunni. Tengdir mælikvarðar og aðgerðir þurfa svo að vinna að framgangi þessa markmiðs.

Markmið 2: Styrkja stjórnskipulegt eftirlit Alþingis með framkvæmdarvaldinu.
    Markmiðið tekur mið af þeirri ábyrgð þingsins að hafa eftirlit með lögmæti, skilvirkni og fagmennsku í störfum ráðuneyta og stjórnvalda. Í þessu felst að tryggja kerfisbundið, gagnsætt og sjálfstætt eftirlit sem byggist á gögnum og staðreyndum. Liður í slíku markmiði er að tryggja að störf þingsins, þ.m.t. störf innan nefnda svo að dæmi sé tekið, séu ávallt gagnsæ og skilvirk.

Markmið 3: Efla fjárstjórnarhlutverk Alþingis og tryggja markvissa framkvæmd fjárlaga.
    Markmiðið tryggir að fjárlagavinna sé gagnsæ, rökstudd og í samræmi við lög um opinber fjármál. Hér er lögð áhersla á skýra tengingu markmiða, forsendna og fjárheimilda og að Alþingi sinni hlutverki sínu sem æðsti handhafi fjárstjórnarvalds af fagmennsku. Umfram allt þarf að stórbæta framkvæmd fjárlaga.

Markmið 4: Auka aðgengi, upplýsingaflæði og traust almennings til Alþingis.
    Markmiðið snýr að því að efla samskipti, fræðslu og upplýsingaöflun þannig að almenningur hafi skýran og raunhæfan aðgang að starfi þingsins. Með áherslu á gagnsæi, skýra framsetningu og aðkomu almennings eykst traust og lýðræðisleg tenging. Mikið og gott starf er þegar unnið á Alþingi til að auka gagnsæi í störfum þingsins en það er viðvarandi verkefni að viðhalda og allra helst auka traust almennings til Alþingis.

Markmið 5: Tryggja örugga, skilvirka og faglega innri starfshætti Alþingis og stofnana þess.
    Markmiðið sameinar innri verkferla, öryggismál og upplýsingatækni undir skýrum og afmörkuðum ramma án þess að þessi verkefni yfirtaki kjarnahlutverk þingsins.

Sjónarmið um tillögur að nýjum markmiðum málefnasviðsins.
    Framangreind dæmi um ný markmið málefnasviðsins eru heppilegri vegna þess að þau taka á þeim veikleikum sem hafa lengi einkennt markmiðasetningu Alþingis og eftirlitsstofnana þess. Þau leggja áherslu á stjórnskipulega ábyrgð þingsins og færa markmiðasetninguna frá tæknilegum verkþáttum til kjarnahlutverks löggjafans, þ.e. gæða lagasetningar, faglegs nefndarstarfs og kerfisbundins eftirlits.
    Með nýjum markmiðum væri betur hægt að tryggja að stefnumörkun Alþingis byggist á gagnsæi, faglegum vinnubrögðum og skýrari forgangsröðun. Um leið myndu þau styrkja starfsemi ábyrgrar stjórnsýslu. Nýju markmiðin tækju jafnframt mið af því að störf þingsins verða sífellt flóknari. Löggjafarferlið byggist í auknum mæli á sérfræðikunnáttu, upplýsingatækni og kerfisbundnu samstarfi. Því er mikilvægt að markmið endurspegli þessa þróun með því að leggja áherslu á fagmennsku, greiningarvinnu og forgangsröðun sem styður við vandaða stefnumótun og sjálfstætt eftirlit. Með þessum markmiðum yrði starfsemi Alþingis skýrari, markvissari og betur í stakk búin til að mæta væntingum almennings í nútímalegu lýðræðissamfélagi.

Áhrif á fjárheimild málefnasviðsins.
    Endurskoðuð markmið taka mið af því að nauðsynlegt er að meta hvort burðir til nefndastarfs, greiningarvinnu og stjórnskipulegs eftirlits séu fullnægjandi. Ný markmið geta í einhverjum tilvikum krafist hæfilegrar hækkunar fjárheimilda til að styrkja sjálfstæða rannsóknar- og greiningarvinnu, bæta rýni á áhrif lagasetningar (svo sem með hliðsjón af framkvæmd landsbyggðarmats), auka stuðning við nefndir og faglega eftirfylgni við fjárlagagerð.
    Slíkar breytingar eru þó hóflegar og byggjast fyrst og fremst á því að tryggja að Alþingi hafi raunhæfa getu til að sinna stjórnskipulegu hlutverki sínu með vönduðum hætti. Ef fjárheimildir eru endurmetnar með hliðsjón af þessum markmiðum má tryggja að starfsemi þingsins verði skilvirkari, faglegri og betur í stakk búin til að ná þeim árangri sem lög um opinber fjármál gera kröfu um.

01.20 Eftirlitsstofnanir Alþingis.
Almennt um málaflokk 01.20.
    Málaflokkur 01.20 tekur til þeirra stofnana sem Alþingi ber ábyrgð á og sinna stjórnskipulegu eftirliti með stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga, fjármálastjórn og mannréttindavernd. Þessar stofnanir, umboðsmaður Alþingis, Ríkisendurskoðun og Mannréttindastofnun Íslands, gegna lykilhlutverki við að tryggja undirstöður réttarríkisins, ábyrga meðferð opinbers fjár og vernd réttinda borgaranna. Þrátt fyrir þetta mikilvæga hlutverk eru markmið málaflokksins í gildandi fjárlagafrumvarpi að mestu tæknileg, verkþáttamiðuð og án heildstæðrar framtíðarsýnar.
    Markmiðin fjalla að verulegu leyti um hraða í birtingu gagna, verklag við endurskoðun eða miðlun upplýsinga. Þau taka ekki á gæðum eftirlits, áhrifum álita og skýrslna, né því stjórnskipulega mikilvægi sem felst í óháðu eftirliti með framkvæmdarvaldinu. Þá tengist ekkert markmið mannréttindavernd þrátt fyrir að starfsemi Mannréttindastofnunar Íslands falli undir starfsemi málaflokksins.
    Slík framsetning er ekki í samræmi við ákvæði laga um opinber fjármál um skýr og stefnumiðuð markmið né endurspeglar hún þá ábyrgð sem Alþingi ber með því að gegna eftirlits- og aðhaldshlutverki gagnvart framkvæmdarvaldinu.
    Nauðsynlegt er því að endurskoða markmiðin með því að færa þau upp á þann faglega grundvöll sem lýsir því hvað eftirlitsstofnanir eiga að tryggja, fremur en hvernig þær framkvæma tiltekin verk.

Dæmi um ný markmið fyrir málaflokk 01.20.
Markmið 1: Stjórnsýsla ríkis og sveitarfélaga standi undir skýrum kröfum um réttaröryggi, skilvirkni og vandaða málsmeðferð.
    Markmiðið lýsir þeirri framtíðarsýn að niðurstöður og álit umboðsmanns Alþingis leiði til raunverulegra umbóta í stjórnsýslu. Áhersla er lögð á gæði athugana, fagmennsku í úrlausnum og áreiðanleika í niðurstöðum sem styrkja réttaröryggi borgaranna.

Markmið 2: Fjármál ríkisins og rekstur ríkisaðila byggist á gagnsæi, ábyrgð og skilvirku og óháðu eftirliti sem tryggir trúverðuga og áreiðanlega fjármálastjórn.
    Markmiðið dregur m.a. fram mikilvægi þess að Ríkisendurskoðun gegni hlutverki sínu sem óháður eftirlitsaðili sem stuðli að lögmæti, hagkvæmni og skilvirkni í rekstri ríkisaðila. Tengdar aðgerðir varða m.a. áreiðanleg reikningsskil og kerfisbundið eftirlit sem leiðir til umbóta.
    Í þessu ljósi má sem dæmi nefna að styrkja þarf stoðir Ríkisendurskoðunar svo að stofnunin geti uppfyllt lögbundið hlutverk sitt. Ríkisendurskoðun endurskoðar til að mynda ekki reikninga allra stofnana ríkisins heldur aðeins hluta þeirra. Slíkt er óheppilegt.

Markmið 3: Niðurstöður og álit eftirlitsstofnana Alþingis séu aðgengileg, skýr og nýtt markvisst til umbóta í stjórnsýslu og stefnumótun.
    Markmiðið tryggir að upplýsingar og gagnagreining eftirlitsstofnana séu ekki eingöngu birtar heldur nýttar af Alþingi, fjölmiðlum og stjórnvöldum til að bæta ákvarðanatöku, rekstur og þjónustu við almenning. Það eykur gagnsæi og ábyrgð opinberra stofnana. Skýr og aðgengileg framsetning niðurstaðna og fylgigagna þeirra þarf því ávallt að vera í forgrunni.

Markmið 4: Mannréttindavernd sé tryggð með faglegu, sjálfstæðu og gagnsæju starfi í samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar mannréttindaskuldbindingar.
    Markmiðið gerir mannréttindavernd að sýnilegum og sjálfstæðum áhersluþætti í starfsemi málaflokksins. Við framkvæmd markmiðsins er eðli máls samkvæmt gert ráð fyrir að Mannréttindastofnun Íslands gegni lykilhlutverki, m.a. í fræðslu, eftirliti með og eflingu mannréttinda og eftirfylgni við alþjóðlegar skuldbindingar. Í því ljósi er æskilegt að leggja áherslu á rannsóknir, fræðslu og ráðgjöf sem styður við mannréttindi í samfélaginu.

Sjónarmið um tillögur að nýjum markmiðum málefnasviðsins.
    Ný markmið eru nauðsynleg til að færa markmiðasetningu málaflokksins frá tæknilegri verkþáttalýsingu yfir í stefnumiðaða og stjórnskipulega umgjörð sem endurspeglar raunverulegt hlutverk eftirlitsstofnana Alþingis. Þau varpa ljósi á áhrif, gæði og mikilvægi eftirlits í stað þess að fjalla um afgreiðsluhraða eða innra verklag.
    Með nýjum markmiðum er lögð áhersla á að eftirlitið eigi að tryggja réttláta stjórnsýslu, ábyrga meðferð opinbers fjár og vernd mannréttinda, sem eru óaðskiljanlegir þættir í lýðræðislegu stjórnkerfi. Markmiðin stuðla að því að niðurstöður eftirlitsins verði nýttar við stefnumótun og löggjöf þannig að eftirlitið leiði til raunverulegra umbóta í rekstri ríkis og sveitarfélaga.
    Einnig tryggja markmiðin að Alþingi hafi skýrari ramma til að meta árangur eftirlitsstofnana og taka upplýstar ákvarðanir um fjárheimildir.

Áhrif á fjárheimildir málaflokksins.
    Endurskoðuð markmið kalla ekki á auknar fjárheimildir almennt en þó hugsanlega ef efla þarf starfsemi Ríkisendurskoðunar. Hlutaðeigandi ráðherra ber ábyrgð á að koma með tillögur þar að lútandi að lokinni greiningu á stöðu mála.
    Umfram allt er mikilvægt að umboðsmaður Alþingis, Ríkisendurskoðun og Mannréttindastofnun Íslands hafi til skemmri og lengri tíma burði til að sinna aukinni áherslu á gæði, réttaröryggi, gagnsæi og umbótastarf í störfum hins opinbera.

02 Dómstólar.
    Markmið málefnasviðsins eru í meginatriðum skýr og vel ígrunduð, enda beinast þau að því að efla réttláta og opna málsmeðferð, bæta aðgengi að réttarvörslugögnum og tryggja öryggi og vandaða starfsemi dómstóla. Áform um þróun réttarvörslugáttar, öruggara aðgengi að húsnæði dómstóla, greiningu á tækifærum til að stytta málsmeðferðartíma og bætta aðstöðu túlka eru eðlilegar og tímabærar aðgerðir sem stuðla að bættri þjónustu og auknu réttaröryggi.
    Jafnframt er markmiðið um aukna skilvirkni og gæði styrkt með innleiðingu talgreinis við skýrslutökur fyrir dómi, sem er mikilvægt tækniskref til framfara í dómskerfinu.
    Þrátt fyrir að tilgreindar aðgerðir mætti skýra betur eru markmiðin sjálf ágætlega skilgreind og í fullu samræmi við þá þróun sem bæði borgarar og réttarvörslukerfið þurfa á að halda til að tryggja hraðari, skýrari og nútímalegri málsmeðferð. Meðal annars er vikið að löngum málsmeðferðartíma en stytting hans er lykilatriði í þróun dómsmála á Íslandi. Í því ljósi mætti skilgreina betur hvernig slíku markmiði eigi að ná, en „stafræn málsmeðferð“ er aðeins einn liður að því marki.

03 Æðsta stjórnsýsla.
03.02 Ríkisstjórn Íslands.
    Málaflokkur 03.02 tekur til launa ráðherra og aðstoðarmanna í ríkisstjórn. Ljóst er að starfshættir ríkisstjórnarinnar skipta sköpum fyrir gæði stefnumótunar, samhæfingu og framkvæmd ákvarðana framkvæmdavaldsins. Umfjöllun um málefnasvið 03.20 felur þó ekki í sér markmið um faglegt starf ráðherra, ríkisstjórnarfundi eða verklag innan æðstu stjórnsýslu. Það er alvarlegur annmarki því að verklag, gæði ákvarðanatöku og samræmd stjórnsýsluhefð eru lykilforsendur ábyrgra og skilvirkra stjórnmála.
    Það veikir heildarumgjörð málefnasviðsins að fjalla einungis um launaliði og fjölda aðstoðarmanna, án þess að móta markmið um gæði, fagmennsku og samhæfingu í störfum ríkisstjórnar.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum fyrir málaflokk 03.02.
Markmið 1: Tryggja vandaða, gagnsæja og faglega starfshætti ríkisstjórnarinnar.
    Markmiðið felur í sér að verklag ríkisstjórnar sé samræmt, byggist á skýrum ferlum, rökstuddum ákvörðunum og vönduðum undirbúningi funda og mála. Þetta styrkir bæði fagmennsku og trúverðugleika æðstu stjórnvalda.
    Án vafa fer slíkt starf fram innan forsætisráðuneytisins en tilgangur umfjöllunar um markmið málefnasviða er einmitt að varpa ljósi á lykilmarkmið í starfsemi þeirra og því er þögn um slík markmið óheppileg.

Markmið 2: Samræmd og gagnadrifin ákvarðanataka á vettvangi ríkisstjórnarinnar.
    Lögð er áhersla á að mál sem berast ríkisstjórn séu unnin á grundvelli traustra gagna, greininga og samþættrar stjórnsýslu. Með þessu er tryggt að ákvarðanir ríkisstjórnar séu heildstæðar, teknar á grunni staðreynda um áhrif og kostnað og sem unnt sé að framkvæma.

Markmið 3: Skýrari samskipti og samhæfing milli ráðuneyta og ríkisstjórnar.
    Gott samspil milli ráðuneyta og ríkisstjórnar er lykilforsenda virkrar stjórnsýslu. Markmiðið lýsir því að unnið sé með samræmda verkferla, upplýsingaflæði og undirbúning mála sem tryggir samfellu í störfum æðstu stjórnvalda.
    Eins og fyrr hefur verið nefnt fer fram víðtækt umbótastarf í forsætisráðuneytinu. Liður í því að auka traust á opinberri stjórnsýslu, eins og gildandi markmið vísar til, er þó einmitt að gera markmið gagnsæ og að hægt sé að ræða þau bæði innan veggja Alþingis og meðal almennings.

Markmið 4: Aukin ábyrgð, gagnsæi og eftirfylgni með ákvörðunum ríkisstjórnarinnar.
    Markmiðið áréttar að samþykktar ákvarðanir þurfa skýra eftirfylgni og ábyrgðarskiptingu þannig að markmið ríkisstjórnar verði að veruleika og stjórnsýslan geti lagt mat á árangur og umbætur. Í þessu felst m.a. að til staðar sé faglegt utanumhald ákvarðana og framfylgd þeirra en flækjustig mála og verkefna stjórnsýslunnar veldur því að oft reynist erfitt að fylgja eftir ákvörðunum einstakra ráðherra, samþykktum ríkisstjórna og öðrum tilmælum.

Áhrif á fjárheimildir.
    Nýju markmiðin kalla ekki á auknar fjárheimildir. Þau varða fyrst og fremst mikilvægar umbætur á verklagi, samræmda stjórnsýsluhætti og gagnsærri ákvarðanatöku.

03.30 Forsætisráðuneytið.
    Málaflokkur 03.30 tekur til þeirrar starfsemi forsætisráðuneytisins sem varðar gæði stjórnsýslu, samhæfingu ríkiskerfisins, stefnumótun og umbætur innan Stjórnarráðsins. Forsætisráðuneytið gegnir lykilhlutverki í því að tryggja heildarstefnu, samræmi og fagmennsku í opinberum rekstri. Þrátt fyrir það eru gildandi markmið nokkuð rýr og almenn og endurspegla ekki þá stjórnskipulegu ábyrgð sem ráðuneytið ber.
    Markmið um „traust á opinberri stjórnsýslu“ má skilja sem svo að ekki sé til staðar traust á opinberri stjórnsýslu. Svo er hins vegar ekki. Þó er viðvarandi verkefni að auka traust á starfsemi opinberrar stjórnsýslu. Þá er markmiðið einkum tengt gerð „leiðbeiningarefnis“ um vandaða stjórnsýsluhætti en án skýrrar tengingar við aðra markvissa umbótavinnu eða faglega gæðastjórnun í því samhengi. Slíkt hlýtur að teljast nauðsynlegt til viðbótar við gerð upplýsingarits um hvað felst í vandaðri stjórnsýslu, sem þegar er þó víða til staðar.
    Núgildandi markmið forsætisráðuneytisins um að „auka hagsæld og samkeppnishæfni“ er að formi til afar mikilvægt og í samræmi við hlutverk forsætisráðuneytisins um hagstjórn almennt. Það er þó afar víðfeðmt. Hugtökin hagsæld og samkeppnishæfni ná til fjölmargra ólíkra stefnu- og aðgerðasviða, allt frá vinnumarkaði, menntun og nýsköpun til hagstjórnar, fjármálaumhverfis og stoðkerfa atvinnulífsins. Með því að afmarka markmiðið eingöngu með „gerð atvinnustefnu“ er umfang málaflokksins dregið saman með slíkri einföldun að erfitt er að meta með hvaða hætti forsætisráðuneytinu er til að mynda ætlað að leiða, samhæfa eða innleiða boðaða atvinnustefnu á næsta ári og hvernig fjárheimildir styðja við slíkt.
    Með þessu er ekki dregið úr mikilvægi mótunar atvinnustefnu. Þvert á móti er hugsunin sú að frekari upplýsingar verði að koma fram um áherslur í vinnu við mótun hennar, sem tengist að minnsta kosti vísbendingu um áhrif atvinnustefnu á þjóðlífið á næsta ári, tengsl við menntamál, nýsköpun og fleira.
    Þá vekur sérstaka athygli að ekkert er fjallað um nýútkomna skýrslu starfshóps um hlutverk og starfsskilyrði embættismanna en skýrslan var birt í október sl. Í skýrslunni gerir starfshópurinn tillögur að breytingum sem ætlað er að stuðla að auknu sjálfstæði, hreyfanleika og hæfni embættismanna og þar með trausti til stjórnsýslunnar.
    Loks ber að nefna að telja verður afar óeðlilegt að ekki sé fjallað um þjóðlendur í umfjöllun málefnasviðsins. Um er að ræða yfir 40% landsins og gríðarlegir hagsmunir fyrir bæði almenning og hagaðila að nýting og vernd þjóðlendna sé samhæfð, gagnsæ og taki mið af framtíðarhagsmunum þjóðarinnar.

Tillögur að nýjum markmiðum fyrir málaflokk 03.30.
Markmið 1: Aukin gæði og samræming stjórnsýsluhátta í ríkisrekstri.
    Það er viðvarandi verkefni að auka gæði í starfsemi stjórnsýslunnar. Forsætisráðuneytið á að leiða framþróun stjórnsýslunnar, tryggja samræmdar verklagsreglur og efla fagleg vinnubrögð innan ráðuneyta og stofnana. Eftirfylgni ákvarðana ríkisstjórnar er dæmi um nauðsynlegar umbætur, sbr. fyrri umfjöllun.

Markmið 2: Samhæfð hagræðing, skilvirkni og nýsköpun í opinberum rekstri.
    Leggja þarf áherslu á gagnadrifna ákvarðanatöku, stafræna umbreytingu og nýjar lausnir sem bæta þjónustu og nýtingu opinberra fjármuna.

Markmið 3: Heildstæð, markviss og gagnadrifin samhæfing opinberrar stefnumótunar.
    Markmiðið vísar til þess að tryggja verði samræmda mótun og gagnsæja framkvæmd stefnumótunar ráðuneyta, sbr. m.a. kröfur laga um opinber fjármál. Slík er ekki raunin nú, sbr. umfjöllun í þessari greinargerð. Af þessu leiðir m.a. óskilvirkni, skortur á aga við framkvæmd fjárlaga og óþarflega óljós starfsemi margvíslegra ríkisaðila (ríkisstofnana). Um gríðarlega mikilvægt málefni er að ræða.

Markmið 4: Aukið gagnsæi og traust milli stjórnvalda og almennings.
    Forsætisráðuneytið beri ábyrgð á skýrri upplýsingagjöf, mælingum á trausti og eflingu samskipta ríkisins við almenning. Vísað er til þessa í umfjöllun um markmið málaflokksins en endurbætt markmið vísar betur til þess árangurs sem stefna þarf að.

Markmið 5: Meðferð og hagnýting þjóðlendna sé í samræmi við almannahagsmuni með áherslu á vernd, sjálfbæra nýtingu, gagnsæi ákvarðana og hæfilegt endurgjald fyrir afnot.
    Mikilvægt er að forsætisráðuneytið stuðli að því að stjórnsýsla þjóðlendna sé samræmd, gagnsæ og í þágu heildarhagsmuna samfélagsins. Í því ljósi er eðlilegt að unnið verði að því að skýra reglur um afnot og nýtingu þjóðlendna með hliðsjón af verndun lands og víðerna, sjálfbærri nýtingu, jafnræði og dreifðri aðild að tímabundnum samningum. Jafnframt verði tryggt að landupplýsingar séu uppfærðar og að hæfilegt endurgjald komi fyrir nýtingu þjóðlendna og landsréttinda, í samræmi við almannahagsmuni og stefnumótun stjórnvalda um ábyrga auðlindanýtingu. Gagnsæi, almannahagsmunir og ábyrg afnot eru hér lykilatriði.

Sjónarmið um dæmi um tillögur að nýjum markmiðum.
    Ný markmið eru nauðsynleg til að færa markmiðasetningu málaflokksins frá einfaldri og almennri lýsingu áherslna yfir í stefnumið sem endurspegla raunverulegt hlutverk forsætisráðuneytisins sem er bæði víðfeðmt og mikilvægt. Þau taka mið af þeirri staðreynd að ráðuneytið er leiðandi afl í hagræðingu, gæðum, stefnumótun og samhæfingu ríkisrekstrar og að það hefur þau stjórntæki sem þarf til að bæta opinbera stjórnsýslu og farveg lagasetningar.
    Með skýrari markmiðum verður auðveldara að meta árangur, tryggja rökstudda forgangsröðun og tengja fjárheimildir við vandaða og ábyrga opinbera stjórnsýslu. Markmiðin styðja einnig við að tryggja að íslenska stjórnsýslan sé fagleg, gagnsæ og vel samhæfð.

Áhrif nýrra markmiða á fjárheimildir.
    Endurbætt markmið kalla ekki á breytingar á fjárheimildum en krefjast þess að forsætisráðuneytið hafi burði, svo sem sérþekkingu, til að leiða umbótaverkefni, stefnumótun og hagræðingu þvert á Stjórnarráðið.

Umfjöllun um markmið málefnasviðs 04 Utanríkismál.
Málaflokkar 04.10 og 04.30.
    Markmið málefnasviðs utanríkismála (04.10) eru í grunninn skýr og taka vel á hefðbundnum stoðum íslenskrar utanríkisstefnu: Fjölþjóðasamvinnu, borgaraþjónustu og tvíhliða samskiptum.
    Markmið 1, um grunngildi Íslands á vettvangi fjölþjóðasamstarfs, endurspeglar vel áherslur Íslands á mannréttindi, lýðræði og þjóðarétt, en er ekki nægilega stefnumarkandi sýn um árangur eða forgangsröðun.
    Markmið 2, um hagsmuni íslenskra ríkisborgara, er eðlilegt og mikilvægt en mætti vera skýrara um gæði og viðbragðstíma þjónustu.
    Markmið 3, um tvíhliða samskipti og framsetningu á afstöðu Íslands, er í takt við hefðbundið hlutverk sendiráða og stjórnmálasamskipta en er fremur almennt og án skýrrar afmörkunar.
    Í heild eru markmiðin gagnleg en að nokkru leyti of þröng þar sem þau ná ekki utan um breytt öryggislandslag eða þann stóra þátt utanríkisstefnunnar sem nú felst í varnar- og öryggismálum, eins og rakið er í nýrri skýrslu samráðshóps þingmanna (september, 2025) um inntak og áherslur stefnu Íslands í varnar- og öryggismálum.
    Á hinn bóginn er málefnasvið 04.30, samstarf um öryggis- og varnarmál, með skýrari og markvissari markmiðasetningu, sem svarar að hluta til þeim áskorunum sem skýrslan greinir.
    Markmið 1, um að tryggja varnir og viðbúnaðargetu Íslands, er vel afmarkað og styður við lykilstoðir varnarstefnunnar: viðhald varnarmannvirkja, örugga innviðauppbyggingu og aukna sérfræðiþekkingu.
    Markmið 2, um virkari þátttöku Íslands í öryggis- og varnarsamstarfi, er samræmt þeim áherslum sem skýrslan leggur til, einkum um þátttöku í NATO, NORDEFCO, JEF og stuðning við varnarmál Úkraínu.
    Markmið 3, um eflingu gistiríkjastuðnings, er skýrt og endurspeglar raunverulega ábyrgð Íslands í varnarsamstarfi bandalagsríkjanna.
    Velta má því sjónarmiði upp hvort markmið málaflokks 04.30 mættu vera heildstæðari, einkum með skýrari tengingu við áfallaþol samfélagsins, netöryggi, vernd mikilvægra innviða og aukna greiningargetu, en það eru atriði sem fyrrgreind skýrsla samráðshóps þingmanna frá 2025 leggur sérstaka áherslu á og eru nú að verða óaðskiljanlegur hluti öryggisstefnu Íslands.
    Í heild er markmiðasetning málefnasviðs 04 nokkuð skýr og endurspeglar meginstarfsemi utanríkisþjónustunnar. Þó má álykta að markmiðin séu, eins og oft áður, að mestu verkefnalýsingar frekar en stefnumarkandi markmið og vanti sums staðar sýn um árangur, gæði og mælanleg viðmið.
    Í framangreindu ljósi væri eðlilegt að bæta við markmiðum um gæði og samhæfingu utanríkisstefnu, þ.e. að tryggja að utanríkisstefna Íslands sé samræmd, gagnadrifin og tengd skýrum forgangsmálum Íslands á alþjóðavettvangi. Jafnframt kann að vera rétt að skýra betur í hverju þjóðaröryggi felst og hvernig tilgreind markmið og aðgerðir miða að því að það sé tryggt.

04.20 Utanríkisviðskipti.
    Málaflokkurinn nær til alþjóðlegra viðskipta- og efnahagstengsla Íslands og þeirra verkefna sem styðja við útflutning, markaðssetningu, hagsmunagæslu og virka þátttöku Íslands í alþjóðlegu regluverki. Þrátt fyrir að gildandi markmið í fjárlagafrumvarpinu tengist réttilega mikilvægum verkefnum, svo sem aukinni afgreiðslu áritana, verkefnum Íslandsstofu og þátttöku í EES-samstarfi, eru markmiðin tiltölulega almenn.
    Núverandi markmið lýsa fyrst og fremst framkvæmd einstakra verkefna, t.d. þjónustu sendiskrifstofa, hagsmunagæslu eða fræðslu um EES-regluverk, auk þess að vísa til framtíðarstefnu fyrir íslenskan útflutning. Markmiðasetningin tekur þó ekki á því hvaða stöðu íslensk fyrirtæki eiga að ná, hvernig aðgangur að erlendum mörkuðum á að breytast eða hvernig stjórnvöld geta styrkt samkeppnishæfni atvinnulífsins með markvissum hætti.
    Tilvísun til þess að framfylgja eigi „framtíðarstefnu fyrir íslenskan útflutning“ (endurskoðuð 2024) er réttmæt, en tilefni er til að vísa betur til þess hverjar áherslur hennar eru og hver fjármögnun þeirra verður. Rétt er að benda á að um er að ræða stefnu á vegum undirstofnunar ráðuneytisins, Íslandsstofu. Því er enn ríkara tilefni til að skerpa á þeim áherslum sem ráðuneytið hyggst byggja á við að tryggja aukinn og sjálfbæran útflutning íslenskra fyrirtækja og sem bestan aðgang að nauðsynlegum mörkuðum.
    Til að málaflokkurinn styðji betur við útflutning, nýsköpun og samkeppnishæfni þarf að setja skýr markmið um þjónustu við fyrirtæki, hagsmunagæslu, markaðsaðgang og innleiðingu alþjóðlegra reglna. Slík markmið verða að endurspegla áhrif, ekki verkefni.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum fyrir málaflokk 04.20.
Markmið 1: Tryggja íslenskum fyrirtækjum greiðan, fyrirsjáanlegan og skilvirkan aðgang að erlendum mörkuðum.
    Markmiðið lýsir þeirri framtíðarsýn að fyrirtæki hafi skýrari, skilvirkari og faglegri þjónustu við inngöngu á erlenda markaði. Með þessu er lögð áhersla á markaðsaðgang, leiðsögn, þjónustu sendiskrifstofa og stefnumiðaða vinnu ráðuneytisins og stjórnvalda við að fjarlægja hvers kyns viðskiptahindranir.

Markmið 2: Efla samkeppnishæfni íslensks útflutnings með markvissri hagsmunagæslu, samstarfi og þjónustu við fyrirtæki á erlendum mörkuðum.
    Markmiðið tryggir að stjórnvöld styðji útflutning með samhæfðri hagsmunagæslu, sérhæfðri þjónustu og sameiginlegum áherslum Íslandsstofu og sendiskrifstofa. Lögð er áhersla á skjót viðbrögð, faglega leiðsögn og gagnaöflun í þágu fyrirtækja. Tekið skal fram að slíkt starf fer vitanlega fram innan ráðuneytisins, en þeim mun mikilvægara er að öllum sé ljóst, þ.m.t. hagaðilum, hvert markmið þess er.

Markmið 3: Tryggja virka og faglega þátttöku Íslands í EES-samstarfi og alþjóðlegu samstarfi til að verja hagsmuni fyrirtækja og tryggja fyrirsjáanlegt regluverk.
    Markmiðið leggur áherslu á að aðlögun, upptaka og innleiðing EES-gerða sé fagleg, tímanleg og gagnadrifin. Það tryggir að fyrirtæki starfi innan stöðugs og fyrirsjáanlegs regluverks sem styður nýsköpun, fjárfestingar og markaðsaðgang. Er það sérstaklega mikilvægt í ljósi umræðu um gullhúðun og ósamræmi við innleiðingu EES-gerða. Þá eru málefni sjálfbærni mikilvæg en um leið krefjandi og mikilvægt að ekki séu meiri kröfur lagðar á innlend fyrirtæki en nauðsyn ber til.

Markmið 4: Efla þekkingu, greiningarvinnu og mannauð á sviði alþjóðaviðskipta innan stjórnsýslu og atvinnulífs.
    Markmiðið tryggir að stjórnvöld og fyrirtæki hafi burði til að bregðast við hraðri þróun alþjóðlegra reglna, tækni, sjálfbærni og alþjóðlegra breytinga. Flækjustig alþjóðamála og alþjóðlegs viðskiptalífs er mikið og eykst sífellt. Þekking og reynsla er lykilatriði. Leggja verður áherslu á fræðslu, gagnadrifna stefnumótun og sameiginlega þekkingaruppbyggingu.

Sjónarmið um dæmi að nýjum markmiðum.
    Nýju markmiðin eru tilraun til að færa markmiðasetningu málaflokksins frá tæknilegum og verkþáttamiðuðum lýsingum yfir í stefnumið sem varða raunverulega hagsmuni íslensks atvinnulífs. Þannig stuðla dæmi um ný markmið að:
     1.      Skýrari þjónustu ráðuneytisins (innan málefnasviðsins) og gagnsæi fyrir fyrirtæki. Fyrirtæki þurfa fyrirsjáanleika, skýra aðkomu stjórnvalda og markvissa þjónustu. Gildandi markmið segja lítið um hvernig þjónustan á að þróast og leggja frekari áherslu á að tiltekin verk þurfi að klára.
     2.      Aukinni samkeppnishæfni atvinnulífs. Nú eru markmið almennt um „að styrkja útflutning“ sem lýsa ekki því hvernig stjórnvöld skapa forsendur fyrir samkeppnishæfni. Nýju markmiðin leggja áherslu á áhrif á markaðsaðgang, þjónustu sendiskrifstofa, gagnadrifna hagsmunagæslu og áreiðanlegt (og ekki of íþyngjandi) regluverk.
     3.      Betra regluumhverfi og fagmennsku innan EES-samstarfs. EES-samstarfið hefur bein áhrif á rekstrarumhverfi og kostnað fyrirtækja. Ný markmið leggja áherslu á faglega, tímanlega og forgangsraðaða vinnu sem er grundvallarforsenda velsældar og fjárfestinga.
     4.      Aukinni samhæfingu og sókn á sviði norðurslóðasamvinnu í ljósi vaxandi mikilvægis svæðisins og áskorana í samstarfi innan Norðurskautsráðsins.
     5.      Sterkari stjórnsýslu og mannauði. Alþjóðaviðskipti og alþjóðasamskipti í víðu samhengi verða sífellt flóknari. Stjórnsýslan þarf sérhæfingu, þekkingu, samhæfingu og gagnadrifnar ákvarðanir. Nýju markmiðin undirstrika nauðsyn þess að efla mannauð, greiningarvinnu og fræðslu.
     6.      Tengingu markmiða og fjárheimilda. Núverandi markmið gera Alþingi betur kleift að tengja fjárheimildir við aðgerðir og raunveruleg áhrif á útflutning, samkeppnishæfni og hagsmunagæslu.

Áhrif nýrra markmiða á fjárheimildir.
    Fyrrgreind dæmi um endurskoðuð markmið kalla ekki á aukningu fjármagns.

04.30 Samstarf um öryggis- og varnarmál.
    Málaflokkur 04.30 varðar öryggis- og varnarsamstarf Íslands, þátttöku í alþjóðlegu öryggiskerfi og uppbyggingu innviða sem tryggja varnir landsins, viðbúnað og stuðning við bandalagsríki. Framsett markmið eru á margan hátt mikilvæg og málefnaleg. Samhliða þeim mætti þó vísa með skýrari hætti til stefnu, framtíðarsýnar og raunverulegrar forgangsröðunar sem nauðsynleg er í ljósi breytts öryggisumhverfis í Evrópu og aukinnar ábyrgðar Íslands innan NATO og norræns varnarsamstarfs.
    Rétt er að taka fram að eðli málefnasviðsins er vissulega umfangsmikið. Æskilegt væri að markmið málaflokksins tækju ögn skýrar á því hvernig tryggja skuli varanlega viðbúnaðargetu Íslands, hvernig efling varnarsamstarfs skuli mótast til lengri tíma og hvernig landið uppfylli skyldur sínar gagnvart bandalagsríkjum og alþjóðasamfélaginu. Þá skortir að nokkru heildrænt samhengi á milli þátttöku í varnarsamstarfi og innviða, mönnunar, greiningargetu og verndar mikilvægra innviða.
    Markmið málefnasviðsins verða sífellt umfangsmeiri og kostnaður vegna þeirra eykst stöðugt. Því er grundvallaratriði að Alþingi fái skýrari mynd af forsendum markmiða og hvernig þau eigi að framkvæma, þrátt fyrir að flækjustig verkefna kalli á lengri umfjöllun sem koma má fyrir í frumvarpi til fjárlaga.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum fyrir málaflokk 04.30.
Markmið 1: Tryggja áreiðanlega, nútímalega og samhæfða varnar- og viðbúnaðargetu Íslands.
    Markmiðið felur í sér að varnir og öryggisinnviðir Íslands standi undir alþjóðlegum kröfum, að rekstur og viðhald varnarmannvirkja sé markvisst og að mönnun, sérfræðiþekking og þjálfun séu í samræmi við breytt öryggisumhverfi. Með þessu er lögð áhersla á heildræna öryggisímynd landsins.

Markmið 2: Efla virka, ábyrga og markvissa þátttöku Íslands í alþjóðlegu öryggis- og varnarsamstarfi.
    Markmiðið lýsir þeirri framtíðarsýn að Ísland sé ábyrgt og virkt bandalagsríki sem tekur þátt í samræmdum aðgerðum NATO, NORDEFCO, JEF, ÖSE og SÞ og styður við stöðugleika í Evrópu, þar á meðal með stuðningi við Úkraínu. Áherslan er á áhrif, ekki eingöngu mætingu á fundi eða æfingar. Tekið skal fram að gildandi markmið og tengd verkefni vísa vissulega til fyrrgreindra stofnana.

Markmið 3: Tryggja öflugan, áreiðanlegan og sjálfbæran gistiríkjastuðning sem styður við varnir Íslands og bandalagsríkja.
    Markmiðið felur í sér að gistiríkjastuðningur (e. host nation support) sé faglegur, nútímalegur og í samræmi við skyldur Íslands. Það nær til loftrýmisgæslu, þjónustu sem varðar skipulag (e. logistic support), gistiaðstöðu og öryggissvæðis, en setur fram heildarmynd um þjónustu Íslands frekar en sértæka verkþætti.

Markmið 4: Að efla áherslu Íslands á friðarumleitanir og samvinnu að þeim.
    Markmiðið felur í sér ríkari áherslu á sérstöðu Íslands sem herlaust ríki og möguleika Íslands í ljósi landfræðilegrar staðsetningar, sögu og samfélagslegrar áherslu á að styðja við friðarumleitanir með fjölbreyttum hætti og nýtingu mjúks valds nú þegar vaxandi ógnir eru á sviði heimsmálanna.

Sjónarmið um dæmi um tillögur að nýjum markmiðum.
    Með nýjum markmiðum er gerð tilraun til að færa markmið málefnasviðsins í átt að heildstæðari stefnumörkun sem lýsir því ástandi sem ná á og hlutverki Íslands sem virks og ábyrgðarfulls þátttakanda í alþjóðlegu öryggis- og varnarsamstarfi. Slík framtíðarsýn er nauðsynleg í ljósi þess að uppbygging varna og viðbúnaðar er ekki einvörðungu tæknilegt verkefni heldur samspil innviða, mannauðs, búnaðar, samhæfingar og alþjóðlegra skuldbindinga.
    Jafnframt endurspegla nýju markmiðin þær auknu kröfur sem gerðar eru til Íslands innan NATO og norræns samstarfs, þar sem þátttaka ríkja byggist ekki á formlegri fundasókn einni saman heldur raunverulegri getu, ábyrgð og skuldbindingum gagnvart stöðugleika í Evrópu. Með því að skýra betur hlutverk og forgangsröðun Íslands í varnarsamstarfi skapast skýrari rammi sem gerir Alþingi kleift að fylgja eftir stefnu, forsendum og fjárheimildum með ábyrgum hætti.
    Nýju markmiðin tryggja einnig samhæfingu milli þeirra þátta sem mynda varnar- og viðbúnaðarkerfi landsins og birtast í mönnun, þjálfun, varnarmannvirkjum, samskiptakerfum, greiningargetu og almannavörnum. Í gildandi markmiðum og tengdum verkefnum eru þessir þættir settir fram sem of einangruð verkefni en með nýjum markmiðum verður til heildræn mynd sem byggist á getu, viðbúnaði og seiglu sem nýtist bæði í varnar- og borgaralegu samhengi. Slíkur rammi er nauðsynlegur til að Ísland geti staðið við alþjóðlegar skuldbindingar sínar og styrkt eigið öryggi til lengri tíma.
    Nýju markmiðin kalla ekki óhjákvæmilega á auknar fjárheimildir að óbreyttu, en æskilegt er að frekari greining fari fram á fjárþörf málefnasviðsins í heild sinni sé horft til næstu ára. Er það sérstaklega mikilvægt í ljósi þess að ríkisstjórnin hefur boðað tugmilljarða aukningu til varnarmála á næstu árum og áratugum sem er enn fremur í samræmi við þróun á alþjóðavettvangi.

05.10 Skattar og innheimta.
    Málaflokkur 05.10 tekur til tekjuöflunar ríkisins og framkvæmdar skattastefnu, sem er einn af meginburðarásum fjármálastefnu ríkisins. Þrátt fyrir þessa miklu ábyrgð eru gildandi markmið í fjárlagafrumvarpi nokkuð framkvæmdamiðuð, þar sem áherslan beinist einkum að innheimtu, afmarkaðri lagabreytingarvinnu og tæknilegum úrbótum í skattkerfinu.
    Slík nálgun fangar aðeins hluta verkefna ríkisins í skattalegum málefnum og endurspeglar ekki þá stjórnskipulegu ábyrgð sem til að mynda fjármála- og efnahagsráðuneytið ber skv. 5. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna, þar sem ráðuneytið fer með alla tekjuöflun ríkisins og framkvæmd skattalaga.
    Lög um opinber fjármál gera jafnframt skýra kröfu um að skattstefna sé hluti af fjármálastefnu og fjárlagafrumvarpi, sbr. 4. og 17. gr. þar sem fram kemur að fjárlög og fjármálastefna þurfi að taka til tekjuöflunar og stefnu stjórnvalda í skattamálum. Í ljósi þessa er ljóst að markmiðasetning fyrir málaflokk 05.10 þarf ekki aðeins að varða innheimtu heldur heildarstefnu ríkisins í skattamálum, í það minnsta afmarkaða umfjöllun um heildarhugsun skattkerfisins og áhrif skattkerfisins á tekjur, stöðugleika, jöfnuð, samkeppnishæfni og velsæld. Gildandi markmið, sem beina sjónum að afmarkaðri framkvæmd og tæknilegum verkefnum, endurspegla ekki nægilega þetta hlutverk.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum innan málaflokksins.
Markmið 1: Skattkerfið tryggi sanngjarna, fyrirsjáanlega og sjálfbæra tekjuöflun sem styður við stöðugleika opinberra fjármála.
    Markmiðið lýsir þeirri framtíðarsýn að tekjuöflun ríkisins sé bæði skilvirk og stöðug og að skattkerfið búi yfir trúverðugleika og fyrirsjáanleika sem gerir ríkinu kleift að standa undir lögbundnum verkefnum til lengri tíma, svo sem á sviði menntamála og heilbrigðisþjónustu.

Markmið 2: Skattkerfið styðji við jöfnuð, velsæld og fjölskylduvæn samfélagsmarkmið með stigskiptri og réttlátri skattlagningu.
    Markmiðið endurspeglar nútímalega skattastefnu þar sem tekjudreifing, fjölskylduvæn skattlagning og velsældarviðmið eru órjúfanlegur hluti tekjuöflunar. Hér þarf að leggja áherslu á að skattkerfið taki mið af greiðslugetu þjóðfélagshópa, stöðu heimila í ljósi efnahagsástands og markmiðum stjórnvalda hverju sinni um félagslegt réttlæti og velsæld barna.

Markmið 3: Skattkerfið stuðli að hagkvæmni, nýsköpun og samkeppnishæfni, í samræmi við langtímamarkmið stjórnvalda í atvinnu-, nýsköpunar- og loftslagsmálum.
    Með þessu markmiði er skattkerfið skilgreint sem stefnumótunartæki en ekki einungis tekjuöflunartæki, sem er grundvallaratriði. Styðja þarf við bætt rekstrarumhverfi fyrirtækja, nýsköpun og orkuskipti og jafnframt tryggja jafna samkeppni fyrirtækja.

Markmið 4: Tryggja skilvirka, gagnsæja og notendavæna framkvæmd skattalaga og þjónustu við einstaklinga og fyrirtæki.
    Markmiðið felur í sér skýra áherslu á stafvæðingu, einfaldara regluverk og notendavæna framkvæmd þannig að samskipti við skattkerfið séu greið og áreiðanleg. Margt hefur áunnist á undanförnum árum en þeim mun mikilvægara er að halda mikilvægu umbótastarfi áfram og setja markið hátt.

Markmið 5: Efling rannsóknar- og eftirlitsgetu til að tryggja að skattkerfið sé réttlátt, virki vel og tryggi sjálfbæran tekjugrunn ríkisins.
    Markmiðið miðar að því að draga úr undanskotum og tryggja ábyrgð í skattamálum. Áhersla er ekki sett á einstaka eftirlitsverkefni heldur á kerfisbundinn árangur. Um er að ræða viðvarandi verkefni, ótengt valdhöfum hverju sinni.

Sjónarmið um dæmi um tillögur að nýjum markmiðum.
    Nýju markmiðin endurspegla betur þá ábyrgð sem löggjafinn og framkvæmdarvaldið bera í skattamálum. Með því að færa markmið og aðgerðir aðeins frá tæknilegum verkþáttum á borð við innheimtuverkefni yfir í stefnumið sem lúta að réttlæti, velsæld, tekjustöðugleika, samkeppnishæfni og skilvirkni verður markmiðasetningin í betra samræmi við lög um opinber fjármál og nútímaleg sjónarmið um tilgang og áhrif skattkerfisins á velsæld og hagstjórn almennt.
    Markmið um jöfnuð, velsæld og fjölskylduvæna skattlagningu styrkja þann þátt skattkerfisins sem varðar tekjudreifingu, baráttu gegn fátækt og stöðu barna og heimila, sem eru lykilviðfangsefni í nútímaskattstefnu ríkja. Með því að setja slík markmið verður skýr sýn á áhrif skattkerfisins á samfélagslega hagsæld en ekki aðeins á tekjusöfnun.
    Jafnframt endurspegla ný markmið að skattkerfið er eitt af mikilvægustu stefnumótunartækjum ríkisins þegar kemur að atvinnulífi, nýsköpun, orkumálum og loftslagsaðgerðum. Skýr markmið um þessi tengsl gera stjórnsýslunni kleift að móta skattkerfið þannig að það styðji við framtíðarsýn stjórnvalda og skapi virka hvata í átt að sjálfbærni og framleiðni. Þetta hlutverk skattkerfisins hefur einhverra hluta vegna verið vanrækt eða jafnvel misskilið í áranna rás.
    Loks leggja markmiðin áherslu á stafvæðingu, gagnsæi og réttlæti í skattframkvæmd. Með notendavænu og gagnsæju kerfi eykst traust almennings til skattkerfisins, sem er forsenda þess að skattar séu greiddir af vilja og að undanskot minnki. Efling eftirlits og rannsókna er síðan nauðsynleg til að vernda tekjugrunn ríkisins og tryggja að skattkerfið virki eins og því er ætlað.

Áhrif nýrra markmiða á fjárheimildir.
    Dæmi um ný markmið fyrir málefnasvið 05.10 kalla ekki á útgjaldaaukningu að neinu marki. Þar sem markmiðin snúa að gæðum, skýrleika og stefnumiðaðri tekjuöflun verður fjárþörf fyrst og fremst tengd áherslu á skipulagslegar umbætur, bætta þjónustu og kerfisbundið eftirlit frekar en beinum rekstrarútgjöldum. Slíkt endurspeglast í hóflegu og rökstuddu endurmati fjárheimilda til að tryggja að ríkið geti sinnt þeim stefnumarkandi verkefnum sem markmiðin kveða á um.

05.20 Eignaumsýsla ríkisins
    Málaflokkur 05.20 nær til eignasafns ríkisins og þeirrar stefnumótunar og fyrirsvars sem ráðherra ber samkvæmt 43. gr. laga um opinber fjármál. Þar er kveðið skýrt á um að ráðherra fari með eignarhluti ríkisins í félögum, fasteignum, jörðum og auðlindum, og að hann beri ábyrgð á öflun, ráðstöfun og almennri stefnu um meðferð og nýtingu eigna ríkisins. Lögin gera jafnframt kröfu um að slík stefna sé sett fyrir hvern eignaflokk og að hún byggist á gagnsæi, hlutlægni og almannahagsmunum.
    Þrátt fyrir þetta lögbundna hlutverk eru gildandi markmið málaflokksins nokkuð almenn. Rétt er að taka fram að ýmsar stefnur varða eignir og eigendahlutverk ríkisins, svo sem almenn eigendastefna ríkisins fyrir félög í eigu þess. Tilvísun til lykilhugsunar þessara stefna og áherslna stjórnvalda hverju sinni er þó grundvallaratriði.
    Jafnframt er æskilegt að fjallað sé stuttlega um hvort eignasafn ríkisins styðji við langtímastefnu stjórnvalda, hver sú stefna sé, hvaða samfélagslegu og fjárhagslegu markmiðum lykileignirnar eigi að þjóna og hvernig jafnvægi skuli náð milli fjárhagslegra ávinningssjónarmiða annars vegar og samfélagslegrar þjónustu, byggðastefnu, náttúruverndar og arfleifðar hins vegar.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum fyrir málaflokk 05.20.
Markmið 1: Ábyrg og heildstæð eignastefna ríkisins stuðli að jafnræði, gagnsæi og langtímaávinningi fyrir samfélagið.
    Markmiðið felur í sér að eignastefna ríkisins (eigandastefna) sé skýr hverju sinni og byggist á skýrum meginreglum um jafnræði, gagnsæi og ábyrga umgengni við sameiginlegar eignir þjóðarinnar. Áhersla er á framtíðarsýn þar sem eignarhald, tilgangur eigna og samfélagslegt hlutverk ríkisins eru skilgreind með heildstæðum hætti og í samræmi við almannahagsmuni og vandaða stjórnsýslu.

Markmið 2: Tryggja markvissa, gagnadrifna og ábyrga fjárfestingarstýringu ríkisins sem styður við þjónustu, hagkvæmni og framtíðarþarfir samfélagsins.
    Áhersla er á að eignir og fjárfestingar ríkisins hverju sinni (t.d. varðandi orkukerfi, samgöngur og aðra innviði) byggist á skýrri forgangsröðun, faglegri greiningu og langtímaáætlun fyrir eignasafn og fjárfestingar ríkisins í heild. Markmiðið felur í sér að allar eignir ríkisins skuli ávallt styðja við opinbera þjónustu, byggðaþróun og hagkvæma nýtingu fjármuna.
    Vissulega fer fram góður undirbúningur áður en meiri háttar fjárfestingar ná fram að ganga á vegum ríkisins. Tækifæri er þó til að nálgast mál á heildstæðari hátt og tryggja að skýrari hugsun sé til staðar um þróun eigna og innviða sem ríkið ber ábyrgð á.

Markmið 3: Sjálfbær og hagkvæm nýting lands, vernd náttúru og auðlinda í eigu ríkisins í þágu núverandi og komandi kynslóða.
    Markmiðið áréttar að nýting ríkisjarða og annarra náttúruauðlinda skuli byggjast á sjálfbærni, umhverfisvernd og faglegri stjórnsýslu. Hér er tekið mið af jafnræði, gagnsæi og varfærni við ráðstöfun takmarkaðra gæða.

Sjónarmið um dæmi um tillögur að nýjum markmiðum.
    Endurskoðuð markmið eru æskileg til að færa markmiðasetningu málaflokksins úr tæknilegu og framkvæmdamiðuðu umhverfi yfir í stefnumiðað og stjórnskipulega rétt samhengi. Þau gera Alþingi kleift að sjá hvaða pólitísku forsendum eignaumsýslan byggist á, hver markmið eignarhalds séu og hvernig eigi að ráðstafa ríkisfjármunum á ábyrgan hátt. Jafnframt þarf að horfa á eignasafn og eignir ríkisins á heildstæðari hátt.
    Með skýrari markmiðum verður auðveldara að meta hvort eignasafn ríkisins þjóni almannahagsmunum og hvort ákvarðanir um sölu, kaup eða nýtingu eigna byggist á faglegri og gagnsærri stefnu.
    Að lokum tryggja nýju markmiðin að eignaumsýsla ríkisins taki mið af nútímalegum sjónarmiðum: sjálfbærni, samfélagsábyrgð, jafnræði, byggðasjónarmiðum, umhverfisvernd og hagkvæmni.
    Þrátt fyrir gagnrýni á gildandi markmið málaflokksins er rétt að taka fram og ítreka að margt jákvætt kemur fram í umfjöllun málaflokksins og málefnasviðsins í heild sinni. Tilgangur endurskoðaðra markmiða er að leggja grunn að umræðu um skýrari og gagnlegri markmiðasetningu.
    Með réttu þarf að leggja áherslu á bætt þjónustugæði, faglega mannauðsuppbyggingu og sjálfbæran og nútímalegan rekstur opinberra stofnana. Markmiðin (og sjónarmið) um stafvæðingu og samræmda þjónustu sýna þannig skýra framtíðarsýn um að auka aðgengi og gera opinbera þjónustu skilvirkari og þægilegri fyrir almenning.
    Áherslan á að efla ríkið sem góðan vinnustað styður við nútímalega mannauðsstjórnun, jafnræði og hæfniþróun sem styrkir starfsemi ríkisins til framtíðar. Þá er markmiðið um öflugan og vistvænan rekstur skýrt og í samræmi við alþjóðlega þróun, þar sem lögð er áhersla á nýja tækni, sameiginleg viðmið og gagnadrifna stefnumótun til að tryggja ábyrga meðferð opinberra fjármuna og vistvænni rekstur.
    Í heild eru markmið málefnasviðsins gagnleg, þrátt fyrir framsettar tillögur til breytinga.

Áhrif nýrra markmiða á fjárheimildir.
    Ný markmið kalla fyrst og fremst á breytta nálgun, ekki fjárhagslega aukningu. Eftir atvikum gæti þó þurft styrkingu á einhverjum sviðum, svo sem við greiningar- og stefnumótunarvinnu, gagnaöflun, sjálfbærnimat og umhverfistengd málefni sem varða eignir ríkisins í víðu samhengi.

05.40 Stjórnsýsla ríkisfjármála.
    Málaflokkur 05.40 varðar helstu stjórnsýslu- og fjármálaverkefni ríkisins, þar á meðal árangursstjórnun, upplýsingagjöf og áætlanagerð. Gildandi markmið endurspegla að nokkru leyti þær áskoranir sem kerfið stendur frammi fyrir, einkum nauðsyn þess að efla gagnsæi og tengsl stefnu og fjármuna. Jákvætt er að unnið sé markvisst að áframhaldandi þróun árangursmælaborðs Stjórnarráðsins, birtingu lykilárangursvísa og bættri upplýsingagjöf á opnum vefsvæðum. Slíkar aðgerðir auka gagnsæi, styðja við eftirfylgni og eru í takt við alþjóðlega þróun um gagnadrifna stjórnsýslu.
    Athygli vekur að gildandi markmið 1 mælir fyrir um „skýrari tengingu milli stefnu, fjármuna og árangurs“. Gagnrýni minni hluta fjárlaganefndar snýr nefnilega einkum að því að fjármálaáætlun tilgreindi nánast engin skýr markmið og þaðan af síður mælikvarða fyrir málefnasvið áætlunarinnar, heldur koma þau fram á afar óljósan hátt á mælaborði Stjórnarráðsins.
    Þá felur fjárlagafrumvarpið ekki í sér nægilega skýr markmið, eins og umfjöllun greinargerðarinnar ber með sér. Bæta þarf úr þessu ástandi hið fyrsta. Það er sameiginlegt verkefni Stjórnarráðsins og Alþingis.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum fyrir málaflokk 05.40.
Markmið 1: Tryggja skýra, gagnsæja og samræmda tengingu milli stefnu, fjárheimilda og árangurs í ríkisfjármálum.
    Markmiðið lýsir þeirri framtíðarsýn að opinber fjármálastjórn byggist á skýrum markmiðum, samræmdum mælikvörðum og áreiðanlegri eftirfylgni. Áhersla er á að árangursmælaborð og lykilárangursvísar séu ekki aðeins til staðar heldur nýttir markvisst til forgangsröðunar og til þess að styðja við ákvarðanatöku. Umfram allt þarf að vera hægt að nálgast umrætt samhengi stefnu, fjárheimilda og árangurs í ríkisfjármálum.

Markmið 2: Auka gagnsæi og aðgengileika upplýsinga um fjármál ríkisins með reglubundinni, stafrænni og notendavænni birtingu gagna.
    Mikið hefur áunnist í þeirri vinnu að auka aðgengi að upplýsingum um fjármál ríkisins. Aftur á móti þarf að gera betur. Leggja þarf aukna áherslu á opna, aðgengilega og trausta upplýsingagjöf. Með því verða almenningur, fjölmiðlar, stjórnkerfið og Alþingi betur í stakk búin til að meta stöðu ríkisfjármála og bera saman árangur, til að mynda á milli stofnana.

Markmið 3: Tryggja vandaða, gagnadrifna og samræmda áætlanagerð og eftirlit með fjármunum ríkisins.
    Markmiðið tekur til fjárstýringar, fjárfestingaráætlana, innri endurskoðunar og samræmdrar aðferðafræði sem styrkir alla stjórn fjármála ríkisins. Hlutverk Fjársýslu ríkisins og ráðuneyta verður til að mynda skýrara, faglegra og betur tengt við markmið opinberra fjármála.

Sjónarmið um rökstuðning fyrir tillögum að nýjum markmiðum.
    Nýju markmiðin eru æskileg til að færa markmiðasetningu málaflokksins úr tæknilegum verkþáttum yfir í stefnumið sem endurspegla raunverulega fjárstjórnarlega ábyrgð ríkisins. Þau tryggja heildstæða sýn á fjármálastýringu, stuðla að betri áætlanagerð og efla gagnsæi sem er forsenda þess að almenningur og Alþingi geti fylgst með árangri og ábyrgð opinberra stofnana.
    Jákvætt er að verklags- og tækniverkefni, svo sem þróun árangursmælaborðsins, hafi þegar skilað auknu gagnsæi. Þrátt fyrir það verður að leggja áherslu á að árangursmælaborð getur ekki tekið við hlutverki markmiðasetningar fjárlagafrumvarps eða fjármálaáætlunar. Nauðsynlega þarf að finna betra jafnvægi á því sem fram kemur í áætlunum, sem kallar á þinglega umræðu og nánari skýringu markmiða, eftir atvikum hjá ráðuneytum.
    Markmið málefnasviða og málaflokka í fjármálaáætlun og fjárlagafrumvarpi þurfa að vera heildstæð, afmörkuð og stefnumiðuð til að kerfið virki eins og lög um opinber fjármál gera kröfu um. Í því samhengi er sérstaklega mikilvægt að samhæfing og samstarf fjármála- og efnahagsráðuneytis og forsætisráðuneytis sé skýrt og kerfisbundið. Forsætisráðuneytið fer með heildarstefnu og gæði stjórnsýslu en fjármála- og efnahagsráðuneytið með fjárstjórn og framkvæmd fjárlaga. Árangursstjórnun, árangursmælaborð og lykilárangursvísar verða aðeins áhrifarík ef þessi ráðuneyti vinna saman að því að tengja saman stefnumótun, fjárveitingar og mælanlegan árangur. Slík samhæfing er grundvöllur þess að ríkið geti rekið skilvirkt og ábyrgt fjármálakerfi sem styður við langtímamarkmið og vandaða opinbera þjónustu.

Áhrif nýrra markmiða á fjárheimildir.
    Nýju markmiðin kalla ekki á fjárhagslega aukningu en krefjast þess að ákveðnir þættir stjórnsýslu ríkisfjármála séu styrktir, svo sem á sviði gagna- og upplýsingakerfa, greiningargetu, innri endurskoðunar og þjálfunar í árangursstjórnun og stefnumótun.

06 Hagskýrslugerð og grunnskrár.
    Almennt vísar umfjöllun og markmið málefnasviðsins til mikilvægra markmiða á sviði hagskýrslugerðar, svo sem bætts aðgengis og tímanleika hagtalna. Þá er vísað til bættra gæða gagna.
    Í ljósi þess hversu mikilvægt er að áætlanagerð hins opinbera batni og að útgjaldastefna og hagstjórn ríkisins almennt sé ábyrg og markviss er grundvallaratriði að átak verði gert í að auka bæði nákvæmni og tímanleika hagtalna. Jafnvel þótt mikil áskorun felist í útgáfu hagtalna verður að bæta framsetningu og nákvæmni þeirra og umfram allt tryggja að framsetning þeirra sé í fullu samræmi við alþjóðlega staðla um hagskýrslugerð. Nýlegar og endurteknar endurskoðanir talna um hagvöxt langt aftur í tímann gefa vísbendingar um að þörf sé á umbótum innan málefnasviðsins.
    Fyrirliggjandi markmið eru um margt ágæt en eftir atvikum má fella þau í eitt samræmt og heildstætt markmið að aftan.

Markmið: Hagskýrslur séu tímanlegar, áreiðanlegar og aðgengilegar, í samræmi við alþjóðlegar viðmiðanir og þarfir almennings, stjórnsýslu og atvinnulífs.
    Markmiðið felur í sér að tryggja að hagskýrslugerð ríkisins sé byggð á traustum grunni, samræmdum aðferðum og uppfærðum landupplýsingum þannig að upplýsingar um samfélags- og efnahagsmál séu birtar reglulega, á réttum tíma og á aðgengilegu formi. Með því er stuðlað að gagnsæi, betri stefnumótun og fullu samræmi við alþjóðlega staðla um gæði, framsetningu, stafrænt aðgengi og endurnot opinberra gagna. Um eitt mikilvægasta atriði áætlanagerðar hins opinbera er að ræða.
    Jafnframt er lagt upp með að hagskýrslur stuðli að aukinni framleiðni og skilvirkni innan stjórnkerfisins, m.a. með samræmdum gagnainnviðum, skýrum tækniviðmiðum og skýrri ábyrgð á meðferð og miðlun gagna milli stofnana.

07 Nýsköpun, rannsóknir og þekkingargreinar.
    Málefnasvið 07 er ein helsta vaxtarstoð íslensks samfélags. Það nær til rannsókna, nýsköpunar, menntunar, stafrænnar þróunar og gervigreindar en einnig til þess vistkerfis sem þarf að vera til staðar til að hugmyndir verði að verðmætum og þekking að samfélagslegum ávinningi.
    Gildandi markmið og tengd verkefni á málefnasviðinu endurspegla hluta af þessum þætti, m.a. um gæði vísindastarfs, hagnýtingu hugvits og alþjóðlegt samstarf. Aftur á móti ná þau ekki nægilega vel yfir þá stóru, stefnumiðuðu mynd sem nauðsynleg er til þess að Ísland standi jafnfætis öðrum nýsköpunarríkjum.
    Nútímaleg nýsköpunarstefna krefst heildræns vistkerfis (e. ecosystem) þar sem háskólar, nýsköpunarfyrirtæki, sprotamiðstöðvar, hraðlar, fjárfestar, ríki og sveitarfélög vinna saman að því að leiða hugmyndir frá frumgerð til markaðar.
    Þessi nálgun er forsenda árangurs í samhengi við ört breytilegt alþjóðlegt nýsköpunarumhverfi, þar sem gervigreind, gögn og stafrænir innviðir gegna sífellt stærra hlutverki.
    Einnig er nauðsynlegt að tengja nýsköpun skýrar við byggðaþróun, þar sem sóknaráætlanir landshluta eru lykilstoð í þróun nýsköpunarumhverfis landsbyggðarinnar.
    Til að Ísland geti skapað verðmæti sem byggjast á hugviti og nýsköpun þarf skýrari markmið, sterkari tengsl fyrir alla hagaðila og stuðning sem byggist á hvatakerfum, ekki aðeins styrkjum.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum fyrir málefnasvið 07 með áherslu á gervigreind, vistkerfi nýsköpunar og samstarf.
Markmið 1: Byggja upp heildrænt og samkeppnishæft vistkerfi nýsköpunar og gervigreindar á Íslandi.
    Markmiðið lýsir samfélagi þar sem háskólar, fyrirtæki, hraðlar, sprotamiðstöðvar, fjárfestar og ríki vinna saman að því að þróa hugmyndir, auka framleiðni, efla stafræna getu og byggja upp sameiginlega innviði. Úr því verður til skýr heildarmynd nýsköpunar og það sem kalla má virðiskeðju hennar, svokallað vistkerfi.

Markmið 2: Tryggja að rannsóknir, vísindi, gervigreind og nýskapandi lausnir leysi samfélagslegar áskoranir og skili beinum ávinningi fyrir umhverfi, velferð og atvinnulíf.
    Markmiðið undirstrikar að þekking og gervigreind verði nýtt enn frekar í orkuskiptum, loftslagsmálum, heilbrigðisþjónustu, stafrænu öryggi og náttúruvárgreiningu.
    Nýsköpunarfjárfestingar eiga einnig að styðja við samfélagsleg markmið, ekki aðeins starfsemi í afmörkuðum geirum.

Markmið 3: Efla alþjóðlegt samstarf Íslands á sviði vísinda, gervigreindar, menntunar og nýsköpunar og tryggja virka þátttöku í alþjóðlegum innviðum.
    Mikilvægt er að leggja meiri áherslu á þátttöku í evrópskum og norrænum samstarfsnetum (t.d. Horizon Europe, Digital Europe og norrænum gervigreindarnetum), inngöngu í sameiginlega rannsóknarinnviði og aukna hagsmunagæslu í alþjóðlegum stefnuþróunarferlum. Um þetta er réttilega fjallað nú þegar í umfjöllun málefnasviðsins.

Markmið 4: Tryggja aðgengi að öflugum og sjálfbærum rannsóknar-, stafrænum og gervigreindarinnviðum um allt land, með virku samstarfi við sveitarfélög og sóknaráætlanir landshluta.
    Markmiðið áréttar að nýsköpun og þekking eigi ekki að einskorðast við höfuðborgarsvæðið.
    Byggja þarf upp innviði og stuðning, svo sem tækniinnviði, aðstöðu og ráðgjöf, með nýsköpunarátaki landshluta og samvinnu við háskóla, framhaldsskóla og atvinnulíf í hverjum landshluta. Með því er jafnframt vísað til markmiðs 1 um vistkerfi nýsköpunar.

Markmið 5: Bæta hvata- og stuðningskerfi nýsköpunar með einföldu skattkerfi, markvissum hvötum og aukinni áherslu á frumstig hugmyndavinnu.
    Markmiðið felur í sér að skoðað verði hvernig móta megi einfalda skattalega hvata fyrir nýsköpun, styðja betur við frumstig hugmyndavinnu (minni, einfaldari styrkir eða skattahvatar), efla samstarf við einkaaðila, t.d. viðskiptahraðla og tryggja fjármagnsflæði á milli hugmynda, frumgerðar og vaxtarfasa fyrirtækja.
    Skattalegir hvatar eru lykilatriði til að auka áhættufjárfestingar og fá einkageirann að borðinu en ekki aðeins ríkið.

Sjónarmið um dæmi um tillögur að markmiðum.
    Nýsköpun og vísindi eru undirstaða framtíðarverðmætasköpunar og samkeppnishæfni Íslands. Tillögur að endurskoðuðum markmiðum endurspegla að þessi svið taka miklum breytingum með tilkomu gervigreindar, stafrænnar tækni og breyttrar alþjóðlegrar samkeppni.
    Til að tryggja að Ísland sé hluti af þessari þróun þarf heildstætt vistkerfi þar sem ríkisvaldið, háskólar, sveitarfélög, fyrirtæki, fjárfestar og nýsköpunarfjárfestar vinna saman að því að styðja við hugmyndir og þróun þeirra.
    Betri tengingar við einkarekna nýsköpunarhraðla, Gulleggið og ýmis sprotafélög eru enn fremur nauðsynlegar ef gera á nýsköpun að raunverulegum drifkrafti í atvinnulífinu til framtíðar.
    Á sama hátt þarf að tryggja að skólakerfið, þ.e. háskólar, framhaldsskólar og símenntun, sé virkur hluti vistkerfisins þar sem mannauðurinn ræður úrslitum um gæði hugmynda og framkvæmd þeirra.
    Sérstaklega mikilvægt er að markmiðin nái yfir landið allt. Sem dæmi má nefna að sóknaráætlanir landshluta eru meginstoð í nýsköpunaruppbyggingu í heimabyggð og geta skipt sköpum fyrir atvinnuþróun, byggðafestu og fjölbreytni í atvinnulífi. Þess vegna er brýnt að þær séu hluti af heildarstefnu ríkisins í nýsköpun.

Áhrif nýrra markmiða á fjárheimildir.
    Ný og stefnumiðuð markmið á sviði vísinda, nýsköpunar, gervigreindar og þekkingar kalla á heildstæða framtíðarsýn og raunhæfa aukningu fjárheimilda. Til að þessi markmið nái fram að ganga þarf að byggja upp samhæft nýsköpunarvistkerfi (e. ecosystem) þar sem ríki, sveitarfélög, háskólar, atvinnulíf, sprotasetur, hraðlar og fjárfestar vinna saman að því að koma hugmyndum í framkvæmd og skapa verðmætasköpun um allt land. Slíkt vistkerfi kallar á aukna innviðauppbyggingu, betri samhæfingu styrkjakerfa, öflugt samstarf við einkageirann og skýra tengingu m.a. við sóknaráætlanir landshluta. Þannig má tryggja að nýsköpun verði ekki staðbundin eða háð einstaklingsframtaki heldur burðarstoð í þróun atvinnulífs og byggða um allt land.
    Til að ná þessum markmiðum er nauðsynlegt að auka framlög málefnasviðsins til nýsköpunar og tengdra verkefna, bæði til að efla þá sem nú starfa á sviðinu og til að ná til hópa sem hingað til hafa ekki átt greiðan aðgang að fjármagni eða stuðningi, sérstaklega á frumstigum hugmyndavinnu.
    Í því samhengi er nauðsynlegt til að mynda að koma á fót nýju stuðningsfyrirkomulagi fyrir fyrstu stig nýsköpunar þar sem verkefni eru ekki enn tilbúin fyrir hefðbundin styrkjakerfi eða hefðbundið fjárfestingarumhverfi. Með því að styrkja þessi fyrstu skref er unnt að tryggja að fleiri hugmyndir komist á blað, að frumkvöðlar geti hafið vinnslu án mikillar byrði og að stærra framboð verðmætra þróunarverkefna verði til.
    Í þessu ljósi er æskilegt að skoðað verði hvernig koma megi á sérstökum nýsköpunarsjóði fyrir landsbyggðina sem veitir smærri styrki, að jafnaði 500.000–1.500.000 kr., til einstaklinga og teymisverkefna á frumstigi nýsköpunar. Slíkir styrkir myndu fylla upp í tómarúm sem ríkjandi stuðningskerfi og sjóðir ná ekki að sinna, þar sem hefðbundnir sjóðir gera skýrari kröfur en frumstig hugmynda geta uppfyllt, m.a. til arðsemi, og englafjárfestar og einkafjárfestar eru fáir eða fjárhagslega takmarkaðir, sérstaklega í dreifðum byggðum. Með þessum sjóði mætti tryggja að nýsköpunarumhverfið verði aðgengilegt öllum, óháð búsetu eða efnahagslegri stöðu.
    Jafnframt er mikilvægt að hrinda af stað þjóðarátaki í nýsköpun sem hvetur til hugmyndasköpunar, frumgerðarvinnu og samvinnu. Slíkt átak myndi virkja einstaklinga um allt land, hvetja til nýrra hugmynda, styðja við fyrstu skref í þróun og tengja þátttakendur við sprotaumhverfi, háskóla og atvinnulíf með skilvirkum og aðgengilegum stuðningsformum.
    Nýtt vistkerfi nýsköpunar, sem byggist á öflugum tengslum háskóla, hraðla, frumkvöðlasetra, sveitarfélaga, sóknaráætlana landshluta og einkageirans, kallar á hóflega en markvissa fjárfestingu í innviðum, hæfni, miðlun og samhæfingu verkefna. Hagrænt og samfélagslegt mikilvægi þess að efla nýsköpun í landshlutum er óumdeilt. Þar skapast fjölbreytt atvinnulíf, ný störf og aukin byggðafesta. Slíkar fjárfestingar eru tiltölulega hóflegar miðað við ávinning og geta skapað margfalt meiri verðmæti til lengri tíma.
    Nýsköpun er samkvæmt alþjóðlegum mælikvörðum ein arðbærasta fjárfesting ríkja. Því er bæði faglegt og eðlilegt að fjárheimildir á málefnasviði 07 verði endurskoðaðar með það að markmiði að styðja við heildrænt vistkerfi nýsköpunar, efla hugmyndavinnu, byggja upp nýja innviði og virkja samstarf ríkis og einkaaðila í uppbyggilegum þróunar- og samvinnuverkefnum (e. PPP). Slíkt tryggir að Ísland byggi upp nýsköpunarstyrk sem nær út fyrir einstaklingsframtak og verður burðarstoð framtíðarhagvaxtar og samfélagslegrar velsældar.

08 Sveitarfélög og byggðamál.
    Markmið málefnasviðsins og framsettar áherslur á þessu málefnasviði eru í meginatriðum réttmæt og endurspegla mikilvæga stefnu um öflug sveitarfélög, lýðræði og jafnan aðgang íbúa að þjónustu. Þrátt fyrir það eru þau tiltölulega matskennd, óafmörkuð og skortir skýra stefnumarkandi dýpt. Verkefnin eru sett fram sem almennar áætlanir án mælanlegra viðmiða, tímasetninga eða forgangsröðunar, sem gerir erfitt að fylgja þeim eftir eða leggja mat á árangur.
    Endurskoðun regluverks um reikningsskil, úthlutun Jöfnunarsjóðs og stefnu fyrir málaflokk sveitarfélaga eru stór og veigamikil verkefni, en þau eru kynnt án þess að tilgreint sé hvað á að breytast, hvers vegna og með hvaða aðferðum. Markmiðin taka heldur ekki skýrt á þeim kerfisbundnu áskorunum sem sveitarfélög standa frammi fyrir, svo sem breytilegum tekjugrunni, auknu þjónustuálagi, ólíkri rekstrargetu og vaxandi mismun í því ljósi á milli sveitarfélaga.
    Þá eru markmið um lýðræðisþátttöku sett fram á mjög opinn hátt, án greiningar á raunverulegum hindrunum eða aðgerðum sem gætu haft áhrif á kosningaþátttöku. Sama á við um einföldun regluverks, sem er skilgreind sem markmið án þess að nefnd séu þau svið sem kalla mest á breytingar eða hvaða árangri á að ná.
    Í heild er ljóst að markmiðin eru fremur viljayfirlýsingar en stefnutæki, þrátt fyrir að þau vísi réttilega til mikilvægra sjónarmiða. Til að styrkja þau þyrfti að skýra forgangsröðun, afmarka umfang verkefna og skilgreina mælanleg viðmið sem gera stjórnvöldum, sveitarfélögum og almenningi kleift að meta hvort markmiðum sé í raun náð.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum málefnasviðsins.
Markmið 1: Að tryggja að sveitarfélög starfi á traustum fjárhagslegum grunni með ábyrgri fjármálastjórn, skýrum reglum og sjálfbærum rekstri til lengri tíma.
    Hugsunin að baki markmiðinu er að sveitarfélög geti ekki sinnt lögbundnum verkefnum né stuðlað að heilbrigðri samfélagsþróun nema fjárhagur þeirra sé stöðugur og sjálfbær. Sjálfbær fjármálastjórn dregur úr sveiflum, bætir áætlanagerð og tryggir að sveitarfélög hafi burði til að byggja innviði, halda uppi þjónustu og takast á við efnahagsleg og samfélagsleg áföll. Með þessu er lagður grunnur að styrkara sveitarstjórnarstigi og meiri sjálfstjórn.

Markmið 2: Að sveitarfélög móti stefnu og ákvarðanir í samræmi við sjálfbæra þróun þannig að fjármál, samfélagsleg velferð og umhverfisvernd fari saman.
    Markmiðið byggist á þeirri sýn að sveitarfélög þurfi að taka mið af langtímaáhrifum allra framkvæmda og ákvarðana. Sjálfbærni er ekki þröngt umhverfishugtak heldur samþætt nálgun sem felur í sér ábyrg fjármál, sanngjarna þjónustu við íbúa og ábyrga meðferð náttúruauðlinda. Með þessu er stefnt að því að efla seiglu og viðnámsþol sveitarfélaga, tryggja jafnvægi milli kynslóða og styðja við heilbrigða byggðaþróun. Mikilvægt er að hafa í huga að mælikvarðar um hagsæld hafa tekið breytingum undanfarin ár og er meiri áhersla en áður á heildstæða hugsun framfara og velsældar.

Markmið 3: Að styrkja rekstrarumgjörð og þjónustu sveitarfélaga þannig að þau verði eftirsóknarverður vettvangur fyrir íbúa, fyrirtæki og fjárfestingar og geti haft frumkvæði að nýsköpun og framþróun.
    Hér er áherslan á að sveitarfélög séu ekki aðeins stjórnsýslueiningar heldur einnig drifkraftar í staðbundinni þróun. Samkeppnishæfni byggist á skilvirkri þjónustu, góðum innviðum, skýru regluverki og sterkri stjórnsýslu. Hugmyndin er að sveitarfélög sem bjóða upp á skilvirkar lausnir og betri þjónustu verði aðlaðandi fyrir íbúa og atvinnulíf, sem aftur styrkir tekjugrunn og eykur framleiðni. Framþróun sveitarfélaga er þannig lykilþáttur í heildarvexti samfélagsins.

Markmið 4: Að efla lýðræðislega þátttöku á sveitarstjórnarstigi með aukinni aðkomu íbúa, bættri upplýsingagjöf og fjölbreyttum þátttökuleiðum í fjölbreyttri starfsemi sveitarfélaga.
    Markmiðið endurspeglar mikilvægi þess að sveitarfélög séu vettvangur þar sem íbúar hafa raunveruleg áhrif á ákvarðanir sem snerta daglegt líf þeirra. Með öflugri þátttöku eykst traust, ákvarðanataka verður betri og sveitarfélagið verður samheldnara. Aukin lýðræðisþátttaka felur einnig í sér að íbúar fái skýrar upplýsingar og raunhæfa möguleika til að taka þátt, bæði í kosningum og í daglegu samstarfi við sveitarfélagið.

Markmið 5: Heildstæð og samræmd áætlanagerð ríkis og sveitarfélaga til lengri tíma.
    Markmiðið byggist á þeirri hugmyndafræði að sveitarfélög þurfi skýrari langtímasýn um fjármögnun verkefna, traustari rekstrargrunn og eftir atvikum samhæfðari fjármálastjórn til að geta sinnt lögbundnum verkefnum og veitt íbúum skilvirka gæðaþjónustu. Eðlilegt er að Alþingi taki af skarið að frumkvæði sitjandi ríkisstjórnar um bætta áætlanagerð hins opinbera. Bæði er slíkt í samræmi við kröfur laga um opinber fjármál og jafnframt er mikilvægt að hagstjórnin taki ávallt tillit til stöðu og aðgerða ríkis og sveitarfélaga almennt.
    Tilgangur slíks markmiðs er að tryggja að fjármunir hins opinbera nýtist með skilvirkum hætti, að sveitarfélög hafi burði til að standa undir rekstri og fjárfestingum, ekki bara til styttri tíma heldur a.m.k. til tveggja til þriggja ára í senn, og að áætlanagerð á öllum stigum hins opinbera sé samræmd, gagnsæ og byggð á raunhæfum forsendum. Með bættri og samræmdari langtímaáætlun opinberra fjármála má draga úr sveiflum, bæta stöðu minni sveitarfélaga og tryggja að opinber fjárfesting skili ávinningi til íbúa um land allt.
    Rétt er að árétta að margt hefur áunnist í áætlanagerð ríkis og sveitarfélaga síðustu ár. Tilgangur endurskoðaðra markmiða er einfaldlega að setja markið hærra og tryggja betur en áður stöðu sveitarfélaga og þróun byggðamála.
    Þannig hefur mikið áunnist í kjölfar setningar laga um opinber fjármál varðandi samhæfingu markmiða um afkomu ríkis og sveitarfélaga og áhrif þeirra á hagstjórn. Þó virðist bera á afturför, þ.e. að of mikil áhersla sé lögð á þátt ríkisins að þessu leyti. Horfa verður til þess að velferð landsmanna er að miklu leyti háð þjónustu sveitarfélaga og rekstrargrundvöllur margra sveitarfélaga er tiltölulega veikur.
    Loks þarf að taka sérstaklega á málefnum sem varða tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Í því samhengi þarf að tryggja að markvisst áhrifamat komi fram í öllum lagafrumvörpum og að ávallt sé tekið tillit til þess ef aukinn kostnaður vegna þeirra fellur á sveitarfélög. Þá þarf jafnframt að meta hvort ekki sé eðlilegt að afnema greiðslu virðisaukaskatts af innviðaframkvæmdum sveitarfélaga til að efla fjárhagslegan stöðugleika og sjálfbærni.

08.20 Byggðamál.
    Gildandi markmið fyrir málaflokkinn 08.20 Byggðamál fela í sér mikilvægar áherslur um jöfnun þjónustu, fjölbreytt atvinnutækifæri og sjálfbæra þróun byggða. Verkefnin sem vísað er til eru þó þegar hluti af hefðbundnu starfi ráðuneyta, Byggðastofnunar og ýmissa landshlutasamtaka og mynda því ekki nægilega sterkan stefnumarkandi ramma um það hvaða breytingum ná eigi fram. Rétt er að hafa í huga að framlög til byggðamála lækka um 12% í þessum fjárlögum sem fellur ekki nægilega vel að markmiðum málefnasviðsins og fer ekki saman við yfirlýsingar hlutaðeigandi ráðherra um eflingu landsbyggðarinnar.
    Markmiðið um að „jafna aðgengi að þjónustu“, sem er vissulega réttmætt markmið, er sett fram með því að vísa einkum til stuðnings við dagvöruverslanir og greiningu á þjónustusókn en lýsir ekki þeirri stefnu að tryggja raunverulegt þjónustustig í byggðarlögum né því hvaða breytingar verða að eiga sér stað. Jöfn þjónusta felur ekki aðeins í sér aðgengi að dagvöru eða heilbrigðisþjónustu heldur einnig tilvist og nálægð opinberrar stjórnsýslu og ríkisþjónustu. Hér má nefna að fækkun eða sameining sýslumannsembætta og annarrar ríkisþjónustu veikir óhjákvæmilega mikilvægt þjónustustig í dreifðum byggðum og vinnur því einmitt gegn markmiðum stjórnvalda um jafnan aðgang og viðhald þjónustukjarna. Slíkar breytingar hafa m.a. áhrif á ferðakostnað, auka með óæskilegum hætti þann tíma sem verja þarf í samgöngur og takmarka einfaldlega aðgengi að mikilvægri stjórnsýsluþjónustu. Þannig geta þær dregið úr búsetugæðum og uppbyggingu einstakra byggðarlaga.
    Markmið um að „jafna tækifæri til atvinnu“ er einnig óafmarkað. Það er mikilvægt að fjölga störfum og efla fjölbreytni atvinnulífs en markmiðið er framsett sem viljayfirlýsing frekar en raunverulegt árangursmarkmið. Atvinnuuppbygging krefst markvissrar aðgerða- og fjárfestingarstefnu og skýrra ákvarðana um hver beri ábyrgð á því að skapa ný tækifæri á landsbyggðinni. Sama gildir um markmið um „sjálfbæra þróun byggða“, sem er vissulega mikilvægt en jafnframt óljóst og án forgangsröðunar.
    Í ljósi þess að ýmsar byggðir standa víða frammi fyrir fólksfækkun, mismunandi aðgengi að orku, ójafnri þjónustu, brotthvarfi opinberrar þjónustu, auknum rekstrarkostnaði og áskorunum sem tengjast loftslagsbreytingum þarf markmiðasetning málaflokksins að vera bæði skýrari og betur sniðin að aðstæðum hvers svæðis. Ekki síst þarf að taka tillit til þess að byggðir landsins eru ekki einsleitar. Sum byggðarlög hafa tekið stökk í atvinnuuppbyggingu á undanförnum árum á meðan önnur glíma við takmarkaðan vöxt og viðvarandi fábreytni í atvinnuháttum.
    Loks ber að árétta mikilvægi þess að við fjárlagagerð og raunar alla áætlanagerð og ákvarðanir stjórnvalda sem áhrif hafa á landsbyggðina fari fram mat á áhrifum á byggðir landsins. Með það í huga lagði þingflokkur Framsóknarflokksins fram á haustþingi tillögu til þingsályktunar sem fól í sér að Alþingi myndi fela forsætisráðherra, í samvinnu við innviðaráðherra og aðra hlutaðeigandi ráðherra, að innleiða landsbyggðarmat sem lögbundna og skyldubundna aðferð við undirbúning frumvarpa, reglugerða og stærri stefnumótunar- og fjárfestingaráætlana ríkisins.
    Með hliðsjón af því sem að framan greinir er lagt til að markmið málaflokksins verði skýrari og byggist á raunverulegum árangri sem stefnt er að.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum innan málaflokksins.
Markmið 1: Jafnt og tryggt aðgengi íbúa að grunnþjónustu í öllum byggðarlögum.
    Markmiðið er að tryggja að íbúar um allt land hafi raunhæfan aðgang að grunn- og stjórnsýsluþjónustu, svo sem dagvöru, heilsugæslu, fjarskiptum, samgöngum og opinberri þjónustu ríkisins. Með þessu er lögð áhersla á að draga úr þjónustusókn utan heimabyggðar, viðhalda þjónustukjörnum og forðast aðgerðir, svo sem sameiningu sýslumannsembætta og niðurlagningu staðbundinnar ríkisþjónustu, sem óhjákvæmilega veikja þjónustu í dreifðum byggðum.

Markmið 2: Öflug og fjölbreytt atvinnutækifæri í öllum landshlutum.
    Markmiðið er að efla sjálfbært og fjölbreytt atvinnulíf, til að mynda með vinnustaðaklösum, óstaðbundnum störfum, stafrænum lausnum og atvinnustefnu sem byggist á sérstöðu hvers landshluta. Með þessu er stefnt að því að byggðarlög geti boðið raunhæf störf, laðað til sín ungt fólk og styrkt svæðisbundna verðmætasköpun.
    Mikilvægt er að mótun atvinnustefnu taki sérstaklega mið af landsbyggðinni í því samhengi og tengi með heildstæðum hætti saman sjónarmið um grunnþjónustu, menntun, heilbrigði, innviði og atvinnutækifæri.

Markmið 3: Að efla aðdráttarafl byggða fyrir ungt fólk, frumkvöðla og nýjar hugmyndir.
    Markmiðið er að skapa skilyrði sem gera ungu fólki kleift að byggja upp framtíð sína á landsbyggðinni og veita frumkvöðlum stuðning og rými til að þróa ný verkefni, m.a. með verkefnum á borð við Nýjar rætur, sbr. þingsályktunartillögu þingflokks Framsóknarflokksins þess efnis um stuðning við jarðakaup frumkvöðla á landsbyggðinni. Meginhugmyndin þar að baki felst í að kaupréttur að landi verði grunnur aukinnar verðmætasköpunar og náttúruverndar. Hugmyndin byggist á því að ríkissjóður, í gegnum Byggðastofnun eða aðra viðeigandi stofnun, geti gengið inn í samþykkt kauptilboð einstaklinga, og eftir atvikum lögaðila, í jörð eða hluta jarðar. Landið verði keypt á markaðsforsendum og leigt viðkomandi til allt að fimm ára með kauprétti að þeim tíma liðnum, að uppfylltum skýrum skilyrðum. Um hugmyndina er einnig fjallað í umfjöllun um málefnasvið 07 og 12.
    Á meðan kauprétturinn er ekki nýttur reynir viðkomandi frumkvöðull að byggja upp verðmæti, þróa framleiðslu og styrkja fjárhag sinn. Fari svo að framleiðslan eða hið nýja fyrirtæki skili arði eru meiri líkur en minni á að aðilinn geti nýtt kauprétt sinn og fest kaup á landinu, þó án skuldbindingar þess efnis.
    Slíkt fyrirkomulag leiðréttir augljósan markaðsbrest og fjármagnshindranir sem frumkvöðlar standa frammi fyrir þegar þeir reyna að hefja sjálfbæra landnýtingu eða matvælaframleiðslu. Jafnframt er gert ráð fyrir sveigjanleika í eignarhaldi, t.d. með kauprétti að hluta jarðar, þar sem það á við, sérstaklega í tilvikum sem tengjast skógrækt, sem skilar arði á lengri tíma en hefðbundinn landbúnaður.
    Þetta er aðeins eitt dæmi um verkefni sem gæti stutt við markmið um aukið aðdráttarafl byggða fyrir ungt fólk og frumkvöðla.
    Samhliða hugmyndum á borð við Nýjar rætur felur markmið málaflokksins í sér áherslu á húsnæðismál, markvissa atvinnusköpun og samfélagsinnviði sem gera byggðir að raunhæfum valkosti.

Markmið 4: Að koma á fót sveigjanlegum nýsköpunar- og tilraunasjóði landsbyggðarinnar.
    Markmiðið er að gera einstaklingum í ólíkum byggðarlögum kleift að þróa nýjar hugmyndir og tilraunaverkefni á grunni lítilla og stærri styrkja sem stuðla að skapandi lausnum, nýjum atvinnugreinum og samfélagsverkefnum. Slíkur sjóður myndi bæta upp skort á áhættufjármagni í dreifðum byggðum og væri því í raun eins konar félagsleg upphafsfjármögnun hugmynda, nokkurs konar hugmyndasjóður.
    Í því ljósi er hugmyndin að komið verði á fót sérstökum nýsköpunarsjóði landsbyggðarinnar sem veiti smærri styrki, að jafnaði 500.000–1.500.000 kr., til einstaklinga og teymisverkefna á frumstigi. Um hugmyndina er einnig fjallað í umfjöllun um málefnasvið 07. Markmið sjóðsins væri að tryggja að hugmyndir komist á blað, að frumkvöðlar geti tekið fyrstu skref hugmyndavinnu og að fyllt verði upp í það tómarúm sem nú er á framboði styrkja og framlaga frá fjárfestum á allra fyrstu stigum nýsköpunar. Þessi fjármögnun er oft óaðgengileg í dreifðum byggðum þar sem englafjárfestar og einkafjárfestar eru fáir, eða hafa takmarkað fjármagn, og hefðbundnir sjóðir hafa að jafnaði skýrari kröfur en frumstig hugmynda geta uppfyllt.
    Sjóðurinn myndi þannig gegna hlutverki sem forstig svokallaðrar englafjármögnunar og gera frumkvöðlum kleift að þróa lausnir, gera grunnprófanir og vinna frumrannsóknir áður en umfangsmeiri fjármögnun eða formleg viðskiptaáætlun liggur fyrir. Með þessu væri lagður grunnur að virku hugmyndaflæði í litlum samfélögum og skapað traust sem getur síðar leitt til samstarfs við stærri sjóði og atvinnulíf.
    Jafnframt er ástæða til að kanna hvort endurhugsa þurfi hvata, verklag og stuðningskerfi nýsköpunar á Íslandi í heild sinni. Sjóðir á borð við Kríu eru afar mikilvægir og til fyrirmyndar. Ekki er ætlunin að draga úr mikilvægi slíks starfs. Aftur á móti er rétt að skoða hvort heildarferli styrkja og stuðnings við nýsköpun geti verið einfaldara, sveigjanlegra og betur sniðið að ólíkum þörfum frumkvöðla á mismunandi stigum.
    Nýsköpunarsjóður landsbyggðarinnar er aðeins eitt dæmi um viðbót við núverandi vistkerfi nýsköpunar og byggðaþróunar. Hann hefur skýrt afmarkað hlutverk; að virkja nýjar hugmyndir, draga úr byrjunarhópum og skapa raunveruleg tækifæri til verðmætasköpunar í ólíkum byggðarlögum landsins.

Markmið 5: Sjálfbær og viðnámsþolin byggð í ljósi loftslags- og samfélagsbreytinga.
    Markmiðið er að styrkja skipulag og innviði byggða þannig að þær geti tekist á við náttúruvá, loftslagsáhrif, orkuskipti og aðrar samfélagsbreytingar. Með því verði byggðir betur undirbúnar fyrir framtíðaráskoranir og geti staðið á traustum grunni til lengri tíma.
    Með þessum endurbættu markmiðum yrði byggðastefna skýrari, markvissari og betur í stakk búin til að takast á við áskoranir nútímans, þ.m.t. að tryggja að nauðsynleg þjónusta og opinber viðvera ríkisins sé ekki gerð veikari á þeim stöðum þar sem hún skiptir byggðarlögin mestu máli.
    Samhliða fyrrgreindum markmiðum þyrfti að endurhugsa gildandi byggðaáætlun, m.a. með hliðsjón af stóraukinni áherslu á þátt gervigreindar í öllum atvinnuháttum og samfélagsþjónustu byggðarlaga.

Áhrif nýrra markmiða á fjárheimildir.
    Markmiðin sem hér eru lögð fram í dæmaskyni kalla ekki beint á aukna fjárheimild til málaflokksins. Þó ber að nefna að gert er ráð fyrir að fjárheimild málefnasviðs 07 um nýsköpun, rannsóknir og þekkingargreinar hækki um 150 m.kr., m.a. vegna stofnunar nýs nýsköpunarsjóðs eða samsvarandi þjóðarátaks í nýsköpun árið 2026.
    Tillaga um hækkun á fjárheimild málefnasviðsins byggist á nýju vistkerfi nýsköpunar, byggðatengdum stuðningi og þátttöku ríkisins í þróunarverkefnum (PPP), m.a. á landsbyggðinni í verkefnum á borð við Nýjar rætur. Slíkar aðgerðir verða hvorki markvissar né trúverðugar nema fjárheimildir endurspegli raunverulegt umfang verkefnanna.
    Jafnframt er rétt að taka fram að eðlilegt er að vísa til verkefna og fjármögnunar þeirra á fleiri en einu málefnasviði til að tryggja faglega nálgun. Þannig fellur stofnun nýs nýsköpunarsjóðs og tilraunaverkefni eins og Nýjar rætur vel að tveimur málefnasviðum, annars vegar málefnasviði 07, þar sem fjármögnun verkefnanna er tryggð, og hins vegar málefnasviði 08, sem nýtir sjóðinn sem tæki til aukinnar byggðaþróunar og byggðafestu.

09 Almanna- og réttaröryggi.
    Gildandi markmið í málaflokknum um löggæslu og almannaöryggi endurspegla mikilvægar áherslur stjórnvalda um að efla þjónustu lögreglu og tryggja öryggi almennings.
    Markmið um að tryggja „besta mögulega þjónustustig“ byggist fyrst og fremst á fjölgun lögreglumanna og útgáfu löggæsluáætlunar. Eru það að sjálfsögðu mikilvægar aðgerðir en skýra þær ekki hver hinn raunverulegi árangur eigi að vera. Ekki er fjallað um landfræðilega dreifingu lögreglu, viðbragðstíma, samhæfingu milli lögregluembætta eða endurnýjun búnaðar og lagaumhverfis. Á sama tíma er umfang markmiðsins að nokkru of vítt og jafnvel óljóst, enda er ekki skilgreint hvað telst „besta þjónustustig“ eða með hvaða hætti ríkið ætlar að tryggja jafnt þjónustustig milli landshluta.
    Markmið um að tryggja „hæsta mögulega öryggisstig“ er sett fram með upptalningu á fjölbreyttum verkefnum, svo sem uppbyggingu brottfararstöðvar, eflingu almannavarna, rafrænu eftirliti vegna nálgunarbanns, landsáætlun gegn kynbundnu ofbeldi og aðgerðum gegn skipulagðri brotastarfsemi. Þrátt fyrir að öll þessi verkefni séu mikilvæg og brýn endurspegla þau fremur framkvæmd einstakra stofnana en stefnumörkun um lokaniðurstöðu eða árangur. Markmiðið er að því leytinu til of matskennt og tekur ekki afstöðu til þess hvaða öryggisbrot á að laga, hvaða ógnir eru í forgangi eða hvernig á að meta bætt öryggisstig þegar verkefnunum lýkur.
    Heildstætt mat á markmiðunum leiðir því í ljós að þau lýsa jákvæðum og mikilvægum vilja til úrbóta en fanga ekki nægilega vel þær kerfislægu áskoranir sem löggæsla og almannaöryggi stendur frammi fyrir. Löggæslan glímir bæði við mönnunarvanda, aukna skipulagða brotastarfsemi, nýjar stafrænar ógnir, breytt þjónustuálag milli landshluta og aukna þörf fyrir sérhæfða viðbragðsgetu í ljósi ferðamannafjölda, náttúruvár og samfélagsbreytinga. Gildandi markmið gera ekki ráð fyrir þessum áskorunum og skortir samræmda framtíðarsýn um það hvernig löggæsla á Íslandi eigi að þróast til að mæta þeim.
    Rétt er að taka fram að eins og gildir um önnur málefnasvið eru til staðar ýmsar áætlanir og aðgerðir sem varða þróun löggæslu á Íslandi en mikilvægt er að í frumvarpi til fjárlaga, sem leggur grunn að fjárheimildum til málefnasviða og málaflokka á borð við löggæslu, sé fjallað um hvernig fjármagni verði ráðstafað til að ná árangri á sviði almannavarna.
    Með skýrari markmiðasetningu sem lýsir því hvaða breytingar eigi að gera til að ná fram t.d. betri viðbragðstíma, tryggara aðgengi að löggæslu um allt land, sterkari lagaumgjörð almannavarna, bættu öryggi einstaklinga sem verða fyrir ofbeldi og markvissari viðbrögðum við skipulagðri brotastarfsemi væri unnt að byggja upp árangursmiðaða stefnu sem auðveldara væri fyrir Alþingi, ráðuneyti og stofnanir að framkvæma og meta.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum innan málaflokksins.
    Með hliðsjón af stöðu löggæslu, almannavarna og samfélagsöryggis er lagt til að sett verði skýrari og afmarkaðri markmið fyrir málaflokkinn. Ný markmið taka mið af breyttum aðstæðum í samfélaginu, fjölþættum verkefnum lögreglu, aukinni skipulagðri brotastarfsemi, hraðari samfélagsbreytingum og þörfinni fyrir öflugt viðnámsþol gagnvart áföllum og óvæntum atburðum. Í því samhengi þarf að leggja áherslu á að lýsa þeim árangri sem stefnt er að í stað þess að telja upp einstök verkefni.

Markmið 1: Tryggja að almenningur um allt land njóti skilvirkrar og öflugrar löggæslu með eflingu mönnunar, bættum viðbragðstíma og fyrirsjáanlegu þjónustustigi sem tryggir jafnt öryggi óháð búsetu.
    Í fyrsta lagi er hlutverk lögreglunnar samkvæmt 1. gr. lögreglulaga, nr. 90/1996, og þar með markmið starfseminnar, að vernda samfélagið, tryggja öryggi borgaranna og framfylgja lögum. Lögregla heldur uppi allsherjarreglu, vinnur gegn afbrotum og kemur í veg fyrir háttsemi sem ógnar einstaklingum eða ríkinu. Lögreglan rannsakar og upplýsir brot og fylgir málum eftir samkvæmt reglum sakamálaréttarfars. Hún veitir almenningi aðstoð þegar hætta skapast og styður stjórnvöld við framkvæmd lagalegra og stjórnsýslulegra verkefna. Jafnframt starfar hún í nánu samstarfi við aðrar stofnanir sem sinna tengdum verkefnum og tekur að sér önnur þau hlutverk sem ákveðin eru í lögum eða hafa mótast af langri hefð.
    Í þessu samhengi þarf skipulag lögreglu að miðast við að tryggja jafna og fyrirsjáanlega þjónustu um allt land. Þar undir fellur að efla daglega löggæslu í nærumhverfi íbúa, bæta viðbragðstíma, tryggja mönnun á landsbyggðinni og verja enn fremur þá þjónustu sem almenningur treystir á í daglegu lífi. Í þessu ljósi er það grundvallarmarkmið málaflokksins að tryggja að óháð búsetu búi fólk við sama grunnöryggi og hafi greiðan aðgang að lögreglu og þjónustu hennar þegar þess er þörf.

Markmið 2: Tryggja samhæfða löggæslu og virkt og gegnsætt samstarf lögregluembætta.
    Í öðru lagi þarf að leggja áherslu á að starfsemi lögregluembætta sé ávallt samræmd eins og kostur er og byggist á traustum og samræmdum innviðum í starfsemi hennar. Allir þættir almannavarna þurfa ávallt að vera samræmdir og almenningur verður að geta borið traust til þeirra og gildir þá einu um hvaða lögregluembætti sé að ræða.

Markmið 3: Aukið öryggi einstaklinga og bætt vernd gegn ofbeldi og alvarlegum brotum.
    Markmiðið er að efla vernd og réttarstöðu einstaklinga sem standa höllum fæti með bættum viðbragðsferlum, samræmdri landsáætlun gegn kynbundnu ofbeldi, rafrænu eftirliti og skilvirkri framkvæmd nálgunarbanns og heimilisbrottvísunar.
    Mikilvægt er að efla vernd einstaklinga gegn ofbeldi og alvarlegum brotum. Markmið málaflokksins þarf að endurspegla þá samfélagslegu skyldu að tryggja öryggi þeirra sem standa höllum fæti, þar á meðal þolenda kynbundins ofbeldis, heimilisbrota og endurtekinna brota. Með bættri réttarvernd, áhrifaríkum viðbragðsferlum, rafrænu eftirliti og samræmdri landsáætlun gegn kynbundnu ofbeldi er stefnt að því að efla fyrirbyggjandi starf og tryggja öryggi og réttindi þeirra sem þurfa mest á vernd að halda.

Markmið 4: Öflug og markviss barátta gegn skipulagðri brotastarfsemi.
    Styrkja skal getu löggæslu og stjórnvalda til að sporna við skipulagðri brotastarfsemi með samræmdum aðgerðum, öruggri miðlun upplýsinga, samstarfi stofnana og skýrum lagaheimildum til upptöku ólögmæts fjárhagslegs ávinnings.
    Í fjórða lagi þarf markmið málaflokksins að endurspegla þær breytingar sem orðið hafa í alþjóðlegu umhverfi og baráttunni gegn skipulagðri brotastarfsemi. Ísland stendur frammi fyrir auknum áskorunum á sviði skipulagðra brota, fíkniefnasölu, fjársvika, peningamála og netglæpa. Því er mikilvægt að markmið málaflokksins sé að efla rannsóknargetu, styrkja öflun upplýsinga, bæta samvinnu milli stofnana og tryggja áhrifaríkar lagaheimildir til upptöku á ólögmætum fjárhagslegum ávinningi af brotum. Með því verður hægt að vinna skipulega gegn þeim brotakerfum sem grafa undan öryggi og trausti í samfélaginu.

Markmið 5: Stafræn og tæknileg hæfni löggæslunnar efld í þágu öryggis.
    Byggja þarf upp örugga og nútímalega tæknilega innviði, stafræna getu og netöryggi löggæslu þannig að hún geti brugðist við stafrænum ógnum, netglæpum og flóknu ógnarumhverfi samtímans.
    Markmið málaflokksins verður að taka mið af þeirri staðreynd að öryggi samfélagsins byggist sífellt meira á tækni og stafrænum innviðum. Í því ljósi þarf að styrkja stafræna hæfni löggæslu og tryggja örugga og nútímalega upplýsingatækni sem styður bæði við dagleg verkefni lögreglu og viðbragðsgetu stofnana gagnvart margvíslegum stafrænum ógnum, sem verða æ flóknari.
    Með þessum endurbættu markmiðum fæst heildstæðari og markvissari stefna fyrir löggæslu og almannaöryggi. Markmiðin fela í sér framtíðarsýn um öruggt samfélag þar sem öll þjónusta löggæslu er samræmd, aðgengileg og fagleg, almannavarnir byggjast á sterkum innviðum og nútímalegri lagaumgjörð, einstaklingar njóta aukinnar verndar gegn ofbeldi, skipulagðri brotastarfsemi er mætt með skýrum og virkum aðgerðum og löggæsla býr yfir þeirri tæknilegu getu sem þarf til að mæta áskorunum samtímans.

Markmið 6: Samfélagslöggæsla verði virk og nærri íbúum um allt land.
    Mikilvægt er að tryggja virka samfélagslöggæslu um land allt og að hún verði hluti af öflugra öryggisumhverfi þar sem lögregla hefur skýrt hlutverk í forvörnum og samstarfi og nærveru í samfélaginu. Samfélagslöggæsla stuðlar að trausti og öryggi og endurspeglar mikilvægi þess að löggæsla sé aðgengileg og tengd daglegu lífi íbúa óháð búsetu.

Markmið 7: Löggæsla hafi skýrar og viðeigandi lagaheimildir, þ.m.t. forvirkar lagaheimildir, til að bregðast við skipulagðri brotastarfsemi og öryggisógnum.
    Markmiðið endurspeglar að öryggisumhverfi nútímans krefst endurskoðaðrar lagaumgjörðar löggæslu og víðtækari heimilda, svo sem forvirkra heimilda, til að tryggja vernd borgaranna. Tryggja verður þó ávallt að jafnvægi ríki á milli öryggissjónarmiða og réttarríkisins og að Ísland fylgi alþjóðlegum viðmiðum um lagaheimildir og vernd borgaralegra réttinda.

Áhrif á fjárheimildir málaflokksins.
    Markmið málaflokksins um öfluga og markvissa baráttu gegn skipulagðri brotastarfsemi og eflingu stafrænnar og tæknilegrar hæfni löggæslunnar kallar á hækkun fjárheimilda, nánari greiningu og forgangsröðun. Breytt alþjóðlegt öryggisumhverfi og aukin skipulögð brotastarfsemi á sviði fíkniefnaviðskipta, peningaþvættis, fjársvika og netglæpa gerir það að verkum að íslensk stjórnvöld þurfa að ráðast í mun umfangsmeiri uppbyggingu rannsóknargetu, upplýsingasöfnunar, greiningar og þverfaglegrar samvinnu en áður. Slík uppbygging krefst fjárfestinga í sérhæfðum greiningartólum, stafrænum varnarlínum, upplýsingakerfum, öflugri netöryggisverkfærum, markvissri þjálfun og aðstöðu til tæknilegra rannsókna.
    Þá er nauðsynlegt að tryggja lögreglu og öðrum viðkomandi stofnunum skýrar heimildir, nútímalega vinnslugetu og örugga upplýsingamiðlun, sem aðeins er hægt að framfylgja með sérstöku fjármagni og tæknilegri innviðauppbyggingu. Aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi og netglæpum eru því ekki framkvæmanlegar innan óbreyttra fjárheimilda. Þær gera bæði stjórnarskrárlega og samfélagslega kröfu um aukið fjármagn til að verja öryggi borgaranna, tryggja traust á réttarkerfinu og bregðast við flóknu brotaumhverfi samtímans með fagmennsku og árangri.

09.20 Landhelgisgæsla.
    Til að tryggja öflugt öryggi í íslenskri lögsögu og viðhalda áreiðanlegri leit- og björgunargetu er lagt til að markmið málaflokksins verði skýrari, mælanlegri og bundin við þann árangur sem á að ná á árinu 2026 og fram í tímann. Þrátt fyrir að gildandi markmið séu á margan hátt lýsandi og metnaðarfull þá lýsa þau ekki því þjónustu- og öryggisstigi sem æskilegt er að stefna að.

Almennt um núgildandi markmið.
Markmið 1: Tryggja öryggi og eftirlit í auðlindalögsögu Íslands.
    Markmiðið er efnislega rétt, en það er tiltölulega vítt og óskilgreint. Tengd aðgerð vísar réttilega í styrkingu starfsemi Landhelgisgæslunnar en tekur ekki fram hvaða þætti á að styrkja, svo sem mönnun, búnað, viðhald eða viðbragðsgetu. Það verður erfitt að meta árangur án mælanlegra viðmiða (t.d. fjölda eftirlitsferða, viðbragðstíma, framboð áhafna).

Markmið 2: Besti mögulegi viðbúnaður í leit og björgun.
    Markmiðið tengist réttilega áherslu á leigu á þremur björgunarþyrlum. Það er þó ófullnægjandi þar sem leiga á þyrlum tryggir ekki sjálfkrafa fulla og samfellda viðbragðsgetu, ekkert er fjallað um mönnun, viðhaldsstöðu, fjarskiptakerfi, varalið, eða sjálfbæra fjármögnun, og markmiðið er bundið við verkefni (samkomulag um leigu) en ekki við ástand eða getu.
    Þetta eru því tiltölulega veik markmið fyrir mikilvægt öryggismál þótt ýmislegt megi styðja hvað varðar efni þeirra.
    Jafnframt skal hafa í huga að Landhelgisgæslan hefur yfir að ráða tveimur varðskipum en einungis er mögulegt að vera með eitt skip úti við eftirlit hverju sinni vegna fjárhagsskorts. Þá hefur Landhelgisgæslan eina flugvél til umráða sem erfiðlega hefur gengið að nýta. Ekki er til staðar þyrluáhöfn á Akureyri og varðskip Gæslunnar kaupa olíu í Færeyjum því það er ódýrara en hér. Allt bendir þetta til þess að málaflokkurinn sé vanfjármagnaður.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum málaflokksins.
Markmið 1: Efla viðbúnaðar- og eftirlitsgetu Landhelgisgæslunnar í efnahagslögsögu Íslands þannig að öryggi sjófarenda, fiskiskipa og innviða verði tryggt allan ársins hring.
    Markmiðið felur í sér ákall um að auka útivistartíma flota Landhelgisgæslunnar, stytta viðbragðstíma við atvikum á sjó og tryggja reglubundna og áreiðanlega framkvæmd sjó- og loftrýmisgæslu.
    Þá er æskilegt að leit og eftirlit með fiskveiðum og öðru eftirliti sé samræmt og birt með reglulegum hætti þannig að eftirlitsáætlanir Landhelgisgæslunnar byggist á mælanlegum og gagnsæjum viðmiðum. Með þessu verður rekstraröryggi og fyrirsjáanleiki aukinn og tryggt að Landhelgisgæslan geti sinnt lykilhlutverki sínu á öllum svæðum íslenskrar lögsögu.

Markmið 2: Tryggja samfellda og fullburða leitar- og björgunargetu um allt land með stöðugt tiltækum og fullmönnuðum björgunarþyrlum, búnaði sem ávallt er viðhaldið á hæsta gæðastigi, og samræmdri björgunarstjórn.
    Þetta markmið felur í sér að þjónusta þyrlnanna, viðhald og varaforði verði tryggð þannig að þær séu tiltækar allan ársins hring og að viðbragðstímar í sjóbjörgun, sjúkraflugi og við náttúruvá verði skilgreindir og náist samkvæmt fyrir fram settum þjónustuviðmiðum. Þar með er leitast við að tryggja að alvarleg atvik verði afgreidd á skjótan hátt og af fagmennsku og að björgunargeta landsins sé örugg og samræmd óháð því hvar á landinu þörfin kemur upp. Ljóst er að mönnun og starfsmannatengd málefni spila hér lykilhlutverk.

Áhrif nýrra markmiða á fjárheimildir.
    Til að framfylgja framangreindum markmiðum og tryggja bæði aukinn útivistartíma flota Landhelgisgæslunnar og samfellda viðbragðsgetu björgunarþyrlna, er nauðsynlegt að auka fjárheimildir málaflokksins. Ekki er þó gerð tillaga um slíka aukningu þar sem frekari greining á fjárþörf er nauðsynleg.
    Áherslan fælist einkum í styrkingu mönnunar, varaforða og viðhaldsgetu, ásamt því að stuðla að reglubundinni og áreiðanlegri sjó- og loftrýmisgæslu og skilgreindum þjónustuviðmiðum í björgunar- og sjúkraflugi. Með þessari fjármunatilhögun verður betur stutt við þann árangur að Landhelgisgæslan geti sinnt lögbundnum verkefnum sínum með fyrirsjáanleika, hæfni og fullum þjónustugæðum á öllum svæðum íslenskrar lögsögu.

09.30 Ákæruvald og réttargæsla.
    Málaflokkurinn um ákæruvald og réttargæslu gegnir lykilhlutverki í réttarríkinu og er ein af grunnstoðum öryggis, réttaröryggis og trausts á stjórnsýslunni. Hann stendur þó frammi fyrir sívaxandi áskorunum sem krefjast skýrari markmiðasetningar og stefnumiðaðrar þróunar. Of langur málsmeðferðartími sakamála og dómsmála, viðkvæm staða þolenda og brotaþola ásamt vaxandi og harðnandi skipulagðri brotastarfsemi setja kerfinu ný verkefni sem ekki endurspeglast nægilega í gildandi markmiðum.
    Jafnframt hafa stafrænar áskoranir, svo sem netglæpir, ólögmæt gagnanotkun og aukin þörf fyrir sérhæfða tæknikunnáttu, gjörbreytt eðli rannsóknarvinnu og ákæruvaldsins. Mannauður kerfisins þarf að takast á við mun flóknara og tæknivæddara umhverfi en áður, m.a. í ljósi þróunar gervigreindar, en gildandi markmið fjalla ekki nægilega um þessa þróun.

Gildandi markmið.
    Gildandi markmið og verkefni málaflokksins tengjast m.a. þróun réttarvörslugáttar, innleiðingu talgreinis og einfaldari afgreiðslu bóta til þolenda rannsóknarúrræða. Aðgerðirnar eru mikilvægar og stuðla að bættri þjónustu, skýrari ferlum og skilvirkari upplýsingagjöf.
    Þrátt fyrir það er markmiðasetningin að mestu aðgerðamiðuð og nokkuð tæknileg. Hún lýsir tilgreindum verkefnum án þess að skilgreina stefnumiðaða lokaniðurstöðu eða hvernig réttarvörslukerfið á að þróast í heild sinni. Markmið 1 og 2 vísa að mestu til sömu tækniverkefna án þess að taka á kjarnavanda málaflokksins:
     *      of löngum málsmeðferðartíma,
     *      ófullnægjandi stuðningi við þolendur og brotaþola,
     *      harðnandi og flóknari skipulagðri brotastarfsemi og sérhæfðri mannauðsþörf í stafrænu og síbreytilegu rannsóknarumhverfi.
    Þannig vantar skýrari markmið sem lýsa því hvaða árangri eigi að ná, ekki einungis hvaða tækni eigi að innleiða.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum innan málaflokksins.
Markmið 1: Tímanleg, fyrirsjáanleg og réttlát málsmeðferð í sakamálum og dómsmálum.
    Markmiðið felur í sér að stytta málsmeðferðartíma, tryggja samræmda málsmeðferð, skýra verkferla og bættan fyrirsjáanleika fyrir sakborninga, þolendur og aðra aðila máls. Þetta er grunnforsenda réttarríkisins.

Markmið 2: Öflug vernd og bætt þjónusta við þolendur og brotaþola, í ljósi harðnandi og flóknari brota.
    Áhersla er á skýra leiðbeiningarskyldu, reglubundna upplýsingagjöf, bætt bótaferli, stuðning við vitni og sérhæfða nálgun í tilvikum sem tengjast ofbeldi, skipulögðum brotum og netglæpum.

Markmið 3: Samræmd og gagnadrifin ákærustarfsemi með skýrum gæðaviðmiðum og forgangsröðun rannsókna.
    Markmiðið tryggir fyrirsjáanleika, jafnræði og fagmennsku í ákæruvaldi. Lögð er áhersla á gæðaviðmið, verklagsreglur, gagnadrifna ákvarðanatöku og samræmda rannsóknarhæfni milli landshluta.

Markmið 4: Styrkt viðbúnaðar- og rannsóknargeta gegn skipulagðri brotastarfsemi, netglæpum og flóknum stafrænum brotum.
    Markmiðið áréttar að takast verði á við harðnandi brotakerfi með aukinni greiningargetu, öruggri upplýsingadeilingu, sérhæfðu starfsfólki, tæknilegum innviðum og skýrum heimildum til upptöku ólögmæts ávinnings.

Markmið 5: Nútímaleg stafræn umbreyting réttarvörslukerfisins og efling sérhæfðs mannauðs.
    Markmiðið felur í sér þróun réttarvörslugáttar, notkun talgreinis, stafræna málsvinnu, örugga gagnavinnslu og að lögregla og ákæruvald hafi sérfræðiþekkingu í netöryggi, gagnagreiningu og stafrænum rannsóknaraðferðum.
    Rétt er að taka fram að þegar er vísað til aðgerða, svo sem notkun talgreinis í verkefnum málaflokksins.

Áhrif nýrra markmiða á fjárheimildir.
    Ný markmið málaflokksins kalla óhjákvæmilega á aukningu fjárheimilda. Að takast á við of langa málsmeðferðartíma, harðnandi skipulagða brotastarfsemi og flókna stafræna glæpastarfsemi krefst fjármagns í:
     *      viðbótarmannauð, sérfræðinga og þjálfun,
     *      verkefni sem byggja upp rannsóknargetu,
     *      sérhæfð rannsóknartæki og greiningarkerfi,
     *      örugga stafræna innviði og gagnavinnslu,
     *      bætta þjónustu við þolendur,
     *      samræmda verklagsþróun og gæðastjórnun.
    Ekki er gerð tillaga um hækkun fjárheimilda þar sem nánari greiningu á fjárþörf skortir.
    Gildandi markmið í málaflokknum um ákæruvald og réttarvörslu innihalda mikilvægar áherslur, m.a. um bætt aðgengi að upplýsingum, nýtingu stafrænnar tækni og skilvirkari afgreiðslu bóta til þolenda. Þrátt fyrir það eru markmiðin að verulegu leyti sett fram sem aðgerðir og tækniverkefni, en ekki sem skýr, afmörkuð og árangursbundin markmið sem lýsa því hvaða breytingum á að ná í réttarvörslukerfinu.
    Markmiðið „réttlát og örugg málsmeðferð“ er mjög matskennt og byggist fyrst og fremst á tilgreindum tæknilausnum, svo sem réttarvörslugátt, talgreini og einföldun bótaferla. Þetta eru án efa mikilvægar aðgerðir en þær skilgreina ekki mælanlega eða skýra lokaniðurstöðu. Ekki er tekið á grundvallaráskorunum réttarvörslunnar, svo sem löngum málsmeðferðartíma sumra tegunda sakamála, ójafnvægi í málsmeðferðartíma milli sakamála, þjónustu við þolendur, stuðning við vitni í formi leiðbeininga, eða nauðsyn þess að tryggja fyrirsjáanleika og samræmi í ákvörðunum ákæruvalds. Með því að afmarka markmiðið við tækniverkefni verður það hluti framkvæmdar en ekki stefna sem leiðir réttarvörsluna áfram í átt að bættum árangri.
    Markmið 2 um „aukna skilvirkni og gæði“ endurtekur í reynd efni markmiðs 1 og nefnir sömu aðgerðir. Þetta undirstrikar að markmiðasetningin er óljós, tvítekin og skortir heildarsýn. Ef efnahagur, málsmeðferð, mannréttindi aðila máls og faglegar kröfur eiga að haldast í hendur, þarf markmiðasetningin að vera skýrari um það hvað skilvirkni og gæði eru og hvernig þau birtast í þjónustu við borgara og réttarkerfið. Lítil tenging er við helstu áskoranir málaflokksins, svo sem:
     *      of langan málsmeðferðartíma sakamála og dómsmála,
     *      viðkvæma stöðu þolenda og brotaþola innan kerfisins,
     *      mannauðsmál samkvæmt vaxandi kröfum í stafrænu og sérhæfðu umhverfi.

09.50 Fullnustumál.
    Markmið málaflokks um fullnustu snýr að öryggi, fangelsisplássum og uppbyggingu innviða. Það endurspeglar mikilvæg sjónarmið um öryggi fangelsa og virk varnaðaráhrif. Tengd verkefni snerta þætti starfsemi fangelsismála, einkum húsnæði, öryggismál og rekstrargetu. Aðgerðir sem boðaðar eru teljast þó frekar til fjárfestinga frekar en að vísa til árangurs, sem ná á fram þegar verkefnum er lokið. Markmiðin skortir því afmörkun um hvert lokaniðurstaðan á að vera, hvernig árangur verður mældur og hvaða breytingar á þjónustu, öryggi eða endurkomutíðni fanga markmiðin eiga að leiða til. Þrátt fyrir það er rétt að taka fram að örugg fangelsi eru vitanlega grundvallaratriði réttarkerfisins.
    Stærstu verkefnin sem tilgreind eru, svo sem bygging nýs fangelsis að Stóra-Hrauni, fjölgun fangelsisplássa á Sogni og efling Fangelsismálastofnunar, eru þannig vissulega brýn og tímabær fjárfesting í kerfinu. Þau segja hins vegar lítið um það hvaða breytingum á að ná með þessari fjárfestingu. Þótt leiða megi líkur að hugsun markmiðanna þá þarf að koma skýrt fram hvert stefnt er. Ekki kemur fram hvort markmiðið sé að draga úr yfirfyllingu fangelsa, tryggja öruggari og betri aðbúnað, stuðla að bættri endurhæfingu eða draga úr endurkomu fanga í refsikerfið. Þannig verða markmiðin fyrst og fremst upptalning framkvæmda, en ekki stefna sem markar skýra framtíðarsýn fyrir fullnustukerfið.
    Tilvísun til „öruggra fangelsa og virkra varnaðaráhrifa“ er sérlega matskennd. Öryggi fangelsa byggist á fjölmörgum þáttum, svo sem húsnæði, búnaði, mönnun, þjálfun starfsfólks, verklagi og áhættumati, en enginn þessara þátta er skilgreindur sérstaklega. Varnaðaráhrif eru enn víðtækari og tengjast hegðunarfræði, endurhæfingu, samfélagsþjónustu, skilorðseftirliti og ákæruframkvæmd, en markmiðið tengir þau ekki við neina mælanlega niðurstöðu. Þannig verður markmiðið lýsing á fyrirætlun en ekki skýr skilgreining á því sem á að ná.
    Að sama skapi er styrking starfsemi Fangelsismálastofnunar og efling fangavarðanáms mikilvæg aðgerð en ekki markmið um endanlegan árangur. Ef tilgangurinn er bætt öryggismenning, betra verklag, minni hætta á ofbeldi eða bættur aðbúnaður starfsfólks og fanga þarf markmiðið að afmarka hvaða breytingar á að sjá í framkvæmd.
    Mikilvægt er að ítreka að margt jákvætt kemur fram um aðgerðir innan málaflokksins. Frekari tilvísun væri þó æskileg til eftirfarandi þátta:
     *      betra öryggisumhverfis,
     *      skilvirkrar fullnustu,
     *      betri endurhæfingar,
     *      fækkunar endurtekinna brota brotamanna,
     *      aukinnar þjónustu við fanga með vanda,
     *      eða samræmdrar þróunar fangelsismála til framtíðar.
    Bygging fangelsa og fjölgun plássa er mikilvæg en markmið málaflokksins þarf að lýsa því hvernig fangelsiskerfið á að starfa, hvaða gæði á að tryggja og hvaða samfélagslegum árangri á að ná, ekki aðeins hvernig húsnæði verður uppfært.

Dæmi um tillögu að nýju markmiði innan málaflokksins.
Markmið: Tryggja örugga, mannsæmandi og árangursríka fullnustu refsinga sem styrkir öryggi samfélagsins, dregur úr endurteknum brotum og styður við endurkomu einstaklinga inn í samfélagið.
    Markmiðið lýsir heildstæðri og nútímalegri framtíðarsýn fyrir fangelsismál þar sem áhersla er ekki aðeins á varnaðaráhrif og fjölgun fangelsisplássa, heldur einnig á öryggi starfsfólks og fanga, mannsæmandi fangelsisaðstæður í samræmi við alþjóðlegar viðmiðanir, sérhæfða þjálfun fangavarða, virkt endurhæfingarstarf sem dregur úr endurkomu í refsivist, þjónustu og stuðning við einstaklinga sem ljúka afplánun, samhæfingu milli fangelsa, félagsþjónustu og heilbrigðisþjónustu, og ábyrga uppbyggingu fangelsisinnviða sem svarar auknum þörfum kerfisins, svo dæmi séu nefnd.

10 Rétt. einstakl., trúmál og stjórnsýsla dómsmála.
    Málefnasviðið felur í sér ýmis mikilvæg málefni. Að aftan verður þó aðeins vikið að málefnum sýslumannsembætta í ljósi fyrirhugaðra breytinga stjórnvalda á fyrirkomulagi og starfsemi sýslumannsembætta um land allt.
    Það vekur nokkra athygli að fyrsta markmið málaflokksins sé orðað þannig að „þjónustan verði eins góð og völ er á“. Orðalagið er vissulega vel meint en það skortir skýra efnislega afmörkun og mælanleg viðmið. Án þess að tilgreina hvaða „völ“ sé átt við, núverandi fjárheimildir, mannauð, ferla eða fyrir fram ákveðin þjónustustig, er hætt við að markmiðið verði fremur yfirlýsing um áform en raunverulegt stjórntæki. Í ljósi þess hljómar markmiðið líkt og almenn ábending um að gera sitt besta, frekar en leiðarljós sem hægt er að leggja mat á eða fylgja eftir með árangursmælingum.
    Að sama skapi vakna spurningar um samspil annars markmiðsins, um aukið framboð opinberrar þjónustu á landsbyggðinni, og þeirra áforma sem þegar liggja fyrir um sameiningu sýslumannsembætta. Sameining embætta leiðir óhjákvæmilega til breytinga á staðbundinni þjónustu. Það er því mikilvægt að skýra með hvaða hætti þjónustuframboð á landsbyggðinni eigi að aukast, t.d. hvort átt sé við stafræna þjónustu, sérhæfðari fjarvinnu eða aðrar leiðir. Án slíkrar útfærslu verður erfitt að meta hvort markmiðið sé raunhæft og hvernig það tengist þeirri kerfisbreytingu sem sameiningar fela í sér.
    Heildstætt séð mætti því færa rök fyrir því að markmið málaflokksins þyrfti skýrari afmörkun, raunsærri útfærslu og mælanleg viðmið, þannig að þau gætu þjónað þeim tilgangi sem markmið í fjárlagaramma eiga að hafa: að veita skýra stefnu, samræma aðgerðir og tryggja að árangur verði metinn á gagnsæjan hátt.
    Framangreind sjónarmið þarf sérstaklega að hafa í huga með hliðsjón af þeirri miklu kerfisbreytingu sem staðið hefur til að ráðast í vegna sameiningar sýslumannsembætta sem jafnframt er afar umdeild. Í því ljósi vantar bæði skýr markmið og lýsingu á því hvernig starfsemi sýslumannsembætta á að þróast á árinu 2026 og eftir innleiðingu boðaðrar sameiningar.
    Stjórnvöld hafa í þessu ljósi kynnt frumvarp um sameiningu embætta sem felur í sér umfangsmikla skipulagsbreytingu, fækkun embætta og verulega tilfærslu verkefna og ábyrgðar. Þrátt fyrir þetta eru markmið í fjárlögum þögul um breytinguna og engin tilvísun er gerð til þess:
     *      hvernig sameiningin á að hafa áhrif á þjónustu við íbúa,
     *      hvaða þjónustustig á að tryggja á landsbyggðinni,
     *      hvernig á að forðast þjónusturýrnun í byggðarlögum,
     *      hvernig rekstur eða kostnaður þróast,
     *      eða hvaða ávinning eða áhættu stjórnvöld telja að breytingin feli í sér.
    Vitanlega liggja fyrir gögn um framangreinda þætti m.a. í því frumvarpi sem ráðherra hefur boðað um sameiningu sýslumannsembætta. Það er þó grundvallaratriði að Alþingi geti metið heildstætt stefnumótun innan málefnasviða og einstakra málaflokka og tengt hana við fjármögnun einstakra málefnasviða og málaflokka án þess að leggja í mikla rannsóknarvinnu og t.d. fletta upp öðrum gögnum, svo sem framlögðum frumvörpum eða athugasemdum hagaðila.
    Loks vekur sérstaka athygli að markmiðin vísa eingöngu til „helstu verkefna“ (svo sem betri nýtingar húsnæðis, þjónustukerfis, sem þó er óskilgreint, og bætts aðgengis) en ekki til afmarkaðra stefnumarkandi markmiða fyrir efnislega starfsemi sýslumanna, sem eru lykilembætti á sviði stjórnsýslu og þjónustu við almenning. Þjónustuhlutverk sýslumanna nær m.a. til lögræðis-, sifja-, barnaverndar-, fullnustu- og leyfisveitingarmála, og er það þjónusta sem hefur bein áhrif á réttindi og hagsmuni íbúa. Þrátt fyrir það eru engin markmið sett fram um aðgengi að þjónustu, gæði hennar, hraða í afgreiðslum eða tryggingu þess að þjónusta verði áfram veitt í öllum landshlutum.
    Við núverandi markmiðasetningu er því hvorki hægt að meta hvort þjónusta batni né hvort hætta sé á versnandi stöðu eftir sameiningar.
    Þá vantar einnig markmið um:
     *      stafræna umbreytingu stjórnsýslunnar,
     *      einföldun ferla,
     *      aukna skilvirkni,
     *      styttri afgreiðslutíma,
     *      miðlæga þjónustugátt,
     *      eða áreiðanlega þjónustu á landsbyggðinni.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum innan málaflokksins.
Markmið 1: Tryggja skjótan og samræmdan málshraða í kjarnaþjónustu sýslumanna.
    Sýslumannsembætti starfa samkvæmt skýrum og gegnsæjum þjónustuviðmiðum um málshraða í helstu efnisflokkum, svo sem sifjamálum, lögræðismálum, barnaverndarmálum, leyfisveitingum og fullnustumálum.

Markmið 2: Efla þjónustugæði og tryggja jafnt aðgengi að þjónustu sýslumanna um allt land.
    Sýslumannsembætti veita áreiðanlega þjónustu með skýrum viðmiðum um aðgengi, gæði og þjónustustig. Áhersla verður lögð á að tryggja að þjónusta við réttarstöðu einstaklinga, hvort sem um ræðir í sifja-, barnaverndar-, lögræðis- eða fullnustumálum, verði áfram veitt í öllum landshlutum og rýrni ekki í kjölfar sameiningar embætta. Sett verður fram viðmið um aðgengi og þjónustuverndarstaðla fyrir íbúa óháð búsetu.

Markmið 3: Innleiða stafræna umbreytingu og einfalda ferla sýslumannsembætta.
    Stafræn þjónusta sýslumanna verður efld með samræmdu þjónustukerfi, einfölduðum ferlum, miðlægri þjónustugátt og sjálfvirkni í stöðluðum verkefnum. Markmiðið er að tryggja skjótari afgreiðslu, lægri kostnað og bætt þjónustugæði. Stafrænar lausnir skulu sérstaklega styðja við þjónustu á landsbyggðinni og nýtast með sambærilegum hætti um allt land.

Markmið 4: Tryggja stöðuga mönnun og faglega hæfni til að halda uppi skilvirkri og öruggri þjónustu.
    Viðhalda skal fullri og stöðugri mönnun í helstu hlutverkum sýslumanna, ásamt samræmdri fræðslu, hæfniskröfum og gæðakerfi fyrir störf embættanna. Áhersla verður lögð á að styrkja sérhæfða hæfni í málaflokkum þar sem lögbundin réttaráhrif eru mest, þ.m.t. í sifjamálum, barnavernd og fullnustu.
    Framangreindar tillögur leitast við að leiðrétta þann skort á efnislegri markmiðasetningu sem nú einkennir málaflokkinn. Þær fela í sér skýr, mælanleg og þjónustumiðuð viðmið sem snúa beint að lögbundinni starfsemi sýslumanna, þar á meðal málshraða, aðgengi, stafrænum ferlum og mönnun og tryggja umfram allt að innleiðing sameiningar embætta rýri hvorki þjónustugæði né réttindi íbúa.

Áhrif á fjárheimildir málaflokksins.
    Með hliðsjón af nýjum markmiðum, sem leggja áherslu á skjótari og samræmdan málshraða, aukin þjónustugæði, stafræna umbreytingu og tryggingu stöðugrar mönnunar, má gera ráð fyrir að fjárheimildir málaflokksins þurfi að hækka á næstu árum, þrátt fyrir að ætlun stjórnvalda sé að auka hagræðingu í rekstri sýslumannsembætta með sameiningaráformum.
Áherslur markmiðanna fela í sér bæði uppbyggingu innri stoða og nýjar kröfur um þjónustuviðmið sem ekki verður sinnt án þess að styrkja mönnun, kerfisþróun, stafrænar lausnir og rekstraröryggi embættanna. Óhjákvæmilegt er að innleiðing markmiðanna kalli á hækkun fjárheimilda, einkum vegna sérhæfðrar mönnunar, upplýsingatæknikerfa, gæðastjórnar og verkefna tengdum sameiningu embættanna, til að tryggja að þjónusta við íbúa rýrni ekki heldur batni í kjölfar kerfisbreytinga.

11 Samgöngu- og fjarskiptamál.
    Samgöngukerfið er ein af grunnstoðum samfélagsins og á árinu 2026 er gert ráð fyrir verulegri aukningu til vegaframkvæmda og innviðauppbyggingar. Slíkt er afar mikilvægt.
Í þessu ljósi skal tekið fram að bagalegt er að Samgönguáætlun liggi ekki fyrir. Á hinn bóginn endurspegla áherslur málefnasviðsins vilja stjórnvalda til að efla samgöngur um allt land.
    Gildandi markmið fjárlaga snúa að stórum og nauðsynlegum þáttum eins og viðhaldskerfi, undirbúningi Sundabrautar, uppbyggingu hafna, öryggisaðgerðum á stofnvegum og endurbótum á innanlandsflugvöllum. Þau fela einnig í sér endurskoðun á tekjuöflun ríkisins vegna umferðar og áframhaldandi framkvæmdum í samgöngusáttmálanum á höfuðborgarsvæðinu. Markmiðin eru vissulega málefnaleg og til þess fallin að styrkja innviði landsins en þau skortir skýrari heildarsýn um forgangsröðun verkefna, tengsl við sjálfbærnimarkmið og hvernig tryggja eigi jafnræði milli landshluta, sérstaklega þegar samgönguáætlun er ekki komin fram.
    Jafnframt þarf að huga betur að vetrarþjónustu og eflingu á henni þvert á landshluta.

Tillögur að nýjum markmiðum málefnasviðsins.
Markmið 1: Tryggja traust og öruggt vegakerfi sem stenst núverandi og framtíðarálag.
    Áherslu verður að setja á markvissa uppbyggingu og endurbætur þar sem bætt slitlag, burðarlög og brýr eru forgangsmál. Með því er tryggt að vegakerfið sé öruggt, áreiðanlegt og hæft til að mæta aukinni umferð, þungaflutningum og breyttum samgönguháttum til framtíðar.

Markmið 2: Auka öryggi allra tegunda ferðamáta.
    Tryggja þarf að öryggisverkefni á stofnvegum haldi áfram, svo sem aðskilnaður akstursstefna, og varaflugvellir styrktir þannig að landið búi yfir áreiðanlegum fluginnviðum fyrir neyðar- og sjúkraflug.

Markmið 3: Samræma forgangsröðun og tryggja ábyrga framkvæmd stórra samgönguverkefna.
    Stór verkefni eins og Sundabraut og leiðarstyttingar þurfa markvissa kostnaðarstýringu og markvissa áfangaskiptingu, með gagnsærri forgangsröðun þegar samgönguáætlun liggur fyrir.

Markmið 4: Styðja við sjálfbærar samgöngur og fjölbreytta ferðamáta.
    Uppbygging hjóla- og gönguleiða, snjallar umferðarstýringar og efling almenningssamgangna eru lykilþættir í að styðja við loftslagsmarkmið og bæta heilsu og lífsgæði.

Markmið 5: Styrkja byggðaþróun með öflugri tengingu milli landshluta.
    Tengivegir, leiðarstyttingar og öruggari flutningsleiðir eru forsenda jafnræðis íbúa, atvinnuþróunar og aðgengis að þjónustu óháð búsetu.

    Ný markmið byggjast á því að samgöngur eru ekki aðeins innviðir heldur samfélagsleg uppbygging sem tryggir jafnræði, öryggi og hagkvæmni. Með því að forgangsraða viðhaldi, öryggi og sjálfbærum samgöngum má tryggja að fjárfestingar ársins 2026 skili sem mestum árangri. Þótt samgönguáætlun liggi ekki fyrir er nauðsynlegt að markmið fjárlaga séu breið og skýr, þannig að hægt sé að fylgja henni eftir þegar hún kemur fram.

Áhrif á fjárheimildir 2026.
    Í ljósi umtalsverðrar aukningar fjárheimilda til málefnasviðsins er frekar ástæða til að leggja til frestun framkvæmda til að draga úr útgjöldum. Mikilvægast er þó að boðaðar framkvæmdir fylgi skýrri forgangsröðun svo tryggt sé að mikilvæg verkefni fari af stað á réttum tíma og að fjárfestingarnar skili tilætluðum samfélagslegum og efnahagslegum ávinningi.

12 Landbúnaður.
    Markmið málefnasviðs landbúnaðar og matvæla taka til lykilþátta matvælakerfisins: fæðuöryggis, heilbrigðis plantna og dýra, sjálfbærni, loftslagsmarkmiða og verðmætasköpunar. Þrátt fyrir mikilvægt innihald eru markmiðin í núverandi framsetningu nokkuð óljós og tengd almennum og óútfærðum aðgerðum (svo sem endurskoðun á stuðningskerfi landbúnaðar) fremur en stefnumiðuð markmið sem draga upp skýra framtíðarsýn fyrir íslenskan landbúnað.
    Í framangreindu ljósi er sérstaklega mikilvægt að markmið og áherslur á sviði landbúnaðar (og atvinnuvega almennt) tengist með skýrum hætti öðrum aðgerðum og stefnum sem til staðar eru, svo sem byggðaáætlun.
    Jafnframt er mikilvægt að lögð sé aukin áhersla í markmiðasetningu fyrir málefnasvið landbúnaðar á þær stefnumótandi aðgerðir sem þegar eru í gildi eða sem æskilegt er að vísað sé til. Hér má nefna atvinnustefnu stjórnvalda en drög að henni hafa þegar verið birt í samráðsgátt Stjórnarráðsins. Aðrar aðgerðir og áætlanir sem minni hluti fjárlaganefndar telur eðlilegt að vísa til eru verkefni á borð við nýjar rætur (stuðningur við jarðakaup og nýliðun í landbúnaði), fjárfestingarátak atvinnuvega (þar sem matvæla- og landbúnaðarframleiðsla er í forgrunni), nýtingu ríkisjarða sem lið í nýsköpunaráformum, og t.d. áhrif landsbyggðarmats sem á að tryggja að ákvarðanir stjórnvalda taki mið af hagsmunum ólíkra byggða.

Dæmi um tillögur að markmiðum innan málefnasviðsins.
    Eftirfarandi tillögur að markmiðum eru stefnumiðaðar og varða hvað á að nást til framtíðar. Undirliggjandi aðgerðir og útfærslur eru nefndar aðeins óbeint sem stoðir markmiðsins en ekki hluti þess.

Markmið 1: Fæðuöryggi, heilbrigði og velferð með skýrri framtíðarsýn.
    Tryggja þarf sjálfbært og traust fæðuöryggi þjóðarinnar með öflugri innlendri framleiðslu, heilbrigði plantna og dýra og skilvirkri nýtingu lands og ræktunarkosta. Markmiðið felur í sér framtíðarsýn um matvælakerfi sem tekur mið af og bregst við loftslagsáhættu, breyttum aðfangakeðjum og þörfum samfélagsins.
    Efling kornræktar, fæðuöryggi og eftirlit með heilbrigði plantna og dýra eru undirliggjandi þættir sem styðja óbeint við framfylgd markmiðsins.
    Verkefni tengd nýliðun (Nýjar rætur) eru dæmi um mikilvægar stoðir framtíðarfæðuöryggis.

Markmið 2: Fjölbreyttur, verðmætur og sjálfbær landbúnaður.
    Stuðla að fjölbreyttum og arðskapandi landbúnaði sem skapar ný störf og verðmæti á landsbyggðinni, byggist á nýjum tækifærum í ræktun, matvælavinnslu og líftækni og eykur aðdráttarafl greinarinnar fyrir ungt fólk og nýja aðila.
    Nýsköpun, frumkvöðlastarf, tæknilausnir, vöruþróun og endurskoðun stuðningskerfa eru dæmi um aðgerðir sem tengjast markmiðinu.

Markmið 3: Sjálfbær nýting lands og auðlinda með skýrum ramma og þjóðhagslegri arðsemi.
    Tryggja þarf að nýting lands, jarðvegs, vatns og vistkerfa sé sjálfbær, gagnsæ og byggist á langtímahagsmunum þjóðarinnar. Markmiðið felur í sér heildstæða sýn á landnýtingu sem styður loftslagsmarkmið, verðmætasköpun og jafnvægi byggða.
    Landgræðsla, endurheimt vistkerfa, ræktun, skógrækt og nýting ríkisjarða eru aðgerðir og útfærslur sem falla undir framkvæmd markmiðsins.

Markmið 4: Loftslagsvænn landbúnaður og kolefnishlutlaus matvælakeðja.
    Tryggja að landbúnaður og matvælaframleiðsla verði byggð á sjálfbærri nýtingu lands, jarðvegs og auðlinda með skýrri átt að kolefnishlutleysi. Markmiðið felur í sér að rekstrarumhverfi greinarinnar styðji við langtímabætta framleiðslu, loftslagsaðlögun og arðsemi.
    Nákvæmnistækni (e. precision agriculture), hringrásarlausnir, orkuskipti og jarðvegsvernd eru verkfæri sem geta stutt við markmiðið án þess að verða hluti þess. Fjárfestingarátak atvinnuvega, landsbyggðarmat og áherslur á sjálfbæra auðlindanýtingu eru lykilstoðir framfylgdar markmiðsins.

Dæmi um tillögur að markmiðum fyrir 12.20 Rannsóknir, þróun og nýsköpun.
    Fyrir þennan málaflokk eru engin markmið nú, sem er alvarlegur annmarki. Að aftan eru nefnd dæmi um stefnumiðuð markmið sem geta stuðlað að frekari þróun landbúnaðar til lengri tíma.

Markmið 1: Byggja upp öflugan vísindagrunn íslensks landbúnaðar.
    Markmiðið felur í sér að tryggja að þekking, rannsóknir og þróun styðji við þróun og framtíðarmynd íslensks landbúnaðar. Í því ljósi er rétt að hafa í huga að mikilvægt er að vistkerfi nýsköpunar, sbr. málefnasvið 7, taki mið af rannsóknum á sviði matvælaframleiðslu.

Markmið 2: Auka rannsóknargetu Matís og samstarfsstofnana.
    Byggja þarf upp getu til nýsköpunar og matvælaþróunar sem styður við framleiðslu, gæði og samkeppnishæfni.

Markmið 3: Auka þátttöku Íslands í alþjóðlegum matvæla- og landbúnaðarrannsóknum.
    Tryggja þarf að Ísland verði hluti af þekkingarþróun og nýjum framleiðsluháttum þvert á landamæri. Framþróun framleiðsluhátta er hröð, sérstaklega með hliðsjón af þróun gervigreindar.

Markmið 4: Byggja upp samræmda gagnagrunna um landbúnað og matvælaframleiðslu.
    Gagnadrifin ákvarðanataka verður burðarás framtíðarframleiðslu.

Markmið 5: Styrkja vettvangsrannsóknir í samstarfi við bændur.
    Ný tækni og nýjar aðferðir verða að þróast á vettvangi til að vera raunhæfar og til raunverulegs gagns fyrir matvælaframleiðslu.

Markmið 6: Rannsóknir á verðmætasköpun og nýjum afurðum.
    Stuðla að aukinni samkeppnishæfni og útflutningi. Mikilvægt er að huga enn fremur sérstaklega að áhrifum gervigreindar og sjálfvirkni á framleiðsluhætti.

Markmið 7: Stuðla að aukinni matvælaframleiðslu sem tryggir sjálfbærni og fæðuöryggi þjóðarinnar.
    Matvælaframleiðsla er grunnstoð samfélagsins og mikilvægt að hún sé örugg, stöðug og byggist á sjálfbærum aðferðum. Með þessu markmiði er lögð áhersla á að styrkja innlenda framleiðslu, efla fæðuöryggi og nýta náttúrulegar auðlindir á ábyrgan hátt til hagsbóta fyrir þjóðina til lengri tíma.

Áhrif á fjárheimildir málefnasviðsins.
    Ekki er gerð tillaga um aukningu fjárheimilda.
    Helstu áhrifaþættir á þróun fjárheimilda málefnasviðsins eru aukin þörf á fjárfestingum í rannsókna- og þróunarstarfi, styrking Matís og háskólastofnana, stuðningur við nýsköpun og frumkvöðla (Nýjar rætur), uppbygging gagnagrunna, aukin áhersla á loftslagsaðgerðir, jarðvegsvernd og vistkerfi, fjölbreyttari ræktun og matvælavinnsla á landsbyggðinni, og landnýtingarverkefni sem krefjast langtímafjárfestinga.

13 Sjávarútvegur og fiskeldi.
13.10 Stjórnsýsla sjávarútvegs.
    Markmiðin sem sett eru fram undir málefnasviði 13 eru um margt jákvæð og réttmæt. Í því ljósi er mikilvægt að bæta skilyrði sjávarútvegs til aukinnar verðmætasköpunar með sjálfbæra nýtingu og vistkerfisnálgun að leiðarljósi. Þá er sömuleiðis mikilvægt að bæta skilyrði fiskeldis til aukinnar verðmætasköpunar með sjálfbæra nýtingu og vistkerfisnálgun að leiðarljósi.
    Aðgerðirnar sem settar eru fram til að ná þessum markmiðum eru hins vegar nokkuð takmarkaðar í eðli sínu. Þannig er grundvallaratriði að rekstrarleg skilyrði sjávarútvegs verði tryggð á grunni fyrirsjáanleika og sanngjarnrar gjaldtöku. Engin aðgerð tengist því sjónarmiði. Hvorki aðgerðir né markmið málefnasviðsins taka ekki nægilega skýrt á því að tryggja stöðugleika í regluverki greinarinnar, skatt- og gjaldaumhverfi, langtímasýn í fiskveiðistjórnun eða samkeppnishæfni á erlendum mörkuðum.
    Á sama hátt eru markmið um fiskeldi of þröng. Þau snúast að tæknilegum atriðum innan framkvæmdarinnar í stað þess að móta skýra framtíðarsýn um ábyrga, tæknilega þróaða og verðmætaskapandi grein sem standi sterkt í alþjóðlegum samanburði.
    Samandregið vantar skýrari mynd af því hvert eigi að stefna, hvernig tryggja megi fyrirsjáanleika, samkeppnishæfni og verðmætasköpun og hvaða umgjörð atvinnugreinin þarf til að ná árangri til lengri tíma.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum á sviði stjórnsýslu sjávarútvegs og fiskeldis.
Markmið 1: Stöðugt og samkeppnishæft rekstrarumhverfi sjávarútvegs.
    Grundvallarforsenda íslensks sjávarútvegs er að stjórnvöld tryggi skýrt, einfalt og fyrirsjáanlegt laga-, skatta- og gjaldaumhverfi sem styður fjárfestingar, verðmætasköpun og alþjóðlega samkeppnishæfni greinarinnar. Þar sem sjávarútvegur er markaðsdrifin atvinnugrein í harðri alþjóðlegri samkeppni er lykilatriði að ríkið tryggi stöðugleika og rekstraröryggi til langs tíma.

Markmið 2: Öflug, fagleg og skilvirk stjórnsýsla.
    Markmiðið lýtur að því að ávallt þurfi að horfa til þess hvernig megi efla stjórnsýslu sjávarútvegs með skýrum verklagsreglum, sterkri fagmennsku og skilvirku eftirliti. Boðuð sameining Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs er eðlilegt skref í átt að einfaldari og skilvirkari stjórnsýslu. Með sameiningunni er leitast við að styrkja þjónustu, einfalda ferla og tryggja traustan stjórnunargrundvöll greinarinnar.

Markmið 3: Bætt stjórnsýsla og rekstrarumhverfi fiskeldis.
    Mikilvægt er að móta skýrari, stöðugri og gegnsærri lagalegan og stjórnsýslulegan ramma fiskeldis, einkum varðandi leyfisveitingar, gjaldtöku, umhverfismat og rekstraröryggi. Skýrir hvatar skulu vera til að draga úr áhrifum greinarinnar á lífríki og náttúru.

Markmið 4: Stuðla að fjölbreyttum útgerðarformum sem auka verðmætasköpun, fjölbreytni og tækifæri í greininni, með sérstakri áherslu á möguleika landsbyggðar.

13.20 Rannsóknir, þróun og nýsköpun í sjávarútvegi og fiskeldi.
    Athygli vekur að engin markmið koma fram um starfsemi málaflokksins. Að aftan má finna tillögur að nýjum markmiðum málaflokksins.

Markmið 1: Rannsóknir á heimsmælikvarða í þágu sjálfbærrar auðlindanýtingar.
    Nauðsynlegt er að efla hafrannsóknir, gagnasöfnun og vistkerfislíkön þannig að ákvarðanir í fiskveiðistjórnun séu ávallt byggðar á bestu fáanlegu vísindum. Horfa þarf sérstaklega til áhrifa loftslagsbreytinga og breytinga á hafstraumum, þannig að umgjörð greinarinnar sé fyrirsjáanleg og sjálfbær til langs tíma.

Markmið 2: Heildstætt og samkeppnishæft rannsóknaumhverfi fiskeldis.
    Að byggja upp leiðandi og heildstætt rannsóknastarf og rannsóknarumhverfi á sviði fiskeldis með áherslu á erfðamál, sjúkdóma, velferð eldisdýra, umhverfisáhrif og þróun nýrrar tækni, þar á meðal lokaðra og hálflokaðra eldiskerfa og landeldislausna. Í því ljósi er mikilvægt að þróa sameiginlega gagnagrunna, rekjanleika, stafrænar lausnir og tæknikerfi sem styðja rannsóknir, eftirlit og framleiðslu og skapa skýra fjárhagslega og lagalega hvata til bestu umhverfislausna. Markmiðið er að styrkja gagnsæi og samkeppnishæfni allra þátta greinarinnar. Í því ljósi má nefna tækifæri til að byggja upp aukna akademíska þekkingu á sviði sjávarútvegs og fiskeldis hjá t.d. Háskóla Íslands og Háskólanum á Hólum.

Markmið 3: Nýsköpun og tæknistig íslensks sjávarútvegs verði áfram leiðandi á alþjóðamarkaði.
    Í ljósi hraðra tæknibreytinga, m.a. á sviði stafrænnar tækni og gervigreindar, þarf að efla rannsóknir og þróunarverkefni sem stuðla að bættri nýtingu hráefna, nýjum afurðum, lífefnaframleiðslu, aukinni sjálfvirkni, rekjanleika og þróun stafrænna innviða. Stöðug áskorun er að viðhalda forskoti Íslands á sviði tækni og aðferða í sjávarútvegi. Sérstaklega má horfa til samstarfsverkefna atvinnulífs og stjórnvalda (PPP), með það að markmiði að efla verðmætasköpun, nýsköpun og tæknilega forystu Íslands í sjávarafurðum og fiskeldi.

Áhrif á fjárheimildir málefnasviðsins.
    Til að framfylgja framangreindum markmiðum um öflugt og samkeppnishæft rekstrarumhverfi sjávarútvegs, faglega og sameinaða stjórnsýslu og skýrari lagaramma fiskeldis er nauðsynlegt að fjárheimildir málaflokksins hækki á næstu árum. Ekki er gerð tillaga þar um að svo stöddu.
    Nauðsynleg hækkun tengist einkum undirliggjandi verkefnum sem styðja við markmiðin, svo sem eflingu gagnasöfnunar, stafrænum lausnum, samhæfingu eftirlits, þekkingaruppbyggingu og styrkingu rannsóknar- og þróunarstarfs, þannig að stjórnsýsla og grunnstoðir sjávarútvegs og fiskeldis verði bæði traustar og samkeppnishæfar til framtíðar. Jafnframt er mikilvægt að taka tillit til kostnaðar vegna fyrirhugaðrar sameiningar Fiskistofu, Matvælastofnunar og Verðlagsstofu skiptaverðs.

14 Ferðaþjónusta.
    Núverandi markmið málefnasviðs 14 um ferðaþjónustu taka ekki nægilega mið af þeim áskorunum sem atvinnugreinin stendur frammi fyrir í alþjóðlegu samhengi. Spár um hægari hagvöxt, óvissu í kaupmætti helstu markaða, aukinn rekstrarkostnað og harðnandi alþjóðlega samkeppni kalla á uppfærð markmið sem styrkja stöðu Íslands í þeirri samkeppni.
    Arðsemi ferðaþjónustunnar er sveiflukennd, greinin er mannaflafrek og árstíðasveiflur þyngja rekstur fyrirtækja, jafnvel þótt dregið hafi úr áhrifum þeirra síðastliðin ár. Samkeppnisaðilar Íslands fjárfesta markvisst í markaðssetningu, einföldu leyfisumhverfi og stöðugri gjaldtöku en þessir þættir endurspeglast ekki nægilega í gildandi markmiðum.
    Núverandi markmið vísa almennt til aukinnar verðmætasköpunar og „endurskoðunar regluverks“ en án þess að taka á grunnforsendum samkeppnishæfni eða þeim þáttum sem tryggja fyrirsjáanleika og stöðugleika fyrir fyrirtæki. Þá skortir markmið sem varða samhæfða markaðssetningu Íslands og uppbyggingu beins alþjóðlegs flugs til landsbyggðar en dreifing ferðamanna er ein stærsta viðvarandi áskorun greinarinnar þótt dregið hafi úr henni síðustu ár.
    Í stjórnsýslu greinarinnar eru veikleikar áberandi. Fagleg greining, markaðssetning og leyfisveitingar eru dreifð milli stofnana og sýslumannsembætta þrátt fyrir áratuga þróun greinarinnar og ekkert er gert ráð fyrir endurmati á verkefnaskiptingu Ferðamálastofu og Íslandsstofu og mögulegri sameiningu þessara stofnana. Þá er stoðkerfi ferðaþjónustu, markaðsstofur landshluta, atvinnuþróunarfélög, sóknaráætlanir landshluta og Hæfnisetur ferðaþjónustunnar hugsanlega orðið of flókið og án fullnægjandi markmiða um heildstæða samræmingu eða áreiðanlegt hlutverkaskipulag.
    Loks eru markmið um sjálfbærni of almenn. Sjálfbær ferðaþjónusta krefst fjárfestinga, þolmarkagreiningar, innviðauppbyggingar og samhæfðrar áfangastaðastjórnunar og ekki eingöngu tilvísunar í „verkfærakistu“, svo dæmi sé tekið.
    Heildstætt séð vantar stefnumið um samkeppnishæfni, aukna skilvirkni stjórnsýslu, markvissa markaðssetningu og sjálfbærni sem geta mætt þeim alþjóðlegu áskorunum sem ferðaþjónustan stendur frammi fyrir.

Dæmi um tillögur að endurbættum markmiðum.
    Eftirfarandi markmið eru stefnumiðuð og afmarka hvert eigi að stefna. Undirliggjandi stoðir og aðgerðir eru ekki hluti markmiðsins sjálfs heldur styðja markmiðin óbeint.

Markmið 1: Að tryggja skýrt, einfalt og samkeppnishæft rekstrarumhverfi ferðaþjónustu.
    Í ljósi umfangs greinarinnar og efnahagslegs mikilvægis þarf að móta stöðugan og skilvirkan ramma um gjaldtöku, skattlagningu, leyfisveitingar og öryggismál sem styður við fjárfestingar, vöruþróun og getu ferðaþjónustufyrirtækja til að aðlagast sveiflum á alþjóðamörkuðum. Þetta markmið felur í sér að tryggja fyrirsjáanleika í rekstri, samræmdar reglur og aukna samkeppnishæfni gagnvart löndum sem keppa við Ísland.

Markmið 2: Skilvirk og samhæfð stjórnsýsla ferðaþjónustu.
    Markmiðið er að stjórnsýsla ferðaþjónustu verði gagnsæ, heildstæð og byggð á skýrri ábyrgðarkeðju þar sem greining, leyfisveitingar, eftirlit og markaðssetning haldast í hendur.
Markmiðið gerir ráð fyrir að skoða sameiningu verkefna Ferðamálastofu og Íslandsstofu innan einnar öflugrar stofnunar til að draga úr tvíverknaði, efla greiningarhæfni og tryggja sterkari slagkraft Íslands á erlendum mörkuðum.

Markmið 3: Að styrkja sjálfbærni, öryggi og dreifingu ferðamanna með samræmdri áfangastaðastjórnun og faglegri uppbyggingu innviða.
    Markmiðið er að tryggja að ferðaþjónusta byggist á sjálfbærri nýtingu náttúru og innviða, með öflugu öryggisumhverfi, greiningu á þolmörkum og markvissri dreifingu ferðamanna um land allt. Stoðir markmiðsins felast í faglegri uppbyggingu á stígakerfum, náttúruvernd, álagsstýringu og notkun stafrænnar tækni og gervigreindar til að stýra aðgengi og upplifun.
    Margt hefur áunnist í öryggismálum síðustu misseri en átak þarf ef tryggja á sjálfbærni greinarinnar til lengri tíma. Veðurfar og aðstæður á Íslandi eru einstakar og mikilvægt að viðvarandi athygli sé höfð á málefnum öryggis.

Markmið 4: Að tryggja sterka alþjóðlega stöðu Íslands og jafna dreifingu ferðamanna með öflugum tengingum við erlenda markaði.
    Markmiðið er að efla alþjóðlega stöðu Íslands sem áfangastaðar með samræmdri markaðssýn og með því að styrkja tengingar landsins við erlenda markaði, þar á meðal með auknum möguleikum á dreifingu ferðamanna til landsbyggðar. Gert er ráð fyrir að markaðssetning sem tengist Akureyri og Egilsstöðum sé á hendi Flugþróunarsjóðs, en markaðssetning að öðru leyti á ábyrgð Íslandsstofu.

Markmið 5: Tryggja að uppbygging ferðaþjónustu byggist á gæðum, sjálfbærni og vandaðri þróun innviða þannig að álag á náttúru og samfélag sé sem minnst.

Tillaga um nýjan málaflokk: Rannsóknir og þróun í ferðaþjónustu.
    Ferðaþjónusta er meðal stærstu atvinnugreina landsins en markmið í fjárlögum um rannsóknir og þróun eru ófullnægjandi og styðja ekki við ákvarðanatöku og stefnumótun greinarinnar. Gildir einu þótt fjármagn til rannsókna sé takmarkað, mikilvægt er að tryggja samræmda og heildstæða nýtingu opinbers fjár til rannsókna og þekkingaröflunar á sviði ferðamála.

Markmið 1: Að byggja upp þekkingardrifna ferðaþjónustu með stöðugu aðgengi að áreiðanlegum gögnum og atvinnugreinatengdum rannsóknum.
    Markmiðið er að tryggja að stefnumótun og ákvarðanir byggist á bestu fáanlegu gögnum um ferðamannahegðun, áhrif gjaldtöku, þróun markaða, álagsstýringu, samfélagsáhrif og verðmætasköpun. Stoðir markmiðsins eru m.a. áreiðanleg gagnasöfnun og greiningar sem styðja við öfluga stefnu, fjármálalegan stöðugleika og innviðauppbyggingu.

Markmið 2: Samræmd öflun og miðlun þekkingar á sviði ferðamála.
    Markmiðið er að samræma rannsóknastarf þeirra stofnana og aðila sem sinna ferðaþjónusturannsóknum og tryggja að niðurstöður þeirra nýtist í framkvæmd og stefnumótun. Stoðir felast í raunverulegu samstarfi milli Ferðamálastofu, Rannsóknamiðstöðvar ferðamála, háskóla, náttúrufræðistofnana og markaðsstofa landshluta eða sameiningu stofnana og samtaka að þessu leyti.

Áhrif á fjárheimildir málefnasviðsins.
    Endurbætt markmið málefnasviðs ferðaþjónustu kalla á auknar fjárheimildir. Þörfin skýrist af eftirfarandi þáttum:
     *      styrkingu greiningar- og rannsóknargetu,
     *      samhæfingu stjórnsýslunnar og mögulegri sameiningu verkefna Ferðamálastofu og Íslandsstofu,
     *      uppbyggingu sjálfbærra innviða og stafrænna lausna til álagsstýringar,
     *      markvissri markaðssetningu Íslands á erlendum mörkuðum,
     *      sérstökum stuðningi við beint alþjóðlegt flug til Akureyrar og Egilsstaða,
     *      þróun og eflingu stoðkerfis ferðaþjónustu á landsbyggðinni.

Áhrif á fjárheimildir.
    Með hliðsjón af mikilvægi ferðaþjónustu fyrir hagkerfið og óvissu í efnahagsmálum er lögð til veruleg aukning fjármagns til markaðssetningar greinarinnar, eða um einn milljarð króna árlega næstu ár.

15 Orkumál.
    Gildandi markmið og aðgerðir á málefnasviði orkumála eru um margt jákvæð og uppbyggileg. Þá er mikilvægt að hafa í huga að stjórnvöld hafa kynnt margvísleg áform um umbætur á sviði raforkumála. Það breytir ekki því að slík markmið eiga einmitt að koma fram í frumvarpi til fjárlaga, auk fjármálaáætlunar.
    Orkumál hafa gjörbreyst eftir innleiðingu orkulöggjafar Evrópusambandsins. Afar mikilvægt er að huga að innleiðingu löggjafar sem tryggir orkuöryggi almennings, heimila og minni fyrirtækja. Einnig þarf að vaka yfir því að iðnaður geti áfram tryggt sér orku í gegnum langtímasamninga, enda eru slíkir samningar forsenda alþjóðlegrar samkeppnishæfni þeirra. Nauðsynlegt er að skapa skýra hvata eða skyldur til þess að tryggja að aukin framleiðsla raforku skili sér í markmið stjórnvalda, svo sem er varða byggðir, nýsköpun og orkuskipti.
    Einnig þarf að tryggja að flutnings- og dreifikostnaður sé jafnaður milli landshluta. Hafa ber í huga að uppbygging orkumannvirkja þarf að byggjast á langtímasýn þar sem allir landshlutar dafna. Byggja þarf á kortlagningu jarðhitans í sókn í nýtingu hans, með áherslu á endurbætur hitaveitna hinna dreifðu byggða sem og þróun jarðhita á köldum svæðum. Tryggja þarf betur forgang heimila til heits vatns í gegnum löggjöf. Umfram allt þarf að standa vörð um náttúru Íslands og gæta þess að fara ekki fram með offorsi í uppbyggingu orkuvera, heldur framsýni og skynsemi þar sem ný verkefni eru ákvörðuð af yfirvegun, með skýrum tilgangi og hámarksábata fyrir landsmenn. Tryggja þarf að arður af orkuauðlindum renni til þjóðarinnar og að auðlindin sé í eigu Íslands um ókomin ár.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum málefnasviðsins.
Markmið 1: Að tryggja orkuöryggi heimila og minni notenda (annarra en stórnotenda).
    Markmiðið felur í sér að útfæra löggjöf til að tryggja forgang almennings að raforku með leið sem tryggir áfram stöðugt og hagkvæmt verð til þessara hópa.

Markmið 2: Að tryggja fulla jöfnun flutningskostnaðar raforku.
    Markmiðið felst í að tryggja að allir landsmenn greiði hið sama fyrir flutning og dreifingu raforku óháð búsetu, með heildstæðri framtíðarsýn um jafnræði, fyrirsjáanleika og gagnsæi í flutnings- og dreifikostnaði.

Markmið 3: Að tryggja vernd og innlent eignarhald á lykilvatnsauðlindum, jarðhita, jarðefnum og ræktanlegu landi í ljósi langtímaalmannahagsmuna.
    Markmiðið er að tryggja að nýting orkuauðlinda byggist á skýrum, gagnsæjum og stöðugum ramma sem þjónar langtímahagsmunum þjóðarinnar og stuðlar að sjálfbærri nýtingu og þjóðhagslegum ávinningi.

Markmið 4: Að móta skýra stefnu um vindorku sem samþættir náttúruvernd, nýtingu og samfélagslegan ávinning.
    Markmiðið tekur til þess að afmarka svæði þar sem vindorka er heimil, tryggja að þróun hennar sé hófstillt, að ávinningur renni til þjóðarinnar og að uppbygging sé í samræmi við vernd náttúru og hagsmuni nærsamfélaga.

Markmið 5: Að hraða jarðhitavæðingu á köldum svæðum til að byggðarlög hafi aðgang að sjálfbærum og hagkvæmum kosti til húshitunar.
    Markmiðið er að byggja upp framtíðarsýn um jarðhitavæðingu allra byggðarlaga sem enn treysta á rafmagns- eða olíuhita. Tekið skal fram að ríkisstjórnin hefur þegar kynnt áform á þessu sviði en mikilvægt er að leggja enn meiri áherslu á köld svæði.

Markmið 6: Að móta skýra stjórnsýslulega og umhverfislega umgjörð fyrir nýtingu orkukosta á hafi.
    Markmiðið er að tryggja að uppbygging orkuframleiðslu á hafi sé samræmd og taki mið af fiskveiðum, siglingum, náttúruvernd og þjóðhagslegum markmiðum í nýtingu orkuauðlinda.

Markmið 7: Að tryggja að raforkukerfið geti staðið undir orkuskiptum, atvinnuuppbyggingu og náttúruvá með uppfærðum innviðum og skilvirkri stjórnsýslu.
    Markmiðið er að byggja upp raforkukerfi sem stenst orkuskipti, aukna rafvæðingu atvinnulífs, nýja tækni og viðnámsþol gagnvart áföllum og náttúruvá.

Áhrif á fjárheimildir málefnasviðsins.
    Innleiðing nýrra markmiða krefst án efa hækkunar fjárheimilda á næstu árum. Helstu fjárhagsáhrif eru eftirfarandi:
     *      Þörf á framkvæmd og fjármögnun til fullrar jöfnunar orkukostnaðar og uppbyggingar dreifikerfis til að ná fram fullu jafnræði milli landshluta.
     *      Efling jarðhitaleitar, greininga og rannsóknarverkefna á köldum svæðum.
     *      Uppbygging heildstæðs gagnagrunns og reglulegra orkuspáa til að styðja við áætlanagerð og orkuskipti.
     *      Rannsóknir og stefnumótun um vindorku og aðra orkuvinnslu á hafi, svo sem sjávarfallavirkjanir sem skoða þarf betur með fjölbreytni raforkukerfisins í huga. Uppfærðir innviðir til að mæta orkuskiptum og aukinni eftirspurn.
     *      Skýrara leyfisumhverfi og vönduð lagasetning til að tryggja skilvirkari stjórnsýslu.
    Ekki er gerð tillaga um hækkun fjárheimilda. En með hliðsjón af umfangi nauðsynlegra verkefna og orkuspám er raunhæft að ætla að fjárheimildir þurfi að hækka um allt að 400–600 m.kr. á næstu árum, til að tryggja að markmið málefnasviðsins náist.

16 Markaðseftirlit og neytendamál.
Almennt um núgildandi markmið.
    Núverandi markmið fyrir markaðseftirlit og neytendamál eru að mörgu leyti jákvæð. Tilvísun til aukins gagnsæis, virkari samkeppni og heilbrigðari viðskiptahættir fjármála- og viðskiptalífs eru þannig óhjákvæmilega mikilvægir þættir efnahagslífsins.
    Þó verður að telja að markmiðin og aðgerðir þeim tengdar endurspegli ekki þær kerfislægu áskoranir sem íslenskt efnahagslíf stendur frammi fyrir á tímum hraðra tæknibreytinga, aukinnar alþjóðlegrar samkeppni, stafrænnar þróunar og flókins fjármálaumhverfis.
    Markmiðasetningin og aðgerðir henni tengdar taka enn fremur ekki mið af því að öflugt samkeppniseftirlit er ein af grunnforsendum heilbrigðs viðskiptalífs. Árangursrík samkeppni stuðlar að lægra vöruverði, meiri framleiðni, nýsköpun og jafnræði á mörkuðum. Engu að síður er engin stefna eða sjónarmið sett fram um hvernig styrkja eigi stöðu Samkeppniseftirlitsins, hvernig draga megi úr langri málsmeðferð, auka gagnsæi, hraða úrlausnum eða styrkja getu þess á stafrænum og alþjóðlegum mörkuðum. Ekki er hægt að tala með góðri samvisku um eflingu samkeppniseftirlits.
    Einnig vantar heildstæða stefnu um einföldun stjórnsýslu, þrátt fyrir að verkefni Samkeppniseftirlitsins, Neytendastofu og annarra eininga skarist á mörgum sviðum.
    Þá eru markmiðin ekki í takt við þróun nýrra viðskiptahátta: gervigreindarlausna, sjálfvirkra greiðslukerfa, stafrænna vettvanga og aukinna erlendra fjárfestinga í viðkvæmum innviðum, að því frátöldu að gert er ráð fyrir að ein aðgerð tengist rýni á erlendum fjárfestingum. Slíkt er mikilvægt og ber að fagna. Þó er rétt að hafa í huga að megináskorun því tengd er hvernig tryggja megi jafnvægi milli þjóðaröryggis og áframhaldandi erlendrar fjárfestingar í íslensku efnahagslífi.
    Framsettar aðgerðir vísa almennt séð frekar til endurskoðunar á löggjöf en skortir stefnu um framkvæmd, notendaupplifun, hraða málsmeðferðar og hvernig tryggja megi að stjórnsýslan verði gagnadrifin, tæknilega sterk og í stakk búin til að vernda hagsmuni almennings.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum málefnasviðsins.
Markmið 1: Að efla samkeppni og tryggja heilbrigða viðskiptahætti með styttri málsmeðferð og skýrari forgangsröðun.
    Markmiðið er að tryggja virka samkeppni á íslenskum mörkuðum, með aukinni getu til að bregðast við óeðlilegri samþjöppun og misnotkun markaðsráðandi stöðu. Augljóslega er virkt og nútímalegt eftirlit með samkeppni á markaði grundvallaratriði í því ljósi. Jafnframt er mikilvægt að til staðar séu ávallt upplýsingar um stöðu og þróun atvinnulífs, svo sem samþjöppun á matvæla- og neysluvörumarkaði, svo að dæmi sé tekið.

Markmið 2: Að tryggja samræmda, gagnsæja og skilvirka stjórnsýslu markaðseftirlits og neytendaverndar sem fylgir hraða tæknibreytinga.
    Markmiðið er að skapa heildstæðari stjórnsýslu þar sem samkeppniseftirlit, neytendavernd og markaðseftirlit á sem flestum sviðum haldast í hendur. Augljóslega þarf að koma til sameiningar stofnana í þessu tilviki.

Markmið 3: Að tryggja jafnvægi í erlendum fjárfestingum með tilliti til þjóðaröryggis og áframhaldandi erlendrar fjárfestingar.

Áhrif á fjárheimildir málefnasviðsins.
Ekki er gerð tillaga um hækkun fjárheimilda. Innleiðing endurbættra markmiða kallar þó á aukna fjárþörf, einkum vegna:
     *      eflingar Samkeppniseftirlitsins og aukinnar getu til að bregðast við markaðsmisnotkun og samþjöppun,
     *      skýrari og samræmdri stjórnsýslu, þar á meðal mögulegrar samþættingar Samkeppniseftirlits og Neytendastofu,
     *      uppbyggingar stafrænna innviða sem styðja við neytendavernd og eftirlit með stafrænu hagkerfi,
     *      aukinna verkefna vegna rýni á erlendum fjárfestingum og verndar viðkvæmra innviða,
     *      gerðar gagnadrifinna greininga og styttri málsmeðferðartíma.
    Raunhæft er að ætla að fjárheimildir málaflokksins þurfi að hækka um 100–200 m.kr. næstu ár til að markmið þess nái fram að ganga og til að tryggja heilbrigt, samkeppnishæft og neytendavænt markaðsumhverfi.

17 Umhverfismál.
    Gildandi markmið á málefnasviði umhverfismála eru að formi til jákvæð en tiltölulega almenn. Þá er ekki ljóst hver tenging þeirra við fjárheimildir málefnasviðsins er, getu stjórnsýslunnar til vinna eftir þessu markmiði og raunverulegar áskoranir náttúruverndar á Íslandi.
    Markmiðin veita þannig ekki nægilegan stefnumótandi ramma til að tryggja að náttúruvernd á Íslandi sé í hávegum höfð í ljósi einstakrar náttúru og verðmætra víðerna. Það þýðir m.a. að ástand friðlýstra svæða batni, vistkerfi nái endurheimt og að fjölbreytt landnýting sé sjálfbær. Til þess að markmið á málefnasviðinu geti veitt framkvæmdarvaldinu leiðsögn um nýtingu fjármagns verða þau að vera skýr og hnitmiðuð.

17.10 Náttúruvernd, skógrækt og landgræðsla.
    Gildandi markmið fyrir málefnasvið umhverfismála taka til mikilvægra þátta, sérstaklega varðandi áfangastaði innan náttúruverndarsvæða, endurheimt vistkerfa, skógrækt og friðlýst svæði. Þrátt fyrir það varpa markmiðin ekki skýrri heildarsýn á hvernig umhverfisvernd og sjálfbær landnýting þróast til lengri tíma.
    Markmiðasetningin er skýr um einstaka verkefni á borð við friðlýsingar, reglugerðarsetningar og áfangastaðamat, en skortir skýrt stefnumótunarlegt samhengi um:
     *      hvernig tryggja eigi vernd víðerna og vistkerfa og efla náttúruvernd til langs tíma,
     *      hvernig samræma eigi landnýtingu, náttúruvernd og ferðamennsku,
     *      hvernig sjálfbær landnýting, skógrækt og endurheimt vistkerfa falli inn í loftslagsmarkmið Íslands,
     *      hvernig tryggja eigi samvinnu milli stofnana, sveitarfélaga og landshluta,
     *      og hvernig auka eigi gagnadrifna vöktun og stöðugreiningu.
    Viðfangsefnin sem nefnd eru samhliða markmiðum, svo sem innleiðing reglugerða, áfangastaðamat, fræhús, og vöktun eru mikilvæg, en markmiðið sjálft þarf að vera stefnumiðaðra. Einnig má nefna að markmiðin ná ekki nægilega vel yfir heildarmynd vistkerfa:
     *      áhrif ferðamennsku,
     *      áhrif landnotkunar til framtíðar,
     *      samspil verndar og atvinnuuppbyggingar,
     *      mikilvægi nýsköpunar og samvinnu,
     *      vaxandi álagsþrýsting á vinsælum svæðum,
     *      tengsl við loftslagsaðgerðir og náttúruvá.
    Heildstætt séð eru tilgreind markmið jákvæð og þau lýsa mikilvægu starfi en þau vantar skýrari framtíðarsýn, mælanlega stefnu og samræmda nálgun sem nær yfir náttúruvernd, vistkerfi, landnýtingu, ferðamennsku og loftslagsmál í einum heildstæðum ramma.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum málaflokksins.
Markmið 1: Tryggja öfluga vernd vistkerfa og náttúru sem grundvallarþátt í skipulagi, þróun og framtíðarsýn landsins.
    Markmiðið felur í sér framtíðarsýn um að náttúruvernd hafi raunverulegan sess í skipulagi og framtíðarsýn landsins.

Markmið 2: Að efla endurheimt vistkerfa og sjálfbæra landnýtingu í þágu loftslagsmarkmiða og líffræðilegrar fjölbreytni.
    Markmiðið er að tryggja að endurheimt vistkerfa, nýskógrækt, landgræðsla og sjálfbær landnýting séu hluti af heildstæðri umhverfis- og loftslagsstefnu. Þetta felur m.a. í sér reglubundna vöktun, samþætta landnotkun og öflugar rannsóknir.

Markmið 3: Að styrkja náttúruvernd, m.a. með heildstæðri stjórnunar- og verndaráætlun fyrir friðlýst svæði.
    Markmiðið er að tryggja að friðlýst svæði njóti skýrrar stefnu, faglegra stjórnunar- og verndaráætlana í samvinnu við lykilaðila, svo sem bændur, og að gildandi verndarákvæði endurspegli raunverulegt ástand náttúru og álag vegna ferðamanna.

Markmið 4: Að tryggja að Ísland nái markmiðum sínum um vernd lands og hafsvæða í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar með skynsömum hætti.
    Markmiðið er að auka umfang land- og hafsvæða sem njóta verndar eða virkrar svæðisverndar í samræmi við samning Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni.

Markmið 5: Að efla rannsóknir og gagnadrifna vöktun sem grundvöll stefnumótunar í náttúruvernd og landnýtingu.
    Markmiðið er að tryggja reglubundna vöktun vistkerfa, styrkja rannsóknarinnviði og efla gagnadrifna ákvarðanatöku um náttúruvernd, verndun haf- og vatnasvæða og þróun landnýtingar.

Markmið 6: Að efla nýliðun, nýsköpun og verðmætasköpun í fjölbreyttum landbúnaði um allt land þar sem virðing fyrir landinu, lögmál hringrásarhagkerfis og besta fáanlega tækni með sjálfbærni í huga er í forgrunni.

Áhrif á fjárheimildir málefnasviðsins.
    Innleiðing endurbættra markmiða kallar ekki á hækkun fjárheimilda.

17.20 Rannsóknir og vöktun á náttúru Íslands.
    Gildandi markmið (aðgerð) um eflingu vöktunarkerfis vegna náttúruvár byggjast á mörgum mikilvægum og málefnalegum forsendum. Þá er mikilvægt að efla rannsóknir á áhrifum loftslagsbreytinga. Erfitt er þó að meta heildarstefnu málaflokksins og að hvaða árangri er stefnt, þrátt fyrir annars margar jákvæðar aðgerðir.
    Þær aðgerðir sem settar eru fram lýsa réttilega mikilvægu uppbyggingarstarfi eins og endurnýjun mælakerfa og upplýsingatæknikerfa, en skortir stefnumiðaða framtíðarsýn um það hvernig vöktunarkerfið á að þróast og hvaða öryggisviðmiðum eigi að ná.
    Markmiðin taka að nokkru of lítið tillit til áskorana Íslands, svo sem aukinnar tíðni og styrks náttúruvár (eldvirkni, jarðskjálftar, snjóflóð, vatnavextir, skriðuföll), áhrifa loftslagsbreytinga á öll þessi svið og vaxandi þarfar atvinnulífs og samfélags fyrir nákvæmari og tímabundnar viðvaranir m.a. í ljósi umfangs ferðaþjónustu þvert á landshluta. Án vafa eru gögn tiltæk um fyrrgreind atriði en mikilvægt er að þeim sé þá lýst í umfjöllun um áskoranir og aðgerðir innan sviðsins.
    Þá virðist sem núverandi markmiðasetning og aðgerðir greini ekki nægilega skýrt frá því hvernig tryggja eigi rekstraröryggi grunninnviða Veðurstofu Íslands, sem er mikilvægt almannavarnamál, né heldur hvernig bæta eigi forspárkerfi, samþætt gagnakerfi og hættumat í lofti, á láði og legi.
    Varðandi markmið um rannsóknir á loftslagsbreytingum er áherslan mikilvæg en of þröng.
Það vantar stefnu (eða skýrari vísbendingu) um:
     *      hvernig tryggja eigi reglubundna og samræmda vöktun loftslagsáhrifa,
     *      hvernig auka eigi gagnasöfnun varðandi áhrif á vistkerfi, innviði, haf og samfélög,
     *      og hvernig rannsóknir skuli styðja við aðlögunaráætlanir sveitarfélaga, atvinnulífs og grunnkerfa.
    Heildstætt séð eru markmiðin jákvæð en vantar skýrari stefnumörkun, forgangsröðun og framtíðarsýn, ásamt sterkari tengingu við íslenska loftslagsáhættu og þjóðaröryggi.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum málaflokksins.
Markmið 1: Að tryggja öflugt og samhæft vöktunarkerfi náttúruvár með skýrum öryggisviðmiðum og fyrirsjáanlegum viðbragðstíma.
    Markmiðið er að byggja upp vöktunarkerfi sem tryggir áreiðanlega, samfellda og gagnadrifna vöktun náttúruvár um allt land með skýrum öryggisviðmiðum, lengri viðvörunartíma og auknu rekstraröryggi. Í þessu felst m.a. stöðug uppbygging mæla-, viðvörunar- og upplýsingakerfa.

Markmið 2: Að styrkja áhættu- og hættumat sem grundvöll forvarna og fyrirkomulags ákvarðanatöku.
    Markmiðið er að tryggja að áhættu- og hættumat náttúruvár sé reglubundið, samhæft og byggist á bestu fáanlegu vísindum, þannig að ákvarðanir um skipulag, innviðauppbyggingu og viðbragðsáætlanir byggist á áreiðanlegum upplýsingum.

Markmið 3: Að efla rannsóknir á loftslagsbreytingum og áhrifum þeirra á samfélag, náttúru og hafsvæði.
    Markmiðið er að tryggja að rannsóknir og vöktun loftslagsbreytinga séu heildstæðar og styðji við aðlögun og langtímavernd samfélaga, vistkerfa, hafs og innviða. Stoðir fela m.a. í sér öflug gagnakerfi, þverfaglegar rannsóknir og reglubundna miðlun upplýsinga.

Áhrif á fjárheimildir málaflokksins.
    Nú þegar er í fjárlagafrumvarpi gert ráð fyrir aukningu fjárheimildar um 250 m.kr. vegna gerðar og framkvæmdar hættumats vegna náttúruvár. Í ljósi mikilvægis forgangsröðunar er rétt að styðja við slíka aukningu.

17.50 Stjórnsýsla umhverfismála
    Markmið málefnasviðsins endurspegla mikilvægar áherslur stjórnvalda í loftslagsmálum og innviðum sveitarfélaga. Þau byggjast á verkefnum sem þegar eru í framkvæmd, svo sem aðgerðaáætlun í loftslagsmálum, LULUCF-bókhaldi, innleiðingu ESB-regluverks og stuðningi við nýsköpun og varpa ljósi á lykilþætti sem þarf að sinna á árinu 2026.
    Þrátt fyrir þetta mætti skerpa markmiðin þannig að þau endurspegli betur langtímaforgangsröðun, heildstætt samhengi loftslagsaðgerða og hvernig einstakir verkþættir styðja við markmið um kolefnishlutleysi og aðlögun samfélaga.
    Á sviði losunarbókhalds og gagnasöfnunar er þegar unnið að umbótum en tækifæri eru til að styrkja heildarsýn um reglubundna vöktun, greiningu og miðlun gagna sem grunn fyrir ákvarðanatöku ríkis og sveitarfélaga.
    Markmið um aðlögun að loftslagsáhættu eru skýr í verkefnalýsingu en mætti setja fram á þann hátt að þau undirstriki mikilvægi samræmdrar og gagnadrifinnar nálgunar í samstarfi ráðuneyta, stofnana, sveitarfélaga og atvinnulífs.
    Varðandi fráveitukerfi sveitarfélaga er skýr þörf á uppbyggingu og samhæfingu og tækifæri eru til að leggja áherslu á sjálfbærni, heildarsýn og öryggi innviða.
    Heildstætt má segja að markmiðin séu góð undirstaða en mætti setja fram á skýrar og framtíðarmiðaðar línur þannig að þau lýsi bæði ásetningi og stefnu til lengri tíma.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum málaflokksins.
Markmið 1: Að tryggja markvissan og mælanlegan samdrátt nettólosunar gróðurhúsalofttegunda í samræmi við markmið Íslands.
    Markmiðið felst í að fylgja eftir stefnu um losun og bindingu þannig að Ísland nái markmiðum sínum á sviði loftslagsmála á áætlun og með skýrum árangursviðmiðum.

Markmið 2: Að efla viðnámsþrótt byggðarlaga og vistkerfa með samræmdri aðlögun að loftslagsáhættu.
    Markmiðið er að tryggja öfluga aðlögun að loftslagsbreytingum í samstarfi ríkis og sveitarfélaga þannig að innviðir, náttúra og samfélög verði betur í stakk búin til að mæta breytingum á veðurfari, hafinu og náttúruvá. Sjónarmið um mótvægisaðgerðir auk aðlögunar koma hér óhjákvæmilega einnig til skoðunar.

Markmið 3: Að tryggja sjálfbæra og örugga fráveitu um allt land.
    Markmiðið er að styðja við nútímaleg, örugg og umhverfisvæn fráveitukerfi sem uppfylla heilbrigðis- og umhverfisviðmið til framtíðar.

Áhrif á fjárheimildir málefnasviðsins.
    Ekki er gert ráð fyrir að aðlöguð markmið kalli á frekari fjárheimildir.

18 Menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál.
18.40 Íþróttir og æskulýðsmál.
    Markmið málaflokksins taka á mikilvægum verkefnum, m.a. umgjörð afreksíþrótta, undirbúningi þjóðarleikvanga og stuðningi við æskulýðsstarf. Þau varpa ljósi á verkefni sem eru nauðsynleg fyrir uppbyggingu íþróttamannvirkja og afreksstarfs. Rétt er að hafa í huga að starfsemi í málaflokknum er að mestu leyti á hendi frjálsra félaga og félagasamtaka í samstarfi við ríki og sveitarfélög og veltur starfsemi þeirra að hluta til á sjálfboðavinnu en að mestu á ráðnu starfsfólki sem sinnir faglegu starfi.
    Þrátt fyrir ýmislegt jákvætt í umfjöllun um málefnasviðið gætu markmið málaflokksins verið nokkru skýrari um heildarstefnu, sérstaklega þegar litið er til lýðheilsu, virkni almennings og aukinnar þátttöku barna og ungmenna.
    Tækifæri er til að leggja meiri áherslu á íþróttir sem grunnstoð heilsu, forvarna og félagslegrar þátttöku og skýra hvernig stjórnvöld vilji styðja við fjölbreytt, aðgengilegt og gæðadrifið íþróttastarf fyrir alla aldurshópa.
    Einnig mætti skerpa á markmiði um þátttöku barna af erlendum uppruna, m.a. í tengslum við samhæft samstarf ríkis, sveitarfélaga og íþróttahreyfinga.
    Aðgerð um þjóðarleikvanga er mikilvægt innviðamál en það mætti setja í samhengi við heildarsýn á aðstöðu og gæði íþróttamannvirkja um allt land fremur en að talin séu upp einstök verkefni.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum málaflokksins.
Markmið 1: Að efla íþróttir sem grunnstoð lýðheilsu og tryggja breiða þátttöku barna, ungmenna og almennings.
    Markmiðið er að styðja við aukna virkni og heilsueflingu allra aldurshópa, með sérstakri áherslu á þátttöku barna og ungmenna, þ.m.t. barna með annað móðurmál en íslensku. Aðgerðir tengdar markmiðinu geta falist m.a. í gæðauppbyggingu íþrótta- og æskulýðsstarfs og fjölbreyttu aðgengi og samstarfi við sveitarfélög, íþróttafélög og menntastofnanir.

Markmið 2: Að tryggja öfluga og faglega umgjörð afreksíþrótta í samræmi við alþjóðleg viðmið.
    Markmiðið er að styðja við afreksíþróttafólk með faglegu umhverfi, skýrum réttindum og sameiginlegri stefnu milli ríkis, ÍSÍ og sérsambanda. Aðgerðir tengdar markmiðinu felast m.a. í heildrænni nálgun á réttindi afreksfólks, samstarfi við Lyfjaeftirlit Íslands og vinnu gegn hagræðingu úrslita.

Markmið 3: Að styrkja aðstöðu og innviði í íþróttum með markvissri uppbyggingu þjóðarleikvanga og annarra lykilmannvirkja.
    Markmiðið er að tryggja að Ísland hafi nútímalega, fjölnota- og faglega íþróttaaðstöðu sem styður bæði afreksstarf og breiðari samfélagsþátttöku. Aðgerðir tengdar markmiðinu felast m.a. í undirbúningi þjóðarleikvangs, samræmdri aðstöðustefnu og samstarfi ríkis, sveitarfélaga og hreyfingarinnar.

Markmið 4: Að efla æskulýðsstarf með samræmdri stefnu, auknum gæðum og bættri aðkomu barna af ólíkum uppruna.
    Markmiðið er að tryggja að æskulýðsstarf sé aðgengilegt, faglegt og í takt við þarfir fjölbreytts hóps barna og ungmenna.

Markmið 5: Að styrkja vernd barna á stafrænum vettvangi með skýrari viðmiðum um aldur, öryggi og markaðssetningu.
    Markmiðið felur í sér að skapa öruggara stafrænt umhverfi fyrir börn með því að treysta aldurstengdar verndarráðstafanir, draga úr áhættu tengdri samfélagsmiðlum og tryggja að markaðssetning og stafrænt efni sem beinist að börnum sé í samræmi við öryggi þeirra og þroska.
    Áhersla markmiðsins er á heildstæða nálgun stjórnvalda þar sem mennta- og barnamálaráðuneyti, dómsmálaráðuneyti, innviðaráðuneyti og Persónuvernd samræma sjónarmið um stafræna velferð barna, aldurstakmörk og ábyrgð fyrirtækja á netinu.

Markmið 6: Skattumhverfi íþróttafélaga stuðli að stöðugu, sanngjörnu og sjálfbæru rekstrarumhverfi íþróttastarfs um land allt.
    Markmiðið felur í sér að skattumhverfi íþróttafélaga endurspegli mikilvægi íþróttastarfs fyrir lýðheilsu, æskulýðsmál og samfélagsþátttöku. Með því að tryggja að umgjörðin sé skýr, fyrirsjáanleg og í samræmi við erlendar fyrirmyndir er stuðlað að því að íþróttafélög hafi burði til að sinna lögbundnu og félagslegu hlutverki sínu á traustum grunni.

Áhrif á fjárheimildir 2026.
    Lagt er til að fjárheimild málaflokksins hækki um 200 m.kr. til að styðja við ferðasjóð ÍSÍ.

19 Fjölmiðlun.
19.10 Fjölmiðlun.
    Núverandi markmið endurspegla mikilvægi fjölmiðla fyrir upplýst lýðræði, gagnsæi og heilbrigt samfélag. Þau taka á lykilatriðum eins og stuðningi við einkarekna fjölmiðla, miðlalæsi og þjónustu Ríkisútvarpsins. Hins vegar gætu markmiðin varpað skýrara ljósi á heildarstefnu stjórnvalda um fjölmiðlaumhverfi framtíðar. Þannig má nefna að „stuðningur“ einn og sér við einkarekna fjölmiðla sem markmið felur ekki nægilega skýra skírskotun til þess árangurs sem stefnt er að á sviði fjölmiðlunar.

Dæmi um tillögur að endurskoðuðum markmiðum málaflokksins.
Markmið 1: Að tryggja fjölbreytt og sjálfbært fjölmiðlaumhverfi sem styrkir lýðræði, ritstjórnarlegt sjálfstæði og aðgengi almennings að traustum upplýsingum.
    Markmiðið er að styðja við fjölbreyttan hóp sjálfstæðra fjölmiðla, efla stöðu einkarekinna og svæðisbundinna fjölmiðla og tryggja að ritstjórnir hafi burði til vandaðrar og óháðrar umfjöllunar. Grunnur og aðgerðir tengdar markmiðinu varða t.d. endurskoðun á stuðningskerfum, stefnumótun og eflingu miðlalæsis.

Markmið 2: Að tryggja sterkt og óháð Ríkisútvarp sem veitir fjölbreytta, vandaða og aðgengilega fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu.
    Markmiðið er að RÚV starfi á grundvelli trausts, fagmennsku og gæðaviðmiða, með skýru hlutverki í menningarlegri miðlun, íslensku efni, máltækni og stafrænni nýsköpun. Forsendur markmiðsins felast m.a. í þróun íslenskra máltæknilausna, sjálfvirkrar textunar og aðgengis allra aldurshópa að efni í almannaþágu.

Markmið 3: Að efla stafræna hæfni, netöryggi og miðlalæsi allra aldurshópa en sérstaklega barna og ungmenna.
    Markmiðið er að tryggja að börn, ungmenni og fullorðnir hafi færni til að meta stafrænar upplýsingar, þekkja áhættu, treysta á áreiðanlegar heimildir og takast á við stafrænt samfélag af öryggi og ábyrgð.

Áhrif á fjárheimildir 2026.
    Ekki er gert ráð fyrir aukningu fjárheimilda.

20 Framhaldsskólastig.
20.10 Framhaldsskólar.
Greining á stöðu og núgildandi markmiðum.
    Núverandi markmið málefnasviðs 20 endurspegla mikilvæga þætti í uppbyggingu framhaldsskólastigsins, m.a. eflingu starfsnáms, fjölgun útskrifta og gæðastarf. Verkefnin sem tilgreind eru fyrir 2026 eru eðlileg og nauðsynleg, t.d. stækkun skólahúsnæðis, þróun gæðaviðmiða og innleiðing menntastefnu til ársins 2030.
    Tækifæri eru þó til að skerpa markmiðasetninguna þannig að hún sé heildstæðari og endurspegli betur áherslu á gæði náms og kennslu, íslenskukunnáttu og málfærni, minna brotthvarf og jöfn tækifæri, aðgengi nemenda að stuðningi og skólaþjónustu, þróun starfs- og tæknináms í takt við atvinnulífið, aukin áhrif stafrænnar tækni og gervigreindar á nám, kennslu, matskerfi og námsaðstoð. Uppbygging verknámsskóla er lykilþáttur í eflingu verknáms.
    Sérstök þörf er á að styrkja íslenskukennslu bæði fyrir nemendur með íslensku sem móðurmál og þá sem hafa annað móðurmál þar sem málfærni er lykilforsenda námsárangurs og þátttöku á vinnumarkaði og í samfélaginu almennt.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum málaflokksins.
Markmið 1: Að efla gæði menntunar og tryggja stöðugan námsárangur nemenda á framhaldsskólastigi.
    Markmiðið er að byggja áfram upp framhaldsskólastarf sem skilar háum námsárangri, fagmennsku, fjölbreyttum kennsluháttum og skýrum gæðaviðmiðum. Grunnaðgerðir tengdar markmiðinu felast m.a. í gæðamati, fagmennsku kennara, nútímalegu námsumhverfi og sameiginlegu gæðakerfi skólanna.

Markmið 2: Að efla íslenskukunnáttu og málfærni allra nemenda með sérstaka áherslu á nemendur með annað móðurmál en íslensku.
    Markmiðið er að tryggja að íslenska sé undirstaða alls náms framhaldsskóla þannig að allir nemendur nái og búi yfir góðri málfærni sem eykur námsárangur og samfélagsþátttöku.

Markmið 3: Að draga úr brottfalli nemenda og tryggja að framhaldsskólakerfið mæti þörfum sem flestra nemenda.
    Markmiðið er að stuðla að því að fleiri nemendur ljúki námi á grunni heildstæðrar skólaþjónustu, einstaklingsmiðaðs náms, fjölbreyttra námsleiða og markvissra stuðningsúrræða.

Markmið 4: Að efla starfs- og tækninám sem lykilþátt í íslensku atvinnulífi og tryggja jafnari kynjadreifingu.
    Markmiðið er að þróa og efla starfs- og tækninám með gæðum, góðri aðstöðu, samstarfi við atvinnulífið og jafnrétti kynja í námsvali.

Markmið 5: Að nýta tækifæri gervigreindar og stafrænna lausna til að bæta nám, kennslu og stuðning við nemendur og kennara.
    Markmiðið er að tryggja ábyrga og faglega innleiðingu stafrænnar tækni og gervigreindar í námi, kennslu, námsmati og stuðningskerfum, þannig að tæknin styðji við gæði, jöfnuð og námsárangur.

Áhrif á fjárheimildir 2026.
    Innleiðing endurbættra markmiða mun kalla á aukna fjármögnun, sérstaklega á sviði íslenskukennslu, gæðauppbyggingar og stafrænnar þróunar. Með hliðsjón af umfangi þessara verkefna er áætlað að fjárheimildir þurfi að hækka um 300 m.kr. til að markmiðin náist með fagmennsku og ábyrgð.

20.20 Tónlistarfræðsla.
    Tónlistarfræðsla á Íslandi byggist á fjölbreytilegu og sterku skólaneti sem er að mestu rekið af sveitarfélögum, samkvæmt lögum nr. 75/1985, um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla. Ríkið ber faglega ábyrgð á tónlistarfræðslu, þar á meðal gerð námskrár og námsefnis, og skipar samstarfsnefnd tónlistarfræðslunnar til að fjalla um starfsemi tónlistarskóla og tengsl þeirra við önnur skólastig.
    Þrátt fyrir þetta fyrirkomulag eru engin heildarlög um listmenntun á Íslandi, hvorki fyrir tónlist né aðrar listgreinar, og í menntastefnu til ársins 2030 er beinlínis gert ráð fyrir að slík rammalöggjöf verði mótuð. Þessi staða skapar tækifæri til að styrkja stefnumótun á sviði tónlistarfræðslu, tryggja betri samræmingu milli skólastiga og efla jafnt aðgengi.
    Tónlistarfræðsla hefur margvíslegt gildi fyrir menntakerfið. Hún styður málþroska, lestur og ritun, eflir hugarfestu, sköpun, sjálfstæði og sjálfstraust, styrkir félagsfærni og vellíðan og tengir börn og ungmenni við íslenska sem og alþjóðlega menningararfleifð.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum málaflokksins.
     Markmið 1: Að tryggja jöfn tækifæri barna og ungmenna til tónlistarfræðslu um allt land, í samstarfi ríkis og sveitarfélaga.
    Markmiðið er að tónlistarfræðsla sé aðgengileg öllum börnum og ungmennum óháð búsetu, félagslegum aðstæðum og rekstrarformi tónlistarskóla.

Markmið 2: Að efla gæði tónlistarfræðslu með skýrum námsviðmiðum, fagmennsku kennara og reglubundnu mati.
    Markmiðið er að tryggja að tónlistarfræðsla á öllum skólastigum sé fagleg, markviss og byggð á skýrum námsviðmiðum og námskrárvinnu.

Markmið 3: Að samþætta tónlistarfræðslu við öll skólastig í samræmi við menntastefnu til ársins 2030 og væntanlega rammalöggjöf um listmenntun.
    Markmiðið er að tryggja samfellu í tónlistarnámi frá leikskóla til framhaldsskóla og tónlistarskóla og að tónlistarfræðsla styðji við heildstæða menntun, skapandi hugsun, málþroska og félagsfærni.

Markmið 4: Að styðja við íslenskt tónlistarlíf, listsköpun og framhaldsmenntun með sterkum tengslum milli tónlistarskóla, listaháskóla og menningarstofnana.
    Markmiðið er að tónlistarfræðsla skapi grunn að öflugu tónlistarlífi, fagmenntun og skapandi atvinnugreinum.

Markmið 5: Að tryggja að tónlistarfræðsla styðji við heilsueflingu, félagsfærni og vellíðan barna og ungmenna.
    Markmiðið er að nota tónlist sem hluta af heildstæðum leiðum til að efla vellíðan, samvinnu, félagsleg tengsl og hugræna færni ungs fólks. Í þessu felst m.a. betri samþætting tónlistarfræðslu við aðra þætti skólakerfisins, tómstundir og félagsstarf.

Áhrif á fjárheimildir 2026.
    Útfærsla markmiðanna og framkvæmd kallar á samræmi við boðaða rammalöggjöf um listfræðslu þar sem m.a. verður kveðið á um tilgang listmenntunar. Í því ljósi er ekki æskilegt að leggja til aukningu fjárheimilda til málaflokksins að svo stöddu.

21 Háskólar.
    Háskólakerfi landsins stendur frammi fyrir því verkefni að mæta fjölbreyttum þörfum samfélagsins á sama tíma og umgjörð háskólastarfs breytist hratt, bæði vegna tækniframfara, þróunar á vinnumarkaði og aukinna alþjóðlegra krafna. Háskólar eru lykilaðilar í að byggja upp þekkingu, nýsköpun, menntun og mannauð, og gegna sífellt stærra hlutverki í atvinnuþróun og stefnumótun samfélagsins.
    Markmiðasetning málaflokksins er þegar til staðar en hana mætti skýra til að endurspegla betur mikilvægi gæðamenntunar, tengsl háskóla við atvinnulíf og þátttöku þeirra í mótun nýrrar atvinnustefnu sem nú er í vinnslu. Þá er ljóst að hraðar tæknibreytingar, ekki síst tilkoma gervigreindar, kalla á ábyrg vinnubrögð, skýrar siðferðisreglur og endurnýjaðar kennsluaðferðir.
    Í raun eru líkur á að allt skólastarf sé að taka meiri breytingum en nokkurn grunar. Á það við um öll skólastig og allar tegundir fræðslu.
    Á sama tíma er áskorun að tryggja inngildingu, aðgengi, geðrækt og velsæld nemenda, enda hefur upplifun nemenda af andlegri líðan, stuðningi og námsumhverfi afgerandi áhrif á námsárangur. Uppbygging aðstöðu, rannsóknarinnviða og skýrari samvinna háskóla innbyrðis og við atvinnulíf er orðin nauðsynleg til að styðja við samkeppnishæfni Íslands í alþjóðlegu þekkingarumhverfi og til að styrkja framlag háskóla til samfélagsins um land allt.
    Heildstætt litið stendur málaflokkurinn á tímamótum þar sem tækifæri eru til að endurnýja áherslur, skýra markmið og styrkja stoðir háskólastigsins til framtíðar.

Markmið 1: Að tryggja framúrskarandi gæði náms og kennslu og styðja stöðugan námsárangur nemenda.
    Markmiðið felst í því að háskólanám og kennsla byggist ávallt á skýrum gæðaviðmiðum, fagmennsku og fjölbreyttum kennsluháttum þannig að nemendur nái árangri sambærilegum við það best sem gerist erlendis og íslenskt háskólastig standi þar með sterkt í samanburði við önnur lönd.
    Liður í að ná þessu markmiði felst m.a. í reglulegu innra og ytra mati, fagþróun kennara, skýrum námsviðmiðum og notkun nútímalegra kennsluaðferða sem styðja við gagnrýna hugsun.

Markmið 2: Að tryggja ábyrga, gagnsæja og faglega innleiðingu gervigreindar í kennslu, rannsóknum og stjórnsýslu háskóla.
    Markmiðið er að háskólar verði leiðandi í ábyrgri innleiðingu gervigreindar og öðrum stafrænum lausnum þannig að tæknin styðji við gæði náms, aðgengi, nýsköpun og siðferðileg vinnubrögð.

Markmið 3: Að tryggja notagildi náms og tengsl háskólamenntunar við þarfir samfélags og atvinnulífs.
    Markmiðið er að háskólanám skili þekkingu og hæfni sem nýtist vel á vinnumarkaði og styðji við atvinnustefnu og mönnunarþörf greina, bæði í nútíð og framtíð.
Liður í að ná þessu markmiði er m.a. sveigjanlegt námsframboð, þróun örnáms og raunfærnimats, greining á mönnunarþörf atvinnulífs og samræming námsleiða við nýja atvinnustefnu og samfélagsleg verkefni.

Markmið 4: Að efla tengsl háskóla við atvinnulíf og stuðla að samstarfi um rannsóknir, nýsköpun og mannauðsuppbyggingu.
    Markmiðið er að tryggja virkt, gagnkvæmt samstarf háskóla og atvinnulífs þar sem þekking, rannsóknir og nýsköpun stuðla að verðmætasköpun og aukinni samkeppnishæfni íslenska hagkerfisins.

Markmið 5: Að efla nýsköpun og frumkvöðlamennt innan háskóla til að styðja við verðmætasköpun og græn umskipti.
    Markmiðið felst í að háskólar verði virkari drifkraftar nýsköpunar og frumkvöðlastarfs og stuðli að nýjum lausnum, sprotaverkefnum og rannsóknatengdri nýsköpun í þágu samfélags, atvinnulífs og sjálfbærni.

Markmið 6: Að samþætta sjálfbærni og loftslagsvitund sem þverfaglegt viðmið í háskólanámi, rannsóknum og stjórnsýslu.
    Markmiðið felst í að háskólar leiði sjálfbæra þróun í eigin starfsemi og beri ábyrgð á því að nemendur öðlist þekkingu og hæfni sem styður við græn umskipti samfélagsins í takt við sjálfbæra þróun á alþjóðavettvangi.

Markmið 7: Að tryggja góða líðan, geðrækt og velsæld nemenda sem forsendu námsárangurs og virkni í háskólasamfélaginu.
    Markmiðið felst í að stuðla að heildstæðu og aðgengilegu stuðningsumhverfi fyrir nemendur þannig að líðan, geðrækt og velsæld styðji námsárangur og þátttöku í háskólasamfélaginu.

Markmið 8: Að tryggja jöfn tækifæri til háskólanáms um allt land með því að efla fjarnám og byggja upp sterka háskólakjarna í heimabyggð.
    Markmiðið felur í sér að styrkja aðgengi landsbyggðarinnar að háskólamenntun, bæði með öflugum fjarnámslausnum frá Háskóla Íslands og með uppbyggingu menntasetra og háskólakjarna í heimabyggð. Með því er dregið úr hindrunum þvert á landshluta, samstarf milli háskóla og sveitarfélaga eflt og skapaðir raunhæfari valkostir fyrir nemendur óháð búsetu. Slíkt stuðlar að fjölbreyttara atvinnulífi, byggðaþróun, aukinni þátttöku ungs fólks og betri nýtingu þekkingar og mannauðs í öllum landshlutum.

Áhrif á fjárheimildir 2026.
    Ekki er lögð til breyting á fjárheimild málaflokksins.

22 Önnur skólastig og stjórnsýsla mennta- og barnamála.
22.10 Leikskóla- og grunnskólastig.
    Málefnasvið 22 (málaflokkur 22.10) stendur frammi fyrir breyttum nemendahópi, versnandi árangri í grunnfærni og aukinni þörf fyrir fagmennsku, gæði og skýrari stefnumótun.
    Gildandi markmið málaflokksins eru vissulega mikilvæg og varða m.a. lestrarfærni grunnskólanemenda, færni grunnskólanemenda í stærðfræði og náttúrufræði, bætta líðan barna og aukin gæði menntunar í leik- og grunnskólum.
    Þrátt fyrir ágæt fyrirheit eru markmið frekar upptalning á jákvæðum þáttum í skólakerfi, þáttum sem veruleg brotalöm er í. Staða lestrarfærni grunnskólanemenda er þannig ekki aðeins verulegt áhyggjuefni heldur blasir við hrun í kennslu, námi og færni nemenda ef staða mála breytist ekki innan nokkurra missera. Um er að ræða eina stærstu áskorun íslensks samfélags og varðar hún ekki einungis kunnáttu í íslensku eina og sér heldur þátttöku einstaklinga í samfélaginu, verðmætasköpun og hvort íslenska verði yfirleitt töluð í atvinnulífi og samfélaginu almennt eftir nokkra áratugi.
    Markmiðin, þótt réttmæt séu upp að vissu marki, endurspeglast svo í almennri upptalningu aðgerða, sem m.a. varða samræmt námsmat, aðstoð við kennara, skimunartæki og stafræn námsgögn á íslensku. Þau endurspegla þó ekki að öllu leyti nokkuð heildstæða framtíðarsýn menntastefnu til ársins 2030 svo dæmi sé tekið.
    Í raun má halda því fram að íslenskt samfélag standi á krossgötum með tilliti til þróunar menntamála. Slíkt kallar á heildstæða nálgun, átak á völdum sviðum og vitundarvakningu almennings, Alþingis og allra hagaðila. Þótt stjórnvöld hafi réttilega áhyggjur af stöðu lestrarkunnáttu, færni í stærðfræði og náttúrufræði almennt og gildandi markmið í málaflokknum vísi til þeirra þarf allsherjarátak í menntamálum. Þetta átak þarf að varða raungreinar, tungumál, sögu og menningu í þeim tilgangi að gera einstaklinga framtíðarinnar ábyrga og færa til að takast á við áskoranir af ólíkum toga.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum málaflokksins.
Markmið 1: Gæði, ábyrgð og sameiginlegt menntunarátak til framtíðar.
    Til að snúa við þróun síðustu ára þarf heildarendurskoðun á skipulagi og hugsun menntakerfisins. Þjóðin þarf á skýru átaki að halda sem byggist á ábyrgð allra sem koma að menntun. Efla þarf gæðaramma, samræmt ytra mat og gagnadrifna ákvarðanatöku. Byggja þarf upp skýra framtíðarsýn sem sameinar leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla og tryggir að allir nemendur, óháð bakgrunni og búsetu, fái menntun sem stenst alþjóðlegar kröfur.

Markmið 2: Læsi, málþroski og íslenska sem grunnur náms í öllum skólum.
    Staða lesskilnings og málþroska íslenskra barna er orðin alvarleg og kallar á tafarlausar aðgerðir. Fjárheimildir ársins 2026 þurfa að beinast að snemmtækri íhlutun, samræmdri skimun og öflugri íslenskukennslu fyrir tvítyngd börn. Þróa þarf íslensk hágæðanámsgögn í hefðbundnu og stafrænu formi sem styðja við málþroska og tryggja samfellu milli skólastiga. Þetta er grunnforsenda bætts námsárangurs.

Markmið 3: Fagmennska, nýliðun og öflug kennsla sem tryggir stöðugleika og gæði.
    Menntakerfið stendur frammi fyrir mönnunarvanda sem ógnar gæðum náms. Einstaklingum hefur fækkað í kennaranámi, brotthvarf kennara eykst og ófaglærðir annast víða kennslu. Við blasir að þessi þróun haldi áfram ef ekkert verður að gert. Styrkja þarf nýliðun og starfsþróun í íslensku, stærðfræði, náttúrufræði og öðrum grunnfögum.
    Einnig þarf að auka faglegan stuðning við starfsfólk sem hefur annað móðurmál og bæta starfsaðstæður, leggja aukna áherslu á aga og þjónandi starfsumhverfi til að styrkja faglegan kjarna kennarastarfsins.

Markmið 4: Hæfni til framtíðar með áherslu á stærðfræði, vísindi, tæknilæsi og skapandi hugsun.
    Veikleikar í stærðfræði, vísindum og tæknilæsi ógna samkeppnishæfni Íslands til framtíðar og kalla á samstillt átak. Auka þarf gæði námsgagna á íslensku, þjálfa gagnrýna og skapandi hugsun og skapa skýran ramma fyrir raunfærni í öllum fögum. Tryggja þarf að íslenska sé lifandi kennslumál í tækni- og vísindagreinum og að nemendur með erlendan bakgrunn fái raunhæfan stuðning til að ná árangri í lykilfögum.
    Jafnframt er rétt að hafa í huga að ekki nægir að kunnátta í íslensku aukist. Almenn tungumálakunnátta er öllum einstaklingum gríðarlega mikilvæg til að geta tekið þátt í atvinnulífi og samstarfi á erlendum vettvangi, auk þess sem góð tungumálakunnátta er forsenda þess að íslenskt atvinnulíf sé samkeppnishæft til framtíðar.

Markmið 5: Vellíðan, snemmtæk íhlutun og samþætt þjónusta fyrir öll börn.
    Líðan barna og ungmenna hefur versnað og fjölgun þeirra sem þurfa sértæk úrræði krefst endurskipulagningar þjónustu. Fjármagni þarf að beina að snemmtækri íhlutun frá fyrstu árum barnsins, efla Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og tryggja að aðstoð sé samræmd og aðgengileg um allt land. Auka þarf færni skóla í agastjórnun og félagsfærni til að skapa öruggt og stuðningsríkt námsumhverfi.

Sjónarmið um dæmi um ný markmið.
    Endurskoðuð markmið eru sett fram í samræmi við allar stoðir menntastefnu til ársins 2030 og taka mið af lykiláskorunum íslensks skólakerfis: versnandi niðurstöðum í læsi og STEM-greinum, fjölgun tvítyngdra barna, skorti á íslenskum námsgögnum, veikri stöðu íslenskunnar í stafrænu umhverfi og þörf fyrir fagmennsku og nýliðun innan kennarastéttar.

Áhrif á fjárheimildir 2026.
    Í ljósi stöðu menntamála er lagt til að fjárheimild málefnasviðsins sé hækkuð um 200 m.kr. umfram frumvarpið og til viðbótar við breytingartillögu meiri hluta fjárlaganefndar.
    Til að hrinda markmiðunum í framkvæmd á árinu 2026 þarf enn fremur að forgangsraða fjárheimildum sérstaklega til þeirra aðgerða sem skila mestum og varanlegum ávinningi. Beina skal fjármagni í snemmtæka íhlutun og málþroska, þar sem fjárfesting í leikskólum, skimun og þverfaglegur stuðningur hefur langvarandi áhrif á námsferil barna. Jafnframt þarf að efla án tafar íslenskukennslu fyrir tvítyngd börn og nýkomna nemendur með nýjum stöðugildum og þróun stafrænna íslenskra námsgagna, sem eru fjárfrek en afar áhrifarík.
    Aukið fjármagn þarf einnig til kennaramenntunar og starfsþróunar, bæði til nýliðunar og til að efla hæfni í íslensku, stærðfræði og náttúrufræði. Þá er nauðsynlegt að styrkja gæðakerfi skólakerfisins og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu þar sem gagnadrifin þróun, samræmd verkferli og áreiðanlegt námsmat eru forsenda árangurs. Að lokum þarf hóflegt en markvisst fjármagn til þjóðfélagslegs átaks um menntun, ábyrgð og námsaga þar sem fræðslu- og kynningarverkefni geta haft mikil áhrif án mikils kostnaðar.

22.20 Framhaldsfræðsla og menntun óflokkuð á skólastig.
    Málaflokkur 22.20 sinnir fullorðnum með stutta skólagöngu og gegnir lykilhlutverki í að efla menntun, starfsfærni og samfélagsþátttöku þessa hóps. Í ljósi hraðra breytinga á vinnumarkaði, aukinnar þarfar fyrir starfsnám og nýrrar tækni, sérstaklega gervigreindar, þarf málaflokkurinn skýrari framtíðarsýn og samræmingu við menntastefnu til ársins 2030 og atvinnuþróunarstefnur. Hér eru sett fram endurbætt markmið, rökstuðningur og áhrif á fjárheimildir.
    Með gildandi markmiðum er lögð áhersla á að styðja fullorðna með stutta skólagöngu til þátttöku í námi og á íslenskukennslu fyrir innflytjendur. Tækifæri er til að einfalda markmiðin þótt sambærilegar áherslur haldi sér. Jafnframt er æskilegt að tengja markmið betur nýjum kröfum samfélagsins og þörfum atvinnulífsins.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum málaflokksins.
Markmið 1: Auka aðgengi og framboð framhaldsfræðslu fyrir fullorðna með stutta skólagöngu.
    Beina þarf fjárheimildum að fjölgun sveigjanlegra námsleiða, stafrænum námsúrræðum og úrræðum sem gera fullorðnum kleift að hefja nám að nýju. Áhersla þarf að vera á skýrari námsleiðir og raunhæfa tengingu við atvinnulíf um allt land.

Markmið 2: Efla starfsnám og hagnýta hæfni í takt við þarfir atvinnulífsins.
    Efla þarf starfsnám fyrir fullorðna með áherslu á starfsréttindi og raunfærnimat í greinum þar sem skortur á starfsfólki er mikill. Fjölga þarf leiðum sem gera fullorðnum kleift að öðlast formlega hæfni á stuttum tíma.

Markmið 3: Innleiða gervigreind og stafræna hæfni sem grunnþátt í framhaldsfræðslu.
    Nota þarf gervigreind og stafrænar lausnir til að sérsníða nám, greina færniþarfir, flýta fyrir öflun þekkingar og styðja betur fullorðna nemendur. Byggja þarf upp öflugt stafrænt umhverfi sem nýtist jafnt á landsbyggð og höfuðborgarsvæði.

Markmið 4: Styrkja íslenskukennslu fullorðinna innflytjenda með skýrum gæðaviðmiðum.
    Tryggja þarf fjölbreyttar og aðgengilegar leiðir í íslenskukennslu, skýr gæðaviðmið og betri tengingu við vinnumarkað. Áhersla er á að styðja við hraða og árangursríka aðlögun að íslensku samfélagi.

Markmið 5: Tryggja nútímalega og aðgengilega þjónustu við heyrnarlausa og heyrnarskerta.
    Uppfæra þarf lagaumgjörð og þjónustu Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra þannig að þjónustan sé samræmd, aðgengileg og í takt við þarfir notenda. Almennt þarf að bæta útfærslu og þróun úrræða í þágu fólks með fötlun.

    Markmiðin endurspegla helstu áskoranir málaflokksins: stór hópur fullorðinna hefur stutta formlega skólagöngu, vinnumarkaður krefst aukinnar hæfni, tæknibreytingar kalla á nýja nálgun í námi og gervigreind opnar ný tækifæri til einstaklingsmiðunar. Með því að efla starfsnám, íslenskukennslu, stafræna hæfni og þjónustu við heyrnarskerta verður framhaldsfræðslan öflugur þáttur í að tryggja hæfni þjóðarinnar og stuðla að jafnræði og virkri þátttöku.

Áhrif á fjárheimildir 2026.
    Ekki er lagt til að fjárheimild málaflokksins breytist. Forgangsröðun innan málaflokksins þarf hins vegar að taka mið af:
     *      þróun sveigjanlegra námsleiða og stafrænna námsúrræða,
     *      eflingu starfsnáms og raunfærnimats í samstarfi við vinnumarkaðinn,
     *      innleiðingu gervigreindar og stafrænnar hæfniþróunar,
     *      íslenskukennslu og gæðaviðmiðum fyrir fullorðna innflytjendur,
     *      endurskoðun laga og nýrri þjónustumiðlun við heyrnarlausa og heyrnarskerta.

23 Sjúkrahúsþjónusta.
    Málaflokkur 23.10 nær yfir sérhæfða sjúkrahúsþjónustu Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri (SAk). Á síðustu árum hefur mönnunarvandi orðið ein alvarlegasta áskorun heilbrigðiskerfisins. Skortur á hjúkrunarfræðingum, sérfræðilæknum og stoðstéttum hefur grafið undan getu sjúkrahúsanna til að veita lögbundna þjónustu og tryggja öryggi sjúklinga. Staða SAk er sérstaklega viðkvæm; sjúkrahúsið er samkvæmt lögum varasjúkrahús landsins en mönnun og stoðkerfi eru ekki í samræmi við það hlutverk.
    Í ljósi þessa þarf að endurskoða markmið málaflokksins þannig að þau samræmist bæði heilbrigðisstefnu til ársins 2030 og mönnunarstefnu til ársins 2030. Í fjárlögum fyrir árið 2026 verður að leggja sérstaka áherslu á þá þætti sem stefnurnar benda á sem veikasta hlekkinn: mönnun, aðdráttarafl starfa, verkaskiptingu, stoðkerfi og styrkingu SAk.

Gildandi markmið.
    Gildandi markmið fjárlaga leggja áherslu á mönnunarstefnu, biðlistastýringu og útvistun verkefna. Þrátt fyrir að vera á margan hátt tímabær og réttmæt, þá eru markmiðin að nokkru almenn og að vissu leyti ekki nægilega tengd heilbrigðisstefnu 2030. Þá eru þau ekki nægilega afmörkuð gagnvart stöðu SAk.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum málaflokksins.
Markmið 1: Sjálfbær og örugg mönnun í samræmi við þjónustuþörf og heilbrigðisstefnu til ársins 2030.
    Byggja verður mönnun sérhæfðrar sjúkrahúsþjónustu á reglulegum mannaflagreiningum og skýrum mönnunarviðmiðum í anda 3. kafla, Fólkið í forgrunni, í heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Sérstök áhersla verður að vera á eflingu SAk þannig að sjúkrahúsið geti sinnt hlutverki sínu sem varasjúkrahús landsins á öruggan og sjálfbæran hátt.

Markmið 2: Skýr verkaskipting og öflug stoðkerfi í anda „Réttrar þjónustu á réttum stað“.
    Í samræmi við 2. kafla heilbrigðisstefnu til ársins 2030 skal skýra verkaskiptingu milli Landspítala, SAk og heilbrigðisstofnana um land allt. Stoðkerfi, þ.e. rannsóknarþjónusta, bráðaþjónusta, myndgreining og lyfjafræði, skulu styrkt til að tryggja samfellu og gæði þjónustunnar.

Markmið 3: Tilraunaverkefni um húsnæðisstuðning, niðurfellingu námslána og aðra hvata til að fá íslenska heilbrigðisstarfsmenn heim.
    Í anda mönnunarstefnunnar verði sett af stað tilraunaverkefni um húsnæðisstuðning, flutningsstyrki, niðurfellingu námslána og aðra hvata til að fá íslenska heilbrigðisstarfsmenn heim, einkum frá öðrum Norðurlöndum. Verkefnið styður beint við markmið stefnunnar um að tryggja mönnun og auka aðdráttarafl starfsins.

Markmið 4: Öflugt sérnám, klínísk þjálfun og samstarf við háskóla og önnur Norðurlönd.
    Í samræmi við 7. kafla, Hugsað til framtíðar, skuli efla hermisetrakerfi í Reykjavík og á Akureyri, fjölga klínískum námsstöðum og tryggja samstarf við norræn háskólasjúkrahús um sérnám og framhaldsmenntun.

Markmið 5: Gagnadrifin stjórnun og sameinaðir biðlistar til að tryggja skilvirkt flæði þjónustu.
    Í anda 5. kafla, Skilvirk þjónustukaup, skal byggja upp gagnadrifin kerfi til að sameina biðlista, stýra þjónustugetu og tryggja að verkefni færist á rétt þjónustustig.

Markmið 6: Stafræn tækni, fjarheilbrigðisþjónusta og gervigreind í þjónustu og mönnun.
    Stafrænar lausnir og gervigreind skulu nýttar til að létta á mannafla, styðja við klínískar ákvarðanir, auka öryggi og tryggja jafnt aðgengi landsmanna að sérfræðiþjónustu, í samræmi við 7. kafla heilbrigðisstefnu til ársins 2030.

Rökstuðningur.
    Markmiðin endurspegla kjarnaviðfangsefni heilbrigðisstefnu til ársins 2030, þar sem lögð er áhersla á að setja fólkið í forgrunn með markvissri mönnun, sterku starfsumhverfi og öflugri nýliðun; tryggja rétta þjónustu á réttum stað með skýrri verkaskiptingu, þjónustustýringu og bættum aðgangi á landsbyggðinni; efla gæði með sterkum stoðkerfum, efla öryggi sjúklinga og áreiðanlega rannsóknarþjónustu; og loks horfa til framtíðar með áherslu á menntun, tæknilausnir og nýsköpun sem styðja við þróun sérhæfðrar þjónustu.
    Jafnframt eru markmiðin í fullu samræmi við mönnunarstefnu til ársins 2030, sem kallar á aukna teymisvinnu, tilfærslu verkefna milli fagstétta, sveigjanlegar lausnir í skipulagi starfs, hvata til að tryggja mönnun á landsbyggðinni, eflingu símenntunar og klínískrar þjálfunar og gagnadrifna stjórnun mannafla. Þessar áherslur eru lykilforsenda þess að heilbrigðisstofnanir geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu á öruggan og sjálfbæran hátt.
    Í heild sýna greiningar að veikustu þættir kerfisins sem fjárlög fyrir árið 2026 verða sérstaklega að bregðast við eru skortur á mannafla, veik staða SAk sem varasjúkrahúss, óskýr og ófullnægjandi verkaskipting milli þjónustustiga og stoðkerfi sem ekki standast kröfur um nútímalegt öryggi og gæði.
    Markmiðin hér að ofan eru því mótuð til að taka á þessum veikleikum með beinum og framkvæmanlegum hætti. Málaflokkur 23.10 stendur frammi fyrir þeim veika hlekk sem bæði heilbrigðisstefna og mönnunarstefna benda á: mönnun og aðdráttarafli heilbrigðisstarfa, sérstaklega á landsbyggðinni.

Áhrif á fjárheimildir 2026.
    Lagt er til að fjárheimild málaflokksins verði hækkuð um 200 m.kr. til að styrkja og efla þjónustu sérgreinalækna.
    Aðgerðin er í beinu samræmi við mönnunarstefnu og eina af brýnustu áskorunum heilbrigðiskerfisins.

23.20 Almenn sjúkrahúsþjónusta.
    Málaflokkur 23.20 nær til almennrar sjúkrahúsþjónustu (annars stigs þjónustu) sem veitt er af heilbrigðisstofnunum í heilbrigðisumdæmum landsins. Þjónustan er lykilþáttur í öryggi og aðgengi sjúklinga og tengist beint framkvæmd heilbrigðisstefnu til ársins 2030, sem leggur áherslu á rétta þjónustu á réttum stað, samfellda þjónustukeðju og sterka þjónustustýringu. Auk þess styður hún við mönnun, starfsumhverfi og nýsköpun í samræmi við mönnunarstefnu til ársins 2030.
    Almenn sjúkrahúsþjónusta er grunnur að skilvirku heilbrigðiskerfi þar sem heilsugæsla, sjúkrahús og sérhæfð þjónusta vinna saman að því að tryggja notendum örugga og tímanlega þjónustu. Með markvissri stefnumörkun og samhæfingu þjónustu á landsvísu er hægt að tryggja jafnræði, stytta biðtíma og nýta mannafla, tækni og fjármagn sem best.

Gildandi markmið málaflokksins.
    Með gildandi markmiðum fjárlaga er lögð áhersla á rétta þjónustu á réttum stað og endurskoðun verkaskiptingar milli þjónustustiga, samræmda stafræna þjónustu, betri upplifun notenda og styttingu biðtíma í liðskiptaaðgerðum. Markmiðin eru málefnaleg en þurfa að endurspegla betur heildarstefnu stjórnvalda, einkum skýrari verkaskiptingu og hlutverk almennra sjúkrahúsa, betra samstarf milli umdæma og þjónustuveitenda, áherslu á mönnun og faglegt starfsumhverfi og samþættingu stafrænnar þjónustu í daglegu starfi.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum málaflokksins.
Markmið 1: Tryggja aðgang sjúklinga að samfelldri, skilvirkri og réttri þjónustu á réttum stað.
    Í samræmi við heilbrigðisstefnu til ársins 2030 skal mótuð skýr verkaskipting milli heilsugæslu, almennra sjúkrahúsa og sérhæfðra sjúkrahúsa. Tryggja skal þjónustustýringu sem styður jafnt aðgengi um land allt, dregur úr tvíverknaði og styður flæði sjúklinga á rétt þjónustustig.

Markmið 2: Efla stafræna þjónustu og innleiða lausnir sem tryggja samfellu í þjónustuferli sjúklinga.
    Unnið verði skipulega að uppbyggingu stafrænnar heilbrigðisþjónustu, þar á meðal rafrænnar sjúkraskrár, fjarheilbrigðisþjónustu og kerfisbundinnar notkunar gervigreindar í verklagi og þjónustustýringu. Markmiðið er betri upplifun sjúklinga og aukin skilvirkni.

Markmið 3: Styrkja fagmennsku og mönnun á almennum sjúkrahúsum.
    Fylgt verði markmiðum mönnunarstefnu til ársins 2030 um teymisvinnu og faglegt starfsumhverfi. Áhersla er á að tryggja stöðugleika í mönnun hjúkrunarfræðinga, lækna og stoðstétta til að styðja við þjónustuöryggi og draga úr flöskuhálsum.

Markmið 4: Samræma og stýra biðtímum með gagnadrifnum aðferðum.
    Samræmdir biðlistar og gagnadrifnar lausnir verði nýttar til að tryggja að sjúklingar komist í liðskiptaaðgerðir og aðra þjónustu innan ásættanlegs biðtíma. Áhersla er á samvinnu milli sjúkrahúsa til að nýta afkastagetu sem best.

Markmið 5: Auka samstarf heilbrigðisstofnana og styðja við umbótaverkefni og staðlað verklag.
    Tryggja þarf samræmt verklag milli umdæma og stuðla að umbótaverkefnum sem bæta nýtingu innviða, samhæfingu og þjónustuöryggi í samræmi við gæðaviðmið heilbrigðisstefnu til ársins 2030.

Rökstuðningur.
    Markmiðin endurspegla kjarnaatriði heilbrigðisstefnu til ársins 2030, þar sem lögð er áhersla á að veita rétta þjónustu á réttum stað með skýrri verkaskiptingu og markvissri þjónustustýringu. Þau taka mið af því að fólkið sé í forgrunni, með áherslu á mönnun, faglegt starfsumhverfi og nýliðun, og að gæði séu í fyrirrúmi með öflugum stoðkerfum, samræmdu verklagi og styttingu biðtíma. Jafnframt er með markmiðunum horft til framtíðar og lögð áhersla á stafræna þjónustu, nýja tækni og gervigreind til að bæta skilvirkni og öryggi.
    Áherslurnar eru jafnframt í fullu samræmi við mönnunarstefnu til ársins 2030 sem kallar eftir teymisvinnu, verkefnatilfærslu, auknum sveigjanleika og stöðugri faglegri þróun starfsfólks. Heildarsýn markmiðanna byggist á því að almenn sjúkrahúsþjónusta sé burðarstoð heilbrigðiskerfisins um allt land, þar sem nýting mannafla, tækni og innviða er hámörkuð og tryggð er samfelld og samræmd þjónusta milli þjónustustiga.

Áhrif á fjárheimildir 2026.
    Ekki er lagt til að fjárheimild málaflokksins sé aukin en til að hrinda markmiðunum í framkvæmd þarf að forgangsraða fjármunum til uppbyggingar stafrænnar þjónustu og rafrænna lausna, umbótaverkefna sem styðja samræmda verkaskiptingu, eflingar mönnunar og faglegs starfsumhverfis á sjúkrahúsum, þróunar samræmdra biðlista og þjónustustýringar.
    Fjárheimildir og eftir atvikum fjárveitingar þurfa að styðja við innleiðingu markmiðanna, einkum í verkferlum, upplýsingatækni og mönnun, en jafnframt tryggja að þjónusta sé veitt á réttum stað og innan ásættanlegs biðtíma.

23.30 Sjúkrahúsþjónusta erlendis.
    Málaflokkur 23.30 nær til heilbrigðisþjónustu sem Íslendingar fá erlendis sem Sjúkratryggingar Íslands annast greiðslur og samninga vegna. Um er að ræða þjónustu sem annaðhvort er ekki veitt á Íslandi, ekki veitt innan hæfilegra tímamarka eða fellur undir landamæratilskipun EES.
    Á undanförnum árum hefur aukin umræða skapast um hvort rétt sé að senda sjúklinga oftar í meðferð erlendis til að stytta biðtíma eða hvort markmiðið eigi fremur að vera að styrkja þjónustu innan lands þar sem það er raunhæft.
    Í heilbrigðisstefnu til ársins 2030 er lögð sérstök áhersla á:
     *      rétta þjónustu á réttum stað,
     *      gæði og öryggi,
     *      skilvirk þjónustukaup,
     *      tækni og framtíðarhugmyndir
     *      og mönnunarstefnu til ársins 2030 sem undirstrikar mikilvægi þess að nýta mannafla og innviði innan lands sem best.

Gildandi markmið.
    Með gildandi markmiðum málaflokksins er lögð áhersla á að stytta biðlista með því að fjölga aðgerðum hér á landi í stað þess að senda sjúklinga erlendis, móta aðgerðaáætlun um flutning verkefna til landsins og nýta það fjármagn sem nú rennur til erlendra þjónustuveitenda í uppbyggingu innlendrar þjónustu.
    Þessi markmið eru skynsamleg út frá hagkvæmni, rekstri og þjónustuöryggi en þurfa jafnframt að taka skýrara mið af heilbrigðisstefnu og mönnunarstefnu til ársins 2030. Þar vegur þyngst að styrkja faglega verkaskiptingu innan lands, skýra hlutverk sérhæfðra og almennra sjúkrahúsa, efla þjónustustýringu og aðgengi, nýta tækni og stoðkerfi til að auka innlenda getu og tryggja gæði og öryggi þegar þjónusta er keypt erlendis.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum málaflokksins.
Markmið 1: Tryggja að þjónusta sé veitt á réttum stað í samræmi við heilbrigðisstefnu til ársins 2030.
    Markmiðið er að meta kerfisbundið hvaða meðferðir er hagkvæmast og öruggast að veita innan lands og hvaða meðferðir þurfa að fara fram erlendis. Áhersla er á samræmd viðmið, faglega greiningu á þörf og nýtingu innlendra innviða áður en gripið er til þjónustu erlendis.

Markmið 2: Færa aðgerðir sem hægt er að framkvæma örugglega til landsins.
    Byggja skal upp innlenda getu með markvissri þróun innviða, stoðkerfa og sérfræðiteyma þannig að færri þurfi að fara í meðferð erlendis. Áhersla er á að nýta betur afkastagetu heilbrigðisstofnana, einkum á sviðum þar sem biðlistar eru langir.

Markmið 3: Tryggja gæði, öryggi og jafnræði þegar sjúklingum er vísað til meðferðar erlendis.
    Þjónusta yfir landamæri skal byggjast á gæðaviðmiðum, skýrum verkferlum, samræmdu upplýsingaflæði og samfellu í eftirfylgd þegar sjúklingur snýr aftur til Íslands. Fjölskyldur og sjúklingar skulu fá betri leiðbeiningar og samfellt ferli í gegnum Sjúkratryggingar Íslands.

Markmið 4: Samræma þjónustustýringu og biðtímamat með gagnadrifnum aðferðum.
    Innleiða skal sameiginlegt kerfi fyrir forgangsröðun, miðlun sjúklinga, mat á batahorfum og kostnaði, í samræmi við 5. kafla, Skilvirk þjónustukaup, í heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Þetta tryggir að ákvörðun um að senda sjúkling til erlendrar heilbrigðisstofnunar sé fagleg, gagnreynd og réttlætanleg.

Markmið 5: Nýta stafræna tækni, fjarheilbrigðisþjónustu og gervigreind til að styðja við ákvörðunartöku.
    Stafrænar lausnir geta bætt mat og stjórn á biðtímum, forgangsröðun, valkostagreiningu og flæði upplýsinga milli landa. Þetta styður m.a. markmið 7. kafla, Hugsað til framtíðar, í heilbrigðisstefnu til ársins 2030.

Markmið 6: Tryggja hagkvæma, skilvirka og gagnsæja nýtingu fjármuna.
    Kostnaður vegna erlendra meðferða er mikill og getur aukist hratt ef ekki er skýr stefna. Markmiðið er að tryggja að fjármunum sé varið þar sem þeir skila mestum ávinningi fyrir sjúklinga og kerfið.

Rökstuðningur.
    Fyrrgreind dæmi um ný markmið endurspegla megináherslur bæði heilbrigðisstefnu til ársins 2030 og mönnunarstefnu til ársins 2030 og taka á þeim áskorunum sem fjárlög fyrir árið 2026 verða að bregðast við. Þar vegur þyngst þörfin fyrir skýrari verkaskiptingu milli þjónustustiga, að byggja upp innlenda getu þannig að sjúklingar þurfi sjaldnar að sækja meðferð erlendis, að tryggja öryggi, samfellu og gæði fyrir þá sem fara í meðferð utan landsteinanna og að tryggja hagkvæmni og ábyrga nýtingu fjármuna.
    Heilbrigðisstefnan kallar eftir þjónustu á réttum stað, sterkum gæðaviðmiðum, öryggi, þjónustustýringu, forgangsröðun og markvissum kaupum á þjónustu en þetta eru atriði sem öll snerta málaflokkinn beint.
    Mönnunarstefnan styður jafnframt við uppbyggingu innlendrar þjónustu og dregur úr álagi á kerfið með því að efla mannafla, stoðkerfi og faglegt starf áður en gripið er til erlendra úrræða.

Áhrif á fjárheimildir 2026.
    Ekki er gert ráð fyrir aukningu fjárheimildar málaflokksins en til að innleiða framsett markmið þarf að beita fjárheimild sérstaklega til:
     *      þróunar innlendrar þjónustu til að flytja aðgerðir frá útlöndum,
     *      styrkingar stoðkerfa, greininga og sérfræðiteyma,
     *      uppbyggingar stafrænnar þjónustu og gagnadrifinna verkferla,
     *      eflingar þjónustustýringar hjá Sjúkratryggingum Íslands.

24 Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa.
24.10 Heilsugæsla.
    Heilsugæslan gegnir lykilhlutverki í íslenska heilbrigðiskerfinu sem fyrsti viðkomustaður notenda, þar sem veitt er fyrsta stigs og eftir atvikum annars stigs þjónusta. Hún er grunnstoð í framkvæmd heilbrigðisstefnu til ársins 2030, þar sem lögð er áhersla á að þjónusta sé veitt á réttum stað, aðgengi sé tryggt óháð búsetu, gæði og öryggi séu í fyrirrúmi og notendur geti nýtt stafrænar lausnir til að stýra eigin heilsufari. Mönnunarstefna til ársins 2030 styður þessar áherslur með því að leggja grunn að öflugri teymisvinnu, sveigjanleika, verkefnatilfærslu og faglegu starfsumhverfi.
    Nú er ljóst að heilsugæslan stendur frammi fyrir fjölþættum áskorunum, þar á meðal mönnun, biðtíma, auknu álagi, fjölgun notenda og fjölbreyttari verkefnum. Gildandi markmið fjárlaga taka fyrst og fremst til geðheilbrigðisþjónustu og stafrænnar þjónustu sem eru mikilvægir þættir en ná ekki nægjanlega til heildarhlutverks heilsugæslunnar. Þörf er á heildstæðari stefnu sem endurspeglar breyttar þarfir þjóðarinnar og markmið heilbrigðisstefnu og mönnunarstefnu.

Gildandi markmið málaflokksins.
    Gildandi markmið fyrir heilsugæslu beinast að umbótum í geðheilbrigðisþjónustu barna og fullorðinna, kortlagningu og eflingu fyrstu línu geðheilbrigðisþjónustu og áframhaldandi þróun stafrænnar þjónustu í gegnum Heilsuveru og Ísland.is. Þótt þetta séu mikilvæg og brýn verkefni endurspegla gildandi markmið ekki að öllu leyti heildarhlutverk heilsugæslunnar, sem felur m.a. í sér forvarnir og heilsueflingu, hlutverk heilsugæslunnar sem þjónustustýringar og hliðvarðar heilbrigðiskerfisins, eftirfylgd og umönnun vegna langvinnra sjúkdóma, aðgengis- og biðtímamál, samhæfingu þjónustu milli heilbrigðisstiga og félagsþjónustu og að mæta fjölbreyttum þörfum ólíkra samfélagshópa.

Dæmi um tillögur um ný markmið fyrir málaflokkinn.
Markmið 1: Tryggja greiðan og sem jafnastan aðgang að heilsugæslu um allt land.
    Heilsugæslan skal vera aðgengileg öllum notendum óháð búsetu, aldri og félagslegri stöðu. Áhersla þarf að vera á að efla mönnun, dreift starfsskipulag og sveigjanleg úrræði í samræmi við markmið heilbrigðisstefnu og mönnunarstefnu til ársins 2030.

Markmið 2: Stytta biðtíma og tryggja tímanlega þjónustu.
    Heilsugæslan þarf að koma á skýrum verkferlum og þjónustustýringu sem tryggir að notendur fái þjónustu innan ásættanlegs tíma. Rafrænar lausnir, markviss forgangsröðun og verkefnatilfærsla innan teymis eru lykilverkfæri.

Markmið 3: Efla samfellda þjónustukeðju og skýra verkaskiptingu milli heilbrigðisstiga.
    Heilsugæslan þarf að leiða samvinnu við aðrar heilbrigðisstofnanir og tryggja að sjúklingar séu ávallt á réttu þjónustustigi, í samræmi við áherslu á rétta þjónustu á réttum stað.

Markmið 4: Heildstæð og samþætt þjónusta í forvörnum, heilsueflingu og meðferð langvinnra sjúkdóma.
    Heilsuvernd og snemmtæk íhlutun þurfa að vera megináherslur. Heildstæð eftirfylgd og samþætting við félagsþjónustu skal tryggja öruggt og skilvirkt þjónustuflæði, sérstaklega fyrir eldri borgara og einstaklinga með langvinna sjúkdóma.

Markmið 5: Efla geðheilbrigðisþjónustu innan heilsugæslunnar.
    Mikilvægt er að geðheilbrigðisþjónusta sé hluti af daglegu starfi heilsugæslu, með bættum verkferlum, fjölbreyttum úrræðum og bættri teymisvinnu. Áherslu þarf að leggja á snemmtækan stuðning og markvissa samþættingu við sérfræðinga.

Markmið 6: Innleiða stafrænar lausnir og gervigreind til að bæta aðgengi, öryggi og skilvirkni.
    Áfram þarf að bæta heilsugáttina Heilsuveru, tengsl við Ísland.is og önnur rafræn samskiptakerfi.

Markmið 7: Efla mönnun og faglegt starfsumhverfi heilsugæslu.
    Mönnun þarf að byggja á teymisvinnu, verkefnatilfærslu milli stétta, markvissri endurmenntun og hvötum til að laða og halda starfsfólki. Þetta er forsenda þess að heilsugæslan geti sinnt hlutverki sínu sem fyrsti viðkomustaður notenda.

Rökstuðningur.
    Dæmi um ný markmið byggjast á meginstoðum heilbrigðisstefnu til 2030 þar sem fólkið er í forgrunni, með áherslu á mönnun, gott starfsumhverfi og öfluga teymisvinnu. Þau endurspegla einnig áhersluna á rétta þjónustu á réttum stað með skýrri verkaskiptingu og markvissri þjónustustýringu, ásamt því að setja gæði í fyrirrúm með stöðugleika, öryggi og samræmdu verklagi. Jafnframt horfa þau til framtíðar með aukinni notkun stafrænna lausna, nýsköpunar og samþættingar þjónustu.
    Markmiðin eru í fullu samræmi við mönnunarstefnu til ársins 2030.

Áhrif á fjárheimildir 2026.
    Lög er til hækkun á fjárheimild málaflokks 23.10 um 400 m.kr. til að styðja við umbótaverkefni á sviði geðheilbrigðis barna og snemmtækrar þjónustu.

24.20 Sérfræðiþjónusta og hjúkrun.
    Málaflokkur 24.20 nær til sérfræðiþjónustu og hjúkrunar utan sjúkrahúsa, þar sem heilbrigðisþjónusta er veitt af sjálfstætt starfandi sérgreinalæknum, sérhæfðum teymum og þjónustuveitendum með samningi við Sjúkratryggingar Íslands (SÍ). Þessi þjónusta gegnir mikilvægu hlutverki í að létta á sjúkrahúsum, stytta biðtíma og tryggja að þjónusta sé veitt á réttum stað samkvæmt heilbrigðisstefnu til ársins 2030.
    Áherslur stjórnvalda fram til 2030 gera kröfu um að sérfræðiþjónusta utan sjúkrahúsa sé fagleg, aðgengileg og vel samhæfð við aðra hluta heilbrigðiskerfisins. Gildandi markmið snúa m.a. að þróun þjónustu sérgreinalækna, aðgengi að meðferðarúrræðum vegna vímuefnavanda og eflingu fæðingarþjónustu. Markmiðin eru málefnaleg en þau eru afmörkuð og endurspegla ekki að fullu breidd þjónustunnar eða þær kerfisbreytingar sem heilbrigðisstefna og mönnunarstefna kalla á.

Gildandi markmið.
    Gildandi markmið fyrir þennan málaflokk snúa annars vegar að þróun starfsemi sérgreinalækna utan sjúkrahúsa í gegnum samstarfssamning SÍ og LÍ, þar sem áhersla er lögð á þverfagleg teymi og forgangsröðun þjónustu, og hins vegar að tryggðu aðgengi að meðferðarúrræðum vegna vímuefnavanda með nýrri vímuefnastefnu, og loks að eflingu fæðingarþjónustu sem miðar að eðlilegu fæðingarferli í samræmi við aðgerðaáætlun um barneignaþjónustu til ársins 2030.
    Þessi markmið eru málefnaleg og byggjast á raunverulegum áskorunum, þar sem unnið er að skilvirkara þverfaglegu samstarfi í sérfræðiþjónustu, bættri þjónustu fyrir jaðarhópa og jöfnu aðgengi að fæðingarþjónustu. Minni háttar breyting á markmiðunum er æskileg til að taka mið af breidd málaflokksins og til að tryggja samræmi við heilbrigðisstefnu til ársins 2030.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum málaflokksins.
Markmið 1. Skýra verkaskiptingu og styrkja sérfræðiþjónustu utan sjúkrahúsa.
    Tryggja þarf að sérfræðiþjónusta utan sjúkrahúsa sé veitt á réttu þjónustustigi, með skýrri verkaskiptingu milli heilsugæslu, sjúkrahúsa og sjálfstætt starfandi sérgreinalækna. Áhersla er á faglegt verklag, forgangsröðun og aðgengi á landsbyggðinni.

Markmið 2: Auka aðgengi og samfellu í meðferðarúrræðum vegna vímuefnavanda.
    Í samræmi við nýja vímuefnastefnu þarf að tryggja að þjónusta sé aðgengileg, samþætt og þverfagleg og að notendur fái samfellu í meðferð milli þjónustustiga.

Markmið 3: Efla fæðingarþjónustu með áherslu á öryggi, samfellu og eðlilegt fæðingarferli.
    Fæðingarþjónusta þarf að byggjast á klínískum viðmiðum um eðlilegt fæðingarferli, öryggi móður og barns og skýrum verkferlum innan og utan sjúkrahúsa. Með eðlilegu fæðingarferli er átt við fæðingu sem hefst sjálfkrafa, á sér stað án óþarfa inngripa, er leidd af ljósmæðrum og engir áhættuþættir eru til staðar.

Markmið 4: Efla teymisvinnu og hlutverk mismunandi heilbrigðisstétta.
    Stuðla þarf að aukinni þverfaglegri samvinnu í sérfræðiþjónustu með skýrri verkaskiptingu, tilfærslu verkefna og auknu hlutverki hjúkrunarfræðinga, ljósmæðra og annarra heilbrigðisstétta.

Markmið 5: Tryggja gæði, öryggi og samræmt verklag í sérfræðiþjónustu.
    Innleiða (endurmeta) þarf gæðaviðmið, öryggiskröfur og samræmt verklag milli þjónustuveitenda, í samræmi við heilbrigðisstefnu til ársins 2030.

Markmið 6: Styrkja kostnaðargreiningu og hagkvæmni í þjónustukaupum.
    Byggja þarf á gagnadrifinni stjórnun og reglulegri kostnaðargreiningu, þannig að fyrirbyggja megi að of mikil þjónusta sé keypt erlendis eða að þjónusta utan sjúkrahúsa verði óhagkvæm.

Rökstuðningur.
    Dæmi um ný markmið eru í samræmi við bæði heilbrigðisstefnu til ársins 2030, einkum áherslurnar á rétt þjónustustig, gæði, öryggi, virka notendur og þjónustustýringu, og mönnunarstefnu til ársins 2030, sem kallar á teymisvinnu, sveigjanleika, verkefnatilfærslu og faglega þróun.

Áhrif á fjárheimildir 2026.
    Ekki er lögð til hækkun fjárheimildar málaflokksins en fyrirliggjandi fjárheimild þarf m.a. að styðja við:
     *      þróun þjónustu sérgreinalækna,
     *      meðferðarúrræði og samþætta þjónustu vegna vímuefnavanda,
     *      uppbyggingu fæðingarþjónustu og ljósmæðraþjónustu,
     *      teymisvinnu og verkefnatilfærslu,
     *      gæðastjórnun og samræmda ferla.

24.40 Sjúkraflutningar.
    Málaflokkur 24.40 nær til sjúkraflutninga á landi og í lofti og er einn af lykilþáttum bráðaþjónustu heilbrigðiskerfisins. Sjúkraflutningar tryggja öryggi almennings, hraða aðkomu að bráðri þjónustu og mikilvægar brýr milli heimila fólks, heilbrigðisstofnana og sjúkrahúsa. Þjónustan skiptir sérstaklega miklu máli í dreifbýli þar sem fjarlægðir eru miklar og viðbragð getur skipt sköpum. Hún tengist beint áherslum heilbrigðisstefnu til ársins 2030 um gæði og öryggi, rétta þjónustu á réttum stað og aukna nýtingu tækni og samhæfingar. Samhliða styður hún mönnunarstefnu til ársins 2030 með áherslu á teymisvinnu, verkefnatilfærslu og stöðuga fagþróun.

Mat á gildandi markmiðum.
    Gildandi markmið fjárlaga fyrir sjúkraflutninga beinast að því að stytta viðbragðstíma í dreifbýli samkvæmt aðgerðaáætlun um bráðaþjónustu og sjúkraflutninga til ársins 2030, innleiðingu samræmdrar rafrænnar skráningar í flutningstækjum sjúkraflutninga, flutningi náms sjúkraflutningamanna inn í almennt skólakerfi og tryggingu sérhæfðs faglegs stuðnings á vettvangi með fjarheilbrigðislausnum.
    Þessi markmið eru málefnaleg og taka á raunverulegum áskorunum í bráðaþjónustu, einkum varðandi viðbragðstíma, samræmda gagnaskráningu og sérhæfðan stuðning á vettvangi. Hins vegar ná gildandi markmið ekki nægilega til:
     *      heildarsamræmingar milli þjónustustiga og stofnana,
     *      mönnunar og starfsumhverfis sjúkraflutningamanna,
     *      öryggisstaðla og gæðaviðmiða,
     *      uppbyggingar innviða og tækjabúnaðar,
     *      nýtingar rauntímagagna, staðsetningarlausna og gervigreindar,
     *      stöðu sjúkraflutninga sem hluta af samfelldri bráðaþjónustukeðju.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum málaflokksins.
Markmið 1: Tryggja hraða, jafna og örugga sjúkraflutningaþjónustu um allt land.
    Mikilvægt er að sjúkraflutningar séu skilvirkir og öruggir óháð búsetu. Leggja þarf áherslu á bættan svörunartíma, samræmt verklag og skýra tengingu sjúkraflutninga við aðra þætti bráðaþjónustunnar.

Markmið 2: Efla mönnun og faglegt starfsumhverfi sjúkraflutningamanna.
    Tryggja þarf stöðugleika í mönnun og efla hæfni sjúkraflutningamanna með markvissri þjálfun, endurmenntun og flutningi náms í almenna menntakerfið, í samræmi við mönnunarstefnu til ársins 2030.

Markmið 3: Innleiða stafræna skráningu, rauntímavöktun og gervigreind í ákvarðanatöku.
    Samræmd rafræn skráning og nýting staðsetningargagna, rauntímaupplýsinga og gervigreindar styðji við hraðari og öruggari ákvarðanatöku og bætta nýtingu mannafla og innviða.

Markmið 4: Tryggja sérhæfðan fjarheilbrigðisstuðning á vettvangi.
    Heildstæðar fjarheilbrigðislausnir, svo sem rauntímastuðningur sérfræðinga, skulu tryggja faglega stoð fyrir sjúkraflutningamenn á vettvangi hvar sem er á landinu.

Markmið 5: Samræma þjónustuna sem hluta af samfelldri bráðaþjónustukeðju.
    Sjúkraflutningar skulu tengjast beint heilsugæslu, bráðamóttökum, sérfræðiteymum og Neyðarlínunni með sameiginlegum verkferlum, þjálfun og samræmdum gæðavísum.

Markmið 6: Styrkja innviði, búnað og öryggisstaðla sjúkraflutninga.
    Tryggja þarf reglubundna endurnýjun búnaðar og flutningstækja og samræmda öryggisstaðla í samræmi við alþjóðleg viðmið til að tryggja jafnt öryggi sjúklinga og starfsfólks.

Rökstuðningur.
    Ný markmið byggjast á megináherslum heilbrigðisstefnu til ársins 2030 um gæði, öryggi, jafnræði og þjónustu á réttum stað. Þau styðja jafnframt við mönnunarstefnu til ársins 2030 sem kallar á teymisvinnu, verkefnatilfærslu, stöðuga menntun og nýtingu fjölbreyttra heilbrigðisstétta í bráðaþjónustu.
    Sérstaklega er lögð áhersla á að tryggja skýra heildarkeðju bráðaþjónustu, þar sem sjúkraflutningar tengjast óaðfinnanlega öðrum þjónustustigum. Með því að efla tækni, rauntímagögn, innviði og mönnun má bæta viðbragðstíma, nýtingu auðlinda og öryggi sjúklinga, sem er kjarnaatriði stefnumótunar stjórnvalda.

Áhrif á fjárheimildir 2026.
    Ekki er lögð til hækkun fjárheimildar.

25 Hjúkrunar- og dvalarrými.
    Málaflokkur 24.50 nær til reksturs hjúkrunarheimila, dagdvalar og sérhæfðrar hjúkrunarþjónustu fyrir aldraða og langveika einstaklinga. Þjónustan er ein af grunnstoðum íslensks heilbrigðis- og velferðarkerfis og gegnir lykilhlutverki í því að tryggja öryggi, lífsgæði og samfellu í þjónustu. Hún tengist beint markmiðum heilbrigðisstefnu til ársins 2030 um gæði, öryggi, rétt þjónustustig, virka notendur og heildstæða þjónustukeðju. Á sama tíma kallar mönnunarstefna til ársins 2030 eftir öflugri teymisvinnu, skýrri verkaskiptingu og stöðugri fagþróun starfsfólks.

Almennt um gildandi markmið.
    Gildandi markmið fjárlaga fyrir málaflokkinn snúa í fyrsta lagi að því að stytta biðtíma eftir hjúkrunarrýmum með uppbyggingu og rekstri 106 nýrra rýma og endurnýjuðum samningum við sveitarfélög um uppbyggingu heimila. Þetta er málefnalegt og brýnt, en markmiðið takmarkast einkum við húsnæðisuppbyggingu og tekur ekki til gæðaviðmiða, öryggis eða þjónustustýringar, sem eru lykilþættir heilbrigðisstefnu til ársins 2030.
    Heilbrigðisráðuneytið vinnur jafnframt að eflingu almennrar líknarmeðferðar með skilgreiningu hæfniviðmiða, rafrænni meðferðaráætlun og innleiðingu gæðavísa. Þetta er mikilvægt og í takt við stefnu stjórnvalda en vantar sterkari tengingu við heildstætt öryggi, mönnun og þróun þjónustu á hjúkrunarheimilum.
    Loks er markmið um heildræna yfirsýn yfir sérhæfðar dagdvalir þar sem unnið er að miðlægu skráningarkerfi og kortlagningu sveigjanleika í dvalartíma. Þetta er gagnlegt skref en markmiðið er helst til of þröngt og nær ekki til þeirrar þjónustubreiddar, gæðakröfu og þverfaglegu samhæfingar sem nauðsynleg er til að mæta fjölbreyttum þörfum notenda.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum málaflokksins.
Markmið 1: Stytta biðtíma og tryggja fjölbreytt búsetuúrræði fyrir aldraða og langveika.
    Auka framboð hjúkrunarrýma og fjölbreyttra millistigs- og heimaþjónustuúrræða þannig að einstaklingar fái þjónustu við hæfi án óþarfa biðtíma eða innlagnar á sjúkrahús.

Markmið 2: Tryggja gæði, öryggi og forvarnir innan hjúkrunarheimila.
    Innleiða (og endurmeta) samræmd gæðaviðmið, verklag og stöðugt eftirlit með öryggi íbúa. Sérstök áhersla skal lögð á að draga úr slysum, falli, lyfjatengdum atvikum og öðrum forvarnarþáttum. Heildstæð gæðastjórnun og reglulegar úttektir skulu vera hluti af daglegu starfi.

Markmið 3: Efla líknar- og lokastigsþjónustu með skýrum verkferlum og teymisvinnu.
    Samræmd líknarmeðferð skal vera aðgengileg á öllum hjúkrunarheimilum, með skýrri tengingu við sérhæfð líknarteymi, rafræna meðferðaráætlun og þverfaglegt mat.

Markmið 4: Styrkja mönnun, teymisvinnu og faglegt starfsumhverfi hjúkrunarheimila.
    Byggja þarf upp stöðuga mönnun í takt við mönnunarstefnu 2030 og efla teymisvinnu, endurmenntun og verkefnatilfærslu milli heilbrigðisstétta.

Markmið 5: Efla sérhæfðar dagdvalir og sveigjanleg úrræði í nærþjónustu aldraðra.
    Dagdvöl skal vera samþætt við heilsugæslu, félagsþjónustu og heimahjúkrun með sveigjanlegum úrræðum sem henta ólíkum þjónustuþörfum.

Markmið 6: Gagnadrifin stjórnun og samræmd þjónustukeðja.
    Sameinað skráningarkerfi, gæðavísar og þjónustustýring tryggja að þjónusta sé örugg, gagnsæ og samfelld milli þjónustustiga. Nokkur misbrestur virðist vera á framkvæmd og eftirliti gæðavísa einstakra hjúkrunarheimila.

Rökstuðningur.
    Dæmi um ný markmið leggja á skynsaman hátt áherslu á fjórar stoðir heilbrigðisstefnu 2030: öryggi, gæði, rétt þjónustustig og heildstæða þjónustu. Gæði og öryggi á hjúkrunarheimilum eru sérstaklega mikilvæg þar sem íbúar eru viðkvæmir og í aukinni hættu á slysum, lyfjatengdum atvikum og brotalífi í þjónustu. Með því að setja skýr markmið um gæði, forvarnir og stöðugt eftirlit er unnt að bæta öryggi og lífsgæði íbúa. Þetta er sérstaklega mikilvægt þar sem slys og óhöpp eru of algeng og víða hefur ekki tekist að nota ýmis úrræði, svo sem skynjara og aðrar leiðir til að koma í veg fyrir óhöpp, svo sem fall og beinbrot.
    Þá er grundvallaratriði að hugað sé enn betur en áður að mönnun og þeim kjörum og aðstæðum sem starfsfólki hjúkrunarheimila stendur til boða, sbr. enn fremur mönnunarstefnu 2030, með áherslu á teymisvinnu, verkefnatilfærslu, sveigjanleika og faglega þróun starfsfólks.

Áhrif á fjárheimildir 2026.
    Lagt er til að fjárheimild málaflokksins sé aukin um 1 ma.kr. sem einkum verði ráðstafað til átaks í gæðastjórnun og öryggisverkefnum (slysavarnir, lyfjaöryggi, verklag) og mönnunar og menntunar starfsfólks, stafrænnar þróunar og gagnakerfa fyrir gæðamælingar og eftirlit til að koma í veg fyrir óhöpp og slys vistmanna á hjúkrunarheimilum.

26 Lyf og lækningavörur.
    Lyfjamál ná til framleiðslu, dreifingar, ávísana, birgðahalds og greiðslukerfa lyfja og eru ein af grunnstoðum heilbrigðisþjónustunnar. Málaflokkurinn snertir bæði öryggi sjúklinga, gæði meðferðar og útgjöld ríkisins. Í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2026 beinist áherslan einkum að ávanabindandi lyfjum, gæðum við lyfjaval og endurskoðun lyfjaskírteina. Þótt þetta séu mikilvæg mál eru markmiðin afmörkuð og endurspegla ekki nægilega þá breidd sem lyfjamál ná til, einkum þegar kemur að kostnaðarþróun, gæðum, mönnun lyfjafræðinga, birgðaöryggi og notkun stafrænnar tækni.

Gildandi markmið.
    Gildandi markmið snúa að þröngum en þó afar mikilvægum verkefnum:
     *      Minnkun ávanabindandi lyfjanotkunar. Tilraunaverkefni um niðurtröppun, app og hvata í greiðslulíkani heilsugæslu eru jákvæð skref í átt að öruggari lyfjagjöf og minni áhættu vegna langtímanotkunar. Þetta markmið er mikilvægt en nær aðeins til ákveðins hluta lyfjanotkunar.
     *      Aukin gæði við lyfjaval. Innleiðing lyfjalista er jákvætt skref sem styður hagkvæmt og samræmt lyfjaval í heilsugæslu. Hins vegar nær markmiðið ekki til sjúkrahúsa, sérlyfja eða flókinna meðferðarferla þar sem stærsti hluti lyfjakostnaðar liggur.
     *      Lækkun lyfjakostnaðar. Endurskoðun lyfjaskírteina getur aukið jafnræði og gagnsæi, en hefur lítil áhrif á heildarútgjöld ríkisins þar sem hún snertir aðeins lítið hlutfall lyfjakaupa. Markmiðið tekur ekki til samningagerðar, verðmyndunar eða birgðastöðu.
    Heildstætt séð eru gildandi markmið málefnaleg og mikilvægt framlag til umbóta. Þau ná hins vegar aðeins til hluta þeirra áskorana sem lyfjakerfið stendur frammi fyrir: hækkandi lyfjakostnaði, skorti á lyfjafræðingum, fjöllyfjameðferð, birgðatruflunum, aukaverkunum og þörf fyrir samræmd gæðaviðmið.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum málefnasviðsins.
Markmið 1: Tryggja örugga og ábyrga lyfjanotkun meðal allra þjóðfélagshópa samfélagsins.
    Styrkja þarf lyfjagjöf og lyfjaeftirlit með samræmdum verklagsreglum, aukinni lyfjagát, betri skráningu aukaverkana og reglulegum lyfjaendurskoðunum.

Markmið 2: Efla lyfjafræðilega þjónustu og mönnun lyfjafræðinga.
    Mikilvægt er að auka hlut lyfjafræðinga í heilsugæslu, á hjúkrunarheimilum og sjúkrahúsum. Skýr mönnunarviðmið og fjölgun stöðugilda bæta gæði lyfjameðferðar og draga úr mistökum.

Markmið 3: Heildstæð stefna gegn ofnotkun lyfja og ekki aðeins ávanabindandi lyfja.
    Vinna þarf gegn ofnotkun svefnlyfja, sýklalyfja og fjöllyfjameðferðar, sérstaklega meðal aldraðra og langveikra, með forvörnum, fræðslu og klínískum leiðbeiningum.

Markmið 4: Gagnsæ verðmyndun og markviss samningagerð um sérlyf.
    Samræmdir samningar við framleiðendur og skýrari samkeppni á sérlyfjamarkaði geta dregið verulega úr kostnaði. Sérlyf eru stærsti hluti vaxandi lyfjakostnaðar og krefjast markvissrar stefnu. Jafnframt þarf að skoða aukið samstarf við hagaðila á Norðurlöndum.

Markmið 5: Nýting stafrænnar tækni og gervigreindar til að tryggja lyfjaöryggi.
    Innleiða skal rafrænar klínískar leiðbeiningar, lyfjagátarkerfi og gervigreindarlausnir til að styðja ákvörðunartöku lækna og hjúkrunarfræðinga og minnka líkur á mistökum.

Markmið 6: Styrkja birgðaöryggi og viðbragðsgetu lyfjakerfisins.
    Birgðatruflanir hafa aukist á síðustu árum. Nýtt markmið þarf að snúa að samræmdri birgðastýringu, viðbragðsáætlunum og áhættugreiningu á innflutningi og framleiðslu.

Rökstuðningur.
    Tillögur að nýjum markmiðum byggja á kjarnaviðfangsefnum heilbrigðisstefnu 2030: gæðum, öryggi sjúklinga, sjálfbærum rekstri og stafrænni þróun. Lyfjamál eru ein kostnaðarsamasta stoð heilbrigðiskerfisins og krefjast breiðari nálgunar en fram kemur í gildandi markmiðum. Með því að leggja áherslu á öryggi, aðgengi að lyfjafræðilegri þjónustu, markvissa samningagerð og betri nýtingu tækni er unnt að draga úr kostnaði til lengri tíma og bæta gæði þjónustu.

Áhrif á fjárheimildir 2026.
    Lögð er til hækkun fjárheimilda til að stuðla að lækkun lyfjakostnaðar sjúklinga og fjölskyldna. Hækkunin nemi 500 m.kr.
    Auk hækkunar fjárheimilda er mikilvægt að hafa í huga að aðgerðir sem auka lyfjaöryggi og styrkja lyfjafræðilega þjónustu geta lækkað útgjöld til lengri tíma, meðal annars með færri innlögnum og betri nýtingu lyfja.

27 Örorka og málefni fatlaðs fólks.
    Málaflokkur örorku og málefni fatlaðs fólks er eitt umfangsmesta og útgjaldafrekasta svið ríkisins. Heildarfjárheimild ársins 2026 hækkar um rúmlega 17%, sem undirstrikar bæði mikla þörf fyrir umbætur og verulega áhættu ef markmið og framkvæmd þeirra er ekki samstæð. Nýtt mats- og greiðslukerfi almannatrygginga hefur umtalsverð áhrif á útgjöld ríkissjóðs og álag á þjónustukerfið. Því þarf markmiðasetning málaflokksins að vera heildstæð og byggð á gæðum, réttlæti og hagkvæmni þannig að fjárheimildir styðji virkni, öryggi og sjálfstætt líf fólks en dragi jafnframt úr ófyrirséðum eða sjálfkrafa útgjaldaþrýstingi.
    Þá er rétt að taka fram að mikilvægt er að fjármagn sé tryggt fyrir sveitarfélögin í landinu sem sinna málefnum fólks með fötlun. Það er óábyrgt að Alþingi samþykki lagafrumvörp sem eru ófjármögnuð og gefa fólki væntingar um þjónustu sem sveitarfélögin hafa ekki fjármagn til að veita. Fjármögnun málefna fatlaðs fólks, sem er að stærstum hluta hjá sveitarfélögum, verður að leysa til framtíðar til að tryggja að lögbundin þjónusta sé veitt.

Gildandi markmið.
    Gildandi markmið fela í sér einföldun bótakerfisins, áframhaldandi innleiðingu nýs matskerfis, aukna virkni og lægra nýgengi örorku. Markmiðin eru málefnaleg og réttmæt en að nokkru þröng miðað við umfang málaflokksins og þá kerfisáhættu sem fylgir 17% útgjaldaaukningu milli ára og raunar sjálfkrafa útgjaldaaukningu næstu ár. Þau varða heldur ekki nægilega gæði þjónustu, mönnun, stöðu geðheilbrigðismála, aðgengi að endurhæfingu eða samspili kerfa sem eru megináhrifavaldar kostnaðarþenslu málefnasviðsins.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum málaflokksins.
Markmið 1: Tryggja gæði, gagnsæi og fyrirsjáanleika í nýju mats- og greiðslukerfi almannatrygginga.
    Innleiða skýra þjónustustýringu, styttri málsmeðferð og gagnsæja niðurstöðu mats til að draga úr þjónustuáhættu og bæta lífsgæði fólks. Tryggja þarf að aukin fjárheimild skili sér í bættri þjónustu, en ekki eingöngu í auknum útgjöldum.

Markmið 2: Efla gæði þjónustu og mönnun í endurhæfingu og virkniúrræðum.
    Auka þarf framboð endurhæfingar, styðja þverfagleg teymi og tryggja stöðuga mönnun fagfólks. Slíkt er líklegt til að draga úr nýgengi örorku og styður við virkni, sérstaklega í ljósi þess að geðheilbrigðisvandi er stærsti einstaki drifkraftur örorku.

Markmið 3: Lækka nýgengi örorku með snemmtækri íhlutun og sterkari þjónustukeðju.
    Efla þarf geðheilbrigðisteymi, heilsugæslu, endurhæfingu og þjónustu við fjölskyldur þannig að fólk fái rétta þjónustu á réttum tíma og falli síður á milli kerfa. Samræmd þjónustuleið dregur úr útgjaldavexti og eykur virkni til lengri tíma.
    Þetta markmið þarf enn fremur að skoða í góðu samhengi við markmið og starfsemi annarra málefnasviða og málaflokka heilbrigðismála.

Markmið 4: Stuðla að aukinni atvinnuþátttöku og sveigjanlegum úrræðum.
    Auka þarf stuðning við endurkomu til vinnu, þróa sveigjanleg úrræði og hvetja atvinnurekendur til að ráða fólk með skerta starfsgetu. Skýrar reglur og fjárhagslegur fyrirsjáanleiki draga úr kostnaðarauka í bótakerfinu.

Markmið 5: Efla réttindi og öryggi fólks með fötlun með samþættri þjónustu.
    Tryggja samræmda þjónustu milli almannatrygginga, heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu og húsnæðismála. Þetta minnkar kostnað sem skapast þegar þjónusta rofnar eða þegar einstaklingar færast á milli kerfa án stuðnings.

Rökstuðningur.
    Tillögur að nýjum markmiðum taka mið af því að málaflokkur örorku og fötlunar er bæði mannréttindamál og felur í sér veruleg útgjöld. Með því að setja markmið sem byggja á gæðum, virkni og fyrirsjáanleika er reynt að draga úr þjónustumisræmi, nýgengi örorku og ófyrirséðum kostnaðarauka.
    Áhersla á mönnun, geðheilbrigði og endurhæfingu er ein lykilforsenda þess að fjárheimildir nýtist vel. Skýr og gagnsæ framkvæmd nýs matskerfis er þannig nauðsynleg til að koma í veg fyrir að 17% útgjaldaaukning sé einungis sjálfkrafa aukning fjármagns án þess að bætt þjónusta fylgi.

Áhrif á fjárheimildir 2026.
    Ekki eru lagðar til breytingar á fjárheimildum málefnasviðsins. Rétt er hins vegar að taka fram að framsett markmið sem byggjast á gæðum, mönnun og fyrirsjáanleika geta dregið úr langtímakostnaði með t.d. betri stýringu, aukinni virkni og atvinnuþátttöku og betri nýtingu endurhæfingar sem aftur getur leitt til minni eftirspurnar eftir þjónustu innan heilbrigðiskerfisins.

28 Málefni aldraðra.
28.10 Bætur skv. lögum um almannatryggingar, lífeyrir aldraðra.
    Málefnasvið 28 nær til helstu tekjutengdra greiðslna og þjónustu við aldraða og er eitt umfangsmesta svið ríkisfjármála. Heildarútgjöld málefnasviðsins nema 127,6 ma.kr. árið 2026, sem er hækkun um 4,9% frá fjárlögum fyrir árið 2025 og 16,4% frá ríkisreikningi fyrir árið 2024. Þessi aukning endurspeglar bæði sjálfvirkar tilfærslur í almannatryggingakerfinu og kerfislægan vöxt vegna fjölgunar aldraðra. Þrátt fyrir þetta verulega umfang og hraða útgjaldaaukningu eru markmið aðeins sett fyrir einn málaflokk málefnasviðsins.
    Rétt er að taka fram að málefnasviðið í heild sinni er nokkuð frábrugðið öðrum málefnasviðum þar sem það afmarkast einkum við greiðslu bóta sem kveðið er á um í lögum, m.a. um almannatryggingar. Ríkisstjórn hvers tíma setur þó sín eigin markmið um slík mikilvæg málefni sem gera þarf grein fyrir í bæði fjárlögum auk fjármálaáætlunar. Þannig er gert ráð fyrir í 20. gr. laga um opinber fjármál að í greinargerð um stefnumótun málefnasviða sé gert ráð fyrir fyrirhuguðum lagabreytingum sem vitanlega eru grundvöllur breytinga og aukinna útgjalda á sviði almannatrygginga, svo dæmi sé tekið.
    Auk vissrar sérstöðu málefnasviðsins er umfang þess gríðarlegt. Án skýrra tengsla markmiða og fjárheimilda verður málefnasviðið þó einkennandi fyrir útgjaldaaukningu frá ári til árs án þess að nokkur umfjöllun sé t.d. um hvort hún sé sjálfbær eða viðráðanleg. Slíkt fer gegn grundvallarákvæðum laga um opinber fjármál.
    Af þessu leiðir að æskilegt er að í umfjöllun um málefnasvið á borð við málefni aldraðra sé sérstaklega vikið að áhrifum breytinga, svo sem markmiðs um hækkun heildartekna, á þróun útgjalda málefnasviðsins til lengri tíma og áhrif á ríkissjóð almennt.
    Rétt er að hafa í huga að öldrun þjóðarinnar er risavaxin áskorun, bæði í fjárhagslegu og félagslegu tilliti. Sama þróun á sér stað í flestum öðrum Evrópuríkjum.

Gildandi markmið.
    Gildandi markmið ná aðeins til málaflokks 28.10 Bætur skv. lögum um almannatryggingar, lífeyrir aldraðra.
    Gildandi markmið málaflokksins snúa að því að hækka tekjur lífeyrisþega með þeim hætti að lífeyrir fylgi launavísitölu og hækki aldrei minna en verðlag og því að auka atvinnuþátttöku aldraðra með hækkun frítekjumarks. Um nokkuð umdeilt markmið er að ræða en einkum vegna þess stöðuga útgjaldavaxtar sem það leiðir til. Markmið um bættan fjárhag aldraðra er þó óumdeilt.
    Í þessu ljósi er rétt að vekja athygli á því að fyrirkomulag aðstoðar og þjónustu við aldraða felst í margvíslegum úrræðum og leiðum hins opinbera velferðarkerfis sem jafnframt tengjast tekjum á beinan og óbeinan hátt. Nefna má t.d. skipulag skattkerfisins, niðurgreiðslu margvíslegrar þjónustu, lyfjakostnað og aðra aðstoð.
    Með þessu er engan veginn dregið úr mikilvægi markmiðsins um að heildartekjur aldraðra aukist, heldur kann að vera ástæða til að líta til aukningar útgjalda málefnasviðsins í stærra samhengi.
    Tengingar málefnasviðsins (beint og óbeint) við önnur málefnasvið eru t.d. eftirfarandi:
     *      heilbrigðismál, þ.m.t. hjúkrunarheimili, dvalarheimili, heilsugæsla og sérfræðiþjónusta,
     *      félagsþjónusta,
     *      vinnumál og lífeyrismál.
    Niðurstaðan er sú að æskilegt er að hugað sé að sterkari tengingu milli einstakra málefnasviða í umfjöllun um markmið málefnasviða.

Dæmi um tillögu að nýju markmiði málaflokksins.
    Í ljósi þess hversu þverlæg málefni aldraðra eru gæti markmið málaflokksins litið út eins og að aftan greinir.

Markmið 1: Að tryggja öldruðum á Íslandi fullnægjandi og örugga lágmarksframfærslu samhliða aðgengi að nauðsynlegri heilbrigðis- og félagsþjónustu, með áherslu á sjálfræði, virðingu og jafnræði svo að þeir geti lifað sjálfstæðu lífi og notið eðlilegs heimilislífs.
    Markmiðið er að tryggja að allir aldraðir á Íslandi hafi aðgang að fullnægjandi lágmarksframfærslu, sem er stjórnarskrárvarinn réttur skv. 1. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar. Þetta felur í sér að bætur úr almannatryggingum og félagslegri aðstoð veiti nauðsynlegan fjárhagslegan stuðning. Liður í því að ná fullnægjandi lágmarksframfærslu getur svo verið að tengja lífeyrisgreiðslur við launavísitölu, eins og stefnt er að í frumvarpinu.
    Jafnframt er mikilvægt að aldraðir fái þá heilbrigðis- og félagsþjónustu sem þeir þurfa á að halda til að viðhalda lífsgæðum og sjálfstæði, í samræmi við 1. gr. laga um málefni aldraðra. Áhersla þarf að vera á að virða sjálfræði þeirra, tryggja virðingu í allri þjónustu og gæta jafnræðis svo þeir geti lifað sjálfstæðu og eðlilegu heimilislífi eins lengi og mögulegt er. Þetta markmið stuðlar að heildstæðri velferð aldraðra og er í samræmi við kröfur 20. gr. laga um opinber fjármál um skýr og greinargóð markmið á málefnasviðum ríkisins.

Skortur á markmiðum í öðrum málaflokkum málefnasviðsins.
28.20 Bætur skv. lögum um félagslega aðstoð, öldrun.
    Þessi málaflokkur felur í sér m.a. heimilisuppbætur, kostnaðaruppbætur, styrki vegna bifreiða, sérstakt uppbótakerfi og aðrar fjárhagslegar stuðningsgreiðslur. Fjárheimild ársins 2026 er 11,247 ma.kr. sem hækkar um 266 m.kr. frá fyrra ári. Þrátt fyrir það eru engin markmið skilgreind fyrir málaflokkinn.
    Æskilegt er að öll málefnasvið hafi skýr markmið. Skortur á markmiðum gerir eftirlit og árangursmat ómögulegt.

28.30 Þjónusta við aldraða og aðrar greiðslur, ótaldar.
    Málaflokkurinn nær til eftirlauna samkvæmt sérstökum lögum og félagslegs viðbótarstuðnings fyrir aldraða sem hafa ekki áunnið sér full réttindi í almannatryggingum. Fjárheimild ársins 2026 er 614,6 m.kr., en þrátt fyrir þetta er engin markmiðasetning til staðar.

Dæmi um tillögur um ný markmið fyrir málefnasvið 28.
    Fyrsti minni hluti leggur til að sett verði skýr, framkvæmanleg og þjónustumiðuð markmið fyrir allt málefnasviðið. Umfram allt þurfa markmiðin að lýsa þeim árangri sem fjárheimildin skal standa undir og vera í góðu samhengi við pólitíska stefnumörkun ríkisstjórnarinnar og gildandi lagaumhverfi.

Dæmi um tillögur um markmið fyrir málefnasviðið í heild sinni.
Markmið 1: Tryggja sanngjarnt, fyrirsjáanlegt og sjálfbært lífeyriskerfi fyrir aldraða.
    Lífeyrir fylgi áfram launavísitölu en með skýrum viðmiðum um sjálfbærni og reglubundna greiningu á útgjaldavexti milli ára.

Markmið 2: Draga markvisst úr fátækt meðal aldraðra og bæta lífskjör tekjulægstu hópanna.
    Stuðningur skal beinast fyrst og fremst að þeim sem hafa lægstar tekjur til að tryggja raunveruleg og sjálfbær áhrif á lífsgæði þeirra. Tilvísun til hugtaksins lífskjara vísar til heildarvelferðar einstaklinga, þar á meðal aðstæðna, öryggis, aðgengis að þjónustu og almennrar líðanar. Þetta samræmist betur þeirri áherslu sem oft er lögð á lífsgæði í félagslegri stefnumótun. Með tilvísun til hugtaksins sjálfbærni er lögð áhersla á langtímaáhrif og varanlegar úrbætur en ekki aðeins skammtímalausnir. Þessi áhersla er í samræmi við meginmarkmið félagsþjónustunnar um hjálp til sjálfshjálpar, þ.e. að einstaklingurinn verði fær um að stjórna málum sínum sjálfur en verði ekki háður aðstoðinni.

Markmið 3: Auka atvinnu- og samfélagsþátttöku aldraðra án skerðinga.
    Hækka frítekjumörk og skapa úrræði sem gera eldri borgurum kleift að taka þátt í samfélagslega mikilvægum verkefnum, t.d. samtalsþjálfun fyrir börn og fullorðna af erlendum uppruna, án skerðingar á lífeyri.

Markmið 4: Bæta þjónustu Tryggingastofnunar og tryggja styttri málsmeðferð.
    Einfalda umsóknarferli, stytta afgreiðslutíma og tryggja gagnsæi í afgreiðslu og túlkun á réttindum.

Markmið 5: Samræma bótakerfi, félagsþjónustu og heilbrigðisþjónustu.
    Draga úr tvíverknaði og tryggja samfellt þjónustuflæði þannig að aldraðir falli síður milli kerfa.
    Mikilvægt er að sett verði markmið fyrir málaflokka 28.20 og 28.30 með bæði fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031 og frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2027.

Rökstuðningur.
    Að mati 1. minni hluta er óásættanlegt að málefnasvið sem hefur útgjöld upp á 127,6 ma.kr. hafi einungis markmið fyrir aðeins einn af þremur málaflokkum. Markmið þurfa að ná yfir alla þjónustu og greiðslur sem málefnasviðið felur í sér og tryggja að fjárheimildir leiði til raunverulegra umbóta á lífskjörum, ekki eingöngu aukinna greiðslna.

Áhrif á fjárheimildir 2026.
    Ekki er gerð tillaga um hækkun fjárheimildar, en lagt til að skoðað verði sérstaklega hvort aukning heildarútgjalda sviðsins um 5% milli áranna 2025 og 2026 sé sjálfbær og standist skoðun.

29 Fjölskyldumál.
    Málefnasvið 29, um fjölskyldumál, hefur verulega fjárhagslega þýðingu í ríkisfjármálum og spannar sjö ólíka málaflokka sem tengjast tekjuöryggi, fæðingarorlofi, stuðningi við börn og fjölskyldur, félagslegri aðstoð og málefnum innflytjenda og flóttafólks. Heildarútgjöld málefnasviðsins árið 2026 nema 82.574,7 m.kr., sem er 7,8% aukning að raunvirði og 9,1% hækkun þegar tekið er tillit til launa- og verðlagsbreytinga. Þessi útgjaldaaukning undirstrikar mikilvægi þess að markmið séu skýr, samræmd og taki til allrar starfsemi málefnasviðsins.
    Þrátt fyrir umfang málefnasviðsins eru markmið tiltölulega fá, almenn og í sumum tilvikum eru tengdar aðgerðir ekki í samræmi við inntak málaflokksins. Í nokkrum málaflokkum eru engin markmið sett fram, þrátt fyrir milljarða fjárheimildir og í öðrum birtast markmið sem eiga í raun heima á öðru málefnasviði.
    Fyrsti minni hluti telur brýnt að styrkja markmiðasetningu, samræma afmörkun málaflokka og tengja útgjöld við skýra stefnu um lífsgæði barna og fjölskyldna, en markmið þar að lútandi koma fram í ýmsum opinberum stefnum og áætlunum um fjölskyldur.

Gildandi markmið.
29.10 Barnabætur.
    Barnabætur eru tekjutengdar bætur sem eiga að styðja við efnaminni foreldra. Fjárheimild er há, 21 ma.kr., en engin markmið eru sett í fjárlögum fyrir þennan málaflokk. Ekki er fjallað um áhrif barnabóta á fátækt barna, fyrirsjáanleika, stöðugleika eða gæði kerfisins.

29.20 Fæðingarorlof.
    Eina markmiðið sem fram kemur er að jafna nýtingu foreldra á rétti til fæðingarorlofs. Til að ná þessu markmiði er sett fram aðgerð um hækkun mánaðarlegra hámarksgreiðslna úr fæðingarorlofssjóði til foreldra í fæðingarorlofi úr 800.000 í 900.000 kr.
    Markmiðið er vissulega málefnalegt en mjög þröngt og vísar engan veginn til þátta eins og sveigjanleika, réttinda sjálfstætt starfandi foreldra eða til að mynda þjónustu við fjölburaforeldra.

29.30 Bætur skv. lögum um félagslega aðstoð, fjölskyldur.
    Engin markmið eru sett þrátt fyrir að greiðslur taki til mæðra- og feðralauna, umönnunargreiðslna og endurgreiðslu kostnaðar vegna læknishjálpar og lyfja.

29.40 Annar stuðningur við fjölskyldur og börn.
    Markmið fela m.a. í sér „bætt lífsgæði eldra fólks“ sem þrátt fyrir að vera málefnalegt markmið eða áform fellur ekki, a.m.k. með beinum hætti, undir málefnasvið fjölskyldumála nr. 29, sem einkum varðar börn og fullorðið fólk. Aðrir liðir, svo sem farsæld barna, ofbeldisvarnir og biðlistar barna eru réttilega skilgreindir innan málefnasviðsins en án nokkurra eiginlegra viðmiða.

29.50 Bætur til eftirlifenda.
    Engin markmið eru skilgreind þrátt fyrir að greiðslur hafi veruleg áhrif á fjölskyldur sem missa framfæranda.

29.60 Bætur vegna veikinda og slysa.
    Markmið snúa að endurskoðun bóta og einföldun kerfisins. Þetta er vissulega gríðarlega mikilvægt málefni, en skýra tengingu vantar til að mynda við þjónustu við fjölskyldur og tilvísun t.d. afleiðinga af veikindum á börn og framtíð þeirra.
29.70 Málefni innflytjenda og flóttamanna.
    Markmið um aukna þátttöku í íslenskunámi og samfélagsfræðslu eru góð og málefnaleg, en eru tiltölulega afmörkuð og ná ekki yfir heildaráskoranir sem tengjast málefnum innflytjenda og flóttafólks og hvaða þjónustu stefnt er á að veita í því samhengi á grundvelli fjárheimilda.
    Málaflokkurinn er vissulega vandmeðfarinn og umfram allt viðkvæmur og ekki er æskilegt að greina með of ítarlegum hætti frá stefnumótun stjórnvalda í svo flóknum málefnum. Betur fer á því að stefnumótun þessa málaflokks, og annarra í frumvarpi til fjárlaga, komi fram á öðrum vettvangi, svo sem þar til gerðum skýrslum sem birtar eru á vef Stjórnarráðsins. En þá þarf bæði að vísa í þá stefnumótun og tryggja að Alþingi geti lagt mat á forsendur heildarútgjalda málaflokka á grunni skilgreindra markmiða.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum fyrir málefnasviðið.
Markmið 1: Draga úr fátækt barna og tryggja tekjuöryggi fjölskyldna.
    Markmið barnabóta verði að draga úr fátækt barna, tryggja fyrirsjáanleika og styðja sérstaklega við fjölskyldur með lágar tekjur.

Markmið 2: Styrkja samþætta þjónustu fyrir börn og fjölskyldur og stytta biðtíma.     
    Auka samvinnu ríkis og sveitarfélaga, tryggja snemmtæka íhlutun og stytta biðlista í greiningu og stuðningsúrræðum barna með sérþarfir.

Markmið 3: Auka sveigjanleika og jafnræði í fæðingarorlofi og stuðningi eftir fæðingu.
    Bæta aðgengi sjálfstætt starfandi foreldra, fjölga úrræðum fyrir foreldra fjölbura og tryggja jöfn tækifæri beggja foreldra til að taka orlof.

Markmið 4: Tryggja markvissan stuðning við foreldra barna með langvinna sjúkdóma eða fötlun.
    Stytting afgreiðslutíma, skýr þjónustustýring og samræmd þjónusta við foreldra í viðkvæmri stöðu.

Markmið 5: Setja skýr markmið fyrir alla málaflokka málefnasviðsins.
    Málefnasvið fjölskyldumála þarf samhent markmið um barnabætur, félagslega aðstoð, bætur til eftirlifenda og stuðning við fjölskyldur í viðkvæmri stöðu.

Markmið 6: Efla þjónustu og samþættingu fyrir fjölskyldur innflytjenda og flóttafólks.
    Tryggja snemmtæka þjónustu, hraðari samþættingu í leik- og grunnskóla og auka stuðning við foreldra í samvinnu við sveitarfélög.

Rökstuðningur.
    Málefnasvið 29 er eitt mikilvægasta málefnasvið fjárlaga og fjármálaáætlunar. Fjölskyldumál eru grundvallaratriði fjárlaga flestra vestrænna ríkja. Markmið og áherslur málefnasviðsins varða lífsgæði barna, foreldra og fjölskyldna um allt land. Skýr markmið eru nauðsynleg til að tryggja að fjárheimildir sem nema 82,6 ma.kr. skili sér í bættum lífskjörum, styttri biðtíma og betri þjónustu. Skortur á markmiðum í málaflokkum 29.10, 29.30, 29.40 og 29.50 dregur úr möguleikum til að fylgja eftir árangri og veikir getu stjórnvalda til að bregðast við útgjaldaþrýstingi á ábyrgan hátt. Umfram allt er Alþingi nánast gert ókleift að meta réttmæti heildarútgjalda málefnasviðsins og breytingar milli ára.
    Rétt er að taka fram að víða koma fram stefnur og áætlanir um fjölskyldumál en með hliðsjón af umfangi fjárheimilda til málefnasviðs fjölskyldumála er erfitt að skilja af hverju ekki er lögð meiri áhersla á skýr markmið og samhengi mála í umfjöllun um starfsemi sviðsins. Slíkt þarf ekki að kalla á langa útlistun aðgerða heldur einfaldlega skýrari mynd af því hvaða árangri útgjöld upp á meira en 80 ma.kr. eiga að skila.

Áhrif á fjárheimildir 2026.
    Ekki er lögð til breyting á fjárheimildum málefnasviðsins, en lagt til að heildstæð markmið fyrir málefnasviðið verði mótuð eins fljótt og kostur er og í samræmi við aðrar stefnur og áætlanir sem um efni málefnasviðsins gilda.

30 Vinnumarkaður og atvinnuleysi.
    Málefnasvið 30 nær til vinnumarkaðsmála, atvinnuþátttöku, virkniúrræða og vinnuverndar. Sviðið hefur ríka samfélagslega þýðingu, þar sem öflug þátttaka á vinnumarkaði, góð þjónusta við fólk í atvinnuleit og heilbrigt starfsumhverfi eru lykilforsendur stöðugleika í efnahagslífi og velsældar fyrir fjölskyldur og samfélagið í heild. Heildarútgjöld ársins 2026 nema 46.210,5 m.kr. og endurspegla umfang málaflokksins.

Gildandi markmið.
    Gildandi markmið á sviðinu eru málefnaleg og taka til mikilvægra þátta, svo sem greiningar á þjónustuþörf fólks í atvinnuleit, árangursmælinga, aukins eftirlits og einstaklingsmiðaðra úrræða fyrir fólk með skerta starfsgetu. Einnig er lögð áhersla á örugga vinnustaði og áframhaldandi þróun sáttamiðlunar.
    Markmiðin eru þó nokkuð almenn og þannig vantar t.d. heildarsýn um samspil vinnumarkaðar, hæfnisþróunar og þjónustukerfa. 1. minni hluti telur tækifæri til að efla markmiðin enn frekar og leggja meiri áherslu á jákvæða þátttöku, öfluga leiðsögn og forvarnarstarf.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum málefnasviðsins.
Markmið 1: Auka atvinnuþátttöku og styðja virka og sveigjanlega þátttöku á vinnumarkaði.
    Byggja þarf áfram upp einstaklingsmiðaðar þjónustuleiðir, snemmtæka íhlutun og ráðgjöf sem styður fólk til þátttöku í starfi í samræmi við hæfni, heilsu og möguleika.

Markmið 2: Efla þjónustu og úrræði fyrir fólk með skerta starfsgetu.
    Mikilvægt er að stuðla að aukinni virkni og þátttöku með markvissum úrræðum, góðri samvinnu við atvinnurekendur og stuðningi sem hvetur til fjölgunar starfa og hlutastarfa.

Markmið 3: Tryggja heilbrigða, örugga og uppbyggilega starfsaðstöðu.
    Áhersla sé á vinnuvernd, geðheilsu á vinnustöðum og fyrirbyggjandi aðgerðir sem styðja við vellíðan starfsfólks og góða starfshætti.

Markmið 4: Efla ráðgjöf, upplýsingar og aðgengi að hæfnisþróun og endurmenntun.
    Stofna eina samræmda upplýsingagátt um vinnumarkaðsúrræði, námsleiðir og hæfnisþróun sem styður bæði atvinnuleitendur og atvinnurekendur.

Markmið 5: Styðja jákvætt samstarf á vinnumarkaði og efla sáttamiðlun.
    Styrkja vinnu ríkissáttasemjara og efla samráðsvettvang sem stuðlar að vinnufriði og uppbyggilegum samskiptum milli samningsaðila.

Markmið 6: Styðja þátttöku fólks af erlendum uppruna á vinnumarkaði.
    Auka aðgengi að íslenskunámi, ráðgjöf og upplýsingum sem styðja fólk til virkrar þátttöku og draga úr félagslegum hindrunum.

Rökstuðningur.
    Skýr markmið fyrir vinnumarkað og atvinnuþátttöku skipta miklu máli, því virkni, öryggi og gott starfsumhverfi eru undirstaða efnahagslegs og félagslegs stöðugleika og raunar velmegunar almennt.
    Með jákvæðri, uppbyggilegri og framtíðarmiðaðri nálgun getur málefnasviðið stutt við aukin tækifæri, bætt þjónustu og sterkari vinnumarkað þar sem meira er horft til hæfni, virkni og þátttöku allra hópa samfélagsins.

Áhrif á fjárheimildir.
    Ekki er lögð til aukning á fjárheimildum málaflokksins.

31 Húsnæðis- og skipulagsmál.
    Málefnasvið 31 nær til húsnæðisstuðnings, uppbyggingar íbúða, mannvirkjagerðar, hlutdeildarlána og skipulagsmála. Heildargjöld ársins 2026 nema 25,9 ma.kr., sem er 7% lækkun frá fjárlögum fyrir árið 2025. Þótt útgjöld lækki er sviðið áfram eitt af mikilvægustu stoðum samfélagsins þar sem það hefur bein áhrif á húsnæðisöryggi fólks, stöðugleika á markaði og lífsgæði heimila um allt land. 1. minni hluti telur mikilvægt að skýra markmiðin á þessu sviði þannig að þau styðji við aukið framboð, stöðugleika og einfaldara húsnæðiskerfi (fyrirkomulag) fyrir heimilin.

Gildandi markmið.
    Gildandi markmið felast í breyttu fyrirkomulagi stofnframlaga, nýju kerfi hlutdeildarlána, hertum reglum um skammtímaleigu, aukinni nýtingu ríkiseigna og samningum við sveitarfélög um lóðaframboð. Þá er mjög jákvætt markmið (aðgerð) sett fram um einfaldara regluverk og sameiningu HMS og Skipulagsstofnunar.
    Markmiðin eru málefnaleg og endurspegla jákvæða þróun. Þau taka þó ekki nægilega á heildrænum þáttum markaðarins, svo sem verðþróun, stöðugleika í fjármögnun, nýjum og óhefðbundnum fjármögnunarleiðum, aðgengi ungs fólks að íbúðum eða skilvirkni í leyfis- og byggingaferlum. Þá vantar einnig stefnumið um til að mynda samstarf ríkis og lífeyrissjóða til að stuðla að stöðugleika á fasteignamarkaði og markvissa nálgun á bæði framboð og eftirspurn.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum fyrir málefnasvið 31.
Markmið 1: Tryggja stöðugleika á húsnæðismarkaði og bæta jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar.
    Sviðið þarf að horfa til þess að húsnæðismarkaður sé sjálfbær og fyrirsjáanlegur. Styrkja þarf framboð íbúða með samræmdum aðgerðum ríkis og sveitarfélaga og kanna sérstaklega samvinnu ríkis og lífeyrissjóða um kaup eða tímabundna uppbyggingu íbúða til að bregðast við skammtímavanda á markaði og fyrirbyggja of djúpar sveiflur.

Markmið 2: Efla lánamarkað og tryggja heimilum valkost um óverðtryggð langtímalán á föstum og viðráðanlegum vöxtum.
    Stöðugur og fyrirsjáanlegur lánamarkaður með tilliti til fasteignakaupa er grundvöllur stöðugs húsnæðismarkaðar. Mikilvægt er að þróa nýjar lánaleiðir með lífeyrissjóðum og fjármálastofnunum sem verja heimili gegn verðbólgu og gera fasteignakaup fyrirsjáanlegri. Óverðtryggð lán til lengri tíma með föstum (og viðráðanlegum vöxtum) er hér grundvallaratriði en það krefst samvinnu ríkis, lífeyrissjóða og annarra hagaðila.

Markmið 3: Einfalda skipulagsferli og auka fyrirsjáanleika í byggingarmálum.
    Skipulagsferli þarf að vera skilvirkara og samhæft með stafrænum lausnum og skýrum tímamörkum. Samvinna milli sveitarfélaga og ríkis þarf að tryggja að nauðsynleg uppbygging hverju sinni geti hafist án óþarfa tafa.

Markmið 4: Nýta ríkiseignir og lóðir markvisst til að hraða íbúðaframboði.
    Lóðir, mannvirki og landsvæði í eigu ríkisins skulu nýtt í þágu hagkvæmrar íbúðauppbyggingar og vistvænna lausna.

Markmið 5: Styrkja húsnæðisöryggi með einfaldara stuðningskerfi og öruggari leigumarkaði.
    Stuðningskerfið þarf að vera gagnsætt og aðgengilegt. Markmið þurfa að tryggja að húsnæðisbætur, leigustýringar og stofnframlög styðji við varanlegt húsnæðisöryggi og dragi úr sveiflum.

Markmið 6: Efla gæði í mannvirkjagerð og réttarstöðu neytenda.
    Betra eftirlit með gæðum bygginga, samræmd (og einfölduð) byggingarreglugerð og aukin vernd neytenda tryggir að gæði íbúða endurspegli fjárfestingu heimila og stuðlar að traustum húsnæðismarkaði.

Rökstuðningur.
    Stöðugur, sanngjarn og vel skipulagður húsnæðismarkaður er ein af grunnforsendum samfélagslegrar velsældar. Með því að efla framboð, tryggja fyrirsjáanleika í fjármögnun og einfalda ferla má bæta lífsgæði heimila, styrkja stöðu ungs fólks og auka virkni markaðarins. Samstarf ríkis og lífeyrissjóða getur verið mikilvægur liður í að vinda ofan af bráðum skorti og skapa heilbrigðari verðmyndun. Betri (og fyrirsjáanlegir) lánamöguleikar og aukinn stöðugleiki draga úr áhrifum verðbólgu og bæta stöðu heimila til langs tíma.

Áhrif á fjárheimildir 2026.
    Ekki er lögð til hækkun á fjárheimildum málefnasviðsins. Þó er lagt til að hlutaðeigandi ráðherra leggi sérstaka áherslu á aðgerðir innan málefnasviðsins til að draga úr líkum á því að nýbyggingar séu haldnar göllum sem geta haft alvarleg áhrif á heilsu og fjárhag kaupenda.

32 Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála.
    Málefnasvið 32 nær til lýðheilsu, forvarna, öryggis í heilbrigðisþjónustu og stjórnsýslu á sviði heilbrigðis- og félagsmála. Sviðið gegnir lykilhlutverki í því að tryggja öflugt og virkt heilbrigðiskerfi, styðja við mannréttindi, jafnrétti og vandaða stjórnsýslu og móta þann grunn sem þjónusta ríkisins hvílir á.
    Heildargjöld málefnasviðsins árið 2026 nema 12.973,8 m.kr., sem er lítil lækkun á föstu verðlagi (0,2%) og 3,6% hækkun þegar tekið er tillit til launa- og verðlagsbreytinga. Slíkt umfang gerir kröfu um skýra og markvissa forgangsröðun og að fjárheimildir styðji við gæði, öryggi og fagmennsku í stjórnsýslu og lýðheilsu.

Gildandi markmið.
    Gildandi markmið á málefnasviðinu eru sett fyrir fjóra málaflokka: lýðheilsu, forvarnir og eftirlit, jafnréttismál, stjórnsýslu og heilbrigðismál og stjórnsýslu félagsmála. Markmiðin sem fram koma í fjárlagafrumvarpinu eru að mörgu leyti málefnaleg og endurspegla mikilvægar áherslur stjórnvalda um forvarnir, öryggi sjúklinga og starfsmanna, stafræna þróun, jafnrétti, mannréttindi og faglega stjórnsýslu.
    Þrátt fyrir þetta er heildarmyndin nokkuð brotakennd. Markmiðin vantar oft breiðari stefnumið um gæði þjónustu, aðgengi, gagnsæi, þjónustustýringu og samhæfingu milli kerfa. 1. minni hluti telur að tækifæri séu til að efla markmiðasetningu með því að leggja meiri áherslu á samspil lýðheilsu, heilbrigðisöryggis, jafnréttis og félagslegrar velferðar.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum fyrir málefnasvið 32.
Markmið 1: Efla lýðheilsu með markvissum forvörnum og heilsueflingu allra þjóðfélagshópa.
    Lýðheilsa er grunnur að sterkri heilbrigðisþjónustu. Auka þarf áherslu á heilsueflingu, forvarnir gegn langvinnum sjúkdómum og snemmtæka íhlutun, m.a. með átaksverkefnum gegn offitu og nikótínnotkun barna og ungmenna.

Markmið 2: Tryggja öryggi sjúklinga og styrkja gæði í heilbrigðisþjónustu.
    Innleiða þarf skýrar reglur um innra eftirlit, gæðaskrár og stöðugt mat á verklagi heilbrigðisstofnana. Öryggi og gæði eru grundvallarforsendur traustrar þjónustu.

Markmið 3: Efla stafræna þjónustu og tryggja samræmd rafræn kerfi í heilbrigðis- og félagsþjónustu.
    Samræmd rafræn sjúkraskrá og pappírslaus stjórnsýsla eru lykilatriði í skilvirkni og öryggi. Auka (og bæta) þarf stafræna innviði (m.a. í ljósi þróunar gervigreindar) og aðgengi að upplýsingum fyrir almenning og fagfólk.

Markmið 4: Styrkja jafnrétti og mannréttindi með markvissum aðgerðum.
    Lög um jafnlaunakerfi, forvarnir gegn kynbundnu ofbeldi og réttindi hinsegin fólks kalla á skýra innleiðingu, eftirlit og samhæfingu. Jafnrétti er forsenda virkrar þátttöku allra í samfélaginu.

Markmið 5: Auka skilvirkni og gagnsæi í stjórnsýslu heilbrigðis- og félagsmála.
    Tryggja þarf að stjórnsýsla sé einföld, gagnsæ og skilvirk og að samspil ráðuneyta, stofnana og sveitarfélaga sé skýrt á sviði velferðarmála. Með því má stytta afgreiðslutíma, minnka flækjustig fyrir notendur og styrkja þjónustustýringu.
    Jafnframt er mikilvægt að hafa í huga að velferðarmál í víðum skilningi verða sífellt flóknari og umfangsmeiri m.a. í ljósi öldrunar þjóðarinnar og annarra þjóðfélagsbreytinga. Slíkt kallar á stöðugar endurbætur á skipulagi stjórnsýslu velferðarmála og samvinnu hlutaðeigandi hagaðila.
    Loks er rétt að benda á að engin markmið eru sett fram um stjórnsýslu félagsmála í málaflokki 32.30. Æskilegt er að markmið séu sett í málaflokknum, enda stjórnsýsla félagsmála verulega flókin og krefjandi og í nánum tengslum við stjórnsýslu heilbrigðismála. Samspil þessara tveggja málaflokka þarf að vera skýrt.

Rökstuðningur.
    Málefnasvið 32 gegnir mikilvægu hlutverki í því að tryggja heildstæða og áreiðanlega þjónustu innan heilbrigðis- og félagsmálakerfisins. Lýðheilsa, jafnrétti, mannréttindi, öryggi og fagleg stjórnsýsla eru grunnstoðir samfélagslegrar velferðar, en krefjast stöðugrar þróunar og skýrra markmiða.
    Með því að efla markmiðasetningu á sviðinu og leggja áherslu á forvarnir, stafræna þjónustu, öryggi og skilvirkni má tryggja að fjárheimildir, sem hækka lítillega á milli ára, skili sér í áþreifanlegum umbótum og betri þjónustu fyrir almenning.

Áhrif á fjárheimildir 2026.
    Ekki er lögð til hækkun á fjárheimildum málefnasviðsins.

33 Fjármagnskostnaður, ábyrgðir og lífeyrisskuldbindingar.
    Málefnasvið 33 tekur til starfsemi sem hefur veruleg áhrif á stöðugleika ríkisfjármála og traust á opinberum rekstri. Í ljósi verulegs vaxtakostnaðar ríkisins er því grundvallaratriði að vel sé hugað að markmiðum og áherslum málefnasviðsins.
    Undir sviðið falla fjármagnskostnaður, ríkisábyrgðir og lífeyrisskuldbindingar ríkisins. Heildargjöld málefnasviðsins árið 2026 eru áætluð 206.398,2 m.kr., sem er hækkun um 25.625,4 m.kr. frá fjárlögum fyrir árið 2025, eða 14,2%. Hækkunin skýrist einkum af uppgjöri ÍL-sjóðs, hærri vaxtagjöldum og áframhaldandi innborgunum inn á lífeyrisskuldbindingar.
    Þessi þróun undirstrikar mikilvægi þess að markmið fyrir sviðið séu skýr, almenn og framtíðarmiðuð, þannig að þau nýtist Alþingi og stjórnvöldum til að tryggja sjálfbærni, fyrirsjáanleika og ábyrga skuldastýringu ríkissjóðs.
    Þá er mikilvægt að hafa í huga að ef umfjöllun á málefnasviði 33 á að vera trúverðug og gagnleg þá þarf skýra og beina tengingu við þróun skuldastöðu ríkisins. Án slíkrar tengingar verður markmiðasetning sviðsins of tæknileg og laus við samhengi, sérstaklega þar sem þetta svið er það sem mótar afleiðingar allra annarra sviða fjárlaga. 1. minni hluti mælist til þess að svo verði gert í næsta fjárlagafrumvarpi.
    Slíkt fæli í sér m.a. að setja skuldastöðu ríkisins í samhengi við fjármagnskostnað, enda er fjármagnskostnaður (125,4 ma.kr.) bein afleiðing uppsafnaðra skulda ríkisins, sem eru að nálgast hátt hlutfall af landsframleiðslu og hafa hækkað ár frá ári vegna verðbólgu og verðtryggingar, hærri vaxta, umfangsmikilla skuldsettra verkefna síðustu ára, m.a. vegna Covid-aðgerða og náttúruhamfara. Fjármagnskostnaður verður ekki lækkaður að neinu marki með aðgerðum innan árs, heldur með því að skuldahlutfall þróist í sjálfbæra átt til lengri tíma. Þessu til viðbótar er raunaukning útgjalda samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2025 og frumvarpi til fjárlaga 2026 um 80 ma.kr. Slík aukning sýnir vel að markmið um stöðugleika í þróun ríkisfjármála eru nokkuð fjarri, enn sem komið er.
    Jafnframt er æskilegt að vandaðri umfjöllun sé um lífeyrisskuldbindingar hverju sinni, sem eru óbeinn hluti skuldastöðu ríkisins og geta aukið greiðslubyrði ríkisins verulega. Að draga úr ófjármögnuðum lífeyrisskuldbindingum er því lykilatriði og mikilvægur hluti skuldastýringar ríkisins.

Gildandi markmið.
    Rétt er að taka fram að fyrirliggjandi (gildandi) markmið fjárlagafrumvarpsins á málefnasviðinu eru málefnaleg og snúa einkum að hagstæðri fjármögnun, áhættustýringu og lágmörkun ríkisábyrgða. Horfa verður á markmið málefnasviðsins í samhengi við fyrirliggjandi fjármálastefnu 2026–2030, sem fram kom sl. vor, og gildandi fjármálaáætlun fyrir sama tímabil.
    Markmið málefnasviðsins bera þess einkum merki að þau skorti tengingu við heildarstefnu um þróun skulda ríkissjóðs til lengri tíma og samspil fjármagnskostnaðar, ábyrgða og lífeyrisskuldbindinga. Samkvæmt 4. gr. laga um opinber fjármál ber að greina frá þróun skulda til eigi skemmri tíma en fimm ára og vel færi á því að tengja saman slíka umfjöllun við þróun fjármagnskostnaðar ríkisins.
    Markmiðin skortir jafnframt fremur almennar og leiðbeinandi áherslur um hvernig aðgerðir á sviðinu geta stuðlað að stöðugleika í ríkisfjármálum, bættum lánskjörum, auknu gagnsæi og minni áhættu fyrir framtíðina.

34 Almennur varasjóður og sértækar fjárráðstafanir.
    Málefnasvið 34 sem nær til almenns varasjóðs, sértækra fjárráðstafana og afskrifta skattkrafna er einn af burðarásum stöðugra ríkisfjármála. Varasjóðurinn er ekki eingöngu bókhaldsleg stærð heldur lykilöryggisventill fjárlaga, sem gerir ríkinu kleift að takast á við ófyrirséð útgjöld án þess að raska nauðsynlegri þjónustu eða kalla fram bráðar viðbótarfjárveitingar innan ársins. Sterkur varasjóður er því forsenda stöðugleika en ekki tækifæri til að ná í viðbótarfjármagn í óþarfa verkefni eða umdeildar aðgerðir.
    Ísland er land þar sem óvæntir atburðir eru tíðari en víða annars staðar; náttúruvá, sveiflur í ferðaþjónustu og tekjugrunni hennar, alþjóðleg óvissa og miklar og reglulegar verðlagsbreytingar geta kallað fram afar neikvæð hagræn áhrif.
    Fyrsti minni hluti telur því að það sé ekki heppilegt og raunar óábyrgt að draga almennan varasjóð niður í lágmarksviðmið, eða 1% af heildarfjárheimildum.
    Að mati 1. minni hluta er eðlilegt og skynsamlegt að miða við að almennur varasjóður verði 1,5% af heildarútgjöldum. Almennur varasjóður er ekki aðeins tæki til að bregðast við óvæntum útgjöldum, heldur hluti af ábyrgri fjármálastjórn. Það er óábyrgt að lækka varasjóðinn niður í 1% lágmark þegar jafn mikil óvissa ríkir um þróun efnahagsmála. Í því ljósi væri eðlilegra að auka umfang almenns varasjóðs til að stjórnvöld hefðu borð fyrir báru ef óvænt áföll verða á árinu 2026 en áföll hafa verið regla frekar en undantekning síðustu ár. Eðlilegt er að lækka varasjóð þegar hagvaxtarhorfur eru jákvæðar og stöðugleiki í efnahagslífi sem er ekki raunin nú. Síðast en ekki síst er rétt að hafa í huga að almennur varasjóður er nú lækkaður í lágmarksgildi einungis þar sem ekki er pólitískur vilji hjá ríkisstjórninni til að skera niður önnur útgjöld.

35 Alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands.
    Málefnasvið 35 tekur til þeirrar starfsemi sem mótar framlög Íslands til alþjóðlegrar þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoðar. Fjárheimildir ársins 2026 nema 16,37 ma.kr., sem er hækkun um 9,1% frá fjárlögum fyrir árið 2025.
    Gildandi markmið fela í sér áframhaldandi þátttöku Íslands í verkefnum sem efla grunnstoðir samfélaga, styrkja mannréttindi og jafnrétti, draga úr fátækt og styðja við uppbyggingu innviða. Einnig er áhersla á stuðning við sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda og aðgerðir gegn loftslagsvá, þar sem sérþekking Íslands á sviði endurnýjanlegrar orku og sjálfbærni skilar miklu. Markmiðin eru á margan hátt skýr og vel ígrunduð, en mætti efla með því að draga fram breiðari sýn á sjálfbærni og samhæfingu við heildarstefnu Íslands í loftslags- og öryggismálum.

Dæmi um tillögur að nýjum markmiðum fyrir málefnasvið 35.
Markmið 1: Styðja við sjálfbæra þróun og aðgerðir gegn loftslagsvá með sérþekkingu Íslands.
    Fyrsti minni hluti leggur til að sérstök áhersla verði lögð á það að Ísland nýti þekkingu sína á endurnýjanlegri orku, sjálfbærri nýtingu auðlinda og vistvænni tækni til að bregðast við loftslagsvá og styðja við samfélög sem standa frammi fyrir loftslagsáhrifum. Sjálfbærni á að vera leiðarstef í öllum verkefnum.

Markmið 2: Tryggja áfram áhrifaríka og gagnsæja þróunarsamvinnu.
    Áhersla verði á að fjármunir nýtist markvisst, að mat á árangri sé reglubundið og að samstarf við alþjóðastofnanir og félagasamtök sé byggt á traustum og faglegum grunni.

Markmið 3: Efla sveigjanleika og viðbragðsgetu mannúðarstarfs.
    Heimsáföll, stríð og náttúruvá kalla á skjótar og samhæfðar aðgerðir. Markmið þarf að tryggja að Ísland geti brugðist hratt við þar sem þörfin er brýnust að teknu tilliti til mannafla og þess fjármagns sem til staðar er.

Markmið 4: Dýpka sérstöðu Íslands í jafnrétti, mannréttindum og þekkingaruppbyggingu.
    Ísland á sterka rödd á sviði mannréttinda og jafnréttis. Markmið skulu tryggja áframhaldandi forystu og sýnileika á alþjóðavettvangi.

Áhrif á fjárheimildir 2026.
    Ekki er lögð til aukning fjárheimilda.

Tillaga um afgreiðslu.
    Fyrsti minni hluti leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir og gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.

Alþingi, 1. desember 2025.

Stefán Vagn Stefánsson.